Morgunblaðið - 24.09.2021, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 24.09.2021, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIR Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2021 IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is Nánari upplýsingar ib.is Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB Sími 4 80 80 80 25 ára reynsla INNFLUTNINGUR AF NÝJUM OG NOTUÐUM BÍLUM VERKSTÆÐI VARAHLUTIR laun á hverja unna stund en ekki greidd laun. Búið sé að draga frá frí- daga. Loks benti hún á að í löndum þar sem verðbólga er há sé tilhneigingin sú að laun hækki hraðar en í löndum með lægri verðbólgu. Það birtist til dæmis í Austur-Evrópu. Samkvæmt Hagstofunni dróst landsframleiðsla saman um 6,5% í fyrra sem var annar mesti samdrátt- urinn frá árinu 1945. Samkvæmt nýrri þjóðhagsspá Ís- landsbanka verður 4,2% hagvöxtur í ár en svo muni draga úr hagvexti á næstu árum. Hann verði kominn nið- ur í 3,6% árið 2022 og 3% 2023. Jón Bjarki Bentsson, aðalhag- fræðingur Íslandsbanka, segir að- spurður að það leiði af sjálfu sér að svigrúm til launahækkana muni minnka jafnt og þétt, ef það heldur áfram að hægja á hagvexti. Líkt og víðar sé að hægja á aukn- ingu framleiðni eftir því sem hag- kerfið þroskast, þjóðin eldist og svo framvegis nema til komi nýir at- vinnuvegir eða atvinnuhættir sem herði aftur á þeirri þróun. Með öðr- um orðum þurfi að styrkja grunn- stoðir hagkerfisins, eða skapa nýjar, til að standa undir enn meiri launa- hækkunum. Sú þróun eigi sér stað samtímis því sem Íslendingar glími við verðbólguþrýsting sem sé að hluta vegna innfluttrar verðbólgu. Þ.e.a.s. hækkandi verðlags erlendis. Ísland verði dýrara land Samkvæmt spá Íslandsbanka mun krónan styrkjast á næstu árum. „Við gerum ráð fyrir að raungeng- ið styrkist töluvert og ef það gengur eftir verður Ísland aftur orðið nokk- uð dýrt land heim að sækja árið 2023. Það er ekki að öllu leyti slæm þróun því í einhverjum skilningi vilj- um við vera dýrt ferðamannaland, borga fólki í ferðaþjónustu góð laun og heldur leita að meiri virðisauka á hvern ferðamann en að hafa þá sem allra flesta. En einhvers staðar liggja þó sársaukamörkin í þessum efnum og við getum lent í vítahring sem við þekkjum allt of vel þar sem innlendur kostnaðarþrýstingur, launaþrýstingur og fleira, ýtir raun- genginu upp og við verðum dýrara land en við stöndum undir. Þá veik- ist krónan og það eykur þá verðbólg- una enn meira. Stöðugleikinn er því alls ekki sjálfgefinn,“ segir Jón Bjarki. Leiðandi hagvísir Analytica bend- ir til að hægt hafi á efnahagsbat- anum. M.a. sé farið að draga úr vexti í veltu debetkorta innanlands. „Það bendir til að farið sé að draga úr aukningu á einkaneyslu Ís- lendinga innanlands en hún hefur verið einn megindrifkrafturinn í þró- uninni undanfarið. Utanferðir eru að aukast á ný og þá flyst hluti af neysl- unni til útlanda,“ segir Yngvi Harð- arson framkvæmdastjóri Analytica. Þriðja mesta hækkunin á Íslandi - Ísland var í þriðja sæti yfir hækkun launakostnaðar í Evrópu, á hverja unna stund, á öðrum fjórðungi - Aðalhagfræðingur Íslandsbanka segir minnkandi hagvöxt munu draga úr svigrúmi til launahækkana 14,3% 11,1% 8,1% 7,9% 6,7% 6,7% 6,4% 6,3% 5,1% 5,0% 4,8% 4,6% 3,9% 3,6% 3,3% 2,9% 2,5% 2,2% 2,2% 1,1% 1,0% 0,7% 0,6% 0,1% 0,0% E v ru s v æ ð ið Au st ur rík i Lú xe m bo rg Po rt úg al Sp án n Íta lía Ársbreyting vísitölu launakostnaðar á öðrum ársfjórðungi 2021 -0,1% -0,3% -0,9% -3,3% -3,7% -4,0% Ký pu r Se rb ía Ís la nd Pó lla nd B úl ga ría Rú m en ía Sv íþ jó ð Li th áe n Ei st la nd Le tt la nd Ír la nd H ol la nd Té kk la nd Sl óv en ía D an m ör k N or eg ur Fi nn la nd M al ta U ng ve rja la nd Kr óa tía Sl óv ak ía B el gí a E S B -m e ð a lt a l Fr ak kl an d Þý sk al an d Heimild: Eurostat Ríki ESB, evrusvæðið og Ísland og Noregur BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Launakostnaður á hverja unna stund á Íslandi var um 8% hærri á öðrum ársfjórðungi en árið áður. Það var þriðja mesta hækkunin í Evrópu á tímabilinu (sjá graf) en miðað er við vísitölu launakostnaðar. Anna S. Halldórsdóttir, fagstjóri launa hjá Hagstofunni, sagði að mörgu að hyggja við þennan sam- anburð. Meðal annars hefði stuðn- ingur við launþega í kórónuveiru- faraldrinum áhrif á útkomuna. Mismunandi milli landa Þá geti lækkun launa á hverja unna stund í faraldrinum á sama tímabili í fyrra haft áhrif á hversu hröð viðspyrnan verður þegar hag- kerfin komast í gang. Þetta ætti til dæmis við um Svíþjóð en mismun- andi sé milli landa hvernig styrkir í faraldrinum eru færðir til bókar. Þá ítrekaði hún að þetta væru Heildsöluverðbólga í Þýskalandi mældist 12,3% á ársgrundvelli í ágúst og hefur ekki mælst jafn há síðan í októbermánuði 1974. Þá var Willy Brandt kanslari V-Þýska- lands og glímdi stjórn hans við af- leiðingar fyrri olíukreppunnar. Heildsöluverðbólga er eins og nafnið gefur til kynna mælikvarði á verðbreytingar á vörum í heildsölu. Þykir hún hafa forspárgildi um þróun verðbólgu enda muni hún að lokum smitast yfir í smásöluverð. Hækkunin nú er til komin vegna snarprar verðhækkunar á hrávöru og aðföngum. Þá er hækkunin frá sögulega lágum gildum að því er segir í frétt Hagstofu Þýskalands (Statistisches Bundesamt). Meðal varnings sem hækkað hafi í verði sé járngrýti, málmar og hálfunnir málmar (63,4%), elds- neyti og olíur (35,5%), timbur (57,8%) og korn, tóbak, fræ og dýrafóður (19,3%), svo dæmi séu tekin. Skýringarnar á hækkunum eru margþættar en afleiðingar kórónu- veirufaraldursins vega þyngst. Framleiðsla fór úr skorðum, að- fangakeðjur rofnuðu og eftirspurn- arfall skapaði óvissu. Með því að faraldurinn gekk til baka, í kjölfar bólusetningar, jókst eftirspurnin. Verðbólga í Þýskalandi var 3,4% í ágúst – sú mesta frá júlí 2008. Af þessu tilefni rifjaði fréttastofa Reuters upp þau ummæli Jens Weidmann, seðlabankastjóra Þýskalands, að hið lága vaxtastig evrópska seðlabankans væri áhyggjuefni í þessu umhverfi. Ráð- gjafar hans hafi spáð nærri 5% verðbólgu í Þýskalandi í árslok. Útlit væri fyrir að verðlag hækk- aði umfram laun út þetta ár. Verðbólguskriða í Þýskalandi Angela Merkel - Mesta heildsölu- verðbólga mælist í Þýskalandi frá olíukreppunni 1974 Heildsöluverðbólga í Þýskalandi Frá janúar 1969 til ágúst 2021 15% 10% 5% 0% -5% -10% 1969 1973 1977 1981 1985 1989 1993 1997 2001 2005 2009 2013 2017 2021 Heimild: Hagstofa Þýskalands/Analytica -10,5% 12,3% 10,9% 15,7% -9,5% Willy Brandt 24. september 2021 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 129.67 Sterlingspund 176.86 Kanadadalur 101.39 Dönsk króna 20.454 Norsk króna 15.02 Sænsk króna 14.948 Svissn. franki 140.58 Japanskt jen 1.1835 SDR 184.04 Evra 152.1 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 182.3533

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.