Morgunblaðið - 11.10.2021, Side 27
hennar Hamm-
arby vann 4:1-
sigur gegn ná-
grönnum sínum
í AIK í sænsku
úrvalsdeildinni í
gær. Markið var
hennar fyrsta
fyrir Hammarby
og skoraði hún
það fyrir framan
alls 18.537 áhorfendur sem lögðu leið
sína á Tele2 Arena í Stokkhólmi, heima-
völl liðsins.
Aðsóknarmet sænsku úrvalsdeild-
arinnar hjá konunum var þar með sleg-
ið svo um munar, en fyrra met frá árinu
2008 var 9.413 manns á leik Linköping
og Umeå. Hallbera Guðný Gísladóttir
lék allan leikinn í vörn AIK.
_ Ægir Þór Steinarsson lék sinn
fyrsta deildarleik fyrir Gipuzkoa í 1. um-
ferð spænsku b-deildarinnar í körfu-
knattleik. Óhætt er að segja að íslenski
landsliðsmaðurinn hafi slegið í gegn í
frumrauninni því hann skoraði 27 stig
og gaf fjórar stoðsendingar í 105:76-
sigri.
_ Perry McLachlan og Jón Stefán
Jónsson eru teknir við kvennaliði
Þórs/KA í knattspyrnu og skrifuðu
báðir undir þriggja ára samning við
knattspyrnudeild félagsins. Andri
Hjörvar Albertsson var leystur frá
störfum undir lok síðasta mánaðar og
munu McLachlan og Jón Stefán nú
stýra liðinu í sameiningu. Þór/KA hafn-
aði í 6. sæti úrvalsdeildar kvenna, Pepsi
Max-deildarinnar, í sumar.
_ Andrea Kol-
beinsdóttir úr ÍR
og Arnar Pét-
ursson úr Breiða-
bliki sigruðu á
Meistaramóti Ís-
lands í víða-
vangshlaupi í
Laugardalnum
um helgina.
Keppt var í hæð-
óttri braut bæði á möl og grasi og var
vegalengdin átta kílómetrar. Andrea
hljóp á 32,15 mínútum en Arnar á
29,55 mínútum.
_ Frakkland sigraði í Þjóðadeild karla í
knattspyrnu en í gærkvöldi lögðu
Frakkar Spánverja 2:1 í úrslitaleiknum.
Mikel Oyarzabal kom Spáni yfir en Kar-
im Benzema og Kylian Mbappé svör-
uðu fyrir Frakkland sem einnig er
heimsmeistari. Evrópumeistararnir
frá Ítalíu náðu þriðja sæti með 2:1-
sigri gegn Belgíu í leiknum um brons-
ið.
_ Úlfhildur Arna Unnarsdóttir stóð
sig afar vel á heimsmeistaramóti
ungmenna 17 ára og yngri í ólymp-
ískum lyftingum í Jeddah í Sádi-
Arabíu þar sem hún setti meðal ann-
ars Íslandsmet í snörun í sínum
þyngdarflokki. Úlfhildur Arna, sem er
16 ára gömul, keppti í 71 kílógramms
flokki meyja og snaraði 81 kílói. Í jafn-
hendingu náði hún 96 kg. Með þessu
jafnaði hún Íslandsmetið í sam-
anlögðu með 177 kg og hafnaði í 9.
sæti á mótinu.
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. OKTÓBER 2021
Á ÁSVÖLLUM
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Íslenska kvennalandsliðið í hand-
bolta vann sinn þýðingarmesta sigur í
áraraðir er liðið vann sterkan 23:21-
sigur á Serbíu í öðrum leik sínum í
undankeppni EM í gær. Leikið var á
Ásvöllum í Hafnarfirði. Íslenska liðið
var yfir nánast allan leikinn og verð-
skuldaði sannarlega sigurinn.
Serbneska liðið hefur leikið á öllum
Evrópumótum frá árinu 2000 og öll-
um heimsmeistaramótum frá árinu
2013. Það varð því ljóst fyrir leik að
verkefnið yrði verðugt, en íslenska
liðið stóðst prófið með glæsibrag.
Sóknarleikurinn var skynsamlegur
stærstan hluta leiks. Ragnheiður Júl-
íusdóttir var sterk með sjö mörk og
þá átti hún nokkrar flottar línusend-
ingar sömuleiðis. Hildigunnur Ein-
arsdóttir var mjög öflug á línunni og
Rut Jónsdóttir stýrði sókninni glæsi-
lega. Þá nýtti Sandra Erlingsdóttir öll
fjögur vítaköst sín, á meðan Serbía
klikkaði á öllum sínum. Þessi atriði
skipta miklu máli.
Í vörninni var Sunna Jónsdóttir
mögnuð, Helena Rut Örvarsdóttir lít-
ið síðri og áðurnefnd Ragnheiður hef-
ur bætt sig mikið í varnarleiknum
undanfarin ár.
Í markinu stóð Elín Jóna Þor-
steinsdóttir og átti afbragðsleik.
Markvörðurinn varði 14 skot og þar
af tvö víti. Vörslurnar komu oftar en
ekki á mjög mikilvægum augnablik-
um, þegar serbneska liðið gat komið
sér betur inn í leikinn. Eins og upp-
talningin hér að ofan gefur til kynna
var nánast hvergi veikan blett að
finna á frammistöðu íslenska liðsins.
Sigurinn í gær gefur meira en tvö
stig. Hann veitir liðinu meiri trú í
þeirri vegferð sem það er á. Síðustu
ár hafa verið erfið fyrir íslenska
landsliðið, en það sýndi í gær að það
getur staðið í bestu liðum Evrópu og
rúmlega það á góðum degi.
Úrslitaleikur í Serbíu?
Ísland og Serbía eru nú bæði með
tvö stig eftir tvo leiki, tveimur stigum
á eftir Svíþjóð og tveimur á undan
Tyrklandi. Flest bendir til þess að Ís-
land og Serbía berjist um annað sætið,
sem gefur þátttökurétt á lokamóti
EM. Næsta lota í undankeppninni er í
mars á næsta ári er Ísland mætir
Tyrklandi heima og heiman. Í apríl
spilar Ísland heimaleik við Svíþjóð og
loks útileik gegn Serbíu.
Sigurinn í gær galopnar möguleika
Íslands á að fara á fyrsta stórmótið frá
árinu 2012. Möguleikarnir væru litlir
hefði liðið tapað. Fari úrslitin nokkurn
veginn eftir bókinni mætast Ísland og
Serbía í úrslitaleik ytra 23. apríl á
næsta ári. Það á ýmislegt eftir að ger-
ast þangað til, en staða Íslands er góð.
Meira en bara tvö stig
- Sanngjarn sigur á sterku liði Serbíu - Fínir möguleikar á að komast á stór-
mót - Elín öflug í markinu - Ragnheiður markahæst - Gefur liðinu aukna trú
Morgunblaðið/Óttar Geirsson
Fögnuður Íslenska kvennalandsliðið í handbolta fagnar fræknum sigri sínum gegn Serbíu á Ásvöllum í gær.
Þýskalandi og er nú í efsta sæti
þýsku deildarinnar. Fyrst var
keppt um heimsbikar félagsliða
árið 1997 og hafa spænsk lið unn-
ið keppnina níu sinnum. Var þetta
í fjórða skipti sem þýskt lið sigrar
í keppninni og fyrsta skiptið hjá
Magdeburg.
Danska liðið Álaborg náði þriðja
sætinu í keppninni með sigri á
brasilíska liðinu Pinheiros 34:29 í
leiknum um bronsið. Sparlega var
farið með Aron Pálmarsson í
keppninni enda hefur hann verið á
sjúkralistanum síðustu vikurnar.
kris@mbl.is
Gísli Þorgeir Kristjánsson og Óm-
ar Ingi Magnússon fögnuðu sigri í
heimsbikarmóti félagsliða í hand-
knattleik með þýska liðinu Magde-
burg en leikið var í Jeddah í Sádi-
Arabíu.
Magdeburg vann Barcelona
33:28 í úrslitaleiknum fyrir fram-
an rúmlega þrjú þúsund áhorf-
endur í King Abdullah-íþróttahöll-
inni á laugardaginn. Ómar Ingi
var markahæstur með sjö mörk og
var með góða skotnýtingu. Gísli
Þorgeir skoraði ekki í úrslita-
leiknum en er kominn á ferðina á
ný eins og fram hefur komið eftir
aðgerð á öxl fyrr á árinu. Magde-
burg vann Álaborg í undan-
úrslitum 32:30 á fimmtudaginn. Þá
skoraði Ómar sjö mörk úr níu til-
raunum. Í keppninni vann Magde-
burg einnig Sydney University og
Al Duhail.
Gott ár hjá Magdeburg
Magdeburg öðlaðist þátttökurétt
í keppninni með sigri í Evrópu-
deildinni þegar síðasta keppnis-
tímabili lauk í sumar. 2021 er því
ansi gott ár fyrir Magdeburg, sem
er smám saman að gera sig gild-
andi á ný sem eitt besta liðið í
Magdeburg sigraði í Sádi-Arabíu
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Góður Ómar Ingi Magnússon á stór-
an þátt í velgengni Magdeburgar.
Ásvellir, Undankeppni EM kvenna,
sunnudaginn 10. október 2021.
Gangur leiksins: 1:0, 4:3, 7:5, 7:6, 9:6,
10:8, 13:9, 14:14, 16:15, 18:16, 20:18,
23:21.
Mörk Ísland: Ragnheiður Júlíusdóttir 7,
Hildigunnur Einarsdóttir 5, Sandra Er-
lingsdóttir 4/4, Rut Jónsdóttir 3, Díana
Dögg Magnúsdóttir 2, Unnur Ómars-
dóttir 1, Thea Imani Sturludóttir 1.
Varin skot: Elín Jóna Þorsteinsdóttir
14/2.
Ísland – Serbía 23:21
Utan vallar: 4 mínútur
Mörk Serbía: Jovana Stoiljkovic 4,
Kristina Liscevic 4, Zeljka Nikolic 3,
Jovana Kovacevic 3, Tamara Radoj-
evic 2, Dijana Radojevic 2, Marija
Petrovic 2, Andjela Janjusevic 1.
Varin skot: Jovana Risovic 9, Krist-
ina Graovac 2.
Utan vallar: 6 mínútur.
Dómarar: Said Bounouara og Kha-
lid Sami, Frakklandi.
Subway-deild kvenna
Breiðablik – Grindavík......................... 69:83
Njarðvík – Fjölnir ................................ 71:61
Skallagrímur – Valur ........................... 70:92
Keflavík – Haukar ................................ 63:70
Staðan:
Valur 2 2 0 186:139 4
Njarðvík 2 2 0 137:119 4
Haukar 2 1 1 128:129 2
Fjölnir 2 1 1 136:142 2
Grindavík 2 1 1 152:163 2
Keflavík 2 1 1 143:136 2
Breiðablik 2 0 2 140:158 0
Skallagrímur 2 0 2 136:172 0
1. deild kvenna
Stjarnan – KR....................................... 64:77
Tindastóll – ÍR...................................... 52:75
Vestri – Fjölnir b .................................. 53:58
Spánn
Tenerife – Zaragoza ........................... 90:65
- Tryggvi Snær Hlinason skoraði tvö stig
og tók sex fráköst á rúmum 19 mínútum hjá
Zaragoza.
Ítalía
Fortitudo Bologna – Pesaro............... 87:66
- Jón Axel Guðmundsson skoraði níu stig,
tók þrjú fráköst, gaf 11 stoðsendingar og
stal sex boltum á 33 mínútum hjá Bologna.
4"5'*2)0-#
Olísdeild karla
Víkingur – Valur................................... 19:30
ÍBV – KA............................................... 35:31
Selfoss – Afturelding............................ 24:26
Staðan:
ÍBV 3 3 0 0 91:83 6
Haukar 3 2 1 0 86:75 5
Valur 2 2 0 0 52:40 4
KA 3 2 0 1 82:78 4
FH 4 2 0 2 102:100 4
Afturelding 3 1 1 1 87:86 3
Fram 2 1 0 1 56:52 2
Stjarnan 1 1 0 0 36:35 2
Selfoss 4 1 0 3 96:109 2
Grótta 2 0 0 2 43:47 0
HK 2 0 0 2 50:57 0
Víkingur 3 0 0 3 64:83 0
Grill 66 deild karla
ÍR – Þór................................................. 36:31
Kórdrengir – Fjölnir ............................ 29:30
Undankeppni EM kvenna
Ísland – Serbía...................................... 23:21
Tyrkland – Svíþjóð ............................... 23:31
Staðan:
Svíþjóð 2 2 0 0 61:40 4
Serbía 2 1 0 1 57:50 2
Ísland 2 1 0 1 40:51 2
Tyrkland 2 0 0 2 50:67 0
Þýskaland
Wetzlar – Göppingen .......................... 28:28
- Janus Daði Smárason skoraði eitt mark
fyrir Göppingen.
Erlangen – Lemgo............................... 24:28
- Bjarki Már Elísson skoraði átta mörk
fyrir Lemgo.
Bergischer – RN Löwen ..................... 25:25
- Arnór Þór Gunnarsson skoraði fjögur
mörk fyrir Bergischer.
- Ýmir Gíslason skoraði ekki hjá Löwen.
Balingen – Hannover-Burgdorf ........ 28:26
- Daníel Þór Ingason skoraði eitt mark
fyrir Balingen og Oddur Gretarsson er
meiddur.
Leipzig – Stuttgart.............................. 33:24
- Andri Már Rúnarsson skoraði þrjú
mörk fyrir Stuttgart og Viggó Kristjánsson
er meiddur.
B-deild:
Gummersbach – Dormagen ............... 28:18
- Hákon Daði Styrmisson skoraði 10 mörk
fyrir Gummersbach og Elliði Snær Viðars-
son skoraði tvö mörk. Guðjón Valur Sig-
urðsson þjálfar liðið.
Nordhorn – Aue................................... 33:31
- Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði sex
mörk fyrir Aue. Sveinbjörn Pétursson kom
aðeins við sögu en náði ekki að verja.
Rimpar – Emsdetten ........................... 24:20
- Anton Rúnarsson skoraði tvö mörk fyrir
Emsdetten.
Danmörk
Kolding – Bjerringbro/Silkeborg..... 27:32
- Ágúst Elí Björgvinsson varði 10 skot í
marki Kolding.
Nordsjælland – GOG ........................... 24:33
- Viktor Gísli Hallgrímsson varði 11 skot í
marki GOG.
SönderjyskE – Holstebro ................... 30:23
- Sveinn Jóhannsson skoraði fimm mörk
fyrir SönderjyskE.
Frakkland
Cesson Rennes – Montpellier............. 25:21
- Ólafur Andrés Guðmundsson skoraði
ekki fyrir Montpellier.
Créteil – Nancy.................................... 39:32
- Elvar Ásgeirsson skoraði sex mörk fyrir
Nancy.
Svíþjóð
Aranäs – Guif ....................................... 30:27
- Daníel Freyr Andrésson varði eitt skot í
marki Guif og Aron Dagur Pálsson var ekki
í leikmannahópnum.
Redbergslid – Skövde ......................... 24:25
- Bjarni Ófeigur Valdimarsson skoraði sex
mörk fyrir Skövde.
%$.62)0-#