Morgunblaðið - 16.10.2021, Síða 20
20 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 2021
Kringlan 4-12 | s. 577-7040 | www.loccitane.is
Jóladagatölin eru komin!
ÚR BÆJARLÍFINU
Jón Sigurðsson
Blönduósi
Blönduós á Gallusmessu í síð-
ustu viku sumars.
Allt fram streymir endalaust,
ár og dagar líða.
Nú er komið hrímkalt haust,
horfin sumars blíða.
Þessar ljóðlínur Kristjáns
Jónssonar Fjallaskálds eiga vel við
enn þann dag í dag. Haustið er í
hámarki og uppskera sumarsins er
við það að skila sér í hús. Lömb
sem fæddust í vor gengu á afrétti
sumarlangt með mæðrum sínum
og hafa nú skilað sér í heimahag-
ana og sum gott betur en það.
Mannanna verk af ýmsum toga
hafa frá vori til hausts þroskast og
fengið á sig nýja mynd. Bærinn
sem hvílir við botn Húnafjarðar og
umvefur jökulána Blöndu er í aug-
um sumra „bærinn sem aldrei sef-
ur“.
Til að rökstyðja þessa fullyrð-
ingu má nefna mörg dæmi um upp-
byggingu. Íbúðarhús hafa risið,
fleiri en eitt og fleiri en tvö. Iðn-
aðarhúsnæði skýtur upp kollinum
utan og innan ár. Blönduós er í al-
faraleið og allir sem stefna austur
eða vestur á bóginn þurfa að fara í
gegnum bæinn. Í því felast tæki-
færi sem mikilvægt er að virkja
sem allra best.
Á síðustu mánuðum hefur
aukinn kraftur færst í húsbygg-
ingar, bæði á vegum verktaka og
sveitarfélagsins. Við Sunnubraut
eru risin fimm íbúða raðhús og hafin
er bygging á parhúsi við Smára-
braut. Á síðastliðnum tveimur árum
hafa risið 10 íbúðir í tveimur rað-
húsum og er ár og dagur síðan slík-
ur gangur hefur verið í smíðinni.
- - -
Þrjú iðnaðarhús eru að rísa.
Framkvæmdir við stækkun gagna-
vers Etix Everywhere Borealis á
Blönduósi eru hafnar. Um er að
ræða byggingu á nýju húsi þar sem
lögð er áhersla á gagnageymslu og
ofurtölvurekstur. Rekstraraðilar
gagnaversins segja bæjarfélagið
vera ákjósanlegan stað fyrir gagna-
ver því svæðið búi við örugga af-
hendingu orku, jarðfræðileg skilyrði
séu góð og hættan á umhverfisvá
mjög lítil, þá hefur það reynst félag-
inu vel að vinna með öflugum verk-
tökum á svæðinu. Áætlað er að
framkvæmdum við stækkun gagna-
vers ljúki í lok þessa árs.
- - -
Tekið er að rísa 1.739 m2 at-
vinnuhúsnæði á svokölluðu Miðholti
vestast í bænum við þjóðveg 1. Hús-
ið verður límtréshús klætt sam-
lokueiningum á steyptum sökkli.
Húsið skiptist í 11 misstórar ein-
ingar og verður ýmiss konar starf-
semi í húsnæðinu svo sem aðstaða
fyrir ýmsa verktaka í bænum svo og
nýtt húsnæði fyrir Björgunarfélagið
Blöndu. Rafstöð sem sjálfvirkt fer í
gang í rafmagnsleysi verður sett
upp við húsið. Stefnt er að því að
húsið verði risið um næstu áramót.
Ámundakinn ehf., sem er fjár-
festingafélag á svæðinu, er að
byggja iðnaðarhúsnæði á Blönduósi.
Í samstarfi við Ámundakinn munu
Vilko, Náttúrusmiðjan og Food-
smart hefja þar hátækni-matvæla-
vinnslu. Stefnt er að því að byggja
um 1.200 fermetra hús, en í fyrsta
áfanga verða byggðir um 440 fer-
metrar, ætlaðir fyrir sérhæfða mat-
væla- og heilsuvöruframleiðslu.
- - -
Í byrjun september var níu
körfu frisbígolfvöllur á Blönduósi
formlega vígður í Fagrahvammi.
Fulltrúar frá Frisbígolfþjónustu Ak-
ureyrar komu og kynntu íþróttina
fyrir heimamönnum. Á vígsludegi
var spilaður hringur á nýja vellinum.
Heyrst hefur að fyrsta daginn hefðu
glatast nokkrir frisbídiskar í þéttum
trjágróðri sem er alltumlykjandi.
- - -
Gamla brúin yfir Blöndu sem
vígð var árið 1897 á Blönduósi og
þjónaði hlutverki sínu í 65 ár var
flutt í Svartárdal á móts við Steiná
árið 1962. Þessi fornfræga brú kom
aftur á Blönduós 2001 og var óvíst
um örlög hennar. Nú hefur hún
fengið nýtt hlutverk, sandblásin og
máluð og sómir sér vel á nýjum brú-
arstöplum og er orðin göngubrú yfir
í Hrútey, földustu perlu Blönduóss.
- - -
Grágæsir á Blönduósi hafa
verið drjúgir þátttakendur í að bera
GPS-senda í því markmiði að kanna
farflug og hegðunarmynstur grá-
gæsa á Íslandi. Í vor komu á
Blönduós þrjár gæsir sem báru
senda með númerunum 09 (Jón II),
nr. 10 (Jón) og númer 27 (nafnlaus)
Gæsirnar nr. 10 og 27 voru með
óvirka senda og því örðugt að fylgj-
ast með ferðum þeirra. Gassinn nr. 9
var með virkan sendi og sendi nokk-
ur merki á dag í allt sumar. Það er af
segja af gassa nr. 9 að hann kom til
Íslands frá Katanesi í Skotlandi 15.
apríl.
Daginn eftir flaug hann norður
og staldraði við í sólarhring skammt
norðan við Skjaldarvík í Eyjafirði og
17. apríl kl. 12 var hann kominn á
Blönduós. Þar hefur hann hafst við í
sumar og annast a.m.k. sjö unga
sem upp komust. Það var svo um
miðjan ágúst að nr. 09 fór að venja
komur sínar í Bakkakot og náttaði
sig á Hólmavatni. Þann 12. sept seg-
ir hann skilið við Bakkakot og nýtir
Húnavatn sem náttstað en Torfa-
lækjartúnin eru bitin ákaft á birtu-
tíma. Af sambandslausu gæsunum
tveimur, þeim nr. 10 og 27 er það að
frétta að nafnlausa gæsin 27 féll
þann 14. september í Skagafirði.
Það víg var tilkynnt og var merkinu
komið í réttar hendur.
Blönduós, bærinn sem aldrei sefur
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Blönduós Haustið hefur bankað á dyrnar og fjöllin gránað niður í byggð.
Fallegt er á bökkum jökulárinnar Blöndu og nóg um að vera í bænum.
Rannsókn á andláti sem varð í
Sundhöll Reykjavíkur í janúar lauk
fyrir nokkru og er nú til afgreiðslu
hjá ákæranda á ákærusviði lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu.
Samkvæmt svari lögreglunnar
við fyrirspurn mbl.is er enn beðið
sérfræðigagna í málinu.
Maðurinn sem lést í Sundhöllinni
hét Guðni Pétur Guðnason. Hann
starfaði í geðþjónustu og var með
geðfötluðum skjólstæðingi sínum í
lauginni. Allir sem komu að málinu
voru yfirheyrðir og farið var yfir
myndefni úr öryggismyndavélum.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sundhöll Útilaugin í Sundhöll Reykjavíkur.
Bíða sérfræðigagna
vegna andláts
Vegna greinar í Morgunblaðinu á
fimmutdaginn um úrsagnir þing-
manna úr þingflokkum á Alþingi
er rétt að taka fram að þeir Karl
Gauti Hjaltason og Ólafur Ísleifs-
son höfðu verið reknir úr Flokki
fólksins áður en þeir lýstu sig
utanflokka í desember 2018 og
gengu síðan til liðs við Miðflokk-
inn.
„Við höfðum hvorugur frum-
kvæði að eða fyrirætlanir um að
yfirgefa flokkinn. Mótmæltum við
fyrirhuguðum brottrekstri á fundi
stjórnar flokksins,“ segir Ólafur Ís-
leifsson, fv. alþingismaður.
Þá er því einnig við að bæta að
haustið 2009 ákváðu allir þáver-
andi þingmenn Borgara-
hreyfingarinnar; Birgitta Jóns-
dóttir, Margrét Tryggvadóttir og
Þór Saari, að yfirgefa þingflokkinn
og stofna þingflokk Hreyfing-
arinnar. Var þá enginn eftir í þing-
flokki Borgarahreyfingarinnar.
gudmundur@mbl.is
Þingmennirnir rekn-
ir úr þingflokknum