Morgunblaðið - 23.09.2021, Page 24
24 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2021
SVIÐSLJÓS
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Kremúlaði er gyllt að lit en angar
og bragðast í senn af vanillu- og
appelsínutónuðum rjómakeim.
Þessi útgáfa er okkar fyrsta út-
færsla af geymdum en ekki
gleymdum gosgerðum sem verða
fleiri í framtíðinni. Það skal tekið
fram að bannað er að þamba Kre-
múlaði,“ segir Sturlaugur Jón
Björnsson, gosgerðarmeistari hjá
Öglu gosgerð.
Í vikunni kom á markað nýr gos-
drykkur frá Öglu, Kremúlaði.
Drykkurinn sá ætti þó að kalla
fram minningar hjá mörgum enda
er þarna um að ræða svokallað
Cream Soda sem framleitt var hér
á landi um áratugaskeið.
Frumkvöðlar á Akureyri
Við leit á Tímarit.is má sjá að
Cream Soda var framleitt á Íslandi
hið minnsta á fimmta áratug síð-
ustu aldar og fram á þann áttunda.
Sennilegt má telja að um fimmtíu
ár séu liðin frá því framleiðslan
lagðist af. Akureyringar stóðu
framarlega í gosgerð á þessum
tíma og Efnagerð Akureyrar (sem
áður hét Efnagerð Siglufjarðar og
síðar Sana) framleiddi Morgan
Cream Soda sem var sérstök teg-
und af umræddum drykk. Flóra á
Akureyri framleiddi líka Cream
Soda og Ölgerðin Egill Skalla-
grímsson lét ekki sitt eftir liggja.
Mikil nostalgía
Einhver þekktasti gosáhugamað-
ur þjóðarinnar, Gunnar Lárus
Hjálmarsson, betur þekktur sem
Dr. Gunni, á einmitt minningu af
því sem ungur drengur að hafa
smakkað Morgan Cream Soda.
„Það var á Akureyri í brakandi sól.
Ásbjörn bróðir minn leyfði mér að
smakka Morgan Cream Soda sem
líklega var frá gosverksmiðjunni
Sana. Mér fannst þetta gríðarlega
gott. Ég man í gegnum þoku tím-
ans eftir miðanum á flöskunni, þrír
kallar með pípuhatta að drekka, og
svo eftir þessum gula lit sem var á
drykknum. Þannig að ég er bein-
tengdur við þessa miklu nostalgíu
sem hefur fylgt þessum drykk.“
Besti drykkurinn til þessa
Dr. Gunni fékk að smakka Kre-
múlaði í vikunni og segir að það
rími við minningu sína. „Þetta er
auðvitað önnur uppskrift en Morg-
aninn en svipað bragð. Kremúlaði
er léttara í sér og ekki alveg jafn
sætt en heldur þó öllum eig-
inleikum Cream Soda. Ég sem gos-
áhugamaður tek þessu framtaki
fagnandi og að mínu viti er þetta
besti drykkurinn frá Öglu til
þessa.“
Ætla að gjörbylta markaðnum
Sturlaugur gosgerðarmeistari er
ánægður með þær viðtökur sem
drykkir Öglu hafa fengið á fyrsta
eina og hálfa ári gosgerðarinnar.
Hann segir að salan hafi aukist
jafnt og þétt allan tímann en hafi
tekið mikinn kipp í vor þegar
appelsínudrykkurinn Óran-
sín var kynntur til leiks.
„Agla gosgerð er á
ákveðinni vegferð sem
gengur út á að gjörbylta hin-
um íslenska gosmarkaði, en
hann hefur verið sérlega
einsleitur síðustu áratugi. Á
þessari vegferð höfum við
einbeitt okkur að því að
kynna til leiks nýja gos-
drykki sem fyrst og fremst
hafa átt það sameiginlegt að
vera unnir úr hágæða ávöxt-
um og öðrum sérvöldum hrá-
efnum sem tryggt hafa fáséð
gæði. Frá upphafi hefur aukreit-
is verið á dagskrá að endurgera
gostegundir sem fallið hafa í
gleymsku í áranna rás og erum
við loks að sinna því mikilvæga
starfi nú með útgáfu Kremúlaðis.
Það er að öllum líkindum fyrsta
Cream Soda sem framleitt er hér-
lendis í hartnær hálfa öld – ef mér
skjátlast ekki.“
Gos sem minnir á gamla tíma
- Agla gosgerð sendir frá sér Kremúlaði - Ný útfærsla af Cream Soda sem framleitt var hér á síð-
ustu öld - Dr. Gunni sáttur við útkomuna - Minnir á Morgan Cream Soda sem fékkst á Akureyri
Dr. Gunni kveðst fagna því að ráðist sé í
framleiðslu á forvitnilegum gosdrykkjum.
Hann bendir þó á að endurvinnsla á gömlum
gosdrykkjum geti verið varasöm.
„Nostalgía fyrir gosi lýtur sömu lögmálum
og önnur nostalgía. Hún byggist upp á vænt-
ingum og minningum og þegar fólk fær að
upplifa það að nýju ertu búinn að skemma
það. Þess vegna fannst mér snjallt að koma
ekki með hið gamla Cream Soda heldur
nýjan drykk,“ segir Gunni. Hann rifjar upp
að margir sakni gosdrykkjarins Spur. „Er
ekki viss um að þeim þætti hann góður í
dag.“
Ljósmynd/Hari
Minning Morgan Cream Soda fékkst lengi. Þessi
miði er úr safni Þórs Jóhannssonar á Siglufirði.
Skál Dr. Gunni og gosgerðarmeistarinn Sturlaugur Jón Björnsson smökkuðu Kremúlaði í Öglu gosgerð í vikunni.
Fornbókaverðslunin Bókin heldur
uppboð á mörgum merkisritum á
vefnum http://uppbod.is. Alls verða
ríflega hundrað bækur boðnar upp
að þessu sinni og má nefna rit eins og
Viðeyjarbiblíu frá 1841 í samtíma-
bandi og ýmis fágæt skákrit, svo sem
Íslenzkt skákblað, Skákblaðið, Nýja
skákblaðið, Skákritið og Í uppnámi.
Grágás, Lögbók Íslendinga, út-
gáfa frá 1883, og Unger-útgáfa
Morkinskinnu eru einnig á uppboð-
inu svo og frumútgáfa Njálu, gefin út
með konunglegu leyfi 1772.
Af öðrum ritum má nefna Grettis-
ljóð og Útilegumennina eftir Matt-
hías Jochumsson og rímnaflokka
Ara bróður hans um helztu afrek Al-
þingis 1905 og bændafundinn í
Reykjavík. Fleiri rímnabækur eru á
uppboðinu, þar á meðal Rímur af
Þorsteini Uxafæti orktar af Árna
Böðvarssyni 1755, Rímur af Flóres
og Blanzeflúr orktar af Níels Jóns-
syni skálda, rímur af Hálfdani kon-
ungi gamla og sonum hans orktar af
Hannesi Bjarnasyni presti að Ríp og
rímur af Reimari og Fal enum sterka
kveðnar af Hákoni Hákonarsyni í
Brokey. Einnig Ljóðasmámuni af
Sigurði Breiðfjörð.
Einnig eru ýmis fágæt tímarit á
uppboðinu, til að mynda Heimir, sem
prentaður var í Vesturheimi, Jóla-
blað verkakvenna, Vetrarblaðið,
Sumarblaðið, Ótrúlegt en satt og
blaðið 17. júní, sem prentað var í
Kaupmannahöfn.
Uppboð á mörg-
um merkisritum
- Rímnasöfn og eftirsótt skáktímarit
Kjósum frelsi
sante.is
Nostalgía fyrir gosi
SPUR OG FLEIRI DRYKKIR