Morgunblaðið - 24.09.2021, Side 14

Morgunblaðið - 24.09.2021, Side 14
14 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2021 Brunahætta í gömlum kirkjum - Minjastofnun og Mannvirkjastofnun gáfu út leiðbeiningar um brunavarnir í friðlýstum kirkjum - Gera á viðbragðsáætlanir vegna gömlu kirknanna - Friðlýstar kirkjur á þriðja hundrað talsins Morgunblaðið/ÞÖK Krýsuvíkurkirkja Kveikt var í kirkjunni 2010 en ný byggð í hennar stað. Miðgarðakirkja Kirkjan í Grímsey var mjög falleg en er nú brunnin. Morgunblaðið/Myndasafn Heydalir Gamla kirkjan brann til kaldra kola 1982. Þá var risin ný kirkja. Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Vallakirkja Kirkjan var endurbyggð eftir brunann 1996 og er glæsileg. Morgunblaðið/Úlfar Ágústsson Ísafjarðarkirkja Eldsvoðinn 1987 olli miklum skemmdum á kirkjunni. SVIÐSLJÓS Guðni Einarsson gudni@mbl.is Friðlýstar kirkjur á Íslandi voru 216 talsins árið 2018, samkvæmt upplýs- ingum á vef Minjastofnunar. Þar á meðal voru 208 kirkjur sem voru reistar fyrir 1918 og voru sjálfkrafa friðlýstar. Eins átta kirkjur sem menntamálaráðherra hafði friðað að tillögu Húsafriðunarnefndar. Pétur H. Ármannsson, arkitekt og sviðsstjóri hjá Minjastofnun, segir að öll hús sem eru orðin aldargömul eða meira njóti friðunar. Auk þessa er vernd á öllum kirkjum sem voru byggðar 1940 eða fyrr. Margar stein- steyptar kirkjur falla þar undir, með- al annars kirkjur sem teiknaðar voru hjá Húsameistara ríkisins. „Gömlu timburkirkjurnar hafa fengið tiltölulega góða umönnun. Það er búið að leggja mikla vinnu og fjár- muni í endurgerð á elstu timbur- kirkjunum frá 19. öld og fram að 1918. Það eru ekki margar þeirra í reiðileysi. Svo kemur tímabilið eftir 1920 þegar reistar voru margar stein- steypukirkjur. Þar held ég að ástand- ið sé miklu verra og þær hafi ekki fengið sömu athygli og elstu kirkj- urnar,“ segir Pétur. Leiðbeiningar liggja fyrir Varðandi kirkjubruna segir Pétur að Minjastofnun hafi í samvinnu við Mannvirkjastofnun samið leiðbein- ingar um brunavarnir í friðlýstum kirkjum. Þar eru ýmsar hagnýtar ábendingar til að koma í veg fyrir að eldur kvikni. M.a. er bent á að bruna- viðvörunarkerfið með reykskynjur- um sé mikilvæg brunavörn. Einnig geti verið nauðsynlegt að koma fyrir slökkvikerfi, sérstaklega þegar langt er í slökkvilið. Nýverið var gefinn út leiðarvísir um gerð viðbragðsáætlunar við vá í friðlýstum kirkjum. Þar eru sóknar- nefndir hvattar til að skrá niður mikilvægustu kirkjumuni og ákveða hverju eigi að bjarga og í hvaða röð ef munir kirkjunnar lenda í hættu, t.d. vegna eldsvoða eða náttúruhamfara. Þessi skjöl er að finna á heimasíðu Minjastofnunar undir gagnasafn og leiðbeiningarit. „Það þyrfti líka að gera úttekt á ástandi raflagna í öllum gömlum kirkjum. Það er allur gangur á því hvernig ástandið er á þeim,“ segir Pétur, sem telur líkur benda til þess að rafmagn hafi valdið brunanum í kirkjunni í Grímsey í vikunni. Þrenns konar hætta algeng Hann segir hættuna á að eldur komi upp í gömlum kirkjum aðallega vera þrenns konar. „Það er rafmagnið og það er víða orðið mjög gamalt og ófullkomið. Önnur hættan er þegar iðnaðarmenn eru að vinna í kirkjum, sérstaklega málarar. Mörg efni sem þeir nota eru mjög eldfim, ekki síst línoleummáln- ing. Hún er alveg stórhættuleg. Tuskurnar sem notaðar eru til að þrífa áhöldin eftir vinnu með hana má alls ekki geyma inni í kirkjunum. Bruninn í Vallakirkju varð vegna málaravinnu,“ segir hann. Þriðja hættan sé íkveikjur, erfitt geti verið að ráða við þær. Hann segir flóttaleiðir í mörgum gömlum kirkjum ekki vera í sam- ræmi við nútímakröfur. „En það verður að segjast eins og er að ég man ekki eftir tilviki þar sem eldur kom upp í kirkju meðan á athöfn stóð eða í tengslum við athöfn. Það eru eiginlega minnstu líkurnar á því ef vel er um gengið,“ segir Pétur. Hann nefnir að mikið hafi dregið úr kertanotkun. Í leiðbeiningum er m.a. nefnt að eiginlega enginn annar en meðhjálpari eigi að kveikja á kert- um í gömlum timburkirkjum. Auk þess eru komin rafhlöðukerti sem draga mjög úr eldhættunni. Miðgarðakirkja í Grímsey brann til grunna að kvöldi þriðjudagsins 21. september sl. Tal- ið er að rekja megi eldsupptök til rafmagns. Kirkjan var byggð árið 1867 og þótti glæsi- leg. Grímseyingar vilja byggja nýja kirkju svipaða þeirri sem brann. Byrjað er að safna fé til kirkjubyggingarinnar. Hér eru rifjaðir upp helstu kirkjubrunar sem urðu síðustu hálfa öldina. Kveikt í Krýsuvíkurkirkju 2010 Krýsuvíkurkirkja brann til kaldra kola að- faranótt 2. janúar 2010. Fjögur ungmenni ját- uðu að hafa kveikt í kirkjunni. Hún var byggð úr timbri árið 1857 og notuð sem sóknarkirkja til 1910. Krýsuvíkurkirkja var aflögð sem guðshús 1917 og notuð til íbúðar frá 1929. Henni var aftur breytt í guðshús og hún færð Þjóðminjasafninu til varðveislu haustið 1964. Viðamiklar viðgerðir voru gerðar á kirkjunni árið 1986 og hún færð til upprunalegrar gerðar. Nemendur Tækniskólans endursmíðuðu nýja Krýsuvíkurkirkju og var hún sett upp í október 2020. Vallakirkja brann 1996 Vallakirkja að Völlum í Svarfaðardal brann árið 1996. Kirkjan var reist úr timbri árið 1861. Unnið hafði verið að endurbótum á kirkjunni. Verkinu var að mestu lokið og bú- ið að koma kirkjumunum fyrir þegar kvikn- aði í. Skemmdir voru svo miklar að lá við gjöreyðileggingu. Fjársöfnun hófst og var kirkjan endurbyggð og nýja kirkjan vígð árið 2000. Ísafjarðarkirkja brann 1987 Ísafjarðarkirkja stórskemmdist í eldi að- faranótt 27. júlí 1987. Ekki var talið borga sig að gera við hana. Slökkvilið kom fljótt á vettvang eftir að vart varð við eldinn snemma morguns. Þá var eldur farinn að teygja sig út úr kirkjunni. Að- aleldurinn var í viðbyggingu sem hýsti pípu- orgel og í kórnum. Flestar eigur kirkjunnar eyðilögðust eða skemmdust mikið. Það tók 24 manna slökkvilið um 90 mínútur að slökkva eldinn. Eyrarkirkja í Skutulsfirði var vígð 16. ágúst 1863. Ísafjarðarkaupstaður tók við rekstri kirkjunnar árið 1872 og hét hún Ísa- fjarðarkirkja eftir það. Ný Ísafjarðarkirkja var byggð í stað gömlu kirkjunnar og var vígð 1995. Heydalakirkja brann 1982 Gamla Heydalakirkja í Breiðdal brann til kaldra kola 17. júní 1982. Þá var búið að taka í notkun nýja kirkju sem var vígð 13. júlí 1975 og var gamla kirkjan afhelguð um leið. Miklabæjarkirkja brann 1973 Miklabæjarkirkja í Skagafirði eyðilagðist í eldsvoða 17. febrúar 1973. Margir merkir kirkjugripir eyðilögðust. Séra Sigfús Árnason sagði Morgunblaðinu að kveikt hefði verið upp í kolaofni í kirkj- unni því von var á börnum til spurninga þennan dag. Um klukkan 12.30 varð eldsins vart og brann kirkjan til kaldra kola án þess að neinu væri hægt að bjarga. Kirkjan var byggð 1894. Þegar bruninn varð var bygging nýrrar kirkju að Miklabæ vel á veg komin og og var hún vígð síðar á árinu 1973. Helstu kirkjubrunar síðustu 50 árin

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.