Morgunblaðið - 24.09.2021, Síða 43
ÍÞRÓTTIR 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 2021
_ Jón Dagur Þorsteinsson, landsliðs-
maður í knattspyrnu, skoraði fyrsta
mark AGF í gærkvöld þegar liðið sigr-
aði D-deildarliðið Frem 3:0 í 32ja liða
úrslitum dönsku bikarkeppninnar.
Dregið var til 16 liða úrslitanna í gær-
kvöld og AGF mætir SönderjyskE, liði
Kristófers Inga Kristinssonar, sem
einmitt skoraði tvö mörk í bikarsigri
þess í fyrrakvöld.
_ Heiðmar Felixson, fyrrverandi
landsliðsmaður í handknattleik, hefur
verið ráðinn aðstoðarþjálfari karlaliðs
Hannover-Burgdorf sem leikur í efstu
deild í Þýskalandi. Heiðmar hefur verið
yfirþjálfari yngri flokka félagsins
undanfarin níu ár.
_ Bandaríski körfuboltamaðurinn
Shawn Glover sem lék hálft tímabil
með Tindastóli síðasta vetur er geng-
inn til liðs við körfuknattleikslið KR-
inga. Glover er 2,01 m hár framherji
sem hefur leikið með liðum í Úrúgvæ,
Ísrael, Danmörku, Ungverjalandi og
Spáni á undanförnum árum, m.a. með
hinu kunna danska liði Bakken Bears.
_ Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri
Liverpool, staðfesti í gær að Trent Al-
exander-Arnold og Roberto Firmino
væru leikfærir á ný fyrir leik liðsins
gegn Brentford í ensku úrvalsdeildinni
sem fram fer í London á morgun. Alex-
ander-Arnold hefur jafnað sig af veik-
indum og Firmino af meiðslum.
_ Halldór Orri Björnsson
leikur sinn síðasta leik
fyrir Stjörnuna í loka-
umferð Íslandsmóts
karla í knattspyrnu á
morgun þegar liðið
mætir KR. Hall-
dór Orri, sem er
34 ára, er
næst-
markahæsti
og næst-
leikjahæsti
leikmaður
Garðabæjarliðsins í
efstu deild með 58
mörk í 172 leikjum í
deildinni en hann
lék fyrst með
meistaraflokki fé-
lagsins árið 2004.
Eitt
ogannað
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, Olísdeildin:
Eyjar: ÍBV – Afturelding ......................... 17
Úrvalsdeild karla, Olísdeildin:
Varmá: Afturelding – Haukar............. 19.30
1. deild karla, Grill 66-deildin:
Dalhús: Fjölnir – ÍR............................. 18.30
Sethöllin: Selfoss U – Valur U............. 19.30
Dalhús: Vængir Júpíters – Hörður..... 20.30
1. deild kvenna, Grill 66-deildin:
Kaplakriki: FH – Stjarnan U ................... 19
Eyjar: ÍBV U – Víkingur .......................... 19
Hertz-höllin: Grótta – Valur U............ 19.30
KNATTSPYRNA
1. deild karla, Lengjudeildin:
Olísvöllur: Vestri – Kórdrengir........... 16.15
Í KVÖLD!
Spánn
Bilbao – Zaragoza ............................. 76:100
- Tryggvi Snær Hlinason skoraði 11 stig
fyrir Zaragoza og tók 9 fráköst á 22 mín-
útum.
Evrópubikar kvenna
1. umferð, fyrri leikur:
Haukar – Uniao Sportiva..................... 81:76
57+36!)49,
KSÍ
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Aukaþing Knattspyrnusambands Ís-
lands, KSÍ, fer fram laugardaginn 2.
október næstkomandi þar sem ný
bráðabirgðastjórn og nýr bráða-
birgðaformaður verða kosin.
Þingið fer fram á Hilton Reykjavík
Nordica-hótelinu á Suðurlandsbraut
en þetta er fyrsta aukaþing sam-
bandsins síðan árið 1956.
Guðni Bergsson sagði af sér sem
formaður KSÍ í lok ágúst eftir harða
gagnrýni fyrir þöggun og meðvirkni
vegna meintra kynferðisbrota lands-
liðsmanna. Stjórnin sagði síðan öll af
sér í kjölfarið.
Frestur til að skila inn framboðum
fyrir aukaþingið rennur út á morgun
en á þinginu verður kosinn formaður
til bráðabirgða, átta stjórnarmeðlimir
til bráðabirgða og þrír varamenn
stjórnar til bráðabirgða.
Ekki verða kosnir aðalfulltrúar
landsfjórðungshluta fyrr en á aðal-
þingi KSÍ sem fram fer í febrúar á
næsta ári og þá verða einnig kosin
nýr formaður og stjórn sem munu
gegna embætti sínu til næstu tveggja
ára hið minnsta.
„Við erum búin að vera að skipu-
leggja aukaþingið samhliða öðrum
verkefnum, eins mikið og hægt er í
það minnsta,“ sagði Ómar Smárason,
deildarstjóri samskiptadeildar KSÍ, í
samtali við Morgunblaðið.
„Það hefur svo færst ákveðinn
þungi í skipulagninguna undanfarna
daga enda ákveðnar dagsetningar
sem þurfa að standast þegar kemur
að svona viðburði. Það er allt á áætl-
un hjá okkur og skipulagningin hefur
gengið vel.
Við getum ekki greint frá því
hverjir það eru sem hafa skilað inn
framboði til stjórnar eða formanns
KSÍ, ekki nema þá bara þeir sem
hafa greint frá því sjálfir opinberlega.
Við sjáum hins vegar fram á að
greina frá því á mánudaginn kemur,
hverjir eru í framboði, eins og venjan
hefur verið,“ sagði Ómar en Ásgrím-
ur Helgi Einarsson formaður knatt-
spyrnudeildar Fram tilkynnti í gær
um framboð til stjórnar.
Góð samstaða og teymi
Síðasta ársþing KSÍ var með raf-
rænum hætti vegna kórónuveiru-
faraldursins.
„Þingið verður ekki rafrænt núna
heldur sjáum við fram á að geta hald-
ið hefðbundið þing. Við munum hins
vegar streyma þinginu rafrænt, líkt
og við gerðum síðast, þannig að allir
sem hafa áhuga á því að fylgjast með
geta gert það.
Þetta er eins og hvert annað verk-
efni og við höfum áður skipulagt árs-
þing. Við höfum vissulega ekki lent í
því áður að skipuleggja aukaþing en
þetta er ákveðin rútína sem fylgir
svona þingi. Við tökum upp tékk- og
verkefnalistana og förum á fullt í það.
Auðvitað var þetta ekki eitthvað
sem við bjuggumst við en það eru
engin vandamál. Þetta er verkefni
sem þarf að takast á við og við mun-
um gera það með sóma.“
Það hefur gustað hressilega um
Knattspyrnusambandið undanfarnar
vikur og hefur umræðan haft áhrif á
starfsfólk sambandsins.
„Þetta er búinn að vera mjög sér-
stakur tími að upplifa, svo við segjum
það bara eins og það er. Við sem
störfum saman hjá KSÍ höfum unnið
lengi saman og við höfum reynt að
finna ákveðinn styrk hvert hjá öðru.
Við vinnum þau verkefni sem okk-
ur eru falin og reynum að klára þau
eftir bestu getu. Það hefur auðvitað
verið gríðarleg áskorun á löngum
köflum að vinna sig í gegnum þetta
en okkur hefur tekist vel til.
Samstaðan er mjög góð á vinnu-
staðnum og við erum gott teymi,“
bætti Ómar við í samtali við Morgun-
blaðið.
Fyrsta aukaþingið frá 1956
- Nýr formaður og ný stjórn verða
kjörin til bráðabirgða á aukaþingi KSÍ
Morgunblaðið/Eggert
Álag Óskar Guðbrandsson og Ómar Smárason ræða málin á blaðamanna-
fundi á dögunum en mikið hefur mætt á starfsfólki KSÍ undanfarna daga.
Skautafélag Reykjavíkur krækti
sér í gærkvöld í sín fyrstu stig á Ís-
landsmóti karla í íshokkí, Hertz-
deildinni, með því að sigra Fjölni
4:1 í Reykjavíkurslag í Skautahöll-
inni í Laugardal. Axel Orongan,
Daníel Magnússon, Kári Arnarsson
og Níels Hafsteinsson skoruðu fyrir
SR en Kristján Kristjánsson gerði
mark Fjölnis.
Þegar liðin þrjú hafa mætt hvert
öðru einu sinni er Skautafélag Ak-
ureyrar með sex stig, SR er með
þrjú stig en Fjölnir hefur tapað
báðum leikjum sínum til þessa.
Fyrstu stigin í
höfn hjá SR
Ljósmynd/Razvan Pasarica
Skoraði Axel Snær Orongan gerði
fyrsta mark SR gegn Fjölni.
Elsa Pálsdóttir frá Njarðvík varð í
gær heimsmeistari í -76 kg flokki
öldunga, 60 ára og eldri, í klass-
ískum kraftlyftingum en heims-
meistaramótið stendur yfir í
Halmstad í Svíþjóð. Elsa lyfti 132,5
kg í hnébeygju og setti heimsmet í
þeirri grein. Hún lyfti næst 60 kg í
bekkpressu og jafnaði þar sinn
besta árangur, og tryggði sér síðan
gullverðlaunin með því að lyfta 160
kg í réttstöðulyftu. Hún bætti eigið
heimsmet í réttstöðulyftunni um 2,5
kg og samanlagður árangur henn-
ar, 352,5 kg, er líka nýtt heimsmet.
Elsa heimsmeist-
ari öldunga
Ljósmynd/Facebook
Sigursæl Elsa Pálsdóttir er nú bæði
heims- og Evrópumeistari.
Þriggja ára bið áhugafólks um Ry-
der-bikarinn í golfi lýkur í dag þegar
keppnin um bikarinn hefst í Wis-
consin í Bandaríkjunum. Lið Evrópu
sigraði á heimavelli árið 2018 og
nægir því jafntefli til að halda bik-
arnum samkvæmt reglunum.
Keppnin fer alla jafna fram á
tveggja ára fresti en var frestað í
fyrra vegna heimsfaraldursins.
Skýrir það hvers vegna nú líða þrjú
ár á milli keppna. Reyndar hefur það
gerst áður, en keppnin átti að fara
fram á Belfry í Englandi í sept-
ember árið 2001 en var frestað um
eitt ár vegna hryðjuverkaárásanna á
Bandaríkin.
Leikið verður á Whistling Straits-
vellinum. Í keppnisgolfi hjá bestu
kylfingum heims er völlurinn þekkt-
ur fyrir að hafa verið vettvangur
PGA-meistaramótsins 2004, 2010 og
2015 en það er eitt risamótanna.
Leikmenn liðanna hafa verið á
svæðinu alla vikuna til að undirbúa
sig og sinna ýmsum verkefnum sem
keppninni fylgja. Vinsældir hennar
hafa aukist jafnt og þétt í gegnum
árin. Er keppnin orðin mjög stór
sjónvarpsviðburður víða um heim.
Keppnirnar um Ryder-bikarinn
og Solheim-bikarinn eru óhefð-
bundin golfmót þar sem um liða-
keppni er að ræða í íþrótt sem er alla
jafna einstaklingsíþrótt. Fyrirkomu-
lagið er holukeppni en ekki högg-
leikur sem notast er við á risamót-
unum og Ólympíuleikunum.
Höggafjöldinn er því ekki lagður
saman heldur hvort liðið vann fleiri
holur í hverri viðureign.
Steve Stricker er liðsstjóri banda-
ríska liðsins og Padraig Harrington
er liðsstjóri evrópska liðsins. Notast
er við sitt hvort fyrirkomulagið hjá
liðunum. Stricker velur sex kylfinga
en sex unnu sig sjálfkrafa inn í liðið
með árangri sínum. Níu gera það hjá
Evrópu og Harrington valdi þar af
leiðandi þrjá til viðbótar. 28 vinn-
ingar eru í boði og því þarf banda-
ríska liðið 14 ½ til að vinna.
AFP
Wisconsin Whistling Straits völlurinn liggur meðfram stóru vatni. Hér er
Spánverjinn Sergio Garcia á 3. teig á æfingahring í vikunni.
Þriggja ára bið
lýkur í dag
- Keppt um Ryder-bikarinn í Wisconsin