Morgunblaðið - 16.10.2021, Side 2

Morgunblaðið - 16.10.2021, Side 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 2021 www.kofaroghus.is - Sími 553 1545 TIL Á LAGER Ítarlegarupplýsingarog teikningarásamtýmsumöðrumfróðleik máfinnaávefokkar NAUST - 14,44 fm Tilboðsverð 449.400kr. 30% afsláttur VANTAR ÞIGPLÁSS? Afar einfalt er að reisa húsin okkar. Uppsetning tekur aðeins einn dag TILBOÐÁGARÐHÚSUM! Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi og forstjóri Kerecis, fundaði með Werner Vogels, aðstoðarforstjóra Amazon og hægri hönd Jeffs Bezos, í gær. Þetta stað- festi Guðmundur í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi. Herma heimildir blaðsins að fundurinn hafi farið fram hér á landi. Guðmundur vildi ekki tjá sig um hvað var rætt á fundinum en fyrir- tækið hans er þekkt fyrir fram- leiðslu á sáraroði unnu úr þorsk- roði. Vogels sér um tækni og nýsköp- un hjá Amazon og þar gæti Kerecis hjálpað en fyrirtækið hefur vaxið ört síðustu ár og er þekkt fyrir ný- sköpun í líftæknigeiranum. Varnarmálaráðuneyti Bandaríkj- anna hefur komið að fjármögnun Kerecis. Vogels er þekktur sem arkitekt- inn á bak við Amazon Web Services sem er skýjaþjónusta Amazon og er ein arðbærasta þjónusta sem fyrir- tækið rekur. Í síðasta mánuði birtist rannsókn í ritrýnda vísindatímaritinu Wounds sem fjallaði meðal annars um það að sár meðhöndluð með sáraroði frá fyrirtækinu gróa hraðar en sár meðhöndluð með hefðbundnum að- ferðum. Einnig sýndi rannsóknin fram á það að tvöfalt fleiri sjúkling- ar náðu bata sem voru meðhöndl- aðir með sáraroðinu miðað við þá sem fengu hefðbundna meðhöndlun. logis@mbl.is Forstjóri Kerecis fundaði með hægri hönd Bezos - Maðurinn á bak við AWS - Fundurinn fór fram á Íslandi Guðmundur Fert- ram Sigurjónsson Werner Vogels Skúli Halldórsson Lilja Ava Hrund Lúðvíksdóttir Undirbúningsnefnd fyrir rannsókn kjörbréfa fékk gögn frá lögreglunni á Vesturlandi vegna rannsóknar á talningu atkvæða í alþingiskosning- unum í Norðvesturkjördæmi afhent síðdegis í gær. Þetta staðfesti Gunnar Örn Jóns- son, lögreglustjóri á Vesturlandi, í samtali við mbl.is. Nefndin hafði óskað eftir að fá gögn frá lögreglu sem kynnu að nýt- ast við mat á lögmæti kosninganna fyrir lok dags í gær. Rannsókn lögreglu á kæru Karls Gauta vegna niðurstöðu kosning- anna, endurtalningar í Norðvestur- kjördæmi og meðferðar yfirkjör- stjórnar á kjörgögnum lauk á þriðjudaginn og er nú til meðferðar á ákærusviði. Í gærmorgun birti Alþingi allar kærur sem nefndinni hafa borist á vef þingsins sem og fundargerðir og önnur gögn. Alls hafa tólf kærur bor- ist um framkvæmd kosninganna, sem undirbúningsnefndin hefur til meðferðar. Munar um lögreglugögnin Í samtali við mbl.is sagði Birgir Ármannsson, formaður nefndarinn- ar, að það skipti máli að fá gögn frá lögreglunni. „Það skiptir svolitlu máli fyrir okkur að vita hvaða upplýsingar við getum fengið frá lögreglu, upp á það að vita hvaða upplýsingar það eru sem við þurfum að afla sjálfstætt.“ Nefndin kemur aftur saman til fundar á mánudaginn, þar sem fyrir- hugað er að fara yfir fyrirliggjandi gögn og ákveða næstu skref í fram- haldinu. Lýtur reglum stjórnsýslu Verk yfirkjörstjórna og landskjör- stjórnar tilheyrir stjórnsýslunni og lýtur þannig almennum reglum stjórnsýsluréttar. Þetta er mat Trausta Fannars Valssonar, forseta lagadeildar HÍ og sérfræðings í stjórnsýslurétti. Hann kom á fund undirbúnings- nefndarinnar í gærmorgun ásamt Ragnhildi Helgadóttur, rektor Há- skólans í Reykjavík. Léðu þau nefndinni sérfræðimat sitt á lögfræðilegum álitaefnum í tengslum við verkefni nefndarinnar. Trausti benti á að stjórnsýslulögin giltu þó ekki nema um væri að ræða svokallaða stjórnvaldsákvörðun. Framkvæmd talningar og lýsing talningar teldust ekki að hans mati stjórnvaldsákvarðanir. En einstakar aðrar ákvarðanir gætu verið það. Bókun yfirkjörstjórnar í Norð- vesturkjördæmi um niðurstöðu taln- ingarinnar telst ekki stjórnvalds- ákvörðun að hans mati. Með gögn frá lögreglu undir höndum - Stjórnsýslulög gildi ekki um talningu - Segir gögn frá lögreglu skipta máli Morgunblaðið/Unnur Karen Kjörbréf Frá opnum fundi undir- búningsnefndarinnar á Alþingi. Hlutverk nefndarinnar » Undirbúningsnefnd fyrir rannsókn kjörbréfa hefur með- al annars það hlutverk að fara yfir gerðabækur landskjör- stjórnar og yfirkjörstjórna, ágreiningsseðla og kosninga- kærur sem borist hafa dóms- málaráðuneytinu. » Nefndin gerir síðan tillögu til þingsins um hvort kosning og kjörgengi þingmanna teljist gild. » Í nefndinni sitja níu þing- menn. Enginn þeirra er úr Norðvesturkjördæmi eða er uppbótarþingmaður. Logi Sigurðarson Oddur Þórðarson „Það má segja að allt sem við gerum innanhúss hjá okkur geti leyst málin tímabundið en það nær ekki að leysa vandann til lengri tíma. Við erum núna með áætlanir um það að fjölga legurýmum á næstu vikum og mán- uðum og það er heilmikið verkefni vegna þess að það þarf að ráða fólk til þess að vinna á þeim deildum,“ segir Sigríður Gunnarsdóttir, fram- kvæmdastjóri hjúkrunar á Landspít- alanum. Sigríður og fleiri stjórnendur spít- alans funduðu með hjúkrunarfræð- ingum og yfirmönnum á bráðamót- töku vegna mikils álag á deildinni undanfarið. Hún segir vandann fyrir höndum vera þann að álag á Landspítalann aukist stöðugt þar sem spítalinn taki við fleiri sjúklingum og sjúklingar séu nú með flóknari þjónustuþarfir. „Það vantar sérstaklega hjúkrun- arfræðinga og sjúkraliða og það hef- ur verið áskorun hjá okkur að fá þá til starfa. Það er ekki nægilegt framboð á heilbrigðisstarfsfólki á landinu til þess að standa undir þeirri þjónustu sem við veitum.“ Sigríður segir aðspurð að spítalinn eigi að vera í stakk búinn að takast á við tilslökun á sóttvarnaaðgerðum þrátt fyrir álag á bráðamóttöku. „Co- vid-sjúklingar fara ekki mikið í gegn- um bráðamóttökuna svo að það mun ekki hafa áhrif þar, þetta hefur meiri áhrif annars staðar og það er tekið inn í þetta hættumat sem er búið að gera. Það er mat farsóttarnefndar og þeirra sem hafa verið að liggja yfir þessu að leggjast ekki gegn því,“ seg- ir hún. Settur forstjóri Landspítala, Guð- laug Rakel Guðjónsdóttir, tekur und- ir þetta og segir rými til tilslakana á sóttvarnatakmörkunum innanlands. Hún ræddi við Þórólf Guðnason sótt- varnalækni í gær um leiðir sem eru færar í þeim efnum. „Einhvers konar, já,“ sagði Guð- laug í samtali við mbl.is í gær, spurð að því hvort Landspítali teldi rými til tilslakana. Þó segir hún að í þær verði að ráðast með raunsæi og varkárni. Hún segir einnig að ákveða þurfi hvernig nýjum takmörkunum skal háttað með hliðsjón af getu spítalans og stöðu á bráðamóttöku og legu- deildum. Þar að auki verði að gæta þess að spítalinn ráði við mögulega fjölgun í sýnatöku, sem gera má ráð fyrir að eigi sér stað í kjölfar tilslak- ana. „Ég myndi ekki orða það þannig að spítalinn ráði við meira. Ef þú horfir á bráðamóttökuna, þá er hún alveg þanin eins og hægt er. Það er ekki hægt að leggja meira á bráðamót- tökuna en það er bara þannig að Co- vid-sjúklingarnir koma ekkert endi- lega í gegnum bráðamóttökuna,“ segir Guðlaug. Morgunblaðið/Eggert Fundur Hjúkrunarfræðingar funduðu með framkvæmdastjórn Landspítalans um ástandið á bráðamóttöku í gær. Telja rými vera til til- slakana á spítalanum - Fundað um álag á bráðamóttöku - Tímabundnar lausnir Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir Sigríður Gunnarsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.