Morgunblaðið - 24.09.2021, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 24.09.2021, Blaðsíða 24
24 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2021 Sérstök staða Ís- lands í réttindamálum foreldra til fæðingar- orlofs hefur farið sí- batnandi í áranna rás og nú síðast á þessu ári. Ef litið er til sögunnar þá hefur þróunin verið hæg. Þörf kvenna hér áður fyrir fæðingar orlof var hávær og aðkallandi þegar konur fjölmenntu út á vinnu- markaðinn á árunum 1970-1980. Fyrsta fæðingarorlofið var veitt til 3ja mánaða en í tíð Ragnhildar Helgadóttur aþingismanns og ráð- herra var það lengt í 5 mánuði og síð- ar í 6 mánuði og þá fyrst kallað fæð- ingarorlof í lögum og feður nefndir. En svo kom löng bið. Árið 2000 er svo merkisár í þessari sögu og má þar þakka Framsókn og Páli Péturs- syni sérstaklega fyrir það merka og mikilvæga skref sem þá var stigið með því að feður fengju fæðingar- orlof og konur lengra orlof. Páll hef- ur minnst þess að víða erlendis var þetta svo merkur áfangi að hann var hylltur af konum sem vildu fá eigin- handaráritun frá ráðherranum sem þorði. En hvaða áhrif hafði þessi mikil- væga breyting til framtíðar nú rúm- um tuttugu árum síðar. Gerðar hafa verið rannsóknir og vil ég því gefa Ingólfi V. Gíslasyni dósent í félags- fræði orðið en hann skrifaði um rann- sókn á vegum HÍ um framgang og áhrif breytingarinnar: „Á vordögum 2000 samþykkti Al- þingi mótatkvæðalaust lög um fæð- ingar- og foreldraorlof. Í lögunum fól- ust nokkrar róttækar breytingar. Orlofið var lengt í áföngum úr þrem- ur mánuðum í sex. Greiðslur sem áð- ur höfðu verið flatar og lágar voru nú 80% af launum. Sveigjanleiki var inn- leiddur þannig að mögulegt var að vera í hlutaorlofi og hlutavinnu. Þrír mánuðir voru bundnir hvoru foreldri en þrír voru skiptanlegir. Markmið laganna var annars vegar að tryggja börnum umhyggju beggja foreldra og hins vegar að auðvelda konum og körlum samþættingu fjölskyldulífs og at- vinnuþátttöku. Nú stendur yfir heildarend- urskoðun þessara laga og því við hæfi að líta yfir hverju þau hafa áorkað. Augljósasta breyt- ingin er að 85-90% feðra taka orlof til að vera með börnum sínum í stað 0,2-0,3% fyrir breytinguna. Þeir taka að meðaltali þann tíma sem einungis þeir geta nýtt. Það er í fullu samræmi við það sem sjá má hjá öðrum þjóðum. Umhyggju barna er miklu jafnar skipt milli foreldra en áður og ekki aðeins meðan á orlofinu stendur. Byggt á mati foreldra (mæðra) sjálfra var umhyggju barna sem fæddust 1997, þremur árum fyrir setningu laganna, jafnt skipt í um 40% fjölskyldna þegar börnin náðu þriggja ára aldri. Umhyggju barna sem fæddust 2014 var jafnt skipt í 75% fjölskyldna þegar þau voru þriggja ára. Rannsóknir á hinum Norðurlöndunum sýna það sama, feður sem nýta fæðingarorlof sitt eru virkari við umönnun barna sinna en þeir sem ekki gera það, alla tíð. Þetta hefur meðal annars skilað sér í því að íslensk ungmenni meta samskipti sín við feður jákvæðari en ungmenni 43ja samanburðarlanda samkvæmt alþjóðlegu rannsókninni Health and behaviour in school-aged children. Það hefur ekki grafið undan stöðu íslenskra mæðra, þær eru eftir sem áður með alþjóðlega forystu á þessu sviði. Tvær íslenskar rannsóknir hafa komist að svipuðum niðurstöðum varðandi samspil fæðingarorlofs og skilnaða. Fæðingarorlof feðra dregur úr skilnuðum. Það ætti ekki að koma á óvart, sameiginleg reynsla styrkir sambönd. Einnig þetta atriði er í fullu samræmi við erlendar rann- sóknir. Þátttaka feðra í umönnun barna sinna frá upphafi vegferðar þeirra hefur sýnt sig hafa mikilvægar afleið- ingar fyrir börnin. Virkni feðranna dregur úr hegðunarvandkvæðum hjá drengjum og sálfræðilegum vanda stúlkna. Hún ýtir undir vitsmuna- legan þroska, dregur úr afbrotum og styrkir stöðu fjölskyldna sem standa höllum fæti, félagslega og efnahags- lega. Það er hafið yfir allan skynsam- legan vafa að þessi lög hafa haft þau áhrif sem þeim var ætlað. Alþingi hef- ur ekkert betur gert síðustu áratugi til að jafna stöðu kynja á vinnumark- aði og í fjölskyldulífi en að samþykkja þessi lög. Það sem meira er, líklega hefur Alþingi heldur ekkert betur gert síðustu áratugi til að styrkja samheldni fjölskyldna og bæta stöðu og lífshamingju íslenskra barna.“ Áhrifin á stöðu kvenna á vinnu- markaði eru líka ótvíræð. Áður var sagt við ráðum síður konu á barn- eignaraldri en nú gengur það ekki því foreldrarir eru jafnir. Tímalengd fæðingarorlofs ræðst af því á hvaða ári barn er fætt, frum- ættleitt eða tekið í varanlegt fóstur. Tímalengd ársins 2021 er alls 12 mán- uðir. Hvort foreldri um sig á rétt á 6 mánuðum og eru 6 vikur framselj- anlegar. Tímalengd ársins 2020 er alls 10 mánuðir. Hvort foreldri um sig á rétt á 4 mánuðum sem eru ófram- seljanlegir en 2 mánuðir eru sameig- inlegir sem annað foreldrið getur tek- ið í heild eða foreldrar skipt með sér. Tímalengd ársins 2019 er 9 mánuðir. Hvort foreldri um sig á rétt á 3 mán- uðum sem eru óframseljanlegir en 3 mánuðir eru sameiginlegir sem annað foreldrið getur tekið í heild eða for- eldrar skipt með sér. Þessir áfangar hafa orðið í félags- málaráðuneytinu í tíð Framsóknar. Bið aðra að reyna ekki að eigna sér málið. Fæðingarorlof sterkt jafnréttismál Eftir Þórunni Sveinbjörnsdóttur Þórunn Sveinbjörnsdóttir » Augljósasta breyt- ingin er að 85-90% feðra taka orlof til að vera með börnum sínum í stað 0,2-0,3% fyrir breytinguna. Höfundur skipar 3 sæti á lista Framsóknar í Reykjavík norður. Fullyrt var í grein í Morgunblaðinu á dög- unum eftir Ole Anton Bieltvedt að innan Evrópusambandsins gætu lítil ríki „stopp- að framgang hvaða máls sem er. Til jafns við þau stóru, svo sem Þýskaland, Frakk- land, Ítalíu og Spán. Afstaða þeirra fá- mennu vegur jafn þungt og afstaða þeirra fjöl- mennu.“ Þá var því haldið fram að „ekkert stærra mál, stefnumörkun eða samningur“ tæki gildi án ein- róma samþykkis. Hér er hins veg- ar ekki farið með rétt mál sem er ekki sízt áhugavert í ljósi þess að skrifin snerust einkum um það að saka aðra um rangfærslur. Fyrir það fyrsta er vert að hafa í huga að einróma samþykki ríkja Evrópusambandsins, þegar ákvarðanir eru teknar á vettvangi þess, heyrir nánast sögunni til. Þannig hefur þeim tilvikum, þar sem krafizt hefur verið einróma samþykkis í ráðherraráði sam- bandsins, fækkað með hverjum nýjum sáttmála þess. Með gild- istöku Lissabon-sáttmálans árið 2009 var það afnumið í yfir fjöru- tíu málaflokkum. Fyrir vikið heyr- ir einróma samþykki í raun til undantekninga í dag og snýst um fáein málefni. Þar eru sjávarútvegsmál til dæmis ekki á meðal. Kallað hefur verið eftir því að tekin verði frekari skref í þá átt að fækka þeim fáu til- vikum þar sem enn er krafizt einróma sam- þykkis í ráðherraráði Evrópusambandsins. Meðal annars bæði af framkvæmdastjórn sambandsins og póli- tískum forystumönnum í ríkjum þess. Fyrr á þessu ári kallaði Heiko Maas, utanríkisráðherra Þýzkalands, til að mynda eftir af- námi einróma samþykkis í utan- ríkismálum. Sagði hann nauðsyn- legt að Evrópusambandið gæti tekið ákvarðanir í þeim efnum jafnvel þótt einhver ríki sambands- ins væru þeim andvíg. Vægi ríkja einkum eftir íbúafjölda Hversu fjölmenn einstök ríki Evrópusambandsins eru ræður mestu um möguleika þeirra á að hafa áhrif þegar ákvarðanir eru teknar á vettvangi þess. Lang- flestar ákvarðanir í ráðherraráðinu eru þannig til dæmis háðar því að 55% ríkjanna (einu ríki fleiri en einfaldur meirihluti) standi að baki þeim með 65% íbúa sambandsins. Í öðrum tilfellum þarf annars vegar einfaldan meirihluta ríkjanna og hins vegar 72% þeirra og 65% íbú- anna. Þar hafa fjölmennustu ríkin eðli málsins samkvæmt langmest vægi en þau fámennustu að sama skapi afar lítið. Þannig býr Þýzkaland að um 18,5% íbúafjölda Evrópusambands- ins og Frakkland um 15%. Saman eru ríkin tvö með um helming þess íbúafjölda sem allajafna þarf til þess að taka ákvarðanir í ráð- herraráðinu. Ef við bætum Ítalíu og Spáni við hafa ríkin fjögur um 58% íbúa sambandsins. Þá vantar aðeins ellefu ríki af þeim 23 sem eftir eru og er þá nánast auka- atriði hver þau eru með tilliti til íbúafjölda vegna fjölmennis stærstu ríkjanna. Þótt öll hin ríkin 23 tækju sig saman þyrftu þau engu að síður tvö af stærstu ríkj- unum fjórum í lið með sér til þess að taka ákvarðanir. Til sam- anburðar væri Ísland fámennasta ríkið innan Evrópusambandsins með 0,08% íbúafjöldans. Hins vegar skiptir ekki síður máli að einungis þarf fjögur ríki til þess að hindra ákvarðanatöku í ráðherraráðinu svo framarlega að þau hafi yfir 35% íbúafjöldans inn- an Evrópusambandsins á bak við sig. Með öðrum orðum geta ríkin fjögur saman stöðvað hvaða mál sem er í ráðinu fyrir utan í þeim til þess að gera fáu tilfellum þar sem enn þarf einróma samþykki og þar sem einungis þarf einfaldan meirihluta. Raunar nægir Þýzka- landi og Frakklandi liggur við hvaða tvö ríki sem eru enda vantar þau einungis um 1,6% til þess að ná yfir 35% íbúafjöldans. Ríki ESB sitja ekki við sama borð Viðmiðið er að sama skapi fyrst og fremst íbúafjöldi ríkjanna í til- felli þings Evrópusambandsins. Þannig hefur Þýzkaland 96 þing- menn af um 700 en til saman- burðar hefði Ísland sex þingmenn innan þess. Þar er ekkert einróma samþykki heldur gildir einfaldlega meirihlutinn. Hvað framkvæmda- stjórn sambandsins varðar er full- yrt í greininni að öll ríki þess eigi sinn fulltrúa í henni. Hið rétta er að þó ríkin tilnefna einn fulltrúa hvert og er tekið skýrt fram í Lissabon-sáttmálanum að þeir eigi ekki að fylgja fyrirmælum frá ríkisstjórnum ríkjanna. Með öðrum orðum er ljóst að stærstu ríki Evrópusambandsins eru bæði í lykil- og yfirburðastöðu þegar kemur að ákvarðanatöku á vettvangi sambandsins. Bæði þeg- ar kemur að því að samþykkja mál og að hindra samþykkt þeirra. Við það bætist að fulltrúar stærstu ríkjanna funda gjarnan og sam- ræma áherzlur sínar áður en mál eru tekin formlega fyrir innan Evrópusambandsins. Eins er ljóst að innan sambandsins gæti Ísland ekki stöðvað nein mál að undan- skildum þeim fáu og fækkandi til- fellum þar sem einróma samþykki er enn áskilið. Deginum ljósara er þannig að fullyrðingar greinarhöfundar, um að lítil ríki innan Evrópusam- bandsins geti „stoppað framgang hvaða máls sem er“, samrýmast á engan hátt raunveruleikanum. Þvert á móti hefur enginn skortur verið á tilfellum þar sem margfalt fjölmennari ríki en Ísland hafa orðið undir í ráðherraráðinu og þar með talið í tilfellum þar sem um stór hagsmunamál hefur verið að ræða fyrir þau. Þar á meðal í sjávarútvegsmálum. Fyrir utan annað er vitanlega lítið gagn að sæti við borðið þegar ekki er setið við sama borð. Stærstu ríkin í algerri yfirburðastöðu Eftir Hjört J. Guðmundsson »Hversu fjölmenn ein- stök ríki Evrópu- sambandsins eru ræður mestu um möguleika þeirra á að hafa áhrif þegar ákvarðanir eru teknar á vettvangi þess. Hjörtur J. Guðmundsson Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum með áherzlu á Evrópufræði). hjortur@fullveldi.is Stefna margra ríkis- stjórna undafarin ár hefur verið að flytja opinber störf út á landsbyggðirnar. Framkvæmd og eft- irfylgd þessarar stefnu hefur verið útfærð með ýmsum hætti og oft og tíðum með tölu- verðum fyrirgangi. Skemmst er að minn- ast flutnings Fiski- stofu til Akureyrar þar sem starfs- fólki fannst að sér vegið og þótti undirbúningur og framkvæmd ekki til eftirbreytni. Margir þekkja einnig flutnings Landmælinga á Akranes sem er jafnframt þekkt dæmi um miður vandaðan undirbúning við flutning opinberra starfa á lands- byggðirnar. Það vekur furðu að ríkisvaldið skuli ekki geta staðið betur að þess- um flutningum þegar fræðimenn hafa skrifað lærðar greinar og bæk- ur um breytingastjórnun og öllum sem vilja vinna faglega að flutningi stofnana ætti að vera ljós sú að- ferðafræði sem eykur líkur á farsæl- um breytingum í sátt við fólk og um- hverfi. Það er reyndar umhugsunarefni að flest ný opinber störf skuli verða til á höfuð- borgarsvæðinu og þau svo jafnvel síðar flutt út á land með slíkum vandræðagangi. Stefnan ætti fyrst og fremst að fylgja þörfinni og vera sú að efla þau störf sem fyrir eru á landsbyggðunum og að sjá til þess að þar verði meirihluti nýrra starfa til. Staðreyndin er sú að opinberum störfum hefur fjölgað verulega síð- ustu ár og einna helst á höfuðborg- arsvæðinu. Til að bæta gráu ofan á svart hafa ráðherrar flutt störf af lands- byggðunum til Reykja- víkur eins og dóms- málaráðherra núver- andi ríkisstjórnar gerði með því að leggja niður fangelsið á Akureyri og flytja þau störf suður á Hólmsheiði. Allt með stuðningi stjórnar- flokkanna. Áhugaverðast er þó að horfa til lands- byggðastarfsemi eins og RARIK sem hefur sínar höf- uðstöðvar í Reykjavík með fjölda starfsmanna þrátt fyrir að öll þjón- usta fyrirtækisins sé á landsbyggð- unum. Í mörg ár hefur verið rætt um að flytja höfuðstöðvarnar út á land. Nú er kominn tími til að láta af því verða og flytja þær til Akureyrar og Egilsstaða. RARIK er sannarlega fyrirtæki landsbyggðanna og þar eiga höfuðstöðvarnar að vera. Kom- ist ég á Alþingi mun ég beita mér fyrir því að af þeim flutningum verði. Ég mun jafnframt beita mér fyrir því að stefnu um eflingu og flutning opinberra starfa á landsbyggðirnar verði framfylgt á vandaðan og fag- legan hátt. Eftir Eirík Björn Björgvinsson Eiríkur Björn Björgvinsson »Ráðherrar hafa flutt mikið af störfum af landsbyggðunum, eins og með því að leggja niður fangelsið á Akur- eyri. Allt með stuðningi stjórnarflokkanna. Höfundur skipar 1. sæti Viðreisnar í Norðausturkjördæmi. Þurfa höfuðstöðvar RARIK að vera í Reykjavík? FINNA.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.