Morgunblaðið - 24.09.2021, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 24.09.2021, Blaðsíða 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2021 ✝ Ingimundur Magnússon fæddist í Reykjavík 14. janúar 1931. Hann lést á Grund 12. september 2021. Foreldrar Ingimundar voru Helga Kristjáns- dóttir húsmóðir (1912-1979) og Magnús Ingimund- arson húsasmíða- meistari (1909-1983). Systkini Ingimundar eru: Kristján (1931- 2003), Vala Dóra (1937-2016) og Jórunn (1938). Árið 1951 kvæntist Ingi- mundur Lilju Helgu Gunn- arsdóttur, f. 14. febrúar 1932, dóttur Guðlaugar Kvaran og Gunnars Andrew Jóhann- essonar. Synir þeirra: 1) Magnús framhaldsskólakennari, f. 1952, maki Brynhildur Ingvarsdóttir. Börn Magnúsar eru Ingi Fjalar, f. 1973, maki Sólveig Ólafs- dóttir. Börn þeirra eru Þór Fjalar, Magnús Fjalar og Katrín Helga; Jóhanna Katrín, f. 1981, maki Finnur Vilhjálmsson. Börn þeirra eru Alda, Ægir og Freyja; Lilja Ósk, f. 1986, og Gunnar Ingi, f. 1991, unnusta Eva Harðardóttir. 2) Gunnar Katrína Aradóttir. Dætur þeirra eru Katla Eilíf og Karín Voney. Lárus, f. 1974, maki Lára Björg Björnsdóttir. Börn þeirra eru Halla María og Björn Zóphanías. Þórunn, f. 1976, maki Sigurgeir Guðlaugsson. Synir þeirra eru Aron Fannar, Ísak Andri og Guðlaugur Breki. Stjúpdóttir Bolla er Jóhanna Guðmundsdóttir, f. 1964. Maki Mohsen Rezakahn Khajeh. Börn þeirra eru Bolli Þór, unnusta Heiðveig Madsen, börn hennar eru Thor og Freyja; Lárus og Anna Birna. Dóttir Jóhönnu er Halla Guð- rún Richter, f. 1982. Börn henn- ar eru Jóhanna, Jakob og Anna Lilja. Dætur Hrefnu eru Karen Þ. Sigurkarlsdóttir, f. 1972, maki Jón Axel Björnsson. Dæt- ur Jóns eru Brynja og Unnur. Hanna C. Sigurkarlsdóttir, f. 1977, maki Elvar Kjartansson. Börn þeirra eru Gerður og Ill- ugi. Ingimundur ólst upp á Sól- vallagötunni. Hann lærði húsa- smíði og starfaði að húsa- og húsgagnasmíði með föður sín- um. Hann hafði alltaf mikinn áhuga á ljósmyndun og svo fór að hann gerðist atvinnuljós- myndari á 7. áratugnum. Hann var fréttaljósmyndari um ára- bil, m.a. á Vísi og síðar meir rak hann ljósmyndastofu í félagi við tvíburabróður sinn Kristján. Útför Ingimundar fer fram frá Neskirkju í dag, 24. sept- ember 2021, og hefst athöfnin kl. 15. viðskiptafræð- ingur, f. 1956, maki Hrund Sch. Thor- steinsson. Börn Gunnars eru Davíð, f. 1980, maki Nína Björk Arnbjörns- dóttir. Börn þeirra eru Soffía Hrund og Gunnar Óli. Börn Nínu af fyrra hjónabandi eru Kjartan og Kol- brún Dís, Jakob, f. 1993, Soffía, f. 1995, unnusti Jón Dagur Þor- steinsson, og Magnús, f. 1999, unnusta Glódís Ylja Hilm- arsdóttir. 3) Bolli Þór Bollason hagfræðingur, f. 1947, maki Hrefna Sigurðardóttir. Börn Bolla eru Ólöf, f. 1964, maki Guðmundur Pálsson. Börn þeirra eru Páll, maki Margrét Ósk, Hildur Hallgrímsdóttir, synir þeirra eru Guðmundur Alex og Hákon Veigar. Anna Þórunn, maki Jósef K. Jós- efsson, synir þeirra eru Daníel Logi og Arnór Breki. Guð- mundur Ingi og Lárus, unnusta Aþena Eir Jónsdóttir Elizondo, dóttir þeirra er Unnur Rut. Lilja Guðlaug, f. 1973. Sonur hennar er Jóhann Arnar Sigur- þórsson, unnusta hans er Ástrós Eiðsdóttir, dóttir hennar er Með Inga er síðasti hlekkurinn í föður- og móður kynslóðinni minni farinn, en Lilja, kona Inga, lést í fyrra. Mitt ættartré virkar svolítið ruglingslegt út á við með mína fósturforeldra, föðurömmu sem ég kallaði alltaf mömmu, auk blóðforeldra. Ég var fóstraður hjá Lilju og ömmu Guðlaugu tæp- lega tveggja ára, þegar foreldrar mínir skildu 1948. Fljótlega eftir það kom Ingi inn í mitt líf, fyrst sem unnusti og síðan eiginmaður Lilju og faðir uppeldisbræðra minna, Magnúsar og Gunnars. Allar götur síðan hefur Ingi verið mér sem faðir í einu og öllu. Það er erfitt að koma öllum minningunum um Inga síðustu 70 ár eða svo fyrir í stuttri minning- argrein. Ég sá Inga í fyrsta sinn einhvern tímann á árunum 1948- 1949. Kannski var hann með okk- ur Lilju í einum af mörgum göngutúrum okkar niður á Tjörn. Þaðan á ég margar ljósmyndir, bæði af mér einum og eins með Lilju sem Ingi gæti hafa tekið, og þó, tæplega á kassavél!! Hann hefði ekki tekið það í mál, verð- andi atvinnuljósmyndarinn!! Lilja og Ingi giftust 1951 og þá fluttum við á Laugaveginn, í bak- hús númer 51B, minnir mig. Enda var þá von á Magnúsi bróð- ur í heiminn og Bárugötukjallar- inn of lítill fyrir fjölskylduna. Þarna urðu til fyrstu alvöruminn- ingar mínar af Inga. Þær eru vel skráðar, ekki bara í huganum, heldur líka á ótal ljósmyndum, af afmælum, útilegum, bíltúrum á Þingvelli og víðar. Það er ómet- anlegt að fletta gömlum myndaal- búmum og rifja upp þessar minn- ingar. Við fluttum síðan í Laugarnes- ið 1957 og þaðan 1960 á Kapló, beint á móti KR-vellinum. Sá tími var mjög viðburðaríkur í minn- ingunni. Til dæmis þegar ég fór með Inga mörg kvöld og helgar að hjálpa til við að koma íbúðinni á Kapló í stand, hún var ekki full- kláruð þegar þau keyptu hana. Ég held að Ingi hafi séð einhver smíðagen í mér enda naut ég góðs uppeldis hjá honum á húsgagna- verkstæði pabba hans á þessum árum. Ingi var alltaf boðinn og búinn að reyna að koma mér til manns. Hann kynnti mig fyrir klassískri músík. Reyndi líka djassinn en það gekk ekki. Eins var hann duglegur að kynna mig fyrir góð- um græjum, vildi ekki sjá neitt rusl. Hann gaf mér líka fyrsta út- varpstækið þegar ég var 7-8 ára gamall og alvörumyndavél í ferm- ingargjöf. Hann var síðan alla tíð mjög áhugasamur um að ég fengi mér góð tæki. Ingi og Lilja voru dugleg í ömmu- og afahlutverkinu. Fyrst með Ólöfu sem fæddist meðan ég var í MR 1964. Þá hlupu þau mik- ið undir bagga með pössun þegar á þurfti að halda. Eins var hann duglegur að senda mér myndir af Ólöfu þegar ég var við nám er- lendis. Þegar ég kom heim úr námi bættust við börn okkar Höllu sem sóttu bæði ást og hlýju til ömmu og afa á Kapló. Það var gott að Ingi var ágæt- lega sáttur við dvöl sína á Grund. Hann var líka umkringdur sínum tólum og tækjum, sjónvarpi, tölvu og prentara. Því miður hafa heim- sóknir til hans verið takmarkaðar síðustu misserin en það var ómet- anlegt fyrir okkur Hrefnu að ná að kveðja Inga daginn sem hann dó. Hans er sárt saknað en minn- ing hans lifir. Takk fyrir allt, Ingi minn. Bolli Þór Bollason. Við andlát tengdapabba skjóta margar hugsanir upp kollinum. Eitt af því fyrsta sem ég tók eftir þegar ég fór að venja komur mín- ar á Kapló var myndarlegt seg- ulbandstæki sem Ingi notaði til að taka upp ýmiss konar tónlist úr útvarpinu, auk annars sem hann vildi ekki missa af. Þar fór saman áhuginn og þekkingin á tónlist annars vegar og alls konar græj- um hins vegar. Þó hann spilaði ekki sjálfur á hljóðfæri var tónlist honum alla tíð hugleikin; sérstak- lega sígild tónlist og jazz. Hann hafði næmt eyra og pældi mikið í tónlistarflutningnum og fylgdist vel með tónlistarsviðinu hérlendis sem erlendis. Það gladdi hann því þegar tónlistaráhuginn og –hæfi- leikar gerðu vart við sig hjá af- komendunum. Sem lærður húsa- og hús- gagnasmiður og ljósmyndari hafði hann næmt auga og smekk fyrir hvers kyns vönduðu hand- verki, óháð því hvort um var að ræða smáa hluti eða byggingar. Hann var laghentur með afbrigð- um og snyrtimennska og vand- virkni einkenndi allt sem hann tók sér fyrir hendur og kom m.a. fram í hvernig hann gekk um verkfærin sín, græjurnar, bílana, myndirnar. Allt í röð og reglu, hver hlutur átti sinn stað. Ingi naut þess að umgangast fjölskyldu og góða vini, og eign- aðist m.a. góða kunningja á Grund sem hann hafði ánægju af að tengjast. Hann hafði áhuga á mönnum og málefnum, en hann gat líka verið sjálfum sér nógur. Ingi fylgdist vel með tæknibreyt- ingum og náði að tileinka sér þær. Hann náði góðum tökum á tölvu- tækninni og nýtti sér tölvuna til margra hluta, m.a. til að fylgjast með fréttum og framþróun ýmiss konar, skoða gamlar ljósmyndir og skoða og halda utan um eigin ljósmyndir sjálfum sér og okkur til mikillar gleði. Oftar en ekki sat hann við tölvuna þegar komið var í heimsókn á Grund. Þegar hann náði svo í seinni tíð tökum á „youtube“ opnaðist nýr heimur og hann varði fjölmörgum stundum í að leita uppi og hlusta á gamlar upptökur af spila- mennsku ýmissa meistara á sviði tónlistar eða skoða myndir af stórbrotinni náttúru hvort heldur sem var á Íslandi eða í fjarlægum löndum. Hann var ótrúlega glöggur og minnugur á staði og fólk sem hann hafði myndað, jafn- vel áratugum áður. Aðdáun hans á náttúru Íslands kom glögglega fram í ljósmyndum hans, sem margar eru listrænar og ómetan- leg arfleifð. Við fylgdumst með úr fjarska hvernig Ingi smám saman, að því er virtist áreynslulaust, tók yfir heimilishaldið þegar geta Lilju til þess minnkaði, en vafalítið var það honum erfiðara en við áttuð- um okkur á. Hann hringdi gjarn- an um kvöldmatarleytið til að fá ráðleggingar og var þá að prófa sig áfram með nýja rétti. Það er mikils virði að fá að kveðja með þeim hætti sem tengdapabbi gerði. Rúmlega ní- ræður, með óskert hugarstarf, og enn með áhuga og getu til að fylgjast með íþróttum, sér í lagi KR auðvitað, heimsmálunum og stórfölskyldunni allri. Með þakk- læti í huga kveð ég Inga; þakklæti fyrir hversu hann bar fyrir brjósti hag fjölskyldunnar allrar, hversu áhugasamur hann var um börnin okkar Gunnars og síðar barna- börn og þeim góður afi. Blessuð sé minning Inga tengdapabba. Hrund. Ég minnist þess þegar ég kom fyrst á heimili Ingimundar og Lilju í fylgd vina á jóladag árið 1971. Íbúðin var ekki stór en heimilið stóð vinunum opið og vel tekið á móti öllum. Ég minnist sérstaklega veitinganna og hve mikið var af litríkum listaverkum og listilegum ljósmyndum á öllum veggjum og sennilega hefur það haft áhrif á mig alla tíð síðan. Við áttum þessa sýn sameiginlega eins og margt annað sem við gát- um rætt um. Það var síðan nokkr- um árum síðar að ég kom aftur á heimilið sem verðandi tengda- dóttir og voru móttökurnar ekki síðri þá. Ingimundur var mér góður tengdafaðir og við vorum vinir. Hann var einstaklega ljúfur og greiðvikinn og gerði allt fyrir Lilju tengdamóður og ekki síst þegar árin færðust yfir. Hann var af gamla skólanum hvað heimilis- störf varðar en var duglegur að tileinka sér öll þau framandi störf. Kom það vel í ljós þegar hann eitt sinn tók fyrirvaralítið að sér að gæta yngsta barnsins míns þá á fyrsta ári og sagði stoltur þegar ég sótti drenginn að þetta hefði verið í fyrsta skipti sem hann hefði verið einn með unga- barn og fórst honum það vel úr hendi. Síðar gekk hann í auknum mæli í öll húsverk þegar Lilja veiktist og annaðist hana af bestu getu, sá um öll innkaup og eldaði allan mat síðustu árin. Uppskrift- irnar sótti hann að sjálfsögðu á netið og eldaði með hjálp Google eða Youtube. Ingimundur var lærður ljósmyndari og var að dunda sér við myndavinnu fram á það síðasta, enda eru ekki margir á dvalarheimili sem fá gæða- prentara við nýju tölvuna sína í 90 ára afmælisgjöf. Tækninýjungar og tæki voru engin hindrun. Hann hafði unun af fótbolta og fylgdist með sínum liðum og stytti það honum stundir síðustu árin og horfði fyrst á leik KR og síðan Manchester United, daginn fyrir andlátið. Tengdapabbi elsk- aði að tala um lýsingu og ljós- myndir og ræddi oft við mig eins og fagmann þar sem hann hélt stundum að ég vissi allt um linsur og ljósbrot en þar komst ég ekki nálægt þekkingu hans. Síðustu árin ræddum við oft saman í síma og var hann vel upplýstur um mál fjölskyldunnar og var alltaf þátt- takandi í því sem var á döfinni þótt hann væri innilokaður á Co- vid-tíma. Ég þakka mínum ljúfa tengda- föður samfylgdina. Brynhildur Ingvarsdóttir. Afi Ingi og amma Lilja, þessir tryggu máttarstólpar uppvaxt- arára minna, eru nú bæði gengin á vit feðranna. Það er eiginlega ekki hægt að segja afi Ingi og nefna ekki Lilju ömmu í sömu andrá. Hafsjór minninga kemur upp í hugann og þakklætið streymir fram. Það má segja að Barmahlíðin hafi verið mitt annað heimili öll mín uppvaxtarár. Þetta góða athvarf var fullt af kærleika og hlýju þar sem afi læddist iðu- lega í hægindastólinn og tottaði pípu á meðan amma útbjó sam- loku með rækjusalati og randal- ínu. Þarna naut ég líka samveru með öllum börnum bræðranna. Afi og amma voru afar viljug að sinna okkur barnabörnunum og eru sumarbústaðaferðirnar í Þjórsárdal mér ofarlega í huga. Einnig var sameiginleg ferð okk- ar til Kaupmannahafnar þegar við heimsóttum pabba til Svíþjóð- ar mikið ævintýri. En helstu minningar mínar um afa voru í gegnum útreiðartúra sem voru reglulegir viðburðir um langt skeið. Hann var þolinmóður við litla drenginn og útreiðar- túrar oft langir. Ég lærði fljótt að það var enginn kjaftavaðall á afa, en á góðum stundum átti hann þó til að rjúfa þögnina og fara á flug og gerðist þá mikill sögumaður. Sögurnar voru oftar en ekki um hestamennsku og sveitina þar sem hann vann sem ungur maður. Eftirlætissagan hans afa var þeg- ar við riðum saman að réttum í Ölfusi, hann á hestinum Vini og ég á merinni hennar Guðlaugar Kjartans frænku. En í þessum út- reiðartúr sofnaði eða dottaði litli drengurinn og í hvert skipti sem það gerðist reið merin undir drenginn þegar hann hallaðist til hliðar við hestinn. Þessari frá- sögn fylgdu alltaf miklar handa- hreyfingar sem gerðu þennan at- burð ljóslifandi í mínum huga, þó að ég muni lítið sem ekkert eftir honum. Ég þakka fyrir umhyggju, tryggð og stuðning ykkar sóma- hjóna. Já og eitt að lokum afi! Skarlatstáni (lat. Piranga oli- vace), sem við skoðuðum svo oft saman í stóru fuglabókinni, er enn þá fallegasti fuglinn. Ingi Fjalar Magnússon. Elsku Ingi afi nú er komið að kveðjustund. Margs er að minn- ast á þeim 57 árum sem ég hef fengið að njóta með þér og Lilju ömmu. Stundirnar sem ég átti á Kapló voru dásamlegar og gaman að geta yljað sér við góðar minn- ingar með því að skoða allan þann fjölda mynda sem þú tókst af mér. Eftir að ég eignaðist sjálf fjölskyldu áttum við margar góð- ar samverustundir. Eftirminni- legust er skemmtileg ferð sem ég og Guðmundur Ingi minn fórum með ykkur ömmu Lilju á ættar- mót á Núpi þar sem við skemmt- um okkur vel. Einnig áttum við góðar stundir á fallega heimilinu ykkar á Meistaravöllunum þar sem þú hafðir gaman af rökræð- um um gengi KR og Grindavíkur í fótbolta. Ég veit að amma Lilja tekur vel á móti þér. Takk fyrir allt. Ólöf Bolladóttir og fjölskylda. Þegar við hugsum um afa dett- ur okkur fyrst í hug Hjarðarhagi 44. Þar eyddum við miklum tíma þegar við vorum yngri. Við spil- uðum fótbolta við afa (í garðinum og í stofunni), spiluðum tölvuleiki í leikjatölvu sem var alltaf í sömu skúffunni og síðan var alltaf súkkulaði á sérstökum stað í eld- húsinu. Þegar við gistum hjá ömmu og afa passaði afi alltaf að vakna á undan og gefa okkur súr- mjólk svo að amma gæti sofið lengur. Þau fluttu síðan á Meistara- velli, með gott útsýni yfir KR- völlinn. Á Meistaravöllum leið okkur alltaf vel og Magnús eyddi þar miklum tíma, nær alltaf í fót- bolta í garðinum. Þá var mikil áhersla lögð á að hafa KR- bolt- ann vel pumpaðan og afi sá til þess að það var farið í hvert skipti út á bensínstöð og loft sett í hann. Jakob kynntist einnig afa á annan hátt. Þeir voru báðir mikið fyrir jazz og þá sérstaklega Bill Evans, sem var uppáhaldspíanisti þeirra beggja. Afi sagði Jakobi alls konar sögur af misheilsusam- legum jazzleikurum sem hann hitti og myndaði þegar þeir komu hingað að spila. Sumir þeirra eru á meðal stærstu nafna jazzsög- unnar. Jakob er mjög þakklátur fyrir að hafa um tíma búið mjög nálægt afa og ömmu. Afi lánaði honum oft bílinn sinn og skaust í staðinn út í búð fyrir þau eða fór með ömmu að kaupa föt. Fyrir vikið eyddi hann meiri tíma með afa og ömmu, sem hann er mjög þakklátur fyrir. Sossa og afi áttu gott samband og ein helsta minningin sem Sossa hefur um þau var þegar hún stalst í föt og málningu ömmu og bað afa síðan að taka myndir af sér í fullum skrúða. Magnús og afi töluðu mikið saman um fótbolta og þá sérstaklega eftir að afi var farinn að fylgjast enn meira með. Hann fylgdist með öllum íþrótt- um sem hann gat og nú síðast í sumar fylgdist hann mikið með Evrópumótinu í fótbolta og heill- aðist mjög af sigurvegurum móts- ins og gladdist þegar þeir fögn- uðu sigri. Hann mun sakna þess að fá að spjalla um fótboltann við afa. Nú þegar við systkinin hugsum til baka þá minnumst við þess hve fyndinn afi var alltaf. Oft á tíðum var hann að stuða mann og gera gys en það var þó ætíð góðlátlegt. Að heyra hann lýsa yfir vanþókn- un sinni á einhverju var stundum hin besta skemmtun. Afi var yndislegur maður sem elskaði okkur barnabörnin mikið og vildi gera allt fyrir okkur. Við söknum hans sárt en fal- legar minningar lifa. Jakob, Soffía og Magnús. Fyrstu árin eftir að ég fæddist bjuggu afi og amma í Barmahlíð og hétu aldrei neitt annað en amma og afi í Barmó. Ég eyddi mörgum góðum stundum þar með afa í kommóðukarate, Der- rick-áhorfi, að leika við pípu- hreinsara eða – það sem mér þótti allra skemmtilegast – að hjálpa afa (aðallega fylgjast með og handlanga) við að gera við alls konar hluti. Afi gat nefnilega lagað allt, kunni á öll tæki og tól, hljómtæki og græjur og auðvitað myndavél- ar. Hann gaf mér tækifæri til að taka þátt í þessu öllu og það er lík- lega stærsta ástæða þess að ég hef áhuga á og kann eitthvað fyrir mér í slíkum hlutum. Við vörðum sömuleiðis löngum stundum í að gera við bíla, fyrst Fiatinn og síð- ar Saabinn. Í þessum ágætu bílum fórum við ótal ferðir út á land í sumarbú- staði á Snæfellsnesi, í Þjórsárdal, á Hólum í Hjaltadal og víðar. Við þvoðum bílana upp úr nærliggj- andi ám, veiddum refi, spjölluð- um, tókum myndir og skoðuðum fjarlæga hluti í kíki. Alla tíð sem ég þekkti afa áttu ljósmyndirnar hug hans allan, allt fram á síðasta dag. Ég fékk oft að koma á ljósmyndastofu hans og Stjána í Einholtinu, vera með í myndatökum út um allan bæ og taka þátt í að framkalla. Ég keypti svo fyrstu stafrænu myndavélina hans afa í Ameríku árið 2004 og hann fór létt með að söðla um yfir í stafræna heiminn. Hann náði ótrúlega góðum tökum á því að vinna myndir í tölvu, skanna og prenta og naut þess alltaf að skoða fallegar myndir. Það var afskaplega verðmætt að fá að vera samferða afa öll þessi ár, fá að læra af honum og njóta lífsins með honum og ömmu. Nú njóta þau vonandi lífs- ins saman á nýjum stað. Davíð. Elsku afi okkar Ingi er látinn. Stórar og þykkar augabrúnir, pípureykur og allskonar grín sem við skildum ekki alltaf eru elstu minningar okkar um afa. Við vor- um fyrst örlítið smeyk við þennan afa. Við lærðum þó fljótt að á bak við bústnar augabrúnir, löngu hendurnar og pípureykinn var einstaklega góðhjartaður, hlýr og réttsýnn afi sem okkur þótti óskaplega vænt um. Við vorum svo heppin að hafa í uppvextinum afa Inga og ömmu Lilju í næsta nágrenni við okkur eftir að þau fluttu í Vesturbæinn. Því hjá Inga og Lilju var alltaf op- ið hús, sérstaklega á Hjarðarhag- anum þar sem við fórum í fjöl- mörg skiptin þegar við læstum okkur úti. Afi lánaði aukalykla og nýtti að sjálfsögðu tækifærið til að gera grín að okkur. Afi gerði nefnilega mikið gys að sínu nán- asta fólki, þá sérstaklega ömmu. Alltaf var okkur fagnað þegar við komum til þeirra í heimsókn, með knúsi og koss á kinn. Eftir yfirheyrslu frá ömmu í eldhús- króknum tók við sýning frá afa á því sem hann hafði tekið upp á að dunda sér við þann daginn. Afi var í takt við tímann og ef hann var ekki að sýna manni símann, myndavélina eða nýja mynd- vinnsluforritið, þá var hann hrósa sér yfir því hversu sjálfbær hann væri orðinn að nýta sér sam- félagsmiðla. Þá tautaði hann líka mikið um fótbolta. Síðasta samtal okkar við afa var einmitt um fót- bolta, helgina sem hann fór frá okkur. Afi var stoltur af sínu fólki og með puttann á púlsinum alveg fram á síðasta dag. Hann tók öll- Ingimundur Magnússon

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.