Morgunblaðið - 24.09.2021, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 24.09.2021, Blaðsíða 40
40 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2021 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Þótt aðrir reyni að leggja stein í götu þína muntu ná því markmiði sem þú ætlar þér ef þú ert nógu ákveðinn. 20. apríl - 20. maí + Naut Ákveðnar staðreyndir um þig gætu spurst í dag og jafnvel leitt til rifrildis fyrir opnum tjöldum. Hafðu bara þitt á hreinu og þá munu deilarnar ekki hafa nein áhrif á þín störf. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Mundu að sá sem nýtur góðrar vináttu verður að vera reiðubúinn til þess að leggja sitt á móti. Ef þú ert ekki viss um hvað það þýðir, skaltu hiklaust leita þér ráðgjafar. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Þótt freistandi sé skaltu láta hlut sem þig langar í lönd og leið. Fólk í ástarhug sækist eftir athygli þinni. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Þegar eitthvað kastast í kekki millum manna, verða þeir að hafa þroska til að gera út um málið á hávaðalausan hátt. Nú er rétti tíminn til að ganga að samningaborði. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Vinátta er dýrmætur hlutur og vand- meðfarinn. Hver er sinnar gæfu smiður og það á við jafnt í starfi sem leik. 23. sept. - 22. okt. k Vog Notaðu daginn til að spjalla við vini þína. Láttu það eftir þér að gera eitthvað skapandi því það mun veita þér mikla gleði. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Þú léttir á þínum eigin áhyggj- um ef þú gefur þér tíma til að hjálpa öðrum. Í stað þess að flýja heim vinnunnar, skaltu taka þér fimm mínútur fyrir djúpöndun eða göngutúr í hádeginu. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Ef þú ert ekki í skapi til að fara út meðal vina skaltu láta það eftir þér, því það kemur dagur eftir þennan dag. Farðu fram með yfirveguðum hætti. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Þótt hversdagsleikinn virðist oft grár og leiðinlegur þarf ekki margt til þess að breyta öllu til betri vegar. Ef þig kitlar í magann þegar viss aðili er í augnsýn, er lík- lega góð ástæða fyrir því. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Það er ekki alltaf auðvelt að framkvæma hluti á venjulegan, réttan og út- reiknaðan hátt. Reyndu að breyta þeim að- stæðum sem þú ert ósáttur við. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Eitthvað gerir það að verkum að þú dregur þig inn í skelina. Ef þér verða á mis- tök, skaltu reikna með að gjalda fyrir þau. „Frá því að við fengum okkur gistibíl, er erfitt að vera heima þegar við erum í fríi. Við vorum allt sum- arfríið okkar í fyrrasumar úti á landi á bíl sem við keyptum þá um vorið, litlum Bens Vito. Þar þurftum við að standa í keng til að athafna okkur í bílnum en við elskuðum að ferðast í honum og nutum hverrar mínútu. En í vor fengum við svo alvörubíl, Sprin- ter, sem er stóri bróðir Vito. Frá því við fengum hann höfum við nánast ekki verið heima. Ég átti inni ónotað sumarfrí í sumar og Magnús er nátt- úrulega kennari með sumarfrí næst- um allt sumarið. Við vorum samfellt á flakki um landið allt fríið okkar og höfum farið nánast allar helgar sem við eigum lausar til að gera eitthvað skemmtilegt. Við göngum á fjöll, veiðum í ám og vötnum, förum í köld böð á fjöllum og elskum að vera á skíðum. Svo erum við líka dugleg að heim- sækja fólk. Við erum bæði vinamörg og finnst mikilvægt að rækta sam- band við fólkið okkar, bæði vini og ættingja. Svo finnst okkur bara æv- intýri að lifa og búa í bílnum. Við eld- um okkur oftar en ekki veislumat í bílnum á kvöldin, spilum saman og njótum þess að lifa hvern dag eins og hann væri okkar síðasti.“ Sextán afmælisveislur Hulda Ragnheiður hefur nýtt allt stundakennari í áhættustýringu við Háskólann á Bifröst. Hulda var í stjórn Félags kvenna í atvinnulífinu frá árinu 2018 og formaður félagsins (FKA) frá 2019-2021. Á flakki í allt sumar „Náttúran á hug minn allan,“ segir Hulda Ragnheiður, en hún gengur á fjöll hvenær sem færi gefst með gönguhópnum sínum, Fjallkonum. Það er hópur sem samanstendur að mestu af konum úr sveitunum í kringum Húsavík, á Tjörnesi, í Aðal- dal og Bárðardal. Þær ganga á fjöll allt árið um kring og fá þeir eigin- menn sem það vilja fulla aðild að gönguhópnum. Magnús hefur verið mjög virkur í Fjallkonum með Huldu Ragnheiði síðustu árin. H ulda Ragnheiður Árna- dóttir fæddist á Húsa- vík 24. september 1971 og ólst þar upp að mestu. Frá níu ára aldri var Hulda Ragnheiður mestan hluta sumars í sveit eða sumar- störfum víða um land, m.a. í Skriðdal, Reykjadal, Laugum í Sælingsdal og á Ísafirði. Hulda Ragnheiður lauk námi í kjólasaum frá Iðnskólanum í Reykja- vík árið 1992 en þá var hún þegar flutt að Hraunkoti í Aðaldal þar sem hún bjó frá árinu 1988 með fyrrver- andi eiginmanni sínum, en þau ráku þar sauðfjár- og kúabú, auk þess sem Hulda Ragnheiður rak saumastofu sem sérhæfði sig í að sauma föt á fatlaða og hátíðarbúning á íslenska karlmenn. Hulda Ragnheiður hefur alltaf verið mjög virk í félagsmálum og sat m.a. í sveitarstjórn Aðaldælahrepps á árunum 1998-2002. Hún útskrif- aðist úr diplómanámi í opinberri stjórnsýslu og stjórnun árið 2001 og B.Sc. í viðskiptafræði frá Háskól- anum á Akureyri árið 2005. Í framhaldi af því hóf Hulda Ragn- heiður störf sem fjármálastjóri hjá Húsavíkurbæ (nú Norðurþingi) en hélt áfram til náms á meistarastigi í fjármálum, bankastjórnun og al- þjóðaviðskiptum sem hún lauk árið 2008. Samhliða meistaranáminu leysti hún tímabundið af sem bæj- arstjóri á Blönduósi, en árið 2007 flutti hún suður yfir heiðar og starf- aði í innri endurskoðunardeild hjá Kaupþingi og síðar Arion banka til loka árs 2009. Áður en Hulda Ragn- heiður tók við núverandi starfi sem forstjóri Náttúruhamfaratryggingar Íslands (áður Viðlagatryggingar Ís- lands) árið 2010, starfaði hún eitt sumar sem matráðskona á Þorbergs- setri í Suðursveit. Árið 2015 lauk hún diplóma í góðum stjórnarháttum frá HÍ. Hulda Ragnheiður hefur alltaf notið þess að taka þátt í námi og kennslu og hefur verið mjög virk á sviði góðra stjórnarhátta og áhættu- stjórnunar á síðustu árum, en hún hefur meðal annars verið með nám- skeið í HÍ og Akademias, en er nú síðasta ár til að halda upp á fimm- tugsafmælið sitt. Hún ákvað á 49 ára afmælinu sínu að byrja að halda upp á 50 ára afmælið í sérstökum til- gangi. Hún vildi finna leið til að gefa áfram mögulegar afmælisgjafir sem hún myndi fá á stórafmælinu og ákvað að fara óvenjulega leið til að láta það verða að veruleika. Hún bauð öllum 1.500 Facebook- vinum sínum í afmælið sitt, setti upp 16 dagsetningar sem boðsgestir gátu valið á milli og takmarkaði fjölda þeirra sem gátu skráð sig í hverja veislu við átta. Það varð „uppselt“ í afmælið á örfáum klukkutímum og fólk fékk að skrá sig á biðlista ef ein- hver sæti myndu losna. Svo óskaði hún eftir því að allir sem hefðu ann- ars gefið henni afmælisgjöf myndu leggja andvirðið inn á Kvenna- athvarfið og merkja færsluna „af- mæli“. Þannig myndi hún losna við að fá fullt af hlutum sem hún þyrfti ekkert á að halda í afmælisgjöf, en á sama tíma gætu gjafirnar komið að góðum notum á öðrum stað. Vegna Covid-19 hefur hún bara náð að halda 11 af þessum 16 afmælisboðum, en nú verður brátt hafist handa við að klára þessi sem út af standa. Nú þeg- ar hafa Kvennaathvarfinu borist fjöl- margar peningagjafir í nafni Huldu Ragnheiðar. „Já, þetta er búið að vera algjört ævintýri. Með þessu móti fáum við tækifæri til að hitta alla sem koma í afmælið mitt og setjast niður yfir góðum mat í ró og næði. Það hefur verið mikið hlegið og fólk hefur verið að kynnast nýjum vinum, því allir eru í óvissuferð, því þú gast ekki vitað hverjir skráðu sig í afmælið sama kvöld og þú.“ Það er tilvalið að benda þeim sem vilja samgleðjast Huldu Ragnheiði í tilefni afmælisins að senda Kvennaathvarfinu smá glaðn- ing með innborgun á reikning þeirra nr. 101-26-43227, kt. 410782-0229 og skrá „Afmæli“ í skýringu. Fjölskylda Eiginmaður Huldu Ragnheiðar er Magnús Guðjónsson, f. 21.9. 1959, kennari við Skipstjórnarskólann. Þau tóku saman árið 2011 og giftu sig 2015. Þau búa í Kórahverfinu í Kópa- vogi. Foreldrar Magnúsar voru hjón- Hulda Ragnheiður Árnadóttir, forstjóri Náttúruhamfaratryggingar Íslands – 50 ára Í Þistilfirði „Þetta er nýjasta æðið. Sjósund og böð í köldum fjallalækjum.“ Heldur 16 sinnum upp á afmælið Afmælisbarnið Hulda Ragnheiður við Dynjanda í Arnarfirði. Til hamingju með daginn HEIMILI ENSKA BOLTANS Á VEFNUM 60 ÁRA Jón Özur Snorrason er fæddur Hafnfirðingur og þess vegna Gaflari og íslensku- og bókmenntafræðingur frá HÍ. Hann hefur kennt íslensku við Fjölbrauta- skóla Suðurlands frá 1997 fyrir utan árabilið 2013- 2015 þegar hann kenndi við Menntaskólann að Laug- arvatni. Hann rekur ásamt eiginkonu sinni Gull- kistuna sem er dvalarstaður fyrir skapandi fólk á Laugarvatni. „Rithöfundar og listamenn víða að úr heiminum dvelja hjá okkur í að minnsta kosti mánuð í næði og við höfum rekið staðinn frá 2009 og gengið vel. Um 600 listamenn hafa dvalið á Gullkistunni frá byrjun. Þegar Jón Özur er spurður út í hvort íslenskan hafi breyst mikið á þessum tíma segir hann að svo sé og sérstaklega á allra síðustu árum. „Orðaforði fer hraðminnkandi og oft í kennslunni þarf ég að útskýra hvað ég er að segja þegar ég tala mitt eigið mál við nemendur. Þetta er ekki bara að gerast í ís- lensku því bandarískir rithöfundar sem dvelja á Gullkistunni og eru líka kennarar segja það sama um enskuna. Ég er gamall körfuboltamaður og hef alltaf haft áhuga á körfunni,“ segir Jón Özur um áhugamál sín. „Svo hef ég áhuga á bókmenntum og textaskrif- um yfirleitt, ljósmyndun, útivist og náttúrunni svo eitthvað sé nefnt. Einnig hefur áhugi minn á hundum aukist eftir að ég eignaðist minn eigin fyrir nokkrum árum sem ég kalla Kára Sölmundarson. Ég var bókmennta- gagnrýnandi í ellefu ár á sjálfu Morgunblaðinu í gamla daga og skrifa núna dálítið í Dagskrána, staðarblaðið á Selfossi, og á vefsíðu FSu. Svo er ég skúffuskáld en textar eftir mig hafa aðeins birst í tímaritum og sýnisbókum.“ FJÖLSKYLDA Eiginkona Jóns Özurar er Alda Sigurðardóttir, f. 1960, rek- ur Hannyrðabúðina á Selfossi ásamt fleiru. Börn þeirra eru Völundur, f. 1984, Nökkvi, f. 1997, og Vala Guðlaug, f. 2001. Barnabarn er Vigdís Völund- ardóttir, f. 2020. Foreldrar Jóns Özurar: Snorri Jónsson, f. 1928, d. 2016, kennari og ritstjóri, og Guðrún Gísladóttir, f. 1929, húsmóðir í Hafnarfirði. Jón Özur Snorrason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.