Morgunblaðið - 11.10.2021, Síða 22

Morgunblaðið - 11.10.2021, Síða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. OKTÓBER 2021 Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl.9:00-12:30, nóg pláss – Félagsvist kl.13:00 – Útskurður kl.13:00 - Kaffi kl.14:30-15:20 - Nánari upplýsingar í síma 411-2702 - Allir velkomnir – Boðinn Leikfimi hefst að nýju kl. 10:30, endilega komið og skráið yk- kur, kennari er Sigurður Þorsteinsson. Bingó kl. 13:00. Myndlist kl. 13:00. Sundlaugin er opin frá kl. 13:30-16:00. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Qigong kl. 7:00-8:00. Kaffisopi og spjall kl. 8:30-11:00. Postulínsmálun kl. 9:00-12:00. Ganga kl. 10:00. Hádegismatur kl. 11:30-12:30.Tálgun með Valdóri kl. 13-15:30. Félagsvist kl. 13. Síðdegiskaffi kl. 14:30-15:30. Garðabær Poolhópur í Jónshúsi kl. 9:00. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10:00. Gönguhópur fer frá Smiðju kl. 13:00. Bónusrúta fer frá Jónshúsi kl. 12:40. Bridge í Jónshúsi kl. 12:30 – 15:30. Stólajóga kl. 11:00 í Kirkjuhv. Vatnsleikf Sjál kl. 15:00 /15:40 og 16:20, Zumba Gold kl. 16:30. Gerðuberg Opin vinnustofa í Búkollulaut frá kl. 8:30, heitt á könnunni. Dansleikfimi með Auði Hörpu kl. 10:00 Leikfimi fyrir eldri borgara í ÍR kl. 10:00-11:00. Kóræfing kl.13:00-15:00. Gjábakki kl. 8.30 - 11.30 Opin handavinnustofa, kl. 9.00 - 10.30 Boccia-æfing, kl. 9.00 - 11.30 Postulínsmálun, kl. 10.50 - 12.05 Jóga, kl. 13.15 - ca 15.00 Canasta, kl. 13.00 - 16.00 Opið verkstæðið og handavinnustofan, kl. 16.30 Kóræfing hjá Söngvinum. Grafarvogskirkja Þriðjudaginn 12. október verður opið hús fyrir eldri borgara í Grafarvogskirkju. Opna húsið er kl. 13:00-15:00. Margt er til gamans gert svo s.s. tekið í spil eða prjónað. Opna húsinu lýkur með kaffiveitingum. Umsjón hefur Sigrún Eggertsdóttir. Kyrrðarstund hefst kl. 12:00. Að henni lokinni er boðið upp á léttar veitingar gegn vægu gjaldi. Allir hjartanlega velkomnir! Gullsmára Handavinna kl. 9.00 og 13.00 Qigong heilsueflandi æfingar kl. 10.00 Bridge kl. 13.00 Jóga kl. 17.00 Félagsvist kl. 20.00 Hraunsel Billjard kl. 8-16. Myndlistarklúbbur kl. 9:00. Stóla yoga kl. 10. Félagsvist kl. 13:00. Gaflarakórinn: Kl. 11:00.l Spilum félagsvist alla mánudaga kl 13 Hraunsel Billjard: Kl. 9:00-16:00. Myndlistarklúbbur: Kl. 9:00. Stóla yoga: Kl. 10:00. Félagsvist: Kl. 13:00. Hvassaleiti56-58 Morgunkaffi og spjall frá 8:30-10:30. Útvarpsleikfimi kl. 9:45. Minningahópur kl. 10:30. Jóga með Ragnheið Ýr kl. 12:20, einnig á netinu á sama tíma. Zumba með Carynu kl. 13:10.Tálgun – opinn hópur kl. 13:00-16:00. Bridge kl.13:00. Gönguhópur – lengri ganga kl. 14:00. Hádegismatur kl. 11:30 – 12:30, panta þarf fyrir hádegi deginum áður. Korpúlfar Hugleiðsla og létt yoga kl. 8:30 í Borgum. útvarpsleikfimi í Borgum kl. 9:45. Gönguhópar Korpúfa leggja af stað kl. 10 frá Bor- gum, frá Grafarvogskirkju og inni í Egilshöll, göngur fyrir alla. Prjónað til góðs og frjáls skartgripagerð í listasmiðjunni í Borgum kl. 13:00. Félagsvist í Borgum kl. 13:00Tréútskurður með Gylfa á Korpúlfsstöðum kl. 13:00 og línudans með Guðrúnu kl 15:00 í Bor- gum. Samfélagshúsið Vitatorgi Í dag er kaffispjall í setustofu milli kl. 10:30-11:30. Bókabíllinn Höfðingi heimsækir okkur Skúlagötumegin milli kl. 13:10-13:30. Eftir hádegi, kl. 13:15-14:00 spilum við Boccia í setustofu 2. hæðar. Opin vinnustofa verður í handavinnustofu 2. hæðar milli kl. 13:00-16:00. Verið öll hjartanlega velkomin til okkar á Lindargötu 59 - við hlökkum til að sjá ykkur. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Húsviðhald Húsaviðgerðir www.husco.is Sími 555 1947 Gsm 894 0217 með morgun- !$#"nu intellecta.is Við Jón vorum meðal þeirra tæp- lega 50 ungmenna sem hófu nám í nýj- um héraðsskóla á Skógum undir Eyjafjöllum haustið 1949. Í ljós kom að við áttum ýmis sameiginleg áhugamál, og urðum því fljótt miklir mátar. Eitt áhugamálið var einfaldlega námið. Ungir og óþreyttir kennarar smituðu okkur af eldmóði sínum. Sjóndeildar- hringurinn víkkaði stórum, til dæmis við það að geta tjáð sig á er- lendu máli. Það kom fyrir oftar en einu sinni að við Jón sátum úti á gangi við gaflgluggann fram eftir nóttu og ræddum saman á dönsku. Annað áhugamál voru stelpurn- ar. Við kunnum hvorugur að dansa. Þær yrðu vafalaust tregar til að þiggja dans við okkur nema Jón Dalmann Þorsteinsson ✝ Jón Dalmann Þorsteinsson fæddist 26. desem- ber 1933. Hann andaðist 30. sept- ember 2021. Útförin fór fram 8. október 2021. kannski einu sinni, klaufar sem við vor- um úti á gólfi. En Jón bjó svo vel að eiga út- varpstæki einn nem- enda. Og við tókum okkur til og dönsuð- um hvor við annan þegar enginn sá til, við danslög í útvarp- inu. Mikill léttir var það seinni part vetrar þegar við heyrðum haft eftir einhverri stelpnanna að það væri nú alveg hægt að dansa við okkur. Við stefndum á frekara nám og bjuggum okkur því undir lands- próf, sem þá var skilyrði fyrir inn- töku í menntaskóla. Ná þurfti 6 í meðaleinkunn, og við fórum báðir vel þar yfir vorið 1951. Minnisstætt er að kennarar okkar, sem ekki höfðu áður búið nemendur undir þetta próf, voru öllu verr haldnir af prófskrekk en við nemendur. Þetta vor barst okkur lands- prófsnemendum bréf frá Bjarna Bjarnasyni skólastjóra á Laugar- vatni, þar sem hann bauð okkur setu í framhaldsdeild sem hann hafði stofnað við skólann, og átti að kenna til stúdentsprófs. Fimm úr hópnum þáðu boðið, þar á með- al við tveir. Menntaskólinn að Laugarvatni var síðan stofnaður á grunni þessarar framhaldsdeildar vorið 1953. Á Laugarvatni urðum við Jón herbergisfélagar. Við átt- um saman bókina Brunninbelgju, skrifbók sem var bjargað sótugri úr kaupfélagsbruna á Hellu 1953. Margir þóttust vera skáld á þess- um tíma, og við söfnuðum í hana ýmsu sem ekki verður annars staðar birt. Bókin var læst með hespu og hengilás. Lykillinn er týndur. Skörð hafa smátt og smátt verið höggvin í systkinahópinn úr þess- um tveimur heimavistarskólum, enda er sá gangur lífsins. Í hvert skipti spyr maður hver næst? Í mínu hjarta er skarðið eftir hann Jón Dalmann óvenju stórt. Enda þótt samskipti okkar hafi á síðari árum ekki verið meiri en gengur og gerist finn ég það núna að ég hef fáa vini átt sem skiptu mig meira máli en hann. Megi hann í friði fara. Þessum orðum fylgir hinsta kveðja frá bekkjarfélögum og samstúdentum Jóns frá Mennta- skólanum að Laugarvatni 1955. Dóru konu hans og afkomendum eru fluttar hjartkærar samúðar- kveðjur. Jóhann Gunnarsson. Mín fyrstu kynni af Jóni Dal- mann Þorsteinssyni voru í árdaga Sjónvarpsins fyrir rúmlega hálfri öld. Þá hafði Jón tekið að sér að sjá um tæknilegu hliðina á ákvörðun stjónvalda að setja á stofn íslenskt sjónvarp. Ég hef ætíð hugsað um Jón Dal- mann sem arkitekt að þessari tæknilegu framkvæmd sem lukk- aðist allvel. Jón hafði hæfileika til að fá starfsmenn til samvinnu og þetta tæknilega verkefni hæfði honum vel. Ég man vel að þegar Banda- ríkjamenn höfðu af að senda mannað geimfar til tunglsins var engin útsending hjá sjónvarpinu í júlí og allir tæknimenn í sumar- leyfi. Þá kom kallið og við Jón Dal- mann græjuðum útsendinguna að mestu hnökralaust. Við nafni höfum haft lauslegt samband í áranna rás, fórum til stangveiða nokkrum sinnum en Jón hafði mikla ánægju af veiði- skap. Í minningunni á seinni árum eru ógleymanlegar skötuveislurn- ar í Fossvoginum. Jóns verður saknað sem vinar og vil ég með þessum fátæklegu línum votta Dóru og börnum og barnabörnum mína dýpstu samúð við fráfall nafna míns. Jón Hermannsson. Guðný Egilsdóttir fyrrverandi mág- kona mín, eða Gullý eins og hún var köll- uð, er nú gengin á vit feðra sinna. Mér finnst við hæfi að minnast hennar enda margar góð- ar samverustundir tengdar henni. Það var árið 1961 sem ég sá Gullý fyrst, en það var á gömludansad- ansæfingu í Alþýðuhúskjallaran- Guðný Egilsdóttir ✝ Guðný Egils- dóttir fæddist 5. apríl 1945. Hún lést 18. ágúst 2021. Útför hennar fór fram í kyrrþey. um. Gullý var þar ásamt Aggýju systur sinni og Erlu vin- konu þeirra. Ég var satt að segja feiminn við þessar fallegu stúlkur í fyrstu, enda ekki nema 15 ára þá. Feimnin rann þó af mér enda hófst með okkur ágætur kunn- ingsskapur á dans- námskeiðinu. Þessi kunningsskap- ur leiddi til kynna Lárusar bróður og Gullýjar. Þau urðu par og hófu fljótlega sambúð í lítilli íbúð á Njálsgötunni í Reykjavík. Þau giftust eftir tveggja ára sambúð og fluttu í nýja íbúð, sem þau keyptu sér á Kleppsveginum. Árið 1965 eignuðust þau soninn Ólaf, sem var sannkallaður sólargeisli innan fjölskyldu okkar, og hann var fyrsta barnabarn foreldra minna. Gullý og Lárus skildu eftir 10 ára hjónaband og kom það mörgum á óvart. Eftir skilnað þeirra var Gullý í góðu sambandi við foreldra mína og okkur hjónin. Við hitt- umst stundum heima hjá foreldr- um mínum og vorum í reglulegu símasambandi til hinsta dags. Gullý var vel af guði gerð. Hún var glaðvær, átti auðvelt með nám, tók gagnfræðapróf og fékk vinnu á skrifstofu Ölgerðarinnar í Reykja- vík. Seinna bætti hún við kunnáttu sína í matargerð og vann víða sem matráðskona er á ævina leið. Gullý fékkst einning mikið við hann- nyrðir, og varð snillingur í að prjóna lopapeysur, sem eftir hana liggja í tugatali. Gullý stóð vaktina með prýði þar til yfir lauk. Hún tókst á við erfið veikindi síðustu mánuðina og þrátt fyrir lyfjagjöf og læknishjálp fékk hún ekki bót meina sinna, sem að lokum urðu henni að aldurtila. Ég ræddi við Gullý í síma um viku fyrir andlátið, og var hún þá málhress og bjart- sýn á að ná heilsu á ný, þrátt fyrir að hafa verið flutt á sjúkrahús þá um morguninn. Gullý heitin var trúuð og hjálpaði það henni við að takast á við lífið og tilveruna. Við hjónin kveðjum Gullý með söknuði en yljum okkur við góðar minning- ar um hana. Sendum fjölskyldu og vinum Gullýjar samúðarkveðjur. Ólafur Beinteinn Ólafsson og Dagný Elíasdóttir. ✝ Svavar Guð- mundsson fæddist á Barðs- nesgerði í Norð- fjarðarhreppi 15. júní árið 1934. Hann lést á Landspít- alanum 12. sept- ember 2021. Foreldrar hans voru Þórunn Guð- björg Halldórs- dóttir, húsfreyja og bóndi, fædd á Þuríðarstöðum á Völlum, S-Múlasýslu, 4. desember 1894, látin 12. september 1977, og Guðmundur Halldórsson bóndi, fæddur 26. desember 1891 á Barðsnesgerði í Norðfjarð- arhreppi, látinn 29. apríl 1976. Þau bjuggu í Barðsnesgerði fram til ársins 1955 er þau fluttu að Lyngbergi í Garðabæ, nú Hafn- arfirði. Þau voru síðustu ábú- endur í Barðsnesgerði. Svavar var yngstur 14 systk- ina. Systkini Svavars voru Ásgeir Halldór Guðmundsson, f. 26. júní mundsson, f. 15. júní 1934, d. 16. nóv. 1953. Svavar kvæntist 15. desember 1963 Lilju Vestmann Daníels- dóttur, f. 16. nóvember 1938, d. 9. nóvember 2019. Foreldrar henn- ar voru Daníel Fjeldsted Vest- mann, f. 15. september 1913, d. 22. desember 1989, og Guðríður Oddgeirsdóttir Vestmann, f. 13. október 1911, d. 12. nóvember 1988. Lilja var hjúkrunarfræð- ingur og starfaði lengi á hjúkr- unarheimilinu Sólvangi í Hafn- arfirði. Hún lést í nóvember 2019. Börn Svavars og Lilju eru: Margrét Svavarsdóttir, f. 17. október 1963, maki hennar er Reynir Geirsson, f. 17. október 1965, Guðríður Svavarsdóttir, f. 8. desember 1964, maki hennar er Friðrik Gunnar Gíslason, f. 23. júlí 1963, Guðbjörn Svavarsson, f. 22. janúar 1966, Anna Maren Svavarsdóttir, f. 14. janúar 1974, og Daníel Svavarsson, f. 10. ágúst 1975, maki hans er Ruth Linda- Marie Blom, f. 20. apríl 1976. Svavar og Lilja eiga níu barna- börn og þrjú barnabarnabörn. Útför Svavars fór fram í kyrr- þey þann 21. september. 1916, d. 16. mars 1979, Emil Sigurdór Guðmundsson, f. 1. sept. 1917, d. 8. mars 2012, Helgi Sigfinnur Guð- mundsson, f. 7. apríl 1919, d. 6. mars 1975, Guðrún Oddný Guðmunds- dóttir, f. 20. mars 1921, d. 1. nóv. 1972, Drengur Guð- mundsson, f. 7. júní 1922, d. 11. júlí 1922, Ingvar Sigurður Guð- mundsson, f. 25. okt. 1923, d. 16. nóv. 1953, Ólína Guðmundsdóttir, f. 23. des. 1924, d. 28 nóvember 2020, Magnús Guðmundsson, f. 12. júní 1926, d. 10. feb. 1997, Hjalti Guðmundsson, f. 24. des. 1927, d. 7. febrúar 2021, Sigríður Sveinlaug Guðmundsdóttir, f. 27. feb. 1929, d. 24. sept. 2019, Karl Guðgeir Guðmundsson, f. 11. sept. 1930, d. 24. maí 2013, Ásdís Guðmundsdóttir Agee, f. 17. júní 1932, d. 25. júní 2012, Jósep Guð- Elsku pabbi. Nú er komið að kveðjustund. Tíminn líður hratt og það eru innan við tvö ár síðan við kvöddum mömmu og þú kvaddir eiginkonu þína til 57 ára. Þú varst góður pabbi, afi og langafi og við stóðum öll í þeirri trú að þú ætti eftir að vera með okkur í nokkur góð ár til viðbótar þar sem heilsan var þokkaleg miðað aldur og fyrri störf. Pabbi ólst upp í Barðsnesgerði við Norðfjörð við sveitastörf og sjómennsku. Fjölskyldan var stór en hann átti 13 systkin og tvær fóstursystur. Hann var yngstur systkinanna ásamt tvíburabróður sínum Jósep. Pabbi hélt alla tíð góðu sambandi við systkin sín en hratt kvarnaðist úr systkinahópn- um síðustu ár og síðasti bróðir hans, Hjalti, féll frá fyrr á árinu í Bandaríkjunum. Þótt langt væri á milli bræðranna ræddust þeir oft saman í síma síðustu ár og barst talið þá oft að æskuslóðunum aust- ur á fjörðum. Pabbi fluttist til Hafnarfjarðar árið 1956. Foreldrar hans höfðu flutt í bæinn árið áður en pabbi var einn á bænum síðasta veturinn. Hann talaði stundum um að það hafi verið frekar einmanalegt að vera einn á bænum til að hugsa um skepnurnar með aðeins hund sér til félagsskapar og olíukamínu til að halda á sér hita. Pabbi var harð- duglegur maður og stundaði ýmis störf í iðnaði, trésmíði og verslun, auk sveitastarfa og sjómennsku. Eftir að hann flutti suður fór hann fljótlega að vinna hjá Kaupfélagi Hafnfirðinga að keyra kjörbúðabíl sem fór í úthverfin þar sem ekki var verslun til staðar. Hann talaði oft af hlýju um tímann á kjörbúða- bílnum en það starf passaði honum vel. Síðar starfaði hann m.a. um skeið hjá Álverinu í Straumsvík, Berki og trésmíðaverstæði Sigurð- ar Elíassonar en hann lauk starfs- ævinni hjá Byko í Kópavogi þar sem hann starfaði yfir 20 ár. Pabbi var glæsilegur maður og fór ávallt í betri fötin á sunnudög- um eftir langa vinnuviku sem oftar en ekki teygði sinn inn á laugar- daga og vinnudagurinn ósjaldan frá 8 á morgnana til 10 á kvöldin þegar mikið var að gera. Pabbi var á sama tíma hagsýnn og örlátur maður og bar þess merki að vera alinn upp í stórri fjölskyldu við knöpp kjör. Hann lagði hart að sér, vann mikla yfirvinnu og aukavinnu þegar svo bar við. Helstu áhuga- mál pabba tengjast tónlist og dansi en mamma og pabbi fóru gjarnan á gömlu dansana með vinum sínum þegar kom að því að gera sér daga- mun. Hann var mikill áhugamaður um harmónikutónlist og átti sér lengi þann draum að læra að spila á það hljóðfæri. Síðustu æviárin dundaði hann sér við að læra að spila á hljómborð og var orðinn nokkuð lunkinn við spilamennsk- una undir lokin. Hann var mikill dýravinur og talaði oft um hundinn sem hann átti sem ungur maður í sveitinni. Honum var afar annt um barnabörnin og barnabarnabörnin og ljómaði allur upp þegar talið barst að þeim. Hann taldi aldrei eftir sér að passa barnabörnin eða sækja þau á leikskólann ef svo bar undir og þau voru alltaf velkomin til afa og ömmu. Við eigum eftir að sakna heimsóknanna til þín þar sem ætíð var boðið upp á bestu pönnukökur í heimi. Takk fyrir all- ar góðu minningarnar elsku pabbi. Daníel Svavarsson. Svavar Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.