Morgunblaðið - 06.10.2021, Side 20
20 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 2021
50 ÁRA Hafþór Ragnarsson
ólst upp í Breiðholti og Kópa-
vogi en býr í Reykjavík. Hann
er með BA-gráðu í íslensku og
MA-gráðu í hagnýtri menning-
armiðlun, hvort tveggja frá
Háskóla Íslands. Hann er
verkefnastjóri hjá Hljóðbóka-
safni Íslands.
„Ég held meðal annars utan
um hverjir lesa bækurnar hjá
okkur og er þeim innan hand-
ar, en við erum að lesa um 360
bækur á ári. Það er stöðug út-
gáfa orðin allt árið og jólabóka-
flóðið er alltaf að minnka. Útgáfan er því farin að dreifast yfir allt árið, sem
er til mikilla bóta, held ég, fyrir alla.“
Áhugamál Hafþórs eru íþróttir, tónlist og bókmenntir. Hann hefur fengist
við tónlist gegnum tíðina, var í hljómsveitinni Sonum Raspútíns og hefur
sent frá sér lög og einnig skrifað texta fyrir aðra. Hafþór er einnig félagi í
Karlakór Reykjavíkur. Hann sendi frá sér ljóðabókina Orðin tóm árið 1998.
„Svo missti ég skáldagáfuna og titla mig því fv. skáld í símaskránni.“ Í tilefni
stórafmælisins er að koma út plata með honum og Haraldi Gunnlaugssyni
sem varð fimmtugur á mánudaginn og fyrsta lagið, Inside, kemur út á
Spotify í næstu viku.
Hafþór spilar fótbolta einu sinni í viku, en hann æfði á yngri árum með ÍK
og er harður Tottenham-aðdáandi. „Ég þekki því mótlæti. Ég spila líka bad-
minton og hef gert það í 6-7 ár. Það er miklu minni brennsla en í fótboltanum
en er mjög skemmtilegt og reynir á útsjónarsemina.“
Stórafmælinu verður fagnað með því að vera í bústað í Borgarfirði í tvo
daga og svo verður afmælisveisla með fjölskyldunni um helgina.
FJÖLSKYLDA Eiginkona Hafþórs er Arnfríður Inga Arnmundsdóttir, f.
1976, sagnfræðingur og starfar í utanríkisráðuneytinu.
Börn: Perla, f. 1993, Bjartur, f. 1995, Freyja, f. 2000, og Aðalheiður, f. 2009.
Barnabarn: Salka, f. 2017, dóttir Perlu.
Foreldrar: Ragnar Ingibergsson, f. 1945, fv. stýrimaður, og Dagbjört
Árnadóttir, f. 1949, fv. leikskólastarfsmaður. Þau eru búsett í Kópavogi.
Hafþór Ragnarsson
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Það er ákaflega þýðingarmikið að
þú sért sveigjanlegur og bregðist rétt við
þeim nýjungum, sem þér verða kynntar á
næstu dögum. Áætlanir sem þú gerir munu
ganga upp.
20. apríl - 20. maí +
Naut Ekki vera viss um að þú hafir allar
upplýsingar í dag. Taktu hlutunum samt
með ró og kláraðu það sem skiptir máli.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Gefðu öðrum tækifæri og svo
geturðu vegið og metið það sem þeir segja
og tekið ákvörðun í erfiðu máli. Jafnaðu
ágreining þinn við gamlan vin.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Gleymdu ekki að tjá tilfinningar
þínar í garð þeirra, sem standa þér nærri.
Láttu ekki undan lönguninni til þess að slá
um þig, þótt sterk sé.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Reyndu að hrista svolítið upp í hvers-
dagsleikanum og gera eitthvað óvenjulegt í
dag. Notaðu daginn til þess að reyna fyrir
þér sem byrjandi á einhverju sviði.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Verið hrein og bein í samskiptum í
dag. Láttu ekki hugleiðingar um framtíðina
skemma fyrir þér nútíðina.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Það er mikil neikvæðni í loftinu í dag
og líklegt að hún hafi áhrif á þig eins og
aðra. Þú þarft að hafa augun hjá þér svo
áætlun þín fari ekki öll úr skorðum.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Skelltu ekki skollaeyrum við
aðvörunum annarra þótt þér finnist þú
sigla lygnan sjó. Miklar breytingar eru fram
undan í lífi þínu á næstu vikum.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Þetta er ekki góður dagur til
þess að sinna fjármálunum. Ekki gera ráð
fyrir því að þú vitir hvað einhver annar vill.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Þú hikar við að fjárfesta í ein-
hverju í dag. Það getur reynst nauðsynlegt
að koma að málum úr ólíkum áttum og er
lykillinn að því að skilja þau.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Fátt er betra en góðir vinir en
farðu varlega í að ráðleggja þeim í við-
kvæmum málum. Ný sambönd eiga eftir að
skila þér gróða og gleði.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Þú ert í raun að bíða eftir að hlut-
irnair komi í ljós á eigin hraða. Gefstu ekki
upp því fyrr eða síðar stendur þú með
pálmann í höndunum.
Contemporary Art Chicago, en það
var hluti af MA-náminu. „Við litla fjöl-
skyldan nutum verunnar í Chicago
sem er stórkostlega falleg borg með
spennandi söfnum og frábæru mann-
lífi.“ Árið 2008 varð Ólöf forstöðumað-
ur Hafnarborgar. „Það var við upphaf
efnahagshruns sem hafði mikil áhrif á
allan opinberan rekstur. Það var því
áskorun að takast á við að móta
stefnu, endurnýja áhuga bæjarbúa á
safninu og marka því sterkari sess í
íslensku menningarlífi.“
Frá 2015 hefur Ólöf verið forstöðu-
maður Listasafns Reykjavíkur, en þar
undir heyra Kjarvalsstaðir, Hafnar-
hús og Ásmundarsafn. „Ég er í krefj-
andi og skemmtilegu starfi, nýt þess
að vinna með góðu fólki og sjá safnið á
margan hátt blómstra. Það sem snýr
að almenningi eru sýningarnar og
miðlun þeirra en við fáumst við svo
margt annað. Varðveisla listaverk-
anna er eilíf áskorun en nú blasir við
okkur að flytja hluta safnkostsins í
Ó
löf Kristín Sigurðardóttir
fæddist 6. október 1961 í
Reykjavík og ólst upp
við Ægisíðuna í húsi sem
móðir hennar og móður-
systir byggðu á 6. áratugnum. „Vest-
urbærinn var þá uppbyggður en enn
var á svæðinu nokkurt húsdýrahald
og róið úr hverri vör. Meðfram sjón-
um voru margar byggingar sem til-
heyrðu atvinnuvegum fyrri tíma á
þessum slóðum. Í Grímsstaðavör voru
hænur og gæsir, á Þormóðsstöðum
voru hross og fé og síðan var tilfall-
andi búskapur krakkanna í hverfinu
s.s. kanínurækt í gömlum skotbyrgj-
um frá stríðsárunum. Þetta var líflegt
svæði og margt sem krakkar bjástr-
uðu við, fjaran hafði mikið aðdráttar-
afl, túnin og hvannarbreiður voru æv-
intýraheimur. Nú er flest farið en
nokkur gömul íbúðarhús eru eftir, þar
á meðal Garðarnir þar sem ég bý og
móðir mín ólst upp.“
Ólöf gekk í Melaskóla, Hagaskóla
og varð stúdent frá Menntaskólanum í
Reykjavík 1982. „Síðan lá leiðin til
Ítalíu þar sem ég dvaldi einn vetur,
kom heim, fór í Tækniskólann og HÍ
og vann við ýmis störf lengst á arki-
tektastofu Jóns Haraldssonar. Þá lá
leiðin í Myndlista- og handíðaskólann
þaðan sem ég lauk námi 1985-1989.
Við hjónin lukum bæði námi þetta vor
og fljótlega lá leiðin til Akureyrar þar
sem maðurinn minn starfaði fyrir
Leikfélag Akureyrar með hléum til
1995. Á þessum tíma var ég myndlist-
armaður, var með vinnustofu, sýndi
nokkuð og sinnti ýmsum verkefnum
s.s. fyrir Leikfélag Akureyrar.“ Ólöf
var einnig framkvæmdastjóri Lista-
sumars á Akureyri 1994-95.
Fjölskyldan flutti 1995 aftur suður
og var Ólöf menningarfulltrúi í Gerðu-
bergi 1995-1997 og deildarstjóri hjá
Listasafni Reykjavíkur 1997-2008.
Þar var hún deildarstjóri fræðslu-
deildar og sýningarstjóri, m.a. á yfir-
litssýningu Eggerts Péturssonar
2007, en hún var valin sýning ársins. Á
þessum tíma fór Ólöf út í nám sem
Fulbright-styrkþegi og lauk MA-
gráðu í menningarstjórnun og sýning-
argerð frá School of the Art Institute
of Chicago 2003 og var sama ár að-
stoðarsýningarstjóri í Museum of
betra húsnæði og svo vorum við að
auglýsa rannsóknastöðu þar sem við
viljum beina sjónum að stöðu kvenna í
listasögunni.“ Ólöf er ekki hætt að
sinna sýningarstjórnun og er t.d. sýn-
ingarstjóri á sýningu Guðnýjar Rósu
Ingimarsdóttur sem var opnuð um
síðustu helgi á Kjarvalsstöðum.
„Undanfarið höfum við í Listasafni
Reykjavíkur verið með áherslu á að
sýna verk Kjarvals, Ásmundar og
Errós í samtali við samtímann, þ.e.
stilla upp verkum þeirra við hliðina á
verkum samtímalistamanna og á
næsta ári verðum við með mjög stóra
Erró-sýningu en þá verður hann ní-
ræður. Það eru mörg tækifæri fólgin í
því að reka safn eins og Listasasfn
Reykjavíkur þar sem hægt er að sýna
bæði söguna og samtímann.“
Ólöf hefur sinnt ýmsum trúnaðar-
störfum á sviði myndlistar og verið t.d.
í myndlistarráði og stjórn Kynningar-
miðstöðvar íslenskrar myndlistar.
„Áhugamálin eru myndlist, það er
Ólöf Kristín Sigurðardóttir, forstöðumaður Listasafns Reykjavíkur – 60 ára
Fjölskyldan Ólöf, Sigurþór og börn fyrir framan ættaróðalið á Görðum við Skerjafjörð.
Gefandi að sjá safnið blómstra
Forstöðumaðurinn Ólöf stödd í
Hafnarhúsinu.
Til hamingju með daginn
- stærsti fjölmiðill landsins*
68,3%*
landsmanna notuðumbl.is daglega
Fjöldi notenda + mikill fjöldi flettinga
= skilar árangri
*
G
a
ll
u
p
M
e
d
ia
m
ix
Q
2
2
0
2
1