Morgunblaðið - 23.09.2021, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 23.09.2021, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2021 ALVÖRU VERKFÆRI 190 EITTRAFHLÖÐUKERFI YFIR VERKFÆRI VERKFÆRASALAN • SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • TRYGGVABRAUT 24, AKUREYRI • S: 560 8888 • vfs.is vfs.is Guðni Einarsson gudni@mbl.is Hilmar Páll Jóhannesson og Inga Lóa Guðjónsdóttir hjá Loftkast- alanum ehf. hafa tekist á við Reykja- víkurborg í hátt á þriðja ár vegna skipulags á lóð fyrirtækisins í Gufu- nesi. Loftkastalinn keypti þar tvö hús, sem eru þrjú fasteignanúmer, og 1.800 fermetra lóð af borginni ásamt byggingarrétti í janúar 2018. Eign- irnar tilheyrðu áður Áburðarverk- smiðjunni. Þar ætlar Loftkastalinn ehf. m.a. að smíða leikmyndir og endurvinna frauðplast. Byggja á við húsin svo þau rúmi starfsemina. Ein af forsendum kaupanna var að gólf væntanlegrar viðbyggingar og lóðin væru sem mest á jafnsléttu og gólfin í svipaðri hæð og er í gömlu húsunum. Það er til að auðvelt sé að renna t.d. stórum leikmyndum á milli húsa. Eftir að kaupin voru frágengin var ákveðið að skipta lóðinni í tvennt og eigendum sagt að það hefði engin áhrif á neitt hjá þeim. Síðar kom í ljós að hækka átti baklóðina um 60 sentimetra. Þau í Loftkastalanum geta ekki sætt sig við þessa hækkun og segja að hún hafi aldrei verið nefnd í kynningum sem þau fengu. Hilmar telur að mistök hafi verið gerð hjá verkfræðistofu sem var fengin til að taka hæðarpunkta. Hann bendir á hurðargat á bakhlið hússins og að mælingarmaður hafi miðað við þröskuld þess sem er í eðlilegri hæð að utan yfir jörð. Þeg- ar dyrnar eru opnaðar kemur í ljós að gólfið er 35 sentimetrum lægra en þröskuldurinn. Þess vegna séu allir hæðarpunktarnir rangir. Þetta hef- ur ekki fengist leiðrétt og setur mál- ið í hnút, að mati Hilmars. Fyrirspurn um málið Loftkastalinn sendi öllum borg- arfulltrúum yfirlýsingu Orra Stein- arssonar, arkitekts hjá arkitekta- stofunni JVANTSPIJKER & PARTNERS, frá 25. ágúst 2021. Orri vann að deiliskipulagi á svæði Gufuness fyrir Reykjavíkurborg 2016-2019. Arkitektastofan fékk það hlutverk að gera deiliskipulag fyrir fyrsta áfanga kvikmyndaþorps. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í skipulags- og samgönguráði tóku málið upp og lögðu fram fyrirspurn á fundi ráðsins 1. september vegna yfirlýsingarinnar. Þeir bentu á að samkvæmt henni væri staðfest að hæðarkótar sem voru gefnir út í Gufunesi hefðu verið rangir. „Eitthvað hefur farið úrskeiðis því fyrirhugaðir hæðarkótar í landinu umhverfis lóð Loftkastalans eru ekki í samræmi við þessar rekstrar- forsendur, né eru þeir í samræmi við þá samráðsfundi eða kynningar sem haldnar voru með Loftkastalanum. Hlutaðeigandi aðilar hafa kvartað yfir þessu lengi vel og því mikilvægt að brugðist sé við þessum mistökum sem allra fyrst,“ sagði í fyrirspurn- inni. Einnig var spurt hvernig þessi mistök yrðu leiðrétt gagnvart hlut- aðeigandi. Málinu var frestað. „Við höfum ekki fengið nein við- brögð. Af gögnum málsins að dæma er ekki annað að sjá en að borgin hafi gert mistök. Þá finnst manni eðlilegt að borgin bregðist við því en sé ekki í málaferlum við viðkom- andi,“ sagði Eyþór L. Arnalds, odd- viti Sjálfstæðisflokksins í borgar- stjórn og fulltrúi í skipulags- og samgönguráði. Hann sagði það vera grundvallar- atriði að lóð sem fólk keypti væri í samræmi við forsendur kaupanna. „Við viljum að borgin veiti góða þjónustu og skili því sem skila á,“ sagði Eyþór. Hann sagði margt virð- ast vera undarlegt í þessu máli og ekki hans að rekja það allt, því málið væri komið fyrir dómstóla. „Borgin á að veita fólki þjónustu og reyna að leysa mál en í staðinn lendir hún oft í málaferlum. Það eru mörg dæmi um slíkt undanfarið, bæði í innkaupum og alls konar mál- um sem ég hef séð. Þá virðist vera valin sú leið að fara fyrir dómstóla, sem tekur stundum mörg ár og er erfitt fyrir mótaðilann. Ég tel heppi- legra að reyna að leysa málin fremur en að reka þau fyrir dómstólum.“ Málið fór fyrir úrskurðarnefnd „Þetta er mjög tæknilegt mál samkvæmt þeim skýringum sem ég hef fengið,“ sagði Pawel Bartoszek, borgarfulltrúi Viðreisnar og formað- ur skipulags- og samgönguráðs. Hann sagði lóðarhafa hafa haft ákveðnar væntingar til hönnunar að- liggjandi götu. Þær væntingar ættu sér ekki bindandi stoð í deiliskipu- lagi að mati borgarinnar og hefðu ekki reynst framkvæmanlegar vegna áveðinna hönnunarforsendna. Meðal annars þyrfti ákveðinn vatns- halli að vera á götunni svo vatnið rynni af henni. Borgin hefði lagfært hæðarkóta götunnar en ekki hefði verið hægt að koma til móts við óskir lóðarhafans að fullu. „Borgin lét reyna á þetta fyrir úr- skurðarnefnd umhverfis- og auð- lindamála í fyrra. Þá fór lóðarhafi fram á að framkvæmdir yrðu stöðv- aðar en borgin hafði betur í því máli. Það var því ekki niðurstaða úrskurð- arnefndarinnar að borgin hefði haft rangt við í málinu,“ sagði Pawel. Hann kvaðst sem formaður skipu- lags- og samgönguráðs telja að sitt hlutverk væri að gæta þess að borg- aryfirvöld færu að lögum og gættu að réttindum borgaranna. Pawel kvaðst ekki sjá að borgin hefði haft rangt við í þessu máli því fyrir lægi úrskurður um annað. Hann kvaðst reikna með að fyrir- spurninni yrði vísað til skrifstofu framkvæmda og viðhalds sem myndi taka saman svör fyrir kjörna full- trúa. Pawel sagði borgaryfirvöld ekki líta svo á að þörf væri á frekari aðgerðum í þessu máli af þeirra hálfu. Innkeyrsludyr Framan á húsinu eru innkeyrsludyr. Eigendum er gert að sækja um byggingarleyfi til að mega nota þær. Endurvinnsla Loftkastalinn getur endurunnið 1.700 m3 af frauðplasti á ári og notað í einangrandi steypueiningar. Verkstæðið Loftkastalinn smíðar leikmyndir sem oft eru stór- ar. Ætlunin er að stækka verkstæðið sem nú er allt of þröngt. Allt komið í hnút vegna hæðarkóta - Loftkastalinn í Gufunesi ósáttur við framgöngu borgarinnar - Rekja upphafið til rangra hæðar- kóta - Hafa tekist á við kerfið í á þriðja ár - Þurfa lausn til að geta haldið framkvæmdum áfram Morgunblaðið/Eggert Baráttufólk Hilmar Páll Jóhannesson og Inga Lóa Guðjónsdóttir óska þess að deilan leysist svo þau geti byggt upp í Gufunesi og farið að fást við þau verkefni sem fyrir liggja. Þau þurftu að segja upp starfsfólki því málið fór í hnút.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.