Morgunblaðið - 24.09.2021, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 24.09.2021, Qupperneq 48
Opinn samlestur á leikritinu Emil í Kattholti eftir Astrid Lindgren í leikgerð Johans Gille og íslenskri þýðingu Þórarins Eldjárns fer fram í forsal Borgarleikhússins í dag kl. 13, en frumsýnt er í nóvember. „Síðan Emil kom fyrst fram á sjónarsviðið 1963, hefur hann átt vísan stað í hjörtum barna jafnt sem fullorðinna um heim all- an og er nafn hans samofið hugmyndum um lífsgleði og prakkaraskap,“ segir í tilkynningu. Allir sautján leikarar sýningarinnar lesa verkið og syngja lögin. Leikstjóri er Þórunn Arna Kristjánsdóttir. Aðgangur er ókeypis. Opinn samlestur á Emil í Kattholti Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Listin er aðdráttarafl og verkin setja skemmtilegan svip á staðinn hér,“ segir Þórarinn Finnbogason, veitingamaður á Café Mílanó í Faxa- feni í Reykjavík. Þar var í gær opn- uð sýning þriggja myndlistarmanna, sem eru Hólmfríður Dóra Sigurðar- dóttir, Jóhannes Kristjánsson og Ósk Laufdal. Þau hafa öll vakið at- hygli fyrir listsköpun sína. Gjöfult samstarf „Ég hef lengi vitað af Jóhannesi og Dóru hitti ég eitt sinn fyrir til- viljun hér á Café Mílanó og með okk- ur tókst vinskapur. Úr þessu hefur sprottið gjöfult samstarf okkar þriggja,“ segir Ósk Laufdal. Mynd- irnar á sýningu þríeykisins eru alls 20 og byggjast á fyrirmyndum í verkum Claude Monet og Vincent van Gogh. Báðir eru þeir stór nöfn í listasögu heimsins og voru menn sem mörkuðu skil. Monet (1840-1926) var franskur listmálari sem er einn af upphafs- mönnum impressjónismans, lista- stefnu sem spratt upp í París á síðari hluta 19. aldar. Undir merkjum hennar leyfist að ýkja og nota skæra liti, í margræðri merkingu, eins og sést í landslagsverkum Monet. Sterkir litir og pensilstrokur eru svo áberandi hjá hinum hollenska van Gogh (1853-1890). Verk hans eru tal- in til póstimpressjónisma, en í þeirri stefnu felst að túlkun og tilþrif eru gjarnan litrík og persónuleg. Fallegar myndir haustsins „Umhverfið heima hjá mér fyrir norðan er einstakt og er uppspretta í mörgum mynda minna. Hver árstíð hefur sinn sérstaka svip og nú er haustið komið með öllum sínum ein- stöku litbrigðum, svo úr verða fal- legar myndir,“ segir Hólmfríður Dóra, sem býr norður í Vatnsdal, við hólana frægu sem sagðir eru vera óteljandi. Þá er líka falleg og einstök náttúra í Aðaldalnum, þaðan sem Jó- hannes er. Ósk málar hins vegar einkum og helst myndir af fólki og hefur þar fundið sína fjöl. „Verkin okkar á þessari sýningu eru í sígild- um stíl og gamaldags,“ segir Ósk. Þórarinn Finnbogason og Marta Þyrí Gunndórsdóttir, kona hans, hafa rekið Café Mílanó frá 15. júní 2007. „Við tókum við daginn sem reykingar voru bannaðar á öllum opinberum stöðum. Sú ráðstöfun hefur bætt andrúmsloft. Nú kemur fólk á kaffihús til að njóta lífs og list- ar. Hér á Mílanó höfum við stundum verið með 10-12 sýningar hinna ýmsu listamanna á ári, en nú er ætl- unin að hafa þær færri en metnaðar- fullar,“ segir Þórarinn. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Listafólk Ósk Laufdal, Jóhannes Kristjánsson og lengst til vinstri er Hólmfríður Dóra Sigurðardóttir sem hér held- ur á einu málverka sinna. Myndir hinna tveggja eru í bakgrunninum en alls eru 20 myndir á sýningunni góðu. Málverk í sígildum stíl nú sýnd á Café Mílanó - Þríeyki sækir fyrirmyndir til Monet og Vincent van Gogh STILLANLEG HJÓNARÚM MEÐ BODYPRINT DÝNU EIN ALLRA BESTA HEILSUDÝNA Í HEIMI FALLEG SÆNGURVERASETTSÆNGURVER OG NÁTTSLOPPAR HÖFUM ÞAÐ GOTT HEIMA KERTATÍMIKósý ÚRVAL AD VÖNDUÐUM ILMKERTUM FRÁ FRANSKA MERKINU DURANCE, FULLKOMIN Á SÍÐSUMARKVÖLDUM Allt fyrir góðan svefn og betri heilsu FÖSTUDAGUR 24. SEPTEMBER 267. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Haukar urðu í gærkvöld fyrsta íslenska kvennaliðið til að vinna Evrópuleik í körfuknattleik með því að sigra Uniao Sportiva frá Portúgal með fimm stiga mun á Ás- völlum í Hafnarfirði. Þetta var fyrri viðureign liðanna sem mætast aftur á heimavelli Uniao á Asoreyjum næsta fimmtudag en þar kemur í ljós hvort liðanna kemst í riðlakeppni Evrópubikarsins í vetur. »42 Haukakonur með sögulegan sigur ÍÞRÓTTIR MENNING

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.