Morgunblaðið - 06.10.2021, Qupperneq 23
ÍÞRÓTTIR 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 2021
_ Handknattleiksmarkvörðurinn
Daníel Freyr Andrésson kom mikið við
sögu í gærkvöld þegar lið hans Guif frá
Eskilstuna vann góðan útisigur á
Önnered, 33:26, í sænsku úrvalsdeild-
inni. Daníel var með 32 prósent mark-
vörslu, varði 10 skot af 31, og síðan
gerði hann sér lítið fyrir og skoraði tvö
mörk fyrir lið sitt. Guif er í fimmta
sæti deildarinnar eftir fimm umferðir.
_ Norska knattspyrnukonan Ada
Hegerberg lék langþráðan leik í gær-
kvöld en hún kom þá inn á sem vara-
maður með franska liðinu Lyon gegn
Häcken í Meistaradeild kvenna í
Gautaborg. Þetta var fyrsti leikur
hennar í rúma 20 mánuði, eða síðan
hún sleit krossband í hné í janúar á
síðasta ári. Hegerberg er einn mesti
markaskorari í sögu Evrópufótboltans
og hefur m.a. skorað 220 mörk í 183
mótsleikjum fyrir Lyon.
_ Viggó Kristjánsson, landsliðs-
maður í handknattleik, er orðaður við
sitt gamla félag Leipzig en á In-
stagram-aðganginum Handball Leaks
er fullyrt að hann snúi aftur þangað á
næsta ári. Viggó leikur nú með Stutt-
gart og var í hópi markahæstu leik-
manna þýsku deildarinnar á síðasta
tímabili en hann hefur ekkert spilað
það sem af er þessu tímabili vegna
fingurbrots.
_ Knattspyrnumaðurinn Aron Jó-
hannsson gæti snúið aftur til Íslands í
vetur eftir ellefu ár í atvinnumennsku.
Fotbolti.net sagði í gær að samkvæmt
heimildum hefði hann þegar fundað
með Val og Breiðabliki um mögulegan
samning. Aron er samningslaus en
hann fékk sig lausan undan samningi
hjá Lech Poznan í Póllandi í síðasta
mánuði eftir að hafa orðið fyrir
meiðslum sem komu í veg fyrir að
hann gæti spilað þar fyrstu vikurnar á
nýju tímabili. Aron lék með Fjölni áður
en hann fór utan haustið 2010 og hef-
ur leikið í Danmörku, Hollandi, Þýska-
landi og Svíþjóð, auk Póllands.
_ Tveir af leikmönnum Íslandsmeist-
ara Víkings eru á leið í landsleiki,
Pablo Punyed með landsliði El Salva-
dor og Kwame Quee með landsliði
Síerra Leóne. El Salvador mætir Pa-
nama, Kostaríku og Mexíkó 7., 10. og
13. október í undankeppni HM en
Síerra Leóne spilar vináttuleiki. Bikar-
úrslitaleikur Víkings og ÍA fer fram 16.
október þannig að Pablo fær ekki
mikla hvíld, auk langs ferðalags til Ís-
lands á ný.
_ Jón Guðni Fjóluson, landsliðs-
maður í knattspyrnu, er með slitið
krossband í hné eftir að hann meiddist
í leik með Hammarby gegn Norrköping
um síðustu helgi. Ljóst er að hann
spilar ekki aftur fyrr en komið verður
nokkuð fram á árið 2022. Jón Guðni
kom til Hammarby í janúar á þessu ári
eftir að hafa lokið síðasta tímabili á
undan með Brann í Noregi en hann
skrifaði þá undir þriggja ára samning
við sænska félagið. Jón Guðni var í
byrjunarliði Íslands í síðasta leik í
undankeppni HM,
gegn Þýska-
landi, og var
upphaflega í
hópnum fyrir
leikina gegn
Armeníu
og
Liech-
ten-
stein.
Eitt
ogannað
MEISTARADEILD
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
París Saint-Germain, andstæðingur
Breiðabliks á Kópavogsvellinum í
kvöld þegar liðin eigast við í fyrstu
umferð nýrrar riðlakeppni í Meist-
aradeild kvenna í fótbolta, er eitt
allra sterkasta lið Evrópu og eitt
þeirra sem setur stefnuna á sigur í
keppninni á þessu tímabili.
Blikar kannast ágætlega við lið
PSG eftir að hafa mætt því í 16-liða
úrslitum í sömu keppni fyrir tveimur
árum. Þá unnu Frakkarnir 4:0 á
Kópavogsvelli og síðan 3:1 í París
eftir að Berglind Björg Þorvalds-
dóttir skoraði þar óvænt jöfn-
unarmark.
Helsta breytingin á liði PSG er sú
að Formiga, sem lék 41 árs gömul
gegn Blikum fyrir tveimur árum, er
farin heim til Brasilíu en spilar þó
þar enn þá. Þá er sænska landsliðs-
konan Hanna Glas farin til Bayern
München.
Í staðinn hefur PSG hins vegar
fengið hina svissnesku Ramonu
Bachmann frá Chelsea en hún hefur
gert íslenska landsliðinu nokkrar
skráveifur í landsleikjum með Sviss.
Þá er sænski landsliðsmiðvörðurinn
Amanda Ilestedt komin til Par-
ísarliðsins frá Bayern.
Í framlínu PSG eru frönsku lands-
liðskonurnar Marie-Antoinette Ka-
toto og Kadidiatou Diani sem báðar
skoruðu gegn Breiðabliki fyrir
tveimur árum.
Það sem líka hefur breyst frá
haustinu 2019 er að PSG rauf síðasta
vetur einveldi Lyon í frönsku 1.
deildinni og varð meistari í fyrsta
skipti, eftir að hafa verið áskrifandi
að silfurverðlaunum um árabil. PSG
kannast líka við silfurpeninga úr
Meistaradeildinni því félagið hefur
þar tapað tveimur úrslitaleikjum, ár-
in 2015 og 2017. PSG gerði Lyon
aðra skráveifu síðasta vetur með því
að vinna einvígi liðanna í átta liða úr-
slitum Meistaradeildarinnar. PSG
tapaði hins vegar 2:3 samanlagt fyrir
Barcelona, verðandi meisturum, í
undanúrslitum keppninnar.
Reiknað er með að PSG vinni
þennan B-riðil Meistaradeildarinnar
af miklu öryggi en barátta Real Ma-
drid, Breiðabliks og Zhytlobud
Kharkiv frá Úkraínu um annað sæt-
ið gæti orðið tvísýn. Spænska stór-
veldið, sem er nýbúið að stofna
kvennalið, er þó búið að sanka að sér
það sterkum leikmönnum að það er
eflaust líklegast til að fylgja PSG
áfram í átta liða úrslitin.
En þetta er fyrsta umferðin af sex
í B-riðlinum og í hinum leiknum
mætast Zhytlobud og Real Madrid í
Kharkiv. Breiðablik sækir síðan
Real Madrid heim næsta miðviku-
dag og þannig heldur þetta áfram
allt til 16. desember þegar riðla-
keppninni lýkur. Kópavogsvöllur er
vettvangur fyrir sannkallaðan stór-
viðburð í kvöld.
Ætla sér sigur í keppninni
- Frönsku meistararnir með firna-
sterkt lið gegn Blikum á Kópavogsvelli
Morgunblaðið/Unnur Karen
PSG Sænska landsliðskonan Amanda Ilestedt fremst í flokki á æfingu
franska meistaraliðsins á Kópavogsvellinum í gær.
Bjarki Már Elísson landsliðsmaður í
handknattleik skoraði sextán mörk
í gærkvöld þegar lið hans Lemgo
vann Dormagen, 31:28, í þýsku bik-
arkeppninni. Þar af skoraði Bjarki
ellefu af sextán mörkum Lemgo í
fyrri hálfleiknum og aðeins tvö
markanna komu af vítalínunni.
Þrátt fyrir framlag Bjarka var leik-
urinn hnífjafn allan tímann og
Lemgo náði ekki að hrista B-
deildarliðið af sér fyrr en á loka-
mínútum leiksins. Lemgo er
ríkjandi bikarmeistari og er nú
komið í sextán liða úrslit.
Bjarki skoraði
sextán mörk
Morgunblaðið/Unnur Karen
Sextán Bjarki Már Elísson var
óstöðvandi í Dormagen í gær.
Björn Sigurbjörnsson var í gær
ráðinn þjálfari kvennaliðs Selfoss
til næstu þriggja ára og tekur hann
við af Alfreð Elíasi Jóhannssyni
sem hefur stýrt liðinu í fimm ár.
Björn hefur verið aðstoðarþjálfari
kvennaliðs Kristianstad í Svíþjóð í
tíu ár. Eiginkona hans er landsliðs-
konan Sif Atladóttir en Kristian-
stad skýrði frá því í gær að hún
myndi kveðja félagið eftir yfir-
standandi tímabil. Hún er því á leið
til Íslands en ekki liggur fyrir hvort
hún leiki með Selfossi eða einhverju
öðru íslensku liði.
Björn á Selfoss
og Sif kveður
Morgunblaðið/Hari
Heimleið Sif Atladóttir hættir hjá
Kristianstad eftir ellefu ár þar.
Undirbúningur karlalandsliðsins í
fótbolta fyrir leikina gegn Armeníu
og Liechtenstein í undankeppni
heimsmeistaramótsins er í fullum
gangi og liðið æfði í Kaplakrika í
gær. Tveir af yngstu leikmönnunum,
Andri Lucas Guðjohnsen og Andri
Fannar Baldursson, eru tæpir vegna
meiðsla og óvíst að þeir geti tekið
þátt í leiknum gegn Armeníu á
Laugardalsvellinum á föstudags-
kvöldið.
Andri Lucas fékk högg á hné í leik
með varaliði Real Madrid um síð-
ustu helgi en Andri Fannar glímir
við meiðsli í nára og hefur misst af
þremur síðustu leikjum Köbenhavn í
dönsku úrvalsdeildinni.
Alls eru 25 leikmenn í hópnum og
því verða væntanlega ekki gerðar
frekari breytingar á honum að sinni.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Markverðir Landsliðsmarkverðirnir þrír, Elías Rafn Ólafsson frá Midtjylland í Danmörku, Patrik Sigurður Gunn-
arsson frá Viking í Noregi og Rúnar Alex Rúnarsson frá Leuven í Belgíu á æfingu landsliðsins í Kaplakrika í gær.
Andrarnir ekki með gegn Armeníu?
Arnar Þór Við-
arsson, landsliðs-
þjálfari karla í
knattspyrnu, út-
skýrði nánar á
fréttamannafundi
í gær hvers vegna
hann hefði sjálfur
tekið þá ákvörðun
að velja Aron
Einar Gunn-
arsson, fyrirliða
til langs tíma, ekki í landsliðshópinn
fyrir leikina gegn Armeníu og
Liechtenstein. Hann hefði ekki vilj-
að að upp kæmi sama staða og mán-
uði fyrr þegar fráfarandi stjórn KSÍ
ákvað að taka Kolbein Sigþórsson út
úr hópnum.
Arnar kvaðst hafa rætt við Vöndu
Sigurgeirsdóttur, sem þá hafði ekki
ennþá verið formlega kjörin formað-
ur KSÍ, en hún hefði fyrst og fremst
hlustað á það sem hann hefði haft að
segja.
„Ég lagði spilin á borðið fyrir
Vöndu og fór yfir hvernig ég sæi
hlutina. Þú þarft ekkert að vinna
fyrir NASA til þess að sjá að þetta
var eina ákvörðunin sem við gátum
tekið til að vernda liðið okkar, hóp-
inn og Aron Einar,“ sagði Arnar en
útskýringar hans á fundinum má sjá
í heild sinni á sérvefnum Íslenski
boltinn á íþróttavef mbl.is.
Lagði spilin
á borðið
fyrir Vöndu
Arnar Þór
Viðarsson