Morgunblaðið - 24.09.2021, Síða 31

Morgunblaðið - 24.09.2021, Síða 31
um vel og allir voru jafnir - nema hugsanlega KR-ingar sem honum þótti aðeins betri en annað fólk. Dýrmætustu minningar okkar um afa tengjast jólunum. Eins og á flestum bæjum byrjuðu þau alltaf eins. Rétt fyrir klukkan sex á aðfangadag komu þau þramm- andi inn. Afi byrjaði á að stilla klukkuna í stofunni og býsnast yf- ir þessu fólki sem byggi þarna og kynni ekki á klukku. Því næst kveikti hann á messunni á meðan amma setti lokahnykkinn á sós- una. Þá byrjuðu jólin. Afi var og verður stór hluti af lífi okkar og fyrir hann erum við afar þakklát. Með þessum orðum viljum við þakka afa Inga fyrir alla umhyggjuna, grínið, mynd- irnar og hlýjuna alla tíð. Þín barnabörn, Hanna, Lilja, Gunnar. Nú hefur elsku Ingi kvatt, tæp- lega einu og hálfu ári á eftir Lilju eiginkonu sinni, en í huga okkar hafa þau alltaf verið samtengd. Við kynntumst þeim fyrir 45 ár- um sem tengdaforeldrum Hrund- ar systur og við vorum svo heppin að búa í sama stigagangi og þau á Kaplaskjólsveginum í mörg ár. Það var okkur til mikillar gæfu, en ekki er sjálfgefið að hitta fyrir fólk á fyrsta degi búskapar sem varð félagar okkar og velgjörðar- menn.Til þeirra gátum við alltaf leitað um hvaðeina, bæði góð ráð og allt milli himins og jarðar sem þurfti að fá lánað. Þau mættu okkur ætíð með bros á vör, velvild og vinskap og svo hefur verið all- ar götur síðan. Ingi var sérstaklega laginn og ráðagóður og þegar eitthvað var bilað, setja þurfti keðjur á bíl,eða að ekki sé talað um þegar taka átti myndir, þá var auðvitað leitað til hans. Við eigum margar mynd- ir af fjölskyldunni okkar sem hann tók af alkunnri snilld. Myndirnar innramma á sérstak- an hátt hógværð Inga og fag- mennsku og minna á tengsl okkar sem einkenndust af hlýju og væntumþykju. Ingi var alltaf með glettnislegt blik í augum og gráglettinn húm- or var aldrei langt undan. Við minnumst hans með virðingu, gleði og þakklæti. Guð blessi minningu Inga. Laura, Magnús og fjölskylda. Ingimundur Magnússon, eða Ingi eins og hann var ávallt kall- aður, var giftur Lilju föðursystur minni, sem lést í fyrra. Pabbi minn og Lilja voru miklir mátar alla tíð og eðlilega mikill sam- gangur milli fjölskyldna okkar og ég man ekki eftir mér öðruvísi en að Ingi hafi verið hluti af lífinu. Í bernskuminningum mínum var sólskin alla daga. Við, foreldr- ar mínir og seinna einnig systkini mín; Lilja, amma Guðlaug og strákarnir, sátum öll í sumarföt- um á teppi úti í garði, stundum líka afi Gunnar og aðrir ættingj- ar. Ég á svo ljóslifandi og góðar minningar frá þessum sólskins- dögum barnæskunnar. Við börn- in stækkuðum og foreldrar okkar breyttust eilítið ár frá ári og ekki brást að einn mann vantaði á allar myndirnar – jú, auðvitað mynda- smiðinn sjálfan, hann Inga. Inga, sem gerði það að verkum að ég, systkini mín og okkar afkomend- ur getum í dag rifjað fyrirhafn- arlaust upp sæludaga æskunnar, gleðina í andlitum allra og allt það fallega sem einkenndi bernskuna. Í þá daga áttu fæstir mynda- vélar og myndir fyrir vikið fátíðar á flestum heimilum. En ekki hjá okkur sem nutum þess hve ólatur Ingi var að koma og mynda öll okkar æviskeið. Ég get ekki þakkað Inga nógsamlega fyrir að glæða lífið öllum þessum fallegu minningum sem örugglega hefðu endað í glatkistunni hefði mynd- anna hans ekki notið við. Ingi var mikill listamaður og myndir hans bera af hvar sem þær birtast, sem að mínu mati er ekki nógu víða. En Ingi var ekki bara listamaður, heldur get ég einnig með sanni sagt að hann var einhver sá vænsti og elsku- legasti maður sem ég hef kynnst. Guð blessi minningu þessa góða manns. Mínar innilegustu samúðarkveðjur til frænda minna þriggja og fjölskyldna þeirra. Guðlaug Kjartansdóttir. Veistu ef þú vin átt þann er þú vel trúir og vilt þú af honum gott geta. Geði skaltu við þann blanda og gjöfum skipta, fara að finna oft. (Úr Hávamálum) Ingimundur Magnússon ljósmyndari, sá mikli sómamað- ur, er látinn á 91. aldursári. Ingi eins og hann var ávallt kallaður var giftur Lilju Gunnarsdóttur föðursystur minni sem lést fyrir nokkrum árum og áttu þau tvo syni, Magnús og Gunnar, auk þess að ala upp bróður minn Bolla Þór. Þegar Lilja og Ingi voru að draga sig saman voru foreldrar okkar Bolla skilin og höfðum við bræður þá farið hvor í sína átt- ina, þótt ekki væri langt á milli okkar. Hann á Bárugötuna til ömmu okkar Guðlaugar Kvaran og ég á Vesturgötuna til ömmu Ísafoldar og afa Einars. Það lýsir best mannkostum Inga að hann skuli ungur maður taka við ekki aðeins tengdamóð- ur heldur einnig ungum bróður- syni konu sinnar sem hann gekk svo sannarlega í föðurstað og gerði engan mun á honum og tveimur sonum sínum sem þau Lilja eignuðust síðar. Það var alltaf mikið samband á milli mín og Inga enda ávallt gott að koma bæði á Laugaveg- inn og lengst af á Kaplaskjóls- veginn og margs að minnast frá þessum tíma. Ingi var mikill KR- ingur eins og lög gera ráð fyrir í hans fjölskyldu og þótti gott að búa við hliðina á KR-heimilinu. Bolli Þór sýndi snilldartakta í knattspyrnu í yngri flokkum KR sem og í nokkrum meistara- flokksleikjum áður en hann hélt utan til náms og bæði Magnús og Gunnar léku með KR upp alla yngri flokkana, Gunnar þó mest í körfubolta og lék hann einnig í meistaraflokki í nokkur ár. Lífið á Kaplaskjólsvegi snerist því mikið um íþróttir og KR og því engin furða þótt undirrituðum hafi þótt gaman að koma þar! Ingi var mikill fjölskyldumað- ur og mikill vinur vina sinna. Maður kom aldrei að tómum kof- unum hjá honum og mikið var gott að geta leitað til hans með lífsins vandamál. Alltaf hélt hann ró sinni og hann var meira fyrir að nota fá orð en fleiri en var þó aldrei feiminn við að segja sína meiningu. Hann var ávallt mætt- ur á merkisdögum í mínu lífi með ljósmyndavélina að vopni og mikið á ég honum að þakka að ég skuli eiga svona margar minn- ingar á pappír. Hann var skip- aður „hirðljósmyndari“ Íshesta sem við Sigrún stofnuðum 1983 frá byrjun og rækti það starf af mikilli alúð alla tíð. Án hans hefði saga þessa fyrirtækis ekki verið skráð og það fór ekkert á milli mála hversu stoltur hann var af fyrirtækinu og ekki hefur það minnkað er sonur hans Gunnar gerðist einn af eigendum þess fyrir nokkrum árum. Ingi var reyndar mikill hestamaður sjálf- ur og átti hesta í mörg ár. Það er mikill harmur kveðinn að öllum sem þekktu Inga við fráfall hans en eftir standa ljúfar minningar um góðan dreng sem gæddur var fágætum mannkost- um. Við Sigrún sendum Bolla, Magnúsi, Gunnari og eiginkon- um ásamt börnum og barnabörn- um okkar innilegustu samúðar- kveðjur og biðum Guð að styrkja þau í sorginni. Einar Gunnar Bollason. MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2021 ✝ Guðmundur Þórir Friðjóns- son fæddist á Upp- sölum í Norður- árdal 26. maí 1944. Hann lést á Heil- brigðisstofnun Vesturlands Akra- nesi 15. september 2021. Foreldrar hans voru hjónin Friðjón Jónsson bóndi, f. 6. maí 1903, d. 5. maí 1991 og Lovísa A. Guðjónsdóttir hús- freyja, f. 24. júní 1915, d. 14. október 1986. Guðmundur var annar í fimm systkina röð, þau eru Fríða Dag- björt, f. 1941, d. 1942, Anna Ragnheiður, f. 1946, Guðjón, f. 1948 og Olga, f. 1956. inmaður hennar er Jóhann S. Andrésson og eiga þau þrjár dætur. 5) Sigurþór, f. 10. maí 1983, sambýliskona hans er Sig- ríður Ólöf Valdimarsdóttir og eiga þau átta börn. Fyrstu þrjú árin bjó Guðmund- ur með foreldrum sínum á Upp- sölum í Norðurárdal og fluttist svo að Hóli í Svínadal á fardögum árið 1947. Guðmundur byrjaði ungur að aldri að vinna fyrir sér við ýmis störf. Haustið 1962 hóf hann nám við Bændaskólann á Hvanneyri og útskrifast þaðan vorið 1964. Árið 1966 kynnist hann eftirlifandi konu sinni, Sig- ríði Illugadóttur, og gifta þau sig 16. desember 1967. Þau bjuggu alla sína búskapartíð á Hóli þar til í nóvember 2019, þá fluttu þau á Akranes. Guðmundur verður jarðsung- inn í Akraneskirkju 24. sept- ember kl. 13 og verður athöfn- inni streymt á vef Akraneskirkju, https://www.akraneskirkja.is/ Hlekk á streymi má finna á: https://www.mbl.is/andlat Eftirlifandi eig- inkona Guðmundar er Sigríður Illuga- dóttir, f. 30. sept- ember 1946, og eignuðust þau fimm börn: 1) Friðjón, f. 18. september 1967, eiginkona hans er Sylvía Rós Helga- dóttir og eiga þau fjögur börn. 2) Höskuldur Kristján, f. 23. desember 1968, d. 27. nóv- ember 2019, eftirlifandi eig- inkona hans er Kristjana J. Jó- hannsdóttir og eiga þau þrjú börn. 3) Jón Þórólfur, f. 18. sept- ember 1973, eiginkona hans er Silja Ósk Björnsdóttir og eiga þau fjóra syni. 4) Sæunn Kol- brún, f. 1. nóvember 1978, eig- Við áttum hér saman svo indæla stund sem aldrei mér hverfur úr minni. Og nú ertu genginn á guðanna fund það geislar af minningu þinni. (Friðrik Steingrímsson) Hjartansþakkir fyrir yndislega samveru í gegnum árin ástin mín, þín er sárt saknað. Þín eiginkona, Sigríður (Sirrý) Elsku pabbi og tengdapabbi. Við þökkum fyrir gott samstarf í gegnum búskapinn, það var alltaf mikil kappsemi í þér. Maður var kannski nýbyrjaður á einhverju verki, þá varst þú kominn og varst fljótur að segja „ég get gert þetta ef þú vilt fara að gera eitthvað ann- að, nú ég er bara að bjóða þetta, ég er réttur til þess!“ Minnið þitt var rosalega gott. Gott dæmi um það var ef þú sást einhverja kind, sem fékk sérmeðhöndlun á sauðburði, í smalamennsku um haustið, þá gast þú rakið vorsögu hennar eins og hún lagði sig. Kindin hafði borið þennan dag, var í þessari stíu, lömbin þurftu pela og þar fram eft- ir götum. Það verður tómlegt í morgunmjöltum, þegar enginn kemur og spyr hvað er að frétta og hvort við séum búin að lesa Skessu- hornið eða Bændablaðið. Það kom svo sem ekki alltaf að sök, þar sem þú þuldir upp áhugaverðustu greinarnar. Það er ótrúlegt að það hafi bara verið í fyrrahaust sem við vorum að laga hlöðugaflana úr vinnukörfunni framan á traktors- gröfunni. Þar kom stálminnið aftur fram. Þú rifjaðir upp að vinnuað- staðan hefði ekki verið svona þægi- leg fyrir rúmum 50 árum þegar verið var að byggja hlöðuna, en þá hefði allt verið gert úr stiga. „Það er að koma þurrkur, má ég fara að slá?“ Þetta er setning sem heyrðist reglulega í morgunmjöltum í sum- ar. Það er hreint ótrúlegt, hvað þú náðir að slá mikið í sumar, miðað við heilsufar. Kappið var alltaf jafn mikið að halda áfram. Þú varst að slá Grundarstykkið, sem var ný- endurræktað og loksins hægt að slá það í einni heild af því það var búið að loka skurðinum, og þú sett- ir það ekki fyrir þig þótt það þyrfti að hjálpa þér í og úr traktornum. Þetta var viku áður en þú lagðist inn á sjúkrahús. Eftir að þú leggst inn á sjúkrahús virtist hugurinn vera mikið í sveitinni en þú hringd- ir á morgnana og spurðir um veðr- ið, hvað ætti að gera í dag og hvað væri að frétta úr nágrenninu og ef spurt var hvernig þú hefðir það, var svarið „alltaf eins, bara svip- aður“ og varst fljótur að segja „þetta er gott núna“. Friðjón og Sylvía. Elsku pabbi, þetta gerðist allt svo hratt sem MND-sjúkdómurinn náði tökum á þér, alla tíð varstu svo sterkur og heilsuhraustur, mikið var erfitt að horfa uppá kraftana í líkamanum þínum dvína en hugur þinn bar þig svo langt þú ætlaðir þér aldrei að gefast upp lífsviljinn var svo sterkur hjá þér. Sveitin átti hug þinn allan og varstu þar eins mikið og þú gast og tókst þátt í þeim verkum sem þú hafðir unun af, í miðjum sauðburði byrjaðir þú að veikjast en samt gafst þú ekki upp, fórst á dráttar- vél og náðir að slá, það gaf þér svo mikið. Þú hafðir líka svo gaman að því að ferðast um landið á húsbílnum með mömmu og náðuð þið að fara nokkrar útilegur saman í sumar. Þann 16. ágúst fórstu með okkur ógleymanlegan rúnt um Borgar- fjörð, þú gast talið upp nöfnin á öll- um bæjunum á leiðinni, minni þitt og viska var með ólíkindum, við komum við í lundinum á Gunn- laugsstöðum sem þér þótti svo vænt um. Nú er skarð því að skjólið er horfið er skýldi í bernskunnar tíð og margt er í minningu sorfið er markaði gleði og stríð. Þau gleymast ei gömlu sporin er gengum við þér við hlið, um nóttlausu veraldarvorin við hlýddum á fuglanna klið. Ég veit að Guð þig mun geyma þó glitrar mér tár á kinn, við elskum og virðum allt heima vökum og biðjum um sinn. Við kveðjumst með klökkva í sinni er kallinu þú hefur hlýtt, en lífsstarf þitt lifir í minni þín leiðsögn og viðmót blítt. (Reynir Hjartarson) Hvíl í friði elsku pabbi. Sæunn og Jóhann. Elsku pabbi og tengdapabbi. Við fjölskyldan eigum eftir að sakna þín sárt en við eigum mikið af fallegum minningum sem eiga eftir að ylja okkur. Mér tregt er um orð til að þakka þér, hvað þú hefur alla tíð verið mér. Í munann fram myndir streyma. Hver einasta minning er björt og blíð, og bros þitt mun fylgja mér alla tíð, unz hittumst við aftur heima. Ó, elsku pabbi, ég enn þá er aðeins barn, sem vill fylgja þér. Þú heldur í höndina mína. Til starfanna gekkstu með glaðri lund, þú gleymdir ei skyldunum eina stund, að annast um ástvini þína. Þú farinn ert þangað á undan inn. Á eftir komum við, pabbi minn. Það huggar á harmastundum. Þótt hjörtun titri af trega og þrá, við trúum, að þig við hittum þá í alsælu á grónum grundum. Þú þreyttur varst orðinn og þrekið smátt, um þrautir og baráttu ræddir fátt og kveiðst ekki komandi degi. (Hugrún) Hjartans þakkir fyrir allt. Minn- ing þín lifir með okkur. Þinn sonur og tengdadóttir. Jón og Silja. Föðurminning Englar Guðs þér yfir vaki og verndi pabba minn vegir okkar skiljast núna, við sjáumst ekki um sinn. En minning þín hún lifir í hjörtum hér því hamingjuna áttum við með þér. Þökkum kærleika og elsku, þökkum virðingu og trú þökkum allt sem af þér gafstu, okkar ástir áttir þú. Því viðmót þitt svo glaðlegt var og góðleg var þín lund og gaman var að koma á þinn fund. Með englum Guðs nú leikur þú og lítur okkar til nú laus úr viðjum þjáninga, að fara það ég skil. Og þegar geislar sólar um gluggann skína inn þá gleður okkar minning þín, elsku pabbi minn. Vertu góðum Guði falinn er hverfur þú á braut gleði og gæfa okkur fylgdi með þig sem förunaut. Og ferðirnar sem förum við um landið út og inn er fjársjóðurinn okkar pabbi minn. Takk fyrir allt, elsku besti pabbi minn. Mun ávallt sakna þín. Þinn sonur Sigurþór. Við eigum minningar um brosið bjarta, lífsgleði og marga góða stund, um mann sem átti gott og göfugt hjarta sem gengið hefur á guðs síns fund. Hann afi lifa mun um eilífð alla til æðri heima stíga þetta spor. Og eins og blómin fljótt að frosti falla þau fögur lifna aftur næsta vor. (Guðrún Vagnsdóttir) Hvíl í friði elsku afi, Lilja Þórey. Þótt þú sért ekki hjá okkur lengur þá lifa minningarnar sem þú hefur gefið okkur. Minningarn- ar eru bæði úr leik og starfi, þótt langflestar minningarnar tengist að sjálfsögðu landbúnaðarstörf- um. Upp í kollinn spretta minn- ingar af ferðum upp í fjall að skoða kvígur, rökræðum yfir girðingar- vinnu, að setja niður kartöflur og taka þær upp, smalamennsku (sem við vorum nú ekki alltaf sam- mála um) og keyrslum á traktor- um og Hiluxum við hin ýmsu störf. Við heyskaparstörfin þurfti maður að hafa sig allan við til að halda í við vinnueljuna þína. Þar sem þú byrjaðir yfirleitt manna fyrstur að morgni og hættir einkum manna seinastur. Undanfarna tvo vetur, eftir búflutninga ykkar á Akranes, myndaðist svo sú óformlega hefð að ég kæmi í kaffi og spjall eftir vinnu og ef mér förlaðist að mæta á tilskyldum tíma var að sjálf- sögðu hringt og athugað hvort ég ætlaði nú ekki örugglega að koma við. Kæri afi, þú varst stór hluti af okkar daglegu lífsrútínu. Síðasta heimsókn okkar til þín er okkur dýrmæt minning. Án þín, og þinna pælinga um veður og verk, er dag- urinn heldur tómlegur. Með söknuði og trega í tali, tími þinn er liðinn. Minning lifir í mynd og máli, megir þú finna friðinn. Anton og Þorbjörg. Elsku afi Gummi var alveg ein- stakur maður með góða nærveru og fallegt hjarta. Við höfum brallað ýmislegt í gegnum tíðina og fannst mér alltaf skemmtilegast þegar ég var yngri að fá að sinna sveitastörf- unum með honum. Afi var mín helsta fyrirmynd í einu og öllu og hef ég alltaf litið upp til hans með margt. Hann hafði alltaf margar sögur að segja og fannst mér þær allar mjög áhugaverðar og skemmtilegar. Afi gaf sér líka alltaf tíma til að hlusta á það sem maður hafði sjálfur að segja. Það sem mér hefur alltaf þótt fyndið við afa er að þegar maður kynnti hann fyrir nýju fólki, þá spurði hann alltaf hverra manna þau væru, bara til þess að vera viss hvort hann þekkti ekki alveg örugglega til. En elsku afi minn, ég er ótrú- lega þakklát fyrir allan þennan tíma sem við fengum saman, allt spjallið okkar saman og alla kaffi- bollana sem við drukkum með. Ég hefði viljað fá meiri tíma með þér en ég veit að ef það er líf eftir þetta líf, þá einn daginn hitt- umst við aftur og getum drukkið eins marga kaffibolla með sykur- molum og við viljum og verið sam- an í fjárhúsunum því það var það sem okkur þótti skemmtilegast að gera saman. Söknuðurinn er mikill en þó huggum við okkur við þær hlýju minningar sem við eigum um þig. Við pössum upp á ömmu fyrir þig. Þín Steinunn Anna. Elsku afi. Það er virkilega sárt að hugsa til þess að þú sért ekki með okkur lengur, en vitum við samt að þú ert aldrei langt undan. Minningarnar okkar eru óteljandi enda höfum við brallað ýmislegt í gegnum tíðina, þegar ég hugsa til þín sé ég dugn- aðarbónda sem átti erfitt með að sitja kyrr og vann hörðum höndum við að rækta bú sitt og land, en það sem stendur mest upp úr er hversu handlaginn þú varst. Ef það vantaði að smíða eitthvað varst þú ekki lengi að galdra það fram. Rétt eins og þegar við Aldís vor- um nýbúin að kaupa húsið okkar og ég var að lýsa húsinu fyrir þér í síma, þá barst í tal að botnstykkið í einni útidyrahurðinni væri orðið lé- legt og stuttu seinna komuð þið amma í mat til okkar og þú komst færandi hendi með nýtt botnstykki sem þú byrjaðir strax að dunda í eftir þetta símtal. Einnig eru þau ófá skiptin sem við fórum saman að hreinsa rot- þrær fyrir fólk. Ég man eitt sinn eftir því er við fórum inn í Svarfhólsskóg að soga upp úr rotþró, það var mikið bras og traktorinn bæði spólaði og prjónaði því eina leiðin var að keyra upp meðfram merkjagirð- ingunni og það endaði með því að pabbi þurfti að koma á stóra Zetor og draga litla Zetor upp svo að við kæmumst á staðinn. Það hafðist eftir þó nokkurt bras en situr líka fast sem ævintýri í minningasafn- inu. Elsku afi, takk fyrir allt! Nú yfir okkur vakir þú ó hve sárt það er að kveðja. Þau „jæja“ voru orðin þrjú en minningar okkar ætíð gleðja. Guðmundur Þórir Friðjónsson, Aldís Inga Stefánsdóttir. Guðmundur Þórir Friðjónsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.