Morgunblaðið - 23.09.2021, Page 40

Morgunblaðið - 23.09.2021, Page 40
40 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. SEPTEMBER 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Eftir tvo daga göngum við til alþing- iskosninga, til þess að velja fulltrúa þjóðarinnar á lög- gjafarsamkunduna og til þess að hlutast til um stjórnarstefnuna næstu fjögur árin. Að venju skiptir miklu að vanda valið, en að þessu sinni er vandinn ekki minni vegna þess fordæmalausa fjölda framboða, sem í boði er, og erfitt getur verið að glöggva sig á. Fjölmiðlar í lýðræðisþjóð- félagi gegna margvíslegu og mikilvægu hlutverki. Þar á með- al er að vera vettvangur þjóð- málaumræðu og skoðanaskipta, líkt og lesendur Morgunblaðsins þekkja vel. Á síðum blaðsins birtast í viku hverri tugir greina um hin margvíslegu viðfangsefni samtímans. Morgunblaðið hefur um langt skeið lagt mikið upp úr því að þar hafi öll sjónarmið sið- aðrar umræðu rými og það hefur forystufólk í stjórnmálum not- fært sér, lesendum og kjós- endum til glöggvunar. Það er þó ekki nóg að stjórn- málamenn geti kynnt hugmyndir sínar og skipst á skoðunum. Það er einnig hlutverk fjölmiðla að rýna í orð þeirra og gerðir, segja fréttir af vettvangi stjórnmál- anna, leita viðbragða og lýsa skoðun á þeim í ritstjórnar- greinum sem þessum. Allt er það liður í hinu flókna gangverki lýð- ræðisins, hluti af hinu sérstaka hlutverki fjölmiðla, sem gerir þá ómissandi í heilbrigðu lýðræð- isþjóðfélagi. Það þarf að segja frá því hvað stjórnmálamenn og stjórnvöld aðhafast og áforma, en það er enn eitt hlutverk fjölmiðla að halda þeim við efnið, veita þeim aðhald og taka ekki öllu sem gefnum hlut, heldur spyrja, stað- reyna og sannreyna. Í því felst ekki aðeins að varpa ljósi á þau málefni, sem til um- ræðu eru hverju sinni, heldur einnig stjórnmálamennina sjálfa; gefa innsýn í það fólk, sem gefur kost á sér til forystustarfa fyrir þjóðina, draga fram úr hverju það er gert, svo almenn- ingur geti betur lagt mat á það. Því eins og dæmin sanna, þá geta mannkostir skipt ekki minna máli en stjórnmálaafstaða þegar á reynir. Þetta vita flestir, bæði stjórn- málamenn og almenningur, og þess vegna eru velflestir stjórn- málamenn fúsir að ræða við fjöl- miðla. Ekki aðeins til þess að kynna sjálfa sig og viðhorf til að- skiljanlegra mála, heldur vegna þess að þeir vita að það er ekki síst um fjölmiðla, sem þeir standa umbjóðendum sínum reikningsskil. Þar duga engin undanbrögð eða fagurgali, al- menningur sér í gegnum það allt á augabragði. Allt snýr þetta að upplýsingu almenn- ings og hana kapp- kosta Morgunblaðið og aðrir miðlar Ár- vakurs, mbl.is og K100, að veita. Vegna þess að það er nauðsynlegt í hverju lýðræð- isþjóðfélagi og vegna þess að les- endur, hlustendur og áhorfendur hafa mikinn áhuga og þörf á. Það var með það í huga sem Árvakur réðst í dagskrárgerð Dagmála, sem opin er áskrif- endum í streymi á netinu. Nú í aðdraganda kosninga var bætt vel í, en vegna hins lýðræðislega hlutverks og til kynningar á þjónustu blaðsins hefur hún ver- ið öllum opin á netinu. Það var gert með sérstökum málefnaþáttum, þar sem öll helstu kosningamál voru reifuð með frambjóðendum velflestra flokka, en einnig með röð ítar- legra formannaviðtala, þar sem formenn allra helstu framboða komu til fundar við blaðamenn Morgunblaðsins, sem spurðu þá út í bæði stefnumál og stjórn- málaviðhorfið, bæði „góðu mál- in“ og þessi erfiðari. Hápunkti náði þessi dagskrá Dagmála með formannakappræðum, sem fóru í loftið í gær, en vegna fjölda framboða voru þær hafðar í tvennu lagi. Í formannakappræðunum náðist vel að draga fram bæði helstu mál og forystufólkið. Þar var ekki aðeins spurt um helstu mál kosningabaráttunnar, held- ur einnig þau mál sem einstök framboð leggja mesta áherslu á. Það var gert á gagnrýninn hátt og af svörunum mátti margt ráða. Og það var líka spurt um hvernig stjórnmálamennirnir hefðu staðið sig, bæði á vett- vangi stjórnmálanna og í fyrri störfum, einmitt til þess að ganga úr skugga um trúverð- ugleika þeirra. Það var líka lær- dómsríkt. Þessir þættir Dagmála hafa hlotið gríðarlega góðar viðtökur, sem bæði lýsir sér í aðsókn- artölum, og viðbrögðum jafnt þátttakenda og almennings, sem hafa sent blaðinu hrós, ham- ingjuóskir og hvatningu um meira af svo góðu. Þar hafa margir haft á orði, að miklu skipti að stjórnmálin séu rædd af yfirvegun og góður tími gefinn til þess. Því það er mikið í húfi og það skiptir miklu máli hverjir stjórna, hvernig þeir vilja stjórna og hvernig þeir geta náð málamiðlun um stjórn landsins. Í því fjölflokkalandslagi, sem nú blasir við, mun mikið reyna á það og það mátti mikið lesa úr frammistöðu leiðtoganna um hverjir eru líklegastir til þess að geta það, landi og þjóð til heilla. Því það er kjarni málsins og hann er dreginn fram í Dag- málum Morgunblaðsins. Í Dagmálum Morgunblaðsins hafa meginatriði kosningabarátt- unnar verið dregin fram} Kjarni málsins R íkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur er sérstök í sögulegu samhengi. Hún samanstendur af flokkum sem þvera hið pólitíska svið, frá vinstri til hægri, sem voru sam- mála um að byggja þyrfti upp velferðarkerfið og gera umbætur á mörgum sviðum sam- félagsins. Vinstrihreyfingin – grænt framboð lagði áherslu á að verkefni sem endurspegluðu grunnstoðirnar í stefnu VG enduðu í stjórnar- sáttmála og þingmenn og ráðherrar VG hafa á kjörtímabilinu unnið hörðum höndum að því að koma verkefnunum til framkvæmda. Af hálfu VG hefur á kjörtímabilinu verið lögð áhersla á umhverfisvernd, kvenfrelsi, al- þjóðlega friðarhyggju og félagslegt réttlæti og aðgerðir sem eru til þess fallnar að auka jöfn- uð í samfélaginu. Það voru Vinstri-græn sem settu þau málefni á oddinn og komu verkefnum þeim tengdum til framkvæmda. VG lagði áherslu á það að auka jöfnuð. Greiðsluþátttaka sjúklinga fyrir heilbrigðisþjónustu hefur verið lækkuð verulega og nú er hún sambærileg því sem best gerist annars staðar á Norðurlöndunum, komugjöld á heilsu- gæslu voru lækkuð umtalsvert og felld niður fyrir aldraða og öryrkja, auk þess sem heilsugæslan hefur verið efld sem fyrsti viðkomustaður í heilbrigðiskerfinu, með aukn- ingu fjárframlaga um 25%. Allt eru þetta breytingar sem stuðla að auknu aðgengi allra að heilbrigðisþjónustu VG lagði áherslu á jafnréttismál á kjörtímabilinu. Ný löggjöf um þungunarrof, sem ég lagði fram á Alþingi, var samþykkt, en lögin tryggja sjálfs- forræði og sjálfsákvörðunarrétt kvenna yfir eigin líkama. Réttur til að skilgreina eigið kyn hefur verið tryggður með nýjum lögum um kynrænt sjálfræði og fæðingarorlof var lengt úr níu mánuðum í heilt ár. Svo nokkur dæmi séu tekin. VG setti umhverfismál á oddinn. Stórátak var gert í friðlýsingum svæða, fyrsta fjármagn- aða aðgerðaáætlunin gegn loftslagsvánni var unnin og loftslagsráð og loftslagssjóður stofn- uð. Innleiðing hringrásarhagkerfisins hófst af krafti, m.a. með breytingum á lögum um úr- gangsmál, og hringrásarhagkerfi sett af stað. VG settu umbætur í húsnæðismálum á dag- skrá. Í tengslum við lífskjarasamningana tryggðum við stofnframlög til byggingar á 1.800 almennum íbúðum á árunum 2020-2022, sem gera 600 íbúðir á ári. Við komum á nýjum hlutdeildarlánum til að auðvelda tekju- og eignalitlum einstaklingum að eign- ast sína fyrstu íbúð. Í ár og á því næsta má áætla að um þriðjungur af öllu nýju íbúðarhúsnæði verði til í tengslum við félagslegar húsnæðisaðgerðir hins opinbera, almennar íbúðir og hlutdeildarlán. Verkefnunum er ekki lokið og VG vilja halda áfram að vinna að umbótum í þágu samfélagsins alls. Það skiptir máli að VG sé í ríkisstjórn. Það skiptir máli að kjósa VG. Svandís Svavarsdóttir Pistill Þess vegna VG! Höfundur er heilbrigðisráðherra. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Ómar Friðriksson omfr@mbl.is A lls sættu 2.655 ein- staklingar og tólf fyrir- tæki ákæru vegna ýmissa brota á seinasta ári. Karl- ar sem ákærðir voru eru í miklum meirihluta eða alls 2.168 en 475 kon- ur sættu ákæru á árinu. Þessar upp- lýsingar koma fram í nýbirtri árs- skýrslu Ríkissaksóknara fyrir árið 2020. Heildarfjöldi mála sem komu til meðferðar hjá ákæruvaldinu í fyrra og voru afgreidd var 9.132. Þetta er nokkur fækkun frá árinu á undan eða um 5,1% en á árinu 2019 jókst málafjöldinn um 40% á milli ára. Af afgreiddum brotamálum á landinu öllu voru alls 126 vegna skjalafals eða brota sem varða sýni- leg sönnunargögn og 86 vegna brota gegn valdstjórninni en í því tilviki var ákært í 56% mála en 29 voru felld niður. 1.193 mál varða auðg- unarbrot, 11 eru vegna brota í opin- beru starfi, 325 kynferðisbrotamál voru afgreidd og var ákært í 130 þeirra, 22 mál voru vegna brota gegn frjálsræði manna og 29 varða rangan framburð og rangar sakar- giftir. Þá kemur fram að 880 mál varða brot á fíkniefnalöggjöfinni, 181 mál var vegna brota á vopnalög- um og 1.501 vegna aksturs undir áhrifum fíkniefna svo dæmi séu tek- in. Afgreiddum málum hjá lög- reglustjóranum á höfuðborgarsvæð- inu fjölgaði úr 5.692 á árinu 2019 í 5.856 á seinasta ári. Einnig varð fjölgun mála hjá héraðssaksóknara og sérstökum saksóknara eða úr 1.124 málum á árinu 2019 í 1.153 mál í fyrra. Ákærur hjá því embætti í fyrra voru alls 740. Fjölmennustu aldurshóparnir sem sættu ákæru í fyrra voru á þrí- tugs- og fertugsaldri. 241 ein- staklingur á aldrinum 13 til 19 ára sætti ákæru á árinu og 121 var orð- inn 60 ára eða eldri. Ríkissaksóknari birtir einnig ríkisfang þeirra ein- staklinga em sættu ákæru í fyrra sem voru frá alls 66 löndum. Voru 1.990 Íslendingar ákærðir en næstir komu Pólverjar (218), Litháar (117), Rúmenar (53), Lettar (34) og Alb- anir (26). Fram kemur í ársskýrsl- unni að heimsfaraldur kórónuveir- unnar hafði áhrif á meðferð sakamála á öllum stigum á árinu 2020, þ.e. hjá lögreglu, ákæruvaldi og dómstólum. „Bæði vegna sótt- varnaaðgerða sem snúa að starfs- mönnum réttarvörslukerfisins og vinnuumhverfinu og svo sóttvarna- reglna sem höfðu áhrif á það t.d. hvort hægt var að fá fólk til skýrslu- töku og hvort það væri framkvæm- anlegt m.t.t. sóttvarnareglna. Einna mestur dráttur varð á meðferð mála fyrir dómstólum og voru því mörg sakamál óafgreidd þar um áramót- in.“ Alls voru 108 einstaklingar úr- skurðaðir í gæsluvarðhald á seinasta ári. Þá má sjá að um seinustu ára- mót höfðu lögreglustjórar sent út sektarboð á árinu vegna 45.797 um- ferðarlagabrota. 2.655 einstaklingar sættu ákæru í fyrra Fjöldi mála 2015-2020 Afdrif mála árið 2020 Fjöldi mála eftir embættum 2020 Lögreglustjórar Höfuðborgarsvæðið Vesturland Vestfirðir Norðurland vestra Norðurland eystra Austurland Suðurland Vestmannaeyjar Suðurnes Héraðssaksóknari Samtals Fjöldi mála 5.856 155 55 225 504 126 281 75 702 1.153 9.132 Fjöldi ákærðra eftir aldri 2020 Fjöldi eftir ríkisfangi (8 helstu) Fjöldi ákærðra árið 2020 Ísland 1.990 Pólland 218 Litháen 117 Rúmenía 53 Lettland 34 Rúmenía 28 Albanía 26 Georgía 15 Mál hjá ríkissaksóknara 10.000 8.000 6.000 4.000 2015 2016 2017 2018 2019 2020 500 400 300 200 100 0 20-24 ára 25-29 ára 30-34 ára 35-39 ára Fjöldi úrskurða 119 Fjöldi einstaklinga 108 Ákærur Fallið frá saksókn Niðurfelld Ákærufrestun 443 17%371 14% 403 15% 346 13% 12 fyrirtæki 2.643 einstaklingar Karl 82% Kona 18% 2.784 Heimild: Ársskýrsla ríkissak- sóknara 2020 Gæsluvarðhaldsúrskurðir Dagar í gæslu 10.362 5.111 6.777 6.265 6.872 9.626 9.132 11%Ákærur í 7.631máli af 9.132, eða 84% 5%

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.