Morgunblaðið - 11.10.2021, Side 18

Morgunblaðið - 11.10.2021, Side 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. OKTÓBER 2021 Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, ÁSDÍS ÁSGEIRSDÓTTIR frá Höfn, Svalbarðsströnd, lést á hjúkrunarheimilinu Lögmannshlíð miðvikudaginn 6. október. Hún verður jarðsungin frá Svalbarðskirkju föstudaginn 22. október klukkan 13.30. Soffía Friðriksdóttir Stefán Þengilsson Kristjana Friðriksdóttir Sigurður Steingrímsson Steinþór Friðriksson Hrafnhildur Lilja Jónsdóttir Hildur Petra Friðriksdóttir Jóna Sigurlaug Friðriksdóttir Gunnar Egilsson og fjölskyldur Gáfumaðurinn Finnbogi, land- könnuður, fjall- göngumaður og mannvinur. Fyrirmynd, heiðar- legur, hreinskilinn, hugaður, sterkur, hjarthlýr, trúr sinni sannfæringu og traustur. Ég var svo heppinn að eiga Finnboga að góðum vini. Leiðir okkar lágu saman hjá Framtaks- sjóði Íslands á sínum tíma. Þetta var krefjandi tími en ótrúlega ár- angursríkur. Finnbogi var einn af þeim sem lagði grunninn að einstökum árangri sjóðsins. Það verður að fylgja með að grunnur árangursins var líka allt það af- burðafólk sem starfaði hjá sjóðn- um frá upphafi til enda á starfs- tíma sjóðsins. Þessu væri Finnbogi hjartanlega sammála. Finnbogi átti farsælan feril að baki í íslensku viðskiptalífi. Ég hafði eins og fleiri fylgst með starfsferli hans í gegnum Esther elstu dóttur hans en við Esther unnum saman á sínum tíma. Síð- ar vorum við Esther saman í MBA-námi. Ég upplifði það hve þau feðginin voru einstaklega samheldin og samband þeirra mjög sterkt. Þau leituðu ráða hjá hvort öðru og studdu hvort ann- að í blíðu og stríðu. Á ólíkum víg- stöðvum í skóla eða vinnu með þeim feðginum brá reglulega við sömu töktum, skoðunum og gild- um. Missir þinn Esther er mikill en þú berð þá gæfu að hafa erft hans góðu kosti. Ég var þakk- látur og stoltur veislustjóri í 120 ára afmæli ykkar fyrir tæpum tveimur árum og er heppinn að hafa átt ykkur að góðum vinum. Hugurinn reikar til heimsókn- ar til Finnboga og Berglindar í París fyrir nokkrum árum. Hjól- uðum um alla París og Finnbogi lýsti því sem fyrir augu bar. Drukkum kaffi á kaffihúsum og reyndum að leysa lífsgátuna. Finnbogi hafði mikinn áhuga á mönnum og málefnum og velti stöðu efnahagsmála mikið fyrir sér. Í París sá maður það glögg- lega hve miklir heimsborgarar þau Finnbogi og Berglind voru og hve samband þeirra var ein- stakt á allan hátt. Sólin hefur hnigið til viðar allt of snemma hjá Finnboga vini mínum. Það var svo skemmtileg- ur tími að fara í hönd hjá honum og Berglindi. Söknuðurinn er mikill og eftir sitja kærar minn- ingar um einstakan vin, góðvild- ina, hláturinn, vinnuferðirnar er- lendis, umhyggjusemina og aðrar óteljandi gleðistundir. Finnbogi var traustur og hélt afar þétt um sína nánustu. Elsku Berglind, Esther, Ragna og aðr- ir ástvinir ég votta ykkur mína dýpstu samúð og megi minning um yndislegan Finnboga ylja um hjartarætur um ókomna tíð. ✝ Finnbogi Jóns- son fæddist 18. janúar 1950. Hann lést 9. september 2021. Útför hans var gerð 8. október 2021. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum) Þór Hauksson. Þegar ég kom heim til Akureyrar, eftir nokkurra ára fjarveru, hafði ég eignast tvo yndislega frænd- ur, þá Áskel og Finnboga. Þeir voru systrasynir, fæddir með 18 daga millibili. Seinna kynntist ég Finnboga enn betur er móðir hans, ásamt Dórótheu systur hans, flutti í hús okkar Baldvins. Ég tók miklu ástfóstri við Finnboga. Á sumrin fór hann í sveit en á veturna var hann í skóla og starfaði þá mikið í skátahreyfingunni. Eftir lands- próf fór hann í Menntaskólann á Akureyri og á sumrin var hann á sjó. Finnbogi var mikil félagsvera. Hann sinnti einnig ástamálum sínum vel, í bæinn kom ung og glæsileg stúlka frá Vestmanna- eyjum, Sveinborg H. Sveinsdótt- ir, nemi í hjúkrunarfræði, og felldu þau fljótt hugi saman. Hún flutti heim til hans og 31. nóv. 1969 fæddist frumburður þeirra. Finnbogi sat þá uppi á fæðing- ardeild allan daginn og ekkert gekk. Um kvöldið átti hann að flytja ræðu í MA í tilefni 1. des. Hann hringdi því í mig og bað mig að vera hjá Sveinu á meðan hann færi heim og hefði fata- skipti. Hann ætlaði svo að koma við á leiðinni upp í skóla. Við Sveina töluðum um að það væri gaman ef hún yrði búin að fæða þegar hann kæmi – og það stóð heima. Það fyrsta sem hann heyrði þegar hann kom var barnsgrátur, fædd var lítil stúlka. Það var stoltur faðir sem hélt ræðu þetta kvöld. Eftir að hafa lokið námi hér heima flutti fjölskyldan til Sví- þjóðar. Þar lauk Finnbogi námi í eðlisverkfræði og rekstrarhag- fræði. Sveina lærði geðhjúkrun og heim komu þau með tvær yndislegar dætur, Esther og Sig- ríði Rögnu sem fæddist í Lundi. Svo knúði sorgin dyra er Sveina greindist með krabba- mein og lést aðeins 58 ára gömul. En seinna skein hamingjan við á ný er Finnbogi kynntist Berglindi Ásgeirsdóttur og fjöl- skyldu hennar. Hún að ljúka sín- um starfsferli sem sendiherra og hér á Akureyri ætluðu þau að búa og njóta lífsins. Húsið og nýja heimilið beið þeirra er þau kæmu frá Vancouver. Elsku Finnbogi minn: Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Ég kveð Finnboga með virð- ingu og þökk og sendi Berglindi, Esther, Rögnu og fjölskyldum innilegar samúðarkveðjur. Samúðarkveðjur senda Mar- grét, Ingi, Finnbogi Alfreð og Karin. Björg Finnbogadóttir (Bella). Skammt er á milli lífs og dauða. Minn ágæti vinur, Finn- bogi Jónsson, hefur fyrirvara- laust verið hrifinn burtu frá okk- ur. Það eru ekki nema nokkrir mánuðir síðan við ræddum sam- an um okkar sameiginlegu áhugamál á sviði sjávarútvegs og fiskveiðistjórnunar. Finnbogi í fínu formi og hlakkaði til dval- arinnar í akademísku umhverfi við háskólann í Bresku Kólumbíu í Vancouver. Lögðum við í þessu samtali drög að samvinnu okkar við rannsóknir og greinaskrif. Nú er skarð fyrir skildi. Hann ekki lengur meðal vor. Finnboga kynntist ég fyrst þegar við sátum báðir í stúdenta- ráði Háskóla Íslands árið 1972. Finnbogi var þá nemandi í iðn- aðarverkfræði með hár niður á herðar og eindreginn vinstri maður eins og þorri háskólastúd- enta á þeim árum. Vorum við Finnbogi í forystusveit þeirrar bylgju vinstri róttækni sem þá var að rísa í Háskólanum og hjaðnaði ekki í mörg ár. Með okkur í stúdentaráði var Berg- lind Ásgeirsdóttir eftirlifandi sambýliskona Finnboga og hans trausti bakhjarl. Hún sýndi hins vegar þá framsýni umfram okk- ur strákagerpin að sitja hinum megin við borðið í fylkingu Vöku. Samvinna okkar Finnboga hófst á nýjan leik er ég kom heim frá námi árið 1980, en þá var hann orðinn skrifstofustjóri í iðnaðarráðuneytinu og hægri hönd Hjörleifs Guttormssonar þáverandi iðnaðarráðherra. Tók- um við ásamt fleiri góðum mönn- um höndum saman um það viða- mikla verkefni að lagfæra samninga Íslands við þáverandi álrisa, Alusuisse. Eins og flest annað sem Finnbogi tók sér fyrir hendur tókst það verk prýðilega. Hagstæðari samningar voru gerðir og viðeigandi bætur greiddar þótt endanlegar mála- lyktir yrðu ekki fyrr en með næstu ríkisstjórn. Síðan lágu leiðir Finnboga í Síldarvinnsluna á Norðfirði þar sem hann gegndi stöðu forstjóra í 13 ár. Þar vann hann þrekvirki við að endurskipuleggja rekstur og endurreisa fjárhag þess merka fyrirtækis og leggja því þann trausta grundvöll sem síð- ari forstjórar hafa nýtt til enn meiri uppbyggingar. Síldar- vinnslan er nú eitt glæsilegasta sjávarútvegsfyrirtæki lands- manna. Án aðkomu Finnboga að fyrirtækinu 1986 er eins líklegt að fyrirtækið hefði farið þá leið sem mörg önnur sjávarútvegs- fyrirtæki fóru á þessum árum og Neskaupstaður þá e.t.v. ekki nema svipur hjá sjón. Skyndilegt fráfall Finnboga er áfall fyrir okkur öll. Mestur er harmur hennar Berglindar okk- ar, barna þeirra og barnabarna. Við Anna vottum þeim okkar innilegustu hluttekningu. Ragnar Árnason. Sviplegt fráfall vinar skilur eftir tómleika, sorg og söknuð. Það eru eðlileg mannleg við- brögð þegar ekki lengur nýtur ljúfrar og gleðiríkrar samfylgd- ar. Þau viðbrögð kallast á við dýrmæta gjöf sem Guð hefur veitt og ekki sjálfgefin. Það vek- ur síðan tilfinningu einskærs þakklætis fyrir að hafa þegið slíka gjöf og fagnað henni svo lengi sem raun varð. Saga viðburðarríkar ævi vinar er meira og minna opinber og þekkt. En löng samleið skildi eft- ir fleira sem fáar heimildir greina frá. Hann átti auk heldur þessa einlægni og gleði sem hon- um fylgdi. Óseðjandi löngun í að kanna nýjar slóðir, þræða tinda fjalla, njóta fegurðar og mann- legrar reisnar. Líkt og perlukaf- ari sem kannar hverja skel í ákefð eftir að finna í henni dýra perlu, velti hann við steinum ís- lensks athafnalífs. Hvert tæki- færi eftirvænting góðra hluta og happ hátíð. Vinur átti auðvelt með að fagna með fagnendum og gráta með grátendum eins og ritað er á góðum stað. Mátti ekkert aumt sjá eða vamm sitt vita. Öfundin ekki nærtæk og jafnlítið upptek- inn af eigin hag. Sá fremur í sér hvatamann að því að treysta og efla hag samfélags og þjóðar og heilinda annarra leitað í þeim efnum. Skýrast kom það fram þegar hann veitti Síldarvinnsl- unni í Neskaupstað forystu. Þar reyndi verulega á hæfileika stjórnanda í afar þröngri stöðu. Með samhentum hópi bar hann fyrirtækið frá bágindum til blómaskeiðs og blómi þess nú sem aldrei fyrr. Trúmennska hans, hæfileikar og eldmóður vakti aðdáun og virðingu ekki að- eins í Neskaupstað heldur um allt land. Má segja að þegar hann hvarf af þeim vettvangi hafi hugur hans orðið eftir. Aust- ur lá leiðin oft síðari ár og vel fylgst með þróun samfélaganna og athafnalífs. Lagði lóð sitt á vogarskálar þegar byggð var álverksmiðja við Reyðarfjörð og hafði eins og jafnan tiltækar röksemdir sem ekki var fram hjá litið. Orð hans í eyru fulltrúa Alcoa, er hann kynnti þeim fyrirtækin fyrir austan voru þau: „Ef hægt er að reka stórfyrirtæki á borð við Síldarvinnsluna, Eskju og Loðnuvinnsluna með góðum ár- angri, þá hefur rekstur álvers á þessu svæði ekki lakari skilyrði.“ Hann lét um sig muna. Áhrifa- valdur í lífi fjölmargra og minn- ast samstúdentar í Menntaskól- anum á Akureyri 1970 ljúfrar samfylgdar á reglubundnum samkomum í gegnum árin með miklu þakklæti. Forysta hans og skipulag ógleymanlegra móta hópsins í Rússlandi og á Siglu- firði í sumar leið. Perlurnar í lífinu auðsæjar. Eiginkona hans, Sveinborg, ynd- isleg atgerviskona og skyggn á fólk, var vini kjölfesta meðan hennar naut við. Augasteinar hans, dæturnar Esther og Ragna og fjölskyldur, áttu í hlýj- an faðm að leita og framrétta hönd að liðsinna og styrkja eftir mætti. Í menntaskóla ofinn vefur vin- áttu sem efldist og varð sam- ofinn fjölskyldutenglum eins og nánustu ættingjar væru og með árunum innilegri. Eftir hörmulegt fráfall Svein- borgar kynntist Finnbogi Berg- lindi Ásgeirsdóttur, glæsilegum fulltrúa þjóðar sinnar á erlend- um vettvangi, vandaðri og hríf- andi og við hjónin þakklát að hafa eignast vináttu hennar. Hún sannarlega átt veigamikinn þátt í að veita vini þá hamingju sem bros hans og viðmót geislaði af. Víðförull, lífsglaður, skeleggur og ástríðufullur athafnamaður, traustur og gefandi vinur kvadd- ur og samfylgdin innihaldsríka og dýrmæta Guði þökkuð. Guð styrki eftirlifandi ástvini og vini og blessi yndislega minn- ingu. Inger og Davíð Eitt af því ánægjulegasta við starf kennarans er það að kynn- ast duglegum nemendum og geð- þekku ungu fólki. Stundum leiðir það til ævilangrar vináttu eins og hjá okkur Finnboga. Auk þess sem hann var nemandi minn unnum við einnig saman að fé- lagsmálum meðan hann var í námi hér heima, hann fyrir Stúd- entaráð en ég fyrir SÍNE. Skoð- anir okkar og viðhorf voru svo áþekk að við þurftum yfirleitt ekkert að eyða miklum tíma í að ræða hlutina. Slík vinátta og samstilling er gulls ígildi. Þegar Finnbogi kom heim frá framhaldsnámi í Svíþjóð hóf hann störf í iðnaðarráðuneytinu í ráðherratíð Hjörleifs Guttorms- sonar. Leiðirnar lágu þá aftur saman þegar hann fór að ýta að mér ýmsum verkefnum á vegum ráðuneytisins, til dæmis orku- sparnaði og staðarvali fyrir orkufreka stóriðju. Og Finnbogi var mér svo kær að það var erfitt að synja beiðnum hans, enda leiddu þær til samstarfs sem varð okkur báðum til ánægju því að kemían milli okkar tryggði það. Og af þessu óx líka sterk og náin vinátta tvennra hjóna því að Sigrún og Sveina heitin áttu vel saman og deildu áhugamálum sem tengdust störfum þeirra á sviði geðheilbrigðis- og velferð- armála. Samræður okkar allra um fjölskyldu-, jafnréttis- og samfélagsmál voru frjóar og fjörugar. Þær gleymast seint. Við kynntumst líka dætrum þeirra, Esther og Rögnu, sem voru oft með í för, - og það var „bónus“. Eftir að þau hjónin fluttust út á land heimsóttum við þau bæði á Akureyri og í Nes- kaupstað – og okkur var sann- arlega tekið með kostum og kynjum. Samband Finnboga og Sveinu var líka afar heilt og ein- kenndist af ástríki, virðingu og samstöðu. En svo syrti í álinn með heilsu Sveinu og hún varð harmdauði fjölskyldu og vinum þegar hún lést langt um aldur fram. En það var ánægjulegt að fylgjast með Finnboga þegar hann fann ástina aftur og sagði svo fallega frá því til dæmis í jólabréfum. Berglind Ásgeirs- dóttir varð sambýliskona hans og náinn félagi. Samband þeirra varð samstillt og hamingjuríkt enda áttu þau mörg sameiginleg áhugamál. Við sendum Berglindi, Esther, Rögnu og allri fjölskyldunni inni- legar samúðarkveðjur. Þorsteinn Vilhjálmsson og Sigrún Júlíusdóttir Í dag er til moldar borinn kær vinur okkar, Finnbogi Jónsson. Við Ásta hittum þau Finnboga og Berglindi á förnum vegi fyrir stuttu, þá lék allt í lyndi og þau sáu fram á nýjan áfanga í lífinu bæði hress og kát að vanda. Lífið er oft á tíðum svo óútreiknanlegt og ósanngjarnt, sérstaklega finn- ur maður til þess á stundu eins og þessari þegar kær vinur fellur frá þegar hann hefði átt að sjá fram á rólegri daga og geta sinnt því óskiptur sem honum var kærast. Við sem eftir sitjum get- um þó glaðst yfir ljúfum minn- ingum um vin sem gott var að eiga að og minningum um góðan dreng sem gott var að eiga að vini. Það var mikið lán fyrir bæj- arfélagið í Neskaupstað á sínum tíma að fá Finnboga Jónsson til starfa sem framkvæmdastjóra Síldarvinnslunnar. Hann lagði alla sína krafta í að styrkja og efla fyrirtækið og þegar hann lét af störfum var Síldarvinnslan þegar eitt öflugasta sjávarút- vegsfyrirtæki landsins, þar munu verkin lifa manninn. Finn- bogi og fjölskyldan öll misstu mikið þegar eiginkona hans, Sveinborg Sveinsdóttir, féll frá langt um aldur fram árið 2004. Þau hjónin fluttu með sér fersk- an blæ inn í samfélagið í Nes- kaupstað og létu til sín taka á mörgum sviðum og mörkuðu þar djúp spor sem seint verða máð. Þótt við hefðum vitað hvor af öðrum um nokkurn tíma í sam- bærilegum störum við at- vinnuþróun hófst vinátta okar þegar þau Finnbogi og Sveina fluttu til Neskaupstaðar 1986. Eðlilega voru samskipti bæjar- stjóra og framkvæmdastjóra stærsta fyrirtækis bæjarins tals- verð á þessum árum. Kynni okk- ar urðu svo enn nánari þar sem Sveina tók að sér starf félags- málastjóra bæjarins. Við Ásta minnumst sérstak- lega allra vinafundanna, gagn- kvæmra heimsókna og samveru- stunda með þeim Finnboga og Sveinu. Þótt slíkar stundir með Finnboga og fjölskyldu hafi orðið færri vegna breyttra aðstæðna og flutninga hafa tengslin ekki rofnað. Kæru Berglind, Ester, Ragna og fjölskyldur, missir ykkar er mikill. Með þessum fátæklegu orðum kveðjum við kæran vin, Finn- boga Jónsson. Ásgeir og Ásta. Það var sárt að þurfa að með- taka það að Finnbogi félagi okk- ar, sem var búinn að vera okkur samferða í hálfa öld, hefði skyndilega kvatt þennan heim. Við Finnbogi hófum saman nám í eðlisverkfræði við HÍ 1971. Eftir tveggja ára nám þar vorum við svo samferða í framhaldið til Lundar þar sem við gátum lokið náminu. Finnbogi og Sveina kon- an hans áttu þegar dótturina Ester og um haustið eignuðumst við Bryndís dóttur okkar Gunn- hildi, þannig að þetta voru tvær ungar fjölskyldur sem settust að hvort á sínum stigaganginum á Kämnärsvägen. Það var troðin gata á milli þessara tveggja heimila. Lundur var á þeim tíma mikil Íslend- inganýlenda, þar var öflugt fé- lagslíf og í hverfinu bjuggu flest- ir við svipaðar aðstæður. Við skiptumst á við barnapössun og deildum þekkingu á hvað og hvar væri hægt að versla ódýrt, hvernig við tengdumst hinu fé- lagslega kerfi og fengjum hús- næðisbætur og barnabætur. Fjárhagurinn var enda naumur og útséð um að fjölskyldurnar gætu fjárfest í munaði eins og sjónvarpi. Á leið okkar um bæinn geng- um við Finnbogi fram á búð sem seldi notuð sjónvarpstæki og þar var nett tekkmubla með litlum, svarthvítum sporöskjulaga sjón- varpsskjá á 195 krónur sænskar. Við ákváðum snarlega að fjár- festa sameiginlega í þessum grip þannig að hvor fjölskyldan gæti notið hans aðra hverja viku. Við bárum tækið á milli okkar og eft- ir snarpar samningaviðræður milli Finnboga og strætóstjóra sem vildi láta okkur greiða töskugjald fyrir gripinn (þið sem þekktuð Finnboga vitið hvernig þær enduðu), komumst við heim á leið með sjónvarpið. Á hverjum fimmtudegi var svo skiptidagur og þá mátti sjá okkur félagana berandi sjónvarpið milli íbúð- anna. Að loknu verkfræðináminu fórum við svo mismunandi leiðir. Finnbogi bætti við sig hagfræði- námi, flutti til Íslands og hóf störf hjá iðnaðarráðuneyti en helgaði sig svo þróun og rekstri fyrirtækja, en við ílentumst í Lundi. Eftir það sáu forlögin til þess að við værum aldrei um lengri tíma á sama stað á jarð- arkringlunni. En þótt langur tími gæti liðið á milli þá var það alltaf mikil hátíð og gleði þegar við náðum að hittast. Þegar Sveina féll frá um aldur fram var það mikill missir og hennar var sárt saknað. Það var svo gæfa Finnboga eftir tíma missis og sorgar að hann náði að stofna til kynna við Berglindi og það var gaman að fylgjast með hvernig þau náðu að njóta lífsins saman með ýmsum hætti og kynnin við þau saman urðu bæði gefandi og skemmtileg. Á síðari árum kom það stund- um fyrir að við vorum samtímis í sumarbústöðum okkar í Vatns- endahlíð og gerðum ráð fyrir að þar myndum við hittast oftar þegar um hægðist. Það er erfið tilhugsun að eiga ekki lengur von á að Finnbogi birtist okkur óvænt með fylgdarliði á fallegu sumarkvöldi í Skorradal. Við Bryndís vottum Berglindi, börnum og fjölskyldum þeirra okkar innilegustu samúð. Guðni A. Jóhannesson. Finnbogi Jónsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.