Morgunblaðið - 11.10.2021, Side 15

Morgunblaðið - 11.10.2021, Side 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. OKTÓBER 2021 Flugvél Eftir meira en ár af ferðatakmörkunum vegna heimsfaraldursins eru margir frelsinu fegnir. Eftir langa veru á Íslandi hafa margir brugðið undir sig betri fætinum og farið til útlanda. Eggert Í aðdraganda síðustu alþingiskosninga kom Vatnajökulsþjóðgarður oft við sögu í umræðum og skrifum um miðhá- lendisþjóðgarð og friðlýsingar. Þótt mik- ilvægt sé að svo stór mál fái góða umræðu og tekist sé á um stefn- ur og aðferðir er miður ef sá málflutningur byggist á vanþekkingu um starfsemi núverandi þjóðgarða. Vatnajökulsþjóðgarður er þrettán ára gömul stofnun í stöðugri þróun. Þjóðgarðurinn nær til Vatnajökuls og stórra svæða í nágrenni hans, þar á meðal þjóðgarðanna sem fyrir voru í Skaftafelli og Jökulsárgljúfrum. Sumarið 2019 var stigið mikilvægt skref í þróun þjóðgarðsins þegar hann var samþykktur á heimsminja- skrá UNESCO sem staðfestir að hann er einstakur á heimsvísu. Hjá Vatnajökulsþjóðgarði starfa 35 fastir starfsmenn með mikla þekkingu og reynslu og eru 30 þeirra á starfsstöðvum á landsbyggðinni. Mannauðurinn er lykill að góðum ár- angri og því er lögð áhersla á fræðslu, starfsánægju og nýsköpun í starfseminni. Á sumrin bætast við um 80 starfsmenn sem sinna land- vörslu, þjónustu og fræðslu til gesta þjóðgarðsins og eru þau störf öll unnin á landsbyggðinni. Á árinu 2021 verða unnin um 55 ársverk hjá Vatnajökulsþjóðgarði og eru um 90% þeirra unnin á landsbyggðinni. Í stjórn og fjórum svæðisráðum Vatnajökulsþjóðgarðs situr fólk fyrir hönd sveitarstjórna og hagsmuna- samtaka á viðkomandi svæðum. Þetta fólk hefur mikla þekkingu á aðstæðum í heimabyggð sem er afar mikilvægt til að þróa starfsemi þjóð- garðsins og til að skapa samstöðu og sátt. Gestir Vatnajökulsþjóðgarðs eru fjölbreyttur hópur sem vill upplifa og stunda útivist á margvíslegan hátt. Hlutverk þjóðgarðsins er að tryggja vernd náttúru og menningarminja, bjóða gesti velkomna og veita fræðslu auk þess að viðhalda gönguleiðum og reka gestastofur, skála, salerni og tjald- svæði. Vatnajök- ulsþjóðgarður á einnig í mikilvægu samstarfi við fjölmarga sem stunda atvinnu- starfsemi í eða við þjóð- garðinn enda er það eitt af markmiðum starfseminnar. Innan Vatnajökuls- þjóðgarðs eru ríflega 1.000 km af akstursleiðum, flestar á ábyrgð og undir veghaldi Vegagerð- arinnar. Ágreiningur um hvort slóð- ar eigi að vera opnir eða ekki á að- eins við um 1-2% vega og slóða í þjóðgarðinum. Vatnajökulsþjóðgarður var rekinn með rekstrarafgangi á árunum 2018, 2019 og 2020 og um síðustu áramót var stofnunin skuldlaus við ríkissjóð. Innan marka Vatnajökulsþjóðgarðs á sér stað mikil uppbygging innviða og má áætla að ríflega einum millj- arði verði varið í þetta mikilvæga verkefni á árunum 2020 og 2021. Dæmi um stór verkefni er bygging gestastofu á Kirkjubæjarklaustri og innrétting gestastofu á Skútustöðum við Mývatn. Framtíðin er björt hjá Vatna- jökulsþjóðgarði og það er mikilvægt að hann sé þjóðgarður okkar allra en ekki bitbein í pólitískri umræðu. Þeir sem vilja kynna sér starfið í Vatna- jökulsþjóðgarði geta t.d. nálgast upplýsingar á heimasíðu þjóðgarðs- ins á eftirfarandi slóð: www.vatna- jokulsthjodgardur.is. Eftir Magnús Guðmundsson » Framtíðin er björt hjá Vatnajökuls- þjóðgarði og það er mik- ilvægt að hann sé þjóð- garður okkar allra en ekki bitbein í pólitískri umræðu. Magnús Guðmundsson Höfundur er framkvæmdastjóri Vatnajökulsþjóðgarðs. Vatnajökulsþjóð- garður, þjóðgarður okkar allraÍ grein sinni, „Níu áskoranir á nýju kjör- tímabili“, sem Friðrik Jónsson, formaður BHM, birti í Kjarn- anum hinn 26. sept- ember sl., fer hann yfir stöðuna á vinnu- markaði í upphafi nýs kjörtímabils, eins og hún blasir við honum. Það gerði hann einnig í síðasta þætti Sprengisands á Bylgjunni. Áskor- anir sem bíða stjórnvalda og vinnu- markaðarins eru margar. Greinin er um margt athyglisverð, en e.t.v. fyrir nokkuð aðrar sakir en þær sem Friðrik sjálfur nefnir. Friðrik kemur inn á hluti, sem hefur til skamms tíma farið heldur lítið fyrir í umræðunni. Hann bend- ir þannig á að hugvit vigti ekki nægilega þungt á vogarskálum vinnumarkaðarins, með þeim afleið- ingum m.a. að nýsköpunarhag- kerfið hafi enn ekki náð að festa rætur hér á landi. Góða gamla auð- lindahagkerfið lifi því enn góðu lífi á kostnað vaxtarmöguleika til fram- tíðar litið, efnahagslegs stöðugleika og velferðaruppbyggingar. Skaðlegar samskipta- og starfsaðferðir vinnumarkaðarins Mesta athygli vekur þó umbúða- laus gagnrýni BHM-formannsins á samskipta- og starfshefðir vinnu- markaðarins. Hér sé um hefðir að ræða, sem haldi vexti hagkerfisins föstum í viðjum hótana og annarrar niðurrifsstarfsemi, sem kemur svo aftur niður á lífskjörum „okkar allra“ eins og það er orðað. Heyr, heyr. Orð í tíma töluð. Vonandi duga síðan þau ráð sem Friðrik vill hafa í þessum efnum og það er að hefja samtalið strax og vanda vel til verka. Því miður bendir þó fátt til þess. Á því virðist ekki nægur áhugi, enda bendir flest til þess að núverandi verka- lýðsforysta hafi mun meiri áhuga á fortíðinni og hefur barátta launa- fólks verið keyrð áratugi aftur í tímann, jafnvel aftur til hagkerfis nítjándu og fyrri hluta tuttugustu aldar. Afar mikilvægt er að aðilar vinnumarkaðarins eigi upp- byggilegt samtal um stefnu og þró- un vinnumarkaðarins til framtíðar litið; hvernig launaþróun við viljum sjá, hvers konar atvinnusköpun stendur undir þeim kröfum sem við gerum til framtíðarinnar í lífskjörum og velferð. Vilji verður að vera fyrir hendi um að finna svör sem báðir aðilar geta ásamt stjórnvöldum unnið með, þ.e. launafólk og launagreiðendur eða atvinnurekendur. Snúum af braut átaka og ófriðar til bættra lífskjara og hagsældar Annars staðar á Norðurlönd- unum hefur þetta samtal tryggt launafólki samfellt hagvaxtarskeið og aukinn kaupmátt um áratuga- skeið. Hér á landi mörkuðu þjóð- arsáttarsamningarnir árið 1990 upphafið að sambærilegri þróun. Því miður gekk það þó ekki eftir og má segja að vonin hafi endanlega orðið að engu í eftirleik hrunsins. Á síðustu 10 árum virðist hafa skipt meira máli, í það minnsta hjá sum- um aðildarfélögum ASÍ, að efna til ófriðar við vinnuveitendur en að efla kaupmáttar- og hagvaxtar- þróun hér á landi. Afleiðingarnar, ef svo má segja, birtast ekki síst í því tveggja turna tali ASÍ og SA sem yfirskyggir flest annað á vinnumarkaðnum og snýst í stuttu máli um kjör hinna lægst launuðu og rekstrarforsendur hjá stórfyrirtækjum landsins. Sá mikli meirihluti launþega og fyrir- tækja sem falla ekki undir þetta tal stendur óbættur hjá garði eða nýt- ur ekki sannmælis. Þetta hefði ekki slompast eitthvað áfram um sinn, ef ekki væri fyrir Covid-19. En tím- inn er á þrotum. Nýsköpun, hugverkaiðnaður og skapandi atvinnugreinar Sjaldan eða aldrei hefur nýr samskiptamáti verið mikilvægari en nú, þegar meginalda fjórðu iðnbylt- ingar er að halda innreið sína í samfélagið. Miðað við þann 19. ald- ar og fyrri hluta 20. aldar vinnu- markað sem ASÍ vinnur að virðist lítið vera aflögu fyrir hugvitið, afl- vaka þessara tæknidrifnu breytinga sem eru að umbreyta atvinnulífinu. Hugvitið verður í grunninn rekið af sérfræðingum í litlum fyrirtækjum og sprotum. Þessir sérfræðingar eiga fátt sameiginlegt með þeim lægst launuðu og fyrirtæki þeirra starfa á allt öðrum forsendum en stórfyrirtæki. Allir sem vilja geta séð að rétta þarf þessa neikvæðu þróun af. Afar brýnt er að við förum að ræða um stöðu og þróun vinnumarkaðarins út frá heildarhagsmunum vinnu- markaðarins. Nálgast þarf við- fangsefnið út frá almennum for- sendum, en ekki sérhagsmunum og ekki er síður brýnt að fagleg vinnu- brögð séu höfð í heiðri, en ekki þröngir flokkspólitískir hagsmunir eða stéttapólitík sem er sérstakt hugðarefni einstakra forystumanna verkalýðshreyfingarinnar. Atvinnufjelagið vill horfa til nýrra vinnubragða og þarfa Atvinnufjelagið (AFJ) er nýtt hagsmunafélag lítilla og með- alstórra fyrirtækja sem ætlað er að mæta þessari þróun. Við hjá AFJ erum sannfærð um mikilvægi menntunar, sveigjanleika vinnu- markaðarins, vaxandi vægis ein- yrkja á vinnumarkarði og lykil- stöðu lítilla og meðalstórra fyrirtækja fyrir íslenskt efnahags- og atvinnulíf. Okkur finnst því tímabært að breikka umræðuna á vinnumarkaði og freista þess að ná samtalinu í gang í samvinnu við þá sem eru sammála okkur um að breytinga sé þörf; að tími bætta samskipta á vinnumarkaði sé runn- inn upp með hagsmuni heildarinnar að leiðarljósi og lítil og meðalstór fyrirtæki njóti sannmælis. Nánari upplýsingar um AFJ eru á vefnum okkar www.atvinnufjelagid.is. Verið velkomin í félagið og stofn- fundinn sem verður haldinn innan skamms. Eftir Helgu Guð- rúnu Jónasdóttur » Atvinnufjelagið vill að rödd lítilla og meðalstórra fyrir- tækja heyrist og þeirra hagsmuna sé gætt í atvinnuuppbyggingu nýsköpunarhagkerfis 21. aldar. Helga Guðrún Jónasdóttir Höfundur er samskiptastjóri og í stjórn undirbúningsfélags að stofnun AFJ. Tveggja turna tal ASÍ og SA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.