Morgunblaðið - 16.10.2021, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 16.10.2021, Qupperneq 28
28 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 2021 Leirdalur 29, 260 Reykjanesbæ Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is Glæsileg, mjög nýleg, 4ra herbergja efri sérhæð í hjarta Dalshverfis í Reykjanesbæ með stórum bílskúr. Stór afgirt verönd 67,5 m2 með heitum potti. Jóhannes Ellertsson Löggiltur fasteignasali – s. 864 9677 Júlíus M Steinþórsson Löggiltur fasteignasali – s. 899 0555 Verð 61.500.000 133,8 m2 N okkur óskyld atriði úr minnisbók- inni: 1. Séríslensk fyndni. Kunningi keypti sér hús í Skerjafirði í sumar meðan enn gaus í Fagra- dalsfjalli og var alsæll: „Maður sér bæði Guðna og gosið.“ Nú hefur kunninginn selt húsið. 2. Kennarinn skrifar á töfluna: „Ég dorgði fyrir framan sjónvarpið í gærkvöldi og var svo and- vana í alla nótt.“ Síðan sagði hann: „Færið til betri vegar.“ Umræðan var skemmtileg að vanda. – Hversu margir dorma ekki við sjónvarpsskjáinn, verða svo andvaka mikinn hluta nætur og mismæla sig að morgni næsta dags? (Og innan sviga: eru þau ekki indæl óbeygjanlegu lýsingarorðin sem enda á –a: klofvega, úrvinda, gjafvaxta, troðjúgra?) 3. Nýtt og spennandi tökuorð. Úr bréfi frá vini: Til dæmis var sagt áð- an í viðtali að „fólk broadkasti tilfinningum sínum“. Kannski væri hægt að nota þetta með því að segja bara „broddkasta“ og þá væri það næsti bær við „brottkast“;-) [Innskot: táknin hér til vinstri sýna broskall á hliðinni]. 4. Í Morgunblaðinu er vandað til verka í málfarsefnum og eiga blaða- menn hrós skilið. Yfirlesarar hafa rekið augun í villur hjá mér og ber að þakka það. Í eitt skiptið (sjá Tungutak 11.7.2020) var ég þó „leiðréttur“ að ástæðulausu. Atriðið tengist stafsetningu á viðurnefnum. Ég hafði á ein- um stað skrifað viðurnefnið drómundur með stórum upphafsstaf en á öðr- um stað með lágstaf. Þor- steinn drómundur (með lágstaf) hefndi Grettis bóður síns í Miklagarði sem frægt er orðið. En Drómundur (með hástaf) átti sér ástkon- una Spes. Í seinna dæminu er viðurnefnið komið í hlut- verk eiginnafns. 5. Bókmenntafræðingur í loftfimleikum: „Meðan við eigum ekki önnur fullgóð yfirlitsverk handa alþjóð til kynningar á bókmenntum næstlið- innar fortíðar án þvílíks smættandi viðhorfs til menntanna er hætt við að bók í fullu samræmi við þann vilja sem fram er settur í þessu viðtali gæti stuðlað mjög að því að minnka meiningu, þ.e. gildi bókmennta, í huga þjóðarinnar sem á sér þær.“ 6. Falleg minningarorð á sveitasíma: „Horfinn er höfðinginn Tópas, sautján og hálfs árs, saddur lífdaga en saknað með tárum. Svo ljúfur og mjúkur, hreinn og hvítur en sóleyjagulur á baki. Minning hans eins og vatn á lognkyrrum degi, djúpt og himinblátt. Eins og þytur í laufi sem kyrrist í logni en bergmálar samt úr fjarska. Nei, þetta á ekki að vera ljóð, aðeins söknuður eftir horfinn vin sem var köttur með sál.“ 7. Tvö verkefni, ætluð lesendum: a) „Írski maður bar hana nú grátandi í landtjald sitt.“ (Tristrams saga, 50. kafli). Hvort þeirra grét? b) „Hann gaf vininum sínum góða afmælisgjöf.“ Var vinurinn góður, eða var gjöfin góð? 8. Ungi knattspyrnumaðurinn Ísak Bergmann Jóhannesson fær sér- stakt hrós fyrir þá virðingu sem hann ber fyrir móðurmálinu. Hann þurfti ekki á einni einustu slettu að halda í viðtali eftir landsleik í síðastliðinni viku. Framtíðin er björt. Höfðinginn Tópas Tungutak Baldur Hafstað hafstad.baldur@gmail.com … en sóleyjagulur á baki. Ljósmynd/Colourbox A ð nýju koma hundruð manna nú saman hér á landi í lok þessarar viku undir merkjum Arctic Circle þar sem Ólafur Ragnar Gríms- son er enn í forystu eins og hann var sem forseti Íslands þegar hann beitti sér fyrir að ráð- stefnan var fyrst haldin árið 2013. Í fyrra varð að fresta fundunum hér vegna heims- faraldursins. Á setningarfundinum á fimmtudag mátti heyra að mörgum ræðumanninum væri létt að fá að tala til fólks á staðnum en ekki um netið. Ólafur Ragnar sagði við þéttsetinn sal Silfurbergs í Hörpu að þetta væri fyrsta fjölmenna alþjóðlega ráð- stefnan í Evrópu eftir heimsfaraldurinn. Nefndi hann margt annað sem væri sögulegt og fyrst tengt hring- borði norðursins að þessu sinni. Í mörgum fyrirlestra- heitum kemur orðið nýtt fyrir. Á setningarfundinum var kynnt ný norðurslóðastefna ESB, nýir stjórnend- ur norðurskautsmála í stjórnkerfi Bandaríkjanna létu ljós sitt skína í pallborðsumræðum undir stjórn Ólafs Ragnars. Grænlenskur ráðherra kynnti stefnu nýrrar stjórnar Grænlands. Í vikunni boðaði ríkis- stjórn Rússlands að norður- leiðin svonefnda, siglinga- leiðin milli Atlantshafs og Kyrrahafs, yrði opin til skipaferða allan ársins hring frá og með árinu 2022 eða 2023. Þá halda Rússar fast við þau áform sín að auka flutningamagn á norðurleiðinni í 80 milljónir tonna á ári en magnið var 33 milljónir tonna í fyrra. Áður en Rússar tóku við formennsku í Norður- skautsráðinu í maí 2021 var vakin athygli á yfirlýs- ingum þeirra á heimavelli um að styrkja yrði rúss- neska herinn og flotann í norðri til að gæta gífurlegra rússneskra auðlinda þar og mannvirkjanna miklu sem hafa verið reist til að nýta þau. Gera yrði ráðstafanir til að tryggja yfirráðin og halda öðrum þjóðum í hæfi- legri fjarlægð. Norðurskautsráðið fjallar ekki um hernaðarleg mál- efni. Opinberlega fylgja öll ríki ráðsins lágspennu- stefnu þar í samskiptum sínum. Fyrir Rússa er erfitt að sameina markmiðin um stóraukna sjóflutninga eft- ir Norðurleiðinni og stórkarlalegar yfirlýsingar þeirra um hernaðarmátt sinn á þessum slóðum. Viðskipti og vopnaglamur fara ekki saman. Til að árétta siglingafrelsið hafa Bandaríkjamenn og Bretar sent herskip austur í Barentshaf. Franski flotinn sendi nýtt stuðningsskip sitt, Rhône, eftir Norðurleiðinni frá Tromsø í Noregi til Dutch Harbor í Alaska dagana 1. til 17. september 2019. Óljóst er hvort Frakkar höfðu samráð við Rússa áður en ferðin hófst. Rússar segja skipið hafa birst „fyrirvaralaust“. Því var siglt án ísbrjóts og leiðsagnar. Eftir för skips- ins hertu Rússar eftirlitsreglur sínar. Hvað sem hernaðarlegri hlið þróunarinnar á norðurslóðum líður telja fulltrúar Bandaríkjastjórnar að innan vébanda Norðurskautsráðsins sé einstakur vettvangur fyrir sig til samstarfs við Rússa um álita- mál sem snerta svæði og fleiri mál eins og sannaðist þegar utanríkisráðherrar landanna hittust á fundi í Hörpu í maí og lögðu grunn að fundi forsetanna Joes Bidens og Vladimirs Pútins í Genf um miðjan júní 2021. Virginijus Sinkevicius, sem fer með umhverfis-, út- hafs- og fiskveiðimál í framkvæmdastjórn ESB, kynnti nýja norðurslóðastefnu Evrópusambandsins. ESB-þingið ályktaði um efni hennar miðvikudaginn 6. október og lagði sérstaka áherslu á nauðsyn þess að norðurslóðaríkin og alþjóðasamfélagið í heild gætti áfram að því að friður og lágspenna ríktu í norðri samhliða raunhæfri samvinnu. ESB hefur sótt um áheyrnaraðild að Norðurskautsráðinu en ekki fengið. Sinkevičius gaf þó til kynna að afgreiðsla um- sóknarinnar væri komin á beinu brautina. Nicola Sturgeon, fyrsti ráðherra Skotlands, sagðist fyrst hafa sótt Arctic Circle árið 2016. Síðan hefðu norðurslóðarannsóknir margfaldast við skoska há- skóla og áhugi á að líta til norðurs stóraukist. Ólafur Ragnar metur mikils að Sturgeon taki þátt í fundunum. Að lokinni ræðu henn- ar lét hann bregða upp korti þar sem rauð lína var dregin frá Skotlandi um Ísland og Grænland að Maine-ríki á austurströnd Bandaríkjanna. Sagðist hann vilja kynna fyrir skoska ráðherranum það sem hann kallaði North Atlantic-Arctic Corridor. Það er hlið Norður-Atlanhafs inn í Norður-Íshaf sem tengdi saman um 600 milljónir manna. Áherslan er mikil á Grænland að þessu sinni á fundunum. Grænlendingar kynna þar meðal annars vinnu sína við nýja stjórnarskrá en gerð hennar er lið- ur í leið þeirra til sjálfstæðis. Eftir að Naaja Nathan- ielen, grænlenski húsnæðis-, mannvirkja-, jarðefna- og jafnréttismálaráðherrann, hafði lýst þeirri stefnu stjórnarinnar að banna olíu- og gasleit við Grænland, við lófatak margra í salnum, var hún spurð hvernig ætti að fjármagna grænlenskt þjóðfélag. Hún sagði ekki skynsamlegt að veðja á olíu og gas, námuvinnsla myndi skila Grænlendingum mun meiru í aðra hönd. Það er samhljómur í olíu- og gasstefnu Grænlend- inga og ESB. Sinkevicius hvetur til þess að norður- slóðaríki láti hafsbotninn geyma olíu og gas. Hann segir einnig að ESB ætli að opna sendiskrifstofu í Nuuk eins og Íslendingar og Bandaríkjamenn hafa gert. Grænlendingar ætla hins vegar að opna sendi- skrifstofu í Peking, þeir reka þegar Brusselskrifstofu. Hafréttarsáttmálinn gildir á Norður-Íshafi. Virði ríki hann leysa lögfræðingar úr ágreiningi þar. Póli- tíkin ræður hins vegar ferðinni á Grænlandi og verður flóknari með stórveldakeppni. Grænland í brennidepli Áherslan er mikil á Grænland að þessu sinni á fundunum. Græn- lendingar kynna þar meðal annars vinnu sína við nýja stjórnarskrá. Af innlendum vettvangi … Björn Bjarnason bjorn@bjorn.is Í erindi á ráðstefnu um löggæslu og afbrotavarnir á Akureyri 6. októ- ber 2021 hélt ég því fram, að löggjafinn ætti að einbeita sér að þeim brotum, sem sköðuðu aðra, svo sem ofbeldi og svikum, en láta þær athafnir manna af- skiptalausar, sem ekki ættu sér fórn- arlömb, þar á meðal innherjaviðskipti. Ég fór með dæmisögu frá heilögum Tómasi af Akvínas. Hungursneyð hafði verið á Rhodos, þegar kaup- maður frá Alexandríu kom þangað með skip drekkhlaðið korni. Hann veit, að fleiri kaupmenn eru á leiðinni, því að hann sá seglin á skipum þeirra bera við sjóndeildarhringinn. Á hann að segja eyjarskeggjum frá vitneskju sinni, þótt það leiði til þess, að hann geti ekki selt korn sitt háu verði? Heimspekingar fornaldar deildu um þetta. Díógenes frá Babílon kvað hann ekki þurfa að segja frá þessu, enda væri sitt hvað að blekkja kaupendur um gæði vöru og að veita þeim ekki upplýsingar um ýmis atriði, sem haft gætu áhrif á verð vörunnar. Antípater frá Tarsos andmælti þessu með þeim rökum, að kaupmaðurinn væri sam- borgari eyjarskeggja og mætti þess vegna ekki fénýta sér þessar upplýs- ingar. Rómverski mælskusnillingurinn Cíceró var sammála Antípater. Heil- agur Tómas taldi hins vegar eins og Díógenes, að kaupmaðurinn þyrfti ekki að segja viðskiptavinum sínum frá þeim væntanlegu keppinautum, sem hann sá á leiðinni. Það væri ef til vill rausnarlegt, en réttlætið krefðist þess ekki. Hér er kjarni málsins, að eyj- arskeggjar voru engin fórnarlömb. Fráleitt var að telja muninn á hinu háa verði, sem kaupmaðurinn gat selt korn á, og hinu lága verði, eftir að aðrir kaupmenn voru komnir, sér- stakt tjón eyjarskeggja. Kaupmað- urinn var að veita þjónustu, ekki skaða viðskiptavini sína. Auk þess var það aðeins tilgáta, að fleiri kaupmenn væru á leiðinni. Lífið er undirorpið óvissu. Þetta sjónarmið á líka við um innherjaviðskipti (þar sem ekki er beitt svikum eða blekkingum). Eng- inn skaðast á þeim. Rangt er að draga lágt verð á hlutabréfum, sem öllum stendur til boða á fimmtudegi, frá háu verði á sömu hlutabréfum á mánu- degi, og telja það tjón annarra hlut- hafa en þess eins, sem sá verðhækk- unina fyrir og keypti hlutabréf á fimmtudegi. Sama er að segja um fasteignaviðskipti. Ég sel þér eign á 90 milljónir, og þremur mánuðum seinna selur þú öðrum eignina á 100 milljónir. Tíu milljónirnar eru ekki tjón mitt. .Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Kaupmaðurinn frá Alexandríu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.