Morgunblaðið - 06.10.2021, Side 22

Morgunblaðið - 06.10.2021, Side 22
22 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 2021 Meistaradeild kvenna C-RIÐILL: Hoffenheim – Köge .................................. 5:0 Barcelona – Arsenal................................. 4:1 Staðan: Hoffenheim 3, Barcelona 3, Arsenal 0, Köge 0. D-RIÐILL: Häcken – Lyon ......................................... 0:3 - Diljá Ýr Zomers kom inn á hjá Häcken á 85. mínútu. - Sara Björk Gunnarsdóttir hjá Lyon er í barneignarfríi. SL Benfica – Bayern München .............. 0:0 - Cloé Lacasse lék allan leikinn með Ben- fica. - Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leik- inn með Bayern og Karólína Lea Vil- hjálmsdóttir var á bekknum allan tímann. Staðan: Lyon 3, Bayern München 1, SL Benfica 1, Häcken 0. England Bikarkeppni neðri deilda: Hartlepool – Morecambe ............... (2:2) 6:4 - Jökull Andrésson varði mark More- cambe sem tapaði 4:2 í vítaspyrnukeppni. Katar Deildabikarinn, B-riðill: Al-Khor – Al-Arabi.................................. 0:0 - Aron Einar Gunnarsson lék fyrri hálf- leikinn með Al-Arabi sem er með tvö stig eftir tvo leiki í riðlinum. >;(//24)3;( Olísdeild karla Haukar – Selfoss .................................. 31:22 Staðan: Haukar 3 2 1 0 86:75 5 KA 2 2 0 0 51:43 4 ÍBV 2 2 0 0 56:52 4 Fram 2 1 0 1 56:52 2 Selfoss 3 1 0 2 72:83 2 Stjarnan 1 1 0 0 36:35 2 Valur 1 1 0 0 22:21 2 FH 3 1 0 2 73:75 2 Afturelding 2 0 1 1 61:62 1 HK 1 0 0 1 25:28 0 Grótta 2 0 0 2 43:47 0 Víkingur 2 0 0 2 45:53 0 Heimsbikar félagsliða Leikið í Sádi-Arabíu: 1. umferð: Magdeburg – Sydney University ...... 32:20 - Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði eitt mark fyrir Magdeburg en Ómar Ingi Magnússon lék ekki með liðinu. Al-Wehda – San Francisco .................. 29:20 Í 8-liða úrslitum í dag mætast: Al Duhail – Magdeburg Al Noor – Pinheiros Aalborg – Al-Wehda Barcelona – Zamalek Svíþjóð Önnered – Guif .................................... 26:33 - Daníel Freyr Ágústsson varði 10 skot í marki Guif, 32%, og skoraði 2 mörk. Aron Dagur Pálsson lék ekki með liðinu. Skövde – IFK Ystad ............................ 31:24 - Bjarni Ófeigur Valdimarsson skoraði 3 mörk fyrir Skövde. Þýskaland Bikarkeppnin, 32ja liða úrslit: Leipzig – RN Löwen ........................... 24:31 - Ýmir Gíslason skoraði ekki fyrir Löwen. Dormagen – Lemgo ............................ 28:31 - Bjarki Már Elísson skoraði 16 mörk fyr- ir Lemgo. Varel Altjurden – Bergischer............ 18:36 - Arnór Þór Gunnarsson skoraði 2 mörk fyrir Bergischer. Rimpar – Stuttgart.............................. 26:34 - Andri Már Rúnarsson skoraði 5 mörk fyrir Stuttgart en Viggó Kristjánsson er meiddur. Frakkland Deildabikarinn, 16-liða úrslit: Limoges – Aix ...................................... 34:36 - Kristján Örn Kristjánsson skoraði 4 mörk fyrir Aix. E(;R&:=/D Spánn Barcelona – Zaragoza......................... 76:63 - Tryggvi Snær Hlinason skoraði 4 stig fyrir Zaragoza og tók 3 fráköst en hann lék í tæpar 14 mínútur. >73G,&:=/D KNATTSPYRNA Meistaradeild kvenna: Kópavogsvöllur: Breiðablik – París SG... 19 KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild kvenna, Subway-deildin: Dalhús: Fjölnir – Breiðablik................ 18.15 Blue-höllin: Keflavík – Skallagrímur.. 19.15 HS Orkuhöllin: Grindavík – Valur ...... 19.15 Ásvellir: Haukar – Njarðvík................ 20.15 Í KVÖLD! KÖRFUBOLTI Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.is Úrvalsdeild kvenna í körfuknattleik, Subway-deildin eins og hún mun heita í vetur, hefst með heilli umferð í kvöld. Á kynningarfundi Körfu- knattleikssambands Íslands, KKÍ, í gær voru spár bæði fjölmiðla og fé- laganna átta sem deildin sam- anstendur af kunngjörðar. Í báðum þeirra er Haukum spáð efsta sætinu á meðan Íslandsmeisturum Vals, sem unnu Hauka 3:0 í úrslitaeinvígi liðanna á síðasta tímabili, er spáð öðru sæti. „Tímabilið leggst bara ótrúlega vel í okkur. Við erum mjög spenntar að byrja. Við erum reyndar að glíma við töluverð meiðsli og veikindi sem hafa háð okkur aðeins á undirbún- ingstímabilinu og í síðustu leikjum á móti Haukum. En við erum spennt- ar þrátt fyrir það, þetta er allt að púslast saman og komast á rétt ról, sagði Hallveig Jónsdóttir, leikmaður Vals, í samtali við Morgunblaðið. Hún sagði það ekki koma á óvart að Valsliðinu væri spáð öðru sæti þetta tímabilið. „Nei það væri skrítið ef það kæmi á óvart. Við erum nátt- úrlega búnar að tapa núna í tvígang fyrir Haukaliðinu. Þær eru með gíf- urlega sterkt lið og auðvitað komnar með Helenu [Sverrisdóttur] um borð hjá sér. Þannig að þetta kemur ekki neitt á óvart og er líklega eins og ég hefði raðað þessu sjálf núna. En að sjálfsögðu set ég mig og okkur í Val í efsta sæti og við stefnum að sjálf- sögðu á titilinn.“ Alveg jafn sterkar og Haukar Líkt og Hallveig bendir á hefur Valur í tvígang á skömmum tíma lot- ið í lægra haldi gegn Haukum. Fyrst í undanúrslitum bikarkeppninnar, sem Haukar unnu svo eftir sigur gegn Fjölni, og svo í leiknum um meistara meistaranna, þar sem Haukar höfðu betur í uppgjöri bik- armeistaranna og Íslandsmeist- aranna. Áðurnefnd Helena gekk til liðs við Hauka frá Val fyrir tímabilið og eru jákvæð áhrif hennar á upp- eldisfélagið bersýnileg enda tveir titlar og Evrópusæti þegar komið í hús. En hvað þarf Valur að gera til þess að skáka Haukum og verja Ís- landsmeistaratitil sinn á tímabilinu? „Í fyrsta lagi þurfum við að fá allt liðið okkar heilt og saman svo við getum virkilega byrjað að æfa með sterkasta liðið okkar. Þá hef ég fulla trú á því að við séum með alveg jafn sterkt lið og Haukar. Ætli við mun- um ekki mæta Haukaliðinu ansi oft í vetur,“ sagði Hallveig. Spurð hvort Haukar og Valur væru einfaldlega að stinga af hvað gæði varðar í deildinni sagðist hún ekki telja svo vera. „Nei, mér finnst deildin vera kannski svolítið tvískipt, efri liðin og neðri liðin. Mér finnst mörg lið geta verið að slást um efstu fjögur sætin og það verður vonandi mikil samkeppni og mikið gaman,“ sagði Hallveig að lokum í samtali við Morgunblaðið. Ætlum að verja titilinn - Haukum spáð efsta sætinu - Von á harðri rimmu milli Vals og Hauka Morgunblaðið/Unnur Karen Barátta Hallveig Jónsdóttir á von á hörðum slag við Hauka í vetur en Íslandsmeistararnir hafa tapað tvisvar fyrir þeim í haust. Fjölmiðlar spá Keflavík sigri í úr- valsdeild karla í körfuknattleik, Subway-deildinni, í vetur en félögin spá Njarðvík sigri. Báðir aðilar eru sammála um að grannliðin verði í tveimur efstu sætunum en spáin var birt á kynningarfundi deildarinnar í gær. Þá er Breiðabliki og Vestra spáð falli af báðum aðilum en röðin er breytileg á liðunum að öðru leyti. Íslandsmeisturum Þórs í Þor- lákshöfn er spáð erfiðu gengi, sjötta og áttunda sæti, en Tinda- stóll, Valur og Stjarnan þykja lík- legust í þriðja til fimmta sæti. Einvígi Suður- nesjaliðanna? Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Sterkir Logi Gunnarsson og félagar í Njarðvík mæta öflugir til leiks. Elísa Elíasdóttir úr ÍBV, sem er að- eins 17 ára gömul, og Berglind Þor- steinsdóttir úr HK leika á morgun sinn fyrsta A-landsleik þegar Ísland mætir Svíþjóð í Eskilstuna í undan- keppni Evrópumóts kvenna í hand- knattleik. Þær eru í sextán manna hópnum sem Arnar Pétursson þjálf- ari fór með til Svíþjóðar í gærmorg- un. Af þeim nítján leikmönnum sem skipa æfingahópinn urðu Aldís Ásta Heimisdóttir og Ásdís Guð- mundsdóttir úr KA/Þór og Saga Sif Gísladóttir markvörður úr Val eftir heima. Tvær spila fyrsta landsleikinn Ljósmynd/Sigfús Gunnar Nýliði Elísa Elíasdóttir er 17 ára gömul og leikur með ÍBV. Haukar eru áfram ósigraðir í úr- valsdeild karla í handknattleik, Ol- ísdeildinni, eftir mjög öruggan sig- ur á Selfyssingum í gærkvöld, 31:22, á Ásvöllum. Leikurinn til- heyrir fjórðu umferð deildarinnar en var flýtt vegna Evrópuleikja beggja liðanna um aðra helgi. Leikurinn var jafn framan af og staðan var 9:8 um miðjan fyrri hálf- leik. Þá gerðu Haukar sex mörk í röð, komust í 15:8, og staðan var 16:10 í hálfleik. Selfyssingar minnkuðu muninn í 18:15 og 20.16, en eftir það sigu Haukarnir fram úr á ný og voru komnir tíu mörkum yfir, 28:18, þeg- ar tíu mínútur voru til leiksloka. Lokamínúturnar voru því forms- atriði og lokatölur urðu 31:22. Stefán Rafn Sigurmannsson og Darri Aronsson skoruðu fimm mörk hvor fyrir Hauka og Aron Rafn Eðvarðsson varði fimmtán skot í marki þeirra. Ragnar Jóhannsson skoraði átta mörk fyrir Selfyssinga og Einar Sverrisson fjögur. Morgunblaðið/Unnur Karen Átök Haukamaðurinn Ólafur Ægir Ólafsson stöðvar Selfyssinginn Einar Sverrisson í leik liðanna á Ásvöllum í gærkvöld. Haukarnir sannfærandi Haukar verða með sterkasta liðið í úrvalsdeild kvenna í körfubolta, sem nú heitir Subway-deildin, ef spár félaga og fjölmiðla ganga eft- ir. Fyrsta umferð er leikin í kvöld. Samkvæmt spá fjölmiðla sem birt var á kynningarfundi KKÍ í gær verður röðin þessi í deildinni: 1) Haukar, 2) Valur, 3) Fjölnir, 4) Keflavík, 5) Breiðablik, 6) Njarð- vík, 7) Grindavík, 8) Skallagrímur. _ Spá félaganna er alveg eins nema sætum Breiðabliks og Njarð- víkur er víxlað. Haukum er spáð toppsætinu FYRSTA UMFERÐIN HJÁ KONUNUM Í KVÖLD Diljá Ýr Zomers varð í gær fyrsta ís- lenska konan til að spila í riðla- keppni Meistaradeildar kvenna í fót- bolta. Hún lék þá lokamínúturnar með sænska liðinu Häcken þegar það tók á móti franska stórliðinu Lyon á Hisingen-leikvanginum í Gautaborg. Häcken átti þar við ofurefli að etja en Lyon vann 3:0 og tryggði sig- urinn með tveimur mörkum í byrjun síðari hálfleiks. Sara Björk Gunn- arsdóttir er að sjálfsögðu fjarri góðu gamni hjá Lyon um þessar mundir en hún er í barneignarfríi. Síðar í gærkvöld mættust síðan tvær aðrar íslenskar knattspyrnu- konur í Lissabon þegar SL Benfica fékk Bayern München í heimsókn. Benfica náði þar óvæntu marka- lausu jafntefli gegn stórliðinu en Cloé Lacasse var í framlínu Benfica allan tím- ann, sem og Gló- dís Perla Viggós- dóttir í vörn Bayern. Karólína Lea Vilhjálms- dóttir var varamaður hjá Bayern og kom ekki við sögu. Riðlakeppni er nú leikin í Meist- aradeild kvenna í fyrsta skipti en Breiðablik mætir einmitt París SG í keppninni í kvöld eins og fjallað er um á næstu síðu. Diljá fyrst Íslend- inga í riðlakeppninni - Bayern tapaði stigum í Lissabon Diljá Ýr Zomers

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.