Morgunblaðið - 06.10.2021, Side 1
M I Ð V I K U D A G U R 6. O K T Ó B E R 2 0 2 1
.Stofnað 1913 . 234. tölublað . 109. árgangur .
MEÐ SALTPAY
UNDIR SMÁ-
SJÁNNI
STEFNIR Í
HARÐA RIMMU
Í KÖRFUNNI
GJÖRNINGAR
FRAMDIR FYRIR
NORÐAN
HALLVEIG SPENNT 22 A! Á AKUREYRI 24VIÐSKIPTAMOGGINN
Það er alla veðra von á Íslandi þegar komið er fram í október.
Miklar framkvæmdir hafa verið í miðbæ Reykjavíkur og nú
eru mörg verk á lokametrunum áður en vetur skellur á með
fullum þunga. Í gær var unnið að hellulögn í Tryggvagötu og
hefur verkið eflaust sóst ágætlega enda veður milt og gott.
Aukið líf mun færast í þetta svæði í næstu viku þegar lúxus-
hótelið The Reykjavík Edition verður opnað við Austurhöfn.
Það hefur að geyma 253 herbergi, fundarherbergi og veislu-
sal svo eitthvað sé nefnt.
Hellulögn í haustblíðu í Tryggvagötu
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
_ Í nýrri greiningu BHM kemur
fram að umsvif í menningar-
greinum eru á hraðri niðurleið í ís-
lensku hagkerfi og að heimsfarald-
urinn hafi haft margfalt meiri áhrif
á menningargreinar en aðrar at-
vinnugreinar. Mikill samdráttur
hefur orðið í launagreiðslum og
fjölda starfandi í skapandi greinum
síðustu ár. Þá kemur einnig fram
að starfslaun listamanna eru með
lægstu launum á íslenskum mark-
aði. Mikilvægt þykir að sérstök
markaðsstefna verði gerð fyrir
menningargeirann. »12
Mikill samdráttur í
menningargreinum
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS
Orku, segir nauðsynlegt að virkja
meira ef anna eigi eftirspurn frá raf-
bílum og umhverfisvænum iðnaði.
„Vegna þess að orkuspáin liggur
fyrir og sýnir að til að rafvæða bíla-
flotann, og til að framleiða eldsneytið
sem sparar okkur gjaldeyri, þarf ein-
faldlega að virkja,“ segir Tómas Már
og vísar meðal annars til framleiðslu
metanóls úr vetni og koltvísýringi.
Tómas Már ræðir áætlanir HS
Orku í ítarlegu viðtali við Viðskipta-
Moggann í dag en fram undan er
uppbygging virkjana til að styðja við
tugmilljarða króna uppbyggingu í
Auðlindagarðinum á næstu árum.
Fiskeldi og gróðurhús
Nú starfi um 1.600 manns í garð-
inum en eftir tíu til fimmtán ár megi
ætla að fjöldinn hafi tvöfaldast.
„Við sjáum fyrir okkur verðmæt
störf af ýmsu tagi. Þar með talið í
þróun á vörum, matvöru, lyfjum og
snyrtivörum,“ segir Tómas Már. Það
liggi meðal annars mikil tækifæri í
matvælatengdri framleiðslu með
fiskeldi og gróðurhúsum.
Virkjun við Geldingadali?
Tómas Már segir aðspurður að
eldgosið í Geldingadölum hafi komið
upp á besta stað fyrir HS Orku.
Hugsanlegt sé að þar verði jarðhita-
svæði í framtíðinni og gæti svæðið
því orðið orkulind í tímans rás.
Spurður hvort fýsilegra sé að selja
orku til útlanda með sæstreng eða
byggja upp iðnað hér á landi kveðst
Tómas Már heldur vera hlynntur
uppbyggingu iðnaðar á Íslandi.
„Ef einhver annar er hins vegar
tilbúinn að taka áhættuna af því að
fjármagna sæstreng tel ég að það sé
raunhæft,“ segir Tómas Már.
Brýnt sé að leggja Suðurnesjalínu
númer 2. Dreifikerfið slái stundum
út enda sé það yfirlestað.
„Það þarf einfald-
lega að virkja“
- Forstjóri HS Orku boðar tugmilljarða króna uppbyggingu
MViðskiptaMogginn
Morgunblaðið/Eggert
Áform HS Orka hyggst stækka virkjanir og reisa nýjar á næstu árum.
_ Fyrsta rekstrarár fyrirtækisins
Aukakennari ehf., sem útvegar
kennara í afleysingar í grunn-
skólum, gekk ljómandi vel að sögn
Ólafar S. Sigurðardóttur sem á og
rekur félagið ásamt Fanneyju
Ófeigsdóttur. Ólöf segir aðsókn í
þjónustu fyrirtækisins stöðugt vera
að aukast. 12-15 kennarar eru á
skrá.
Eftir áramót verður leitarvél bætt
við þjónustu félagsins en þar munu
skólastjórar sjálfir geta leitað að
kennurum í afleysingastörf. Á skrá
eru kennarar með fjölbreyttan bak-
grunn og reynslu.
„Aðalsmerki okkar er að bjóða að-
eins upp á fagmenntaða kennara,“
segir Ólöf. »ViðskiptaMogginn
Mikil eftirspurn eftir
afleysingakennurum
Sigurður Hannesson, framkvæmda-
stjóri Samtaka iðnaðarins, segir
Dóru Björt Guðjónsdóttur borgar-
fulltrúa hafa logið blákalt að sínum
umbjóðendum í gær þegar hún hélt
því fram að borgin hefði fundað með
Samtökum iðnaðarins um stafræna
uppbyggingu borgarinnar.
Samtökin óskuðu eftir fundi með
borgarstjóra vegna verkefnis borg-
arinnar um uppbyggingu stafrænna
innviða en ekki var orðið við þeirri
ósk: „Borgin ætlar að ráða allt frá 65
og upp í 109 manns í hugbúnaðarhús
borgarinnar til þess að efla staf-
ræna stjórnsýslu. Þetta yrði á pari
við eða stærra en stærstu upplýs-
ingafyritæki landsins,“ segir Sig-
urður en tillaga um útboð allra þátta
verkefnisins var felld í borgarstjórn
í gær. »2
Sigurður
Hannesson
Dóra Björt
Guðjónsdóttir
Kannast
ekki við
fundinn