Morgunblaðið - 11.10.2021, Síða 21

Morgunblaðið - 11.10.2021, Síða 21
öllu hjarta og var fyrirmynd fé- lagsmanna í Jörfa, enda gegndi hann öllum störfum innan Kiw- anishreyfingarinnar hér á landi og hafði gott lag á því að leysa öll vandamál. Bragi var einstak- ur félagi og það litu allir upp til hans, ekki aðeins Jörfamenn heldur einnig aðrir sem umgeng- ust hann. Margar veiðiferðir fórum við Bragi á æskuslóðir hans norður á Hrauntanga og til Jóns bróður í Höfðabrekku þar sem við heim- sóttum gamla sveitunga og skyldfólk hans. Það var eftir- tektarvert hvað hann fékk góðar móttökur alls staðar, þarna var höfðinginn Bragi kominn í heim- sókn. Bragi var einstakur vinur okkar og við munum ævinlega minnast hans í hjörtum okkar. Samúðarkveðjur til Garðars, Sigrúnar Fríðu og Braga Þórs. Jón og Björk í Hraunbæ. Í dag kveðjum við kæran vin okkar, Braga Stefánsson. Minn- ingarnar eru margar og góðar og spanna nærri fimm áratugi. Upphaf vináttu okkar félaganna var þegar Kiwanisumdæmið á Íslandi bauð til kynningarfundar þar sem markmiðið var að stofna Kiwanisklúbb í Árbæjarhverfi. Þetta var árið 1974 og þar mætt- um við Bragi og sýndum málinu mikinn áhuga ásamt fjölmörgum öðrum. Við vorum fengnir til for- ystu við stofnun klúbbsins og fengum mikinn stuðning frá reyndum og dugmiklum Kiwan- isfélögum. Við tókum hlutverk okkar alvarlega og ætluðum að sanna að sá klúbbur sem við tækjum þátt í að stofna skyldi byggður á traustum grunni. Þetta tókst, Kiwanisklúbburinn Jörfi var vígður 28. maí 1975 og starfar enn af miklum myndar- skap. Fjölskyldur okkar Braga bundust vinaböndum og minn- ingarnar eru margar og góðar. Við minnumst spilakvöldanna með þeim hjónum Mundu og Braga, við minnumst gleðistund- anna í báðum fjölskyldum, af- mæla, ferminga og skóla- útskrifta og einnig þeirra stunda þegar sorgin knúði dyra. Við frá- fall elsku Mundu sinnar árið 2010 varð Bragi ekki samur, missirinn var honum mikill. Við minnumst allra ferðanna á Kiwanisþingin hér innanlands og einnig ferðanna á Evrópuþing og heimsþing. Börnin okkar voru gjarnan með í sumum ferð- um og þeirra vinátta var falleg og fölskvalaus. Allar þessar minningar og einnig þær sem ósagðar eru geymum við í minn- ingabankanum sem alltaf er op- inn. Bragi var einstaklega greið- vikinn maður og vinnusamur. Ótal margir leituðu til hans með bíla í viðgerð og fengu úrlausn sinna mála. Ef sá gállinn var á honum átti hann til að finna druslunni allt til foráttu og sagði án þess að hika að hræinu ætti að farga hið snarasta. Japanskir bílar voru til að byrja með ekki neinir bílar í samanburði við þá amerísku. Ef til vill verður veg- urinn ekinn inn í Sumarlandið á gljáfægðum amerískum kagga. Kært ertu kvaddur, gamli góði vin. Innilegar samúðarkveðjur sendum við Sigrúnu, Garðari, Fríðu, Braga Þór og fjölskyld- um. Ásta og Ævar. Einn af stofnendum og mátt- arstólpum Kiwanisklúbbsins Jörfa, Bragi Stefánsson, lést föstudaginn 1. okt. sl. Hann var virkur í Kiwanishreyfingunni allt frá stofnun Jörfa 1975 eða 46 ár. Hann gegndi fjölmörgum ábyrgðar- og stjórnarstörfum bæði í Kiwanisumdæminu Ís- land-Færeyjar og enn frekar í klúbbnum Jörfa þar sem hann var einn af hornsteinum starfs- ins alla tíð og gegndi þar fjöl- mörgum embættum. Hann var ekki síður áhrifaríkur og mót- andi sem einn af félögunum. Glaður og jákvæður en hrein- skiptinn og sagði sína meiningu umbúðalaust en var um leið uppbyggjandi. Félagsmálamað- ur af bestu gerð sem lagði sig fram við verkefnin sem klúbb- urinn tók sér fyrir hendur. Þau miðuðust einkum við að aðstoða þá sem bágast standa, börn og ungmenni í erfiðleikum, hreyfi- hamlaða og geðsjúka. Að slíkum verkefnum vann Bragi af lífi og sál. Þótt heilsan væri farin að gefa sig síðustu árin mætti hann vel á fundi og gerði ævinlega samveruna betri. Hann skilur eftir varanleg áhrif á okkur fé- lagana og góðar minningar sem ég vil þakka fyrir hönd okkar allra í Kiwanis-klúbbnum Jörfa. Fjölskyldu hans sendi ég innilegar samúðarkveðjur. Haraldur Finnsson, forseti Kiwanis- klúbbsins Jörfa. Þeir voru fáir traustari en Bragi Stefánsson félagarnir í Kiwanishreyfingunni. Nú er hann fallinn frá og mikill missir að honum. Heilsuleysi hamlaði honum nokkuð síðustu ár en andinn var alltaf til staðar. Hann var einn af stofnfélög- um í Kiwanisklúbbnum Jörfa sem stofnaður var árið 1975 í Árbæjarhverfinu. Alla tíð var hann dugmikill í starfi klúbbs- ins. Hann var kallaður til starfa í umdæmisstjórn og gegndi starfi Umdæmisstjóra 1988-1989. Ég átti því láni að fagna að starfa með honum á vettvangi um- dæmisstjórnar. Hann var kröfu- harður og þoldi illa að menn gengju ekki fram af einurð því hann vildi ná árangri í starfi hreyfingarinnar. En jafnframt var hann góður félagi og þau hjón Guðmunda og Bragi skemmtileg, kát og glöð á góð- um stundum. Blessuð sé hún minning þeirra beggja. Eftir að starfi lauk í umdæmisstjórn tók- um við okkur saman níu félagar sem mikið höfðu starfað saman í umdæmisstjórn og stofnuðum lítinn félagsskap sem hafði þann tilgang að hittast einu sinni í mánuði frá hausti fram á vor og fara saman í gufubað en einnig að eiga notalega stund á eftir og njóta saman matar. Fljótlega tókum við upp á því að fara sam- an ásamt eiginkonum okkar í leikhús og tónleika og hittast yf- ir góðri máltíð, en líka að fara saman í stuttar ferðir. Við köll- uðum okkur Svitabræður. Eig- inkonur okkar stofnuðu fljótlega félagsskap sem heitir Perlur. Hittust þær einnig fyrsta laug- ardag í mánuði. Braga var í mun að við héld- um hópinn og þau Munda lögðu sig fram um að viðhalda skemmtilegum félagsskap og sannarlega tókst það. Bragi rak um árabil bifreiðaverkstæði og það voru margir Kiwanisfélagar sem áttu erindi við hann. Alltaf tók hann mönnum af alúð og vinsemd og það var fátt sem hann gat ekki lagað og menn óku betri bílum út af verkstæð- inu. Ég hef grun um að ekki hafi alltaf verið rukkað fullt gjald því Bragi var ákaflega bóngóður. Margir Kiwanisfélaga renndu við á verkstæðinu til að spjalla um kiwanismál og stundum gleymdu menn sér og höfðu langan tíma af honum, en alltaf var hann til í gott spjall. Það er sannarlega eftirsjá að slíkum öðlingum og þeim fer sannar- lega fækkandi. Svitabræður og Perlur þakka að leiðarlokum. Bragi Stefáns- son, hafðu heila þökk fyrir góða og innihaldsríka vináttu og margar góðar og notalegar stundir. Við sendum fjölskyld- unni hugheilar samúðarkveðjur. Ástbjörn Egilsson. MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. OKTÓBER 2021 ✝ Heiðbjört Erla Ánadóttir frá Hofi við Varmahlíð fæddist 5. desem- ber 1954. Hún lést í Reykjavík 29. sept- ember 2021. Heið- björt Erla var dótt- ir hjónanna Jórunnar Birnu Sigurbjörnsdóttur, f. 3. júlí 1925 á Bakka í Viðvík- ursveit, d. 30. maí 1979, og Árna Kristjánssonar, f. 5. ágúst 1924 á Stapa í Lýtingsstaðahreppi, d. 10. janúar 1995. Heiðbjört Erla eignaðist þrjú börn. Elstur er Magnús Magnússon, f. 14. októ- ber 1974, búsettur í Danmörku, maki Tina Hauge, f. 12. maí 1981 og eiga þau tvö börn; Freyju Hauge, f. 2007, og Daniel steini Bjarnasyni, þau eiga fjóra syni; Jóna Svanhildur, f. 1948, gift Kristjáni Gunnarssyni, þau eiga tvö börn; Kristján, f. 1950, kvæntur Önnu Jónasdóttur, þau eiga tvo syni; Þuríður Fanney, f. 1952, d. 2014, á hún einn son frá fyrra hjónabandi; Sigurbjörn, f. 1957, kvæntur Guðrúnu Ottós- dóttur, þau eiga tvo syni, þá á Sigurbjörn tvo syni frá fyrra hjónabandi; Álfheiður Halla, f. 1959, var gift Ásgeiri Sigurði Jónassyni, d. 8. mars 1992, þau eiga tvö börn; Svala Dröfn, f. 1967, gifta Trausta Þór Sigurðs- syni, þau eiga þrjú börn. Heiðbjört Erla ólst upp á Akureyri en þangað fluttu for- eldrar hennar vestan úr Skaga- firði þegar hún var á barnsaldri. Starfaði hún við fiskvinnslu á Akureyri. Flutti síðar til Reykja- víkur og starfaði við umönn- unarstörf, hótelstörf og þrif meðan heilsan leyfði. Útför Heiðbjartar Erlu Árna- dóttur fer fram frá Hjallakirkju í dag, 11. október 2021, og hefst klukkan 13. Hauge, f. 2008. Þá átti Heiðbjört Erla tvö börn með Gísla Boga Jóhannessyni, f. 3. desember 1955; Sigrúnu, f. 12.des- ember 1977, og Jó- hannes Helga, f. 2. febrúar 1981. Maki Sigrúnar er Flosi Jónsson, f. 28. sept- ember 1954. Sigrún og fyrri maki, Aðal- steinn Jónsson, f. 3. janúar 1961, eignuðust þrjú börn; Ásgerði Lilju, f. 1994, Jón Valgeir, f. 1994, og Ágústu Erlu, f. 2008. Jóhannes Helgi er ógiftur og barnlaus. Systkini Heiðbjartar Erlu eru: Björk, f. 1945, gift Sigurði Vatnsdal, þau eiga tvö börn; Ingibjörg, f. 1946, gift Frey- Elsku mamma, við getum ekki lýst því hversu sárt er að þú sért farin. Síðustu dagar hafa verið okkur systkinunum óraunverulegir. Við heyrðumst ekki alls fyrir löngu, þá var gott í þér hljóðið. Það er svo erfitt að vita til þess að heyra ekki röddina þína og fá faðmlag aftur. Söknuðurinn er ólýsan- legur. Þegar þetta er skrifað og við hugsum til baka þá streyma minningarnar fram, til dæmis af einni af mörgum norðurferð- um sem við fórum saman á æskuslóðir þínar í Skagafirði. Þú sýndir okkur hvar þú bjóst með foreldrum þínum og mörg- um systkinum við þröngan húsakost og sagðir okkur frá þegar þið fóruð í sundlaugina í Varmahlíð. Þú varst mjög stolt- ur Skagfirðingur og af öllu sem þaðan kom, ekki má nú gleyma sérstöku skagfirsku orðabók- inni þinni. Þú varst ávallt stolt af barnabörnunum þínum og skemmtir þér konunglega á danskri grund í fermingunni hennar Freyju á þessu ári. Þú hlakkaðir líka til fermingar Ágústu Erlu á næsta ári og varst búin að tryggja veislusal í blokkinni sem þú bjóst í, á Þórðarsveigi 5, fyrir veisluna. Einnig hafðir þú skipulagt að fara í ferminguna hans Daníels í Danmörku sama ár. Þú varst alltaf boðin og búin að hjálpa með næstum hvað sem var, hvort sem var um að ræða fyrir okkur í fjölskyldunni eða vinafólk. Oft á tíðum gekkstu nærri þér í góð- mennsku þinni. Þú máttir ekk- ert aumt sjá, þá varst þú komin til aðstoðar og gleymdir stund- um sjálfri þér. En seiglan í þér var ótrúleg og húmorinn aldrei langt undan. Elskuleg móðir okkar, nú er komið að kveðjustund að sinni. Við þökkum þér innilega fyrir allar stundirnar sem við áttum saman. Okkar lokakveðja til þín er þetta fallega og lýsandi ljóð, megir þú hvíla í friði. Mikil sorg í hjarta mínu nú býr en á morgun kemur þó dagur nýr. Það er sá harmur sem ég ber inni í mér að finna það á morgun að þú ert ei hér. Aldrei get ég skilið hví hann tók þig svo fljótt, hvernig get ég hér eftir verið rótt í þeirri götu sem ég þig fyrst sá? Mikinn söknuð og harm ég finn fyrir þá. Því komið er stórt gat í mínu hjarta, ég sé bara fyrir mér framtíð svarta. Hvernig á ég að geta fyllt upp í það? Enginn mun geta komið í þinn stað. Komdu aftur, komdu til mín, ég ætíð vildi vera þín. Um aldur og alla ævi mína, við áttum að fá lengri tíma. Hví þurfti þetta að gerast? Af hverju nú? Hví ekki þegar við yrðum gömul? Af hverju þú? (Katrín Ruth, 1979) Þín börn, Sigrún og Jóhannes. Systir okkar, Heiðbjört Erla, er fallin frá á sextugasta og sjö- unda aldursári og fylgir þar Þuríði systur sinni sem lést ár- ið 2014. Hún var sjötta í röð níu barna foreldra okkar, heiðurs- hjónanna Jórunnar Sigur- björnsdóttur og Árna Krist- jánssonar, sem bæði eru látin. Þau bjuggu í Skagafirði fram til 1960, og eru flest barnanna fædd þar, en fluttu þá til Akur- eyrar. Heiðbjört gekk í Oddeyrar- skóla og lauk þar burtfarar- prófi. Hún fór snemma út á vinnumarkaðinn og vann lengi í fiskvinnslu, bæði á Akureyri og í Vestmannaeyjum. Henni varð þriggja barna auðið. Elstur er Magnús, fæddur 14.10. 1974, sem hún eignaðist með Magn- úsi Jónssyni frá Ólafsfirði. Sambýlismaður Heiðbjartar var síðan Gísli Bogi Jóhannesson frá Grímsgerði í Fnjóskadal og eignuðust þau tvö börn. Þau slitu samvistir. Eldra barnið er Sigrún, fædd 12.12. 1977. Hún á dótturina Ásgerði Erlu. Sam- býlismaður hennar er Flosi Jónsson. Yngra barnið, Jóhann- es Helgi, fæddist 2.2. 1981. Ævi Heiðbjartar var ekki alltaf rósum stráð. Hún flutti til Reykjavíkur eftir samvistarslit og átti hún þar góða daga og slæma. Oft varð henni hugsað heim til Akureyrar og hringdi þá gjarnan til að fá fréttir af fólkinu sínu og fylgdist vel með systkinum sínum og þeirra lífi. Hún vildi alltaf öllum hjálpa þótt hún af veikum mætti ætti oft erfitt með það. Í sumar sem leið heimsótti hún Magnús son sinn sem býr í Danmörku og fjölskyldu hans; sambýliskonuna Tínu og börnin Freyju og Daníel. Hún var við- stödd fermingu sonardóttur sinnar, Freyju, og var hún óumræðilega ánægð með ferð- ina. Heiðbjört átti við vanheilsu að stríða síðustu mánuðina og kannski má segja að hún hafi uppfyllt sínar hinstu óskir með ferð sinni til Danmerkur. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Magnús, Sigrún, Jóhannes Helgi og fjölskyldur, okkar innilegustu samúðarkveðjur til ykkar allra. Elsku systir hvíl í friði. Björk, Ingibjörg, Jóna, Kristján, Sigurbjörn, Halla, Svala og fjölskyldur. Heiðbjört Erla Árnadóttir ✝ Guðbjörg Sig- ríður Ein- arsdóttir fæddist í Reykjavík 3. júní 1980. Hún varð bráðkvödd á heim- ili sínu, Tröllakór 7, 25. september 2021. Foreldrar henn- ar eru Alda Breið- fjörð Indriðadóttir, f. 22. mars 1946, og Einar Bjarnason, f. 13. mars 1952. Systkini Guðbjargar eru: 1) Bjarni Georg Einarsson, f. 28.1. Kópavogi og gekk í fjölbraut- arskólann í Ármúla þar sem hún lauk stúdentsprófi af nátt- úrufræðibraut árið 2001. Eftir stúdent vann hún sem móttöku- ritari í menntamálaráðuneyt- inu þar til hún eignaðist dóttur sína í desember 2002. Hún lauk diplómu í fjármálum og reikn- ingshaldi frá HÍ. Árið 2006 stundaði Guðbjörg nám í lög- reglufræðum sem hún lauk sama ár. Hún starfaði sem lög- regluþjónn í tíu ár. Eftir að hún lauk störfum sem lög- regluþjónn vann hún ýmis störf. Útförin mun fara fram frá Lindakirkju í dag, 11. október 2021, klukkan 13. Streymt verður frá athöfninni á: http://lindakirkja.is/utfarir Virkan hlekk má nálgast á: https://www.mbl.is/andlat 1973, eiginkona hans Bryndís Guð- mundsdóttir, f. 13.4. 1978, og eiga þau fimm börn. 2) Guðrún Ólöf Ein- arsdóttir, f. 7.4. 1974, og á hún þrjá syni. 3) Jóhanna Ásgerður Ein- arsdóttir, f. 22.12.,1981. Guðbjörg lætur eftir sig dóttur, Ivy Öldu Guð- bjargardóttir, f. 23.12. 2002. Guðbjörg lauk grunnskóla- prófi frá Snælandsskóla í Ég trúi því ekki enn að ég sitji hér og skrifi minningarorð um þig elsku Gugga mín. Þetta líf er svo ósanngjarnt og sérstaklega á þessari stundu, aðeins 41 árs í blóma lífsins ertu tekin frá okk- ur. Við vorum með svo mörg plön saman, líta út eins og J’Lo um fimmtugt og fara saman til Havaí þegar við yrðum sextugar. Ósjaldan áttum við það til að senda skilaboð á sömu sekúndu með sömu hugmyndum eða þeg- ar við spjölluðum að segja sama hlutinn. Við sögðum að þetta væri orðið „sick“ og spúkí eins og mamma myndi segja. Ég sit hérna með tárin streymandi að minnast alls sem við gerðum saman og ætluðum að gera. Allar ferðirnar sem ég, þú og Ivy fórum saman í og sú síðasta til Kosta Ríka sem er mér svo dýrmæt. Við deildum svörtum kaldhæðnishúmor sem fáir aðrir skildu. Oft á dag kemur eitthvað upp í huga mér eða eitt- hvað gerist sem ég hefði verið vön að deila með þér en get það ekki. Frá því ég fæddist passaðir þú upp á mig og stóðst þig svo vel í stórusysturhlutverkinu. Þegar ég lenti í einelti í grunnskóla þá tókst þú málin í þínar hendur, sama hversu stór og sterkur ein- eltisseggurinn var þá lét hann mig vera eftir að þú gekkst í mál- in. Ég leit alltaf svo upp til þín, var svo stolt að eiga stóra systur í sama grunnskóla en eðlilega þótti þér pirrandi að litla dýrið væri að reyna að troða sér með. Eftir menntaskóla breyttist það og urðum við óaðskiljanlegar og eyddi ég ófáum stundum með þér og Ivy sem er mér svo dýr- mætt. Þú hafðir svo gaman af því hvað ég var seinheppin og orðin þín „bara þú!“ hljóma í hausnum á mér þegar ég segi þér frá nýj- ustu hrakfallasögum mínum. Sjá svipinn á þér og hláturinn þinn þegar ég kom úr róandi göngu- túr á ströndinni annan daginn okkar í Kosta Ríka og hafði flog- ið á hausinn í flæðarmálinu öll rennandi blaut og útötuð í sandi, því mun ég aldrei gleyma. Sund- ferðin okkar þegar við vorum krakkar. Við skelltum okkur í rennibrautina, þú fyrst og ég á eftir, nema ég kem niður með rifu á sundbolnum þvert yfir rassinn. Þú hlóst þig máttlausa á meðan ég „mjög reið“ sagði að þetta væri ekki fyndið. 50 m gangurinn að búningsklefanum og við ákváðum að labba það í stað þess að fara í laugina. Til að hafa þetta ekki áberandi gekkst þú alveg upp við mig og hélst saman sundbolnum. Það eru endalausar svona minningar sem við deilum, hlátur og grátur og allt þar á milli. Mun sakna þess að spila við þig og mömmu sem við gerðum mikið af. Þú æstir þig alltaf mik- ið upp enda mjög tapsár og áttir það til að grýta í okkur spilunum. „Þetta er ekki eðlilegt,“ hljómaði í kjölfarið. Þú hafðir svo gott auga fyrir hönnun og öðru tengdu heimilinu. Þið Ivy tókuð ykkur oft til og skipulögðuð heima hjá mér og gerðuð allt svo fallegt. Lífið var mjög ósanngjarnt við þig og ég reyndi eins og ég gat að taka á mig eins miklar byrðar og ég gat til að létta undir þér. Ég mun gera mitt besta til að hjálpa Ivy Öldu og ég veit að öll fjölskyldan mun hjálpa mér í því. Minning þín lifir í hjörtum okkar og í Ivy. Hvíl í friði elsku systir og vin- kona, ég mun sakna þín mikið. Jóhanna. Guðbjörg Sigríður Einarsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.