Morgunblaðið - 23.09.2021, Page 27
FRÉTTIR 27Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2021
Áminning um
framtalsskil lögaðila
Forráðamenn lögaðila, sem enn hafa
ekki staðið skil á skattframtali 2021
ásamt ársreikningi, eru hvattir til að
annast skil hið allra fyrsta.
Skráður lögaðili skal ætíð skila
skattframtali vegna undangengins
reikningsárs, jafnvel þó að engin
eiginleg starfsemi eða rekstur hafi
átt sér stað á reikningsárinu.
Félög eiga jafnframt að skila
ársreikningi til ársreikningaskrár.
Skattframtali og ársreikningi ber
að skila rafrænt á skattur.is
Álagning opinberra gjalda á lögaðila
árið 2021 vegna rekstrarársins 2020
fer fram 29. október nk.
Lokaskiladagur
skattframtals lögaðila
er 1. október
skatturinn@skatturinn.is 442 1000
Upplýsingaver opið:
Mán.-fim. 9:00-15:30
Fös. 9:00-14:00
Skráð voru 776 hegningarlagabrot á
höfuðborgarsvæðinu í ágúst og
fækkaði þessum brotum töluvert á
milli mánaða. Þetta kemur fram í
mánaðarskýrslu lögreglustjórans á
höfuðborgarsvæðinu fyrir 2021.
Tilkynningum um þjófnaði fækk-
aði töluvert á milli mánaða sem og
tilkynningum um innbrot. Það sem
af er ári hafa borist um tíu prósent
fleiri tilkynningar um þjófnaði en
bárust að meðaltali á sama tímabili
sl. þrjú ár á undan.
Alls bárust 109 tilkynningar um
ofbeldisbrot í ágúst. Tilvikum þar
sem lögreglumaður var beittur of-
beldi fjölgaði lítillega á milli mánaða
en alls voru tilkynnt átta slík tilvik í
mánuðinum.
Tilkynningum um heimilisofbeldi
fækkaði á milli mánaða og voru alls
skráðar 54 tilkynningar í ágúst. Það
sem af er ári hafa hins vegar borist
um 14% fleiri tilkynningar sam-
anborið við meðalfjölda sama tíma-
bils síðustu þrjú ár á undan.
Tilkynningum um eignaspjöll
fjölgaði örlítið á milli mánaða en alls
voru 149 tilkynningar skráðar í
ágúst. Skráðar voru 19 tilkynningar
um nytjastuld á vélknúnum ökutækj-
um í ágúst og fækkaði þessum til-
kynningum töluvert á milli mánaða.
Meira of-
beldi og
þjófnaðir
- Færri hegning-
arlagabrot í ágúst
Morgunblaðið/Ómar
Afbrot Lögreglan hefur jafnan nóg
við að vera alla daga ársins.
Útgáfurétturinn á nýrri skáldsögu
Bergsveins Birgissonar, Kolbeins-
ey, sem væntanleg er hjá Bjarti í
byrjun nóvember, hefur þegar ver-
ið seldur til þriggja landa.
Forlögin Vigmostad & Björke í
Noregi, Oevers í Hollandi og Gyld-
endal, elsta og stærsta bókaforlag
Danmerkur, hafa tryggt sér út-
gáfuréttinn. Auk þess standa samn-
ingaviðræður við útgefendur víða
um heim nú yfir að sögn Péturs Más
Ólafssonar, útgefanda hjá Bjarti.
Sagan kemur út samtímis í Noregi
og á Íslandi. Í Kolbeinsey segir af
manni nokkrum sem ákveður að
heimsækja æskuvin sinn, sem hefur
verið lagður inn á geðdeild sökum
þunglyndis. Þeir ná vel saman, en
hjúkrunarkona sem annast vininn
tekur heimsóknunum illa og reynir
að stía þeim í sundur. Maðurinn er
settur í heimsóknarbann og því
skipuleggja þeir strok af spít-
alanum og leggja á flótta. Strokinu
er illa tekið, hjúkrunarkonan kem-
ur æðandi á eftir þeim og í kjölfarið
hefst æsilegur eltingarleikur um
landið þvert og endilangt. Haft er
eftir Niels Beidir, aðalritstjóra
Gyldendal, í tilkynningu að Kol-
beinsey sé „lifandi, hrífandi –
óstjórnlega skemmtileg, heillandi
vegasaga sem vekur mann til um-
hugsunar.
Ég las hana í einum rykk. Sann-
kallaður síðuflettir með stöðugar
vendingar sem eru gjörsamlega
ófyrirsjáanlegar. Við erum ekki í
nokkrum vafa um að Bergsveinn
Birgisson á heima hjá Gyldendal.“
hdm@mbl.is
Kemur út í fjórum löndum
Ljósmynd/S.Ó.T.
Vinsældir Væntanleg bók Bergsveins Birgissonar vekur forvitni margra.
- Ný bók Bergsveins Birgissonar vekur mikla athygli
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis-
ráðherra hefur staðfest nýgerðan
rammasamning Sjúkratrygginga Ís-
lands við ljósmæður vegna fæðinga
og umönnunar sængurkvenna í
heimahúsum.
Helsta nýmæli samningsins felst í
aukinni þjónustu við mæður sem
þurfa ráðgjöf vegna brjóstagjafar.
Ráðherra hefur jafnframt samþykkt
aðgerðaáætlun til ársins 2030 sem
miðar að því að bæta barneignaþjón-
ustu, jafnt á meðgöngutíma, við fæð-
ingu barns og í kjölfar fæðingar,
segir í tilkynningu frá ráðuneytinu.
Árið 2020 fjölgaði konum sem
nutu aðstoðar við heimafæðingu um
40% frá fyrra ári.
Samið vegna
fæðinga í
heimahúsum