Morgunblaðið - 11.10.2021, Page 2

Morgunblaðið - 11.10.2021, Page 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. OKTÓBER 2021 KANARÍ ÚRVAL ÚTSÝN HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 INFO@UU.IS 29. OKTÓBER - 17. NÓVEMBER | 19 DAGAR Á Íslendingar hafa sótt í dásamlegar strendur Kanarí áratugum saman og er eyjan einn vinsælasti áfangastaður Úrvals Útsýnar. Betri stað í sólarfrí er erfitt að finna, fyrir unga sem aldna. Jafnt hitastig, þægilegt loftslag, hreinar strendur og stórbrotið landslag er eitthvað sem heillar alla! VERÐ FRÁ:121.900 KR. á mann m.v. tvo fullorðna og 2 börn Verð frá 158.900 kr. á mann m.v. 2 fullorðna FLUG OG VALIN GISTING Á KANARÍ 19 DAGA FERÐ | 29. OKTÓBER - 17. NÓVEMBER SÓLSKIN, HEIT GOLA, FLUG, VALIN GISTING, INNRITAÐUR FARANGUR OG ÍSLENSKUR FARARSTJÓRI Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Sonja Sif Þórólfsdóttir sonja@mbl.is Aðalheiður Borgþórsdóttir, fyrrver- andi sveitarstjóri á Seyðisfirði og núverandi fulltrúi sveitarstjóra, þurfti að fara út af heimili sínu vegna rýmingarinnar sem nú er í gildi á Seyðisfirði. Aðalheiður segist ekki vera hrædd við að snúa aftur heim og treystir sérfræðingum til að taka réttar ákvarðanir. Níu hús voru rýmd á Seyðisfirði á mánudag í síðustu viku vegna mik- illar úrkomu. Þá er hryggur sunnan við skriðusárið, sem myndaðist eftir að skriður féllu í desember á síðasta ári, á hreyfingu og ekki ljóst hvort leiðigarðar og safnþrær munu taka við öllu því efni sem er óstöðugt í hlíðinni. Aðalheiður þurfti einnig að yfir- gefa heimili sitt í desember á síð- asta ári þegar skriðurnar féllu. Þá sá hún hús sitt hverfa í rykinu sem þyrlaðist upp þegar skriðan féll, en húsið slapp þó við skriðuna, sem beygði af leið. Hún segist ánægð með hvernig staðið hafi verið að málum við að búa til leiðigarða og safnþrær. „Ég treysti því að þetta verði allt skoðað ofan í kjölinn. Það er ekki búandi við það að flekinn sé þarna á hreyfingu, þó að það sé bara í stuttan tíma eða annað slag- ið,“ segir Aðalheiður. Kom smá á óvart Hryggurinn hefur verið á hreyf- ingu frá því í byrjun mánaðar og um helgina unnu sérfræðingar að því að reikna út hvort leiðigarðar og safn- þrær muni halda öllu því efni sem er í hryggnum, sama hvort hann kemur í heilu lagi eða smærri hlut- um. Aðalheiður segir að það hafi kom- ið sér örlítið á óvart að nú sé verið að reikna út hvort varnirnar dugi til. Áður hafi verið talað um að varnirnar myndu duga en hún vonar að það skýrist betur á fundum í dag. Magni Hreinn Jónsson, ofanflóða- sérfræðingur á Veðurstofu Íslands, gerir ráð fyrir því að niðurstöður útreikninganna verði kynntar í dag. Hann segir að engar breytingar hafi orðið á hryggnum um helgina og hann hafi fært sig á svipuðum hraða og í síðustu viku. Frá laug- ardegi til miðvikudags í síðustu viku hreyfði hann sig um 3,5 sentímetra samkvæmt mælingum. Ekki verið að taka neina sénsa „Mér líður bara ágætlega. Ég var alveg róleg, en þetta kom mér á óvart. Ég er búin að búa þarna mjög lengi og að vita að það er ekki verið að taka neina sénsa róar mig,“ segir Aðalheiður aðspurð hvernig henni líði með að snúa aftur heim til sín bráðlega. „Það er greinilega vakað yfir okkur. Ég fer ekki heim fyrr en þau treysta okkur til að vera heima.“ „Það er greinilega vakað yfir okkur“ - Hryggurinn fyrir ofan Seyðisfjörð hreyfist á sama hraða Morgunblaðið/Eggert Á hreyfingu Hryggurinn sunnan við skriðusárið hefur verið á örlítilli hreyfingu undanfarna viku, meðal annars vegna mikillar úrkomu. Ekki hrædd Aðalheiður við húsið sitt, sem slapp í aurskriðunum. Aðalkeppni heimsmeistaramótsins í tölvuleiknum League of Legends hefst í dag í Laugardalshöllinni og verða fyrstu leikir í riðlum keppn- innar spilaðir. Mótið er eitt það stærsta í rafíþróttaheiminum og þykir á pari við Wimbledon-mótið í tennis og Tour de France hjólreiða- keppnina. Ráðgert er að hundruð milljóna manna fylgist með. Ekki er aðeins keppt um heiður- inn en verðlaunafé keppninnar hljóð- ar upp á tæpar 300 milljónir. Það hefur ekki allt gengið snurðulaust fyrir sig í undirbúningi keppenda fyrir mótið en sumir hafa kvartað undan lélegri nettengingu og raf- magnsvandamálum. Keppnin er talin gríðarlegt tæki- færi fyrir Ísland til að festa sig í sessi í hinum ört stækkandi rafíþrótta- heimi. Áætlað er að rafíþróttaiðnað- urinn muni í fyrsta skipti í ár velta yfir milljarði bandaríkjadala og er talið að hann haldi áfram að stækka næstu árin. Fjallað verður um fram- gang mótsins á rafíþróttavef mbl.is. logis@mbl.is Milljónir að veði í Laugardalshöll - Aðalkeppni heimsmeistaramótsins hefst í dag Ljósmynd/Riot Games Rafíþróttir Mótið er á pari við Wimbledon-mótið í tennis og Tour de France. Ari Páll Karlsson ari@mbl.is Kolbrún Baldursdóttir, borgar- fulltrúi Flokks fólksins, vill að ný sundlaug verði byggð í Seljahverfinu í Breiðholti og hefur lagt fram til- lögu þess efnis til skipulags- og sam- gönguráðs Reykjavíkurborgar. „Svæðið neðst í Seljahverfinu gæti verið góður staður,“ segir Kolbrún. Hún segir Breiðholtið það stórt hverfi að eðlilegt sé að þar séu tvær sundlaugar. Alls búi á bilinu 22 til 24 þúsund manns í hverfinu. „Þetta eru í rauninni þrjú hverfi í einu stóru.“ Tvöfaldaðist á áratug Kolbrún segist ánægð með að komin sé upp umræða um nýja sundlaug en hún lagði, í kjölfar ábendinga frá Breiðhyltingum, fram tillöguna og efndi til umræðu í face- bookhópnum „Íbúasamtökin Betra Breiðholt“. Í færslu Kolbrúnar segir að að- sókn í Breiðholtslaug hafi á einum áratug rúmlega tvöfaldast. Til að mynda hafi árið 2017 verið opnuð líkamsræktarstöð við laugina sem gæti hafa sett strik í reikninginn. „Það eru mjög margir, hef ég heyrt, að fara í önnur hverfi í sund,“ segir Kol- brún og bendir á að hverfi sem telja færri íbúa hafi sínar eigin sundlaugar og til að mynda séu þrjár sundlaugar í Hafnarfirði þar sem íbúafjöldinn er 28 þúsund. Aki í önnur sveitarfélög „Nú er staðan þannig að erfitt ef ekki ógerlegt er að fara í sund frá 8- 16. Vissulega er skólasund í forgangi en það er ekki ásættanlegt að al- menningur eigi þess ekki kost að fara í sund nema á kvöldin til að synda. Breiðhyltingar eru jafnvel farnir að aka í önnur sveitarfélög til þess að fara í sund,“ segir í greinar- gerð Flokks fólksins, sem vill að skoðað verði fyrir alvöru að bæta við annarri sundlaug í Breiðholti. „Þetta er góð líkamsrækt og gott fyrir heilsuna. Ekki hafa allir efni á líkamsræktarkorti.“ Morgunblaðið/Eggert Breiðholtslaug Líkamsræktarstöð var opnuð við hlið laugarinnar árið 2017. Vill nýja sund- laug í Breiðholti - Margir fari í sund í öðrum hverfum Kolbrún Baldursdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.