Morgunblaðið - 16.10.2021, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 16.10.2021, Blaðsíða 29
UMRÆÐAN 29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 2021 ÚRVAL ÚTILJÓSA www.rafkaup.is A rmeninn Tigran Vartan Petrosjan er merkilegt fyrirbrigði í skáksögunni. Hann varð heimsmeistari árið 1963 með því að vinna Mikhail Botvinnik 12½:9½ og hélt titlinum í sex ár. Hann hafði teflt 27 skákir í áskorendamótinu í Curacao 1962 án þess að tapa og á millisvæðamótinu í Stokkhólmi sama ár var hann einnig taplaus. Hann hafði tekið þátt í sjö ólympíumótum og aldrei tapað. Sumarið 1969 missti hann heims- meistaratitilinn til Boris Spasskí en varð efstur á sovéska meistara- mótinu um haustið ásamt Poluga- jevskí, taplaus, og vann svo einvígið um titilinn, 3½:1½. Petrosjan hafði ekki tapað skák í áskorendaeinvígjunum 1971 er hann mætti til leiks gegn Fischer; honum hafði dugað sigur og sex jafntefli í fyrsta einvígi við V-Þjóðverjann Robert Hübner, sem vegna slæmrar hljóðvistar á einvígisstað hætti keppni þegar þrjár skákir voru ótefldar. Síðan vann Petrosjan Viktor Kortsnoj og aftur dugði einn sigur og svo níu jafntefli. Eins og stundum vill verða með þá sem þróað hafa með sér næmt hættuskyn var Tigran alltaf svolítið hræddur við að tapa og engan mann óttaðist hann meira en Bobby Fisch- er. En fyrsta skákin hafði hrist upp í honum og hann sýndi á sér óvæntar hliðar í næstu viðureign: Áskorendakeppnin, Buenos Aires 1971; 2. skák: Tigran Petrosjan – Bobby Fischer Grünfelds-vörn 1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 d5 4. Bf4 Bg7 5. e3 c5 6. dxc5 Da5 7. Hc1 Re4 Lítt þróað afbrigði í þá daga en sást síðar í einvígi Karpovs og Kasp- arovs. 8. cxd5 Rxc3 9. Dd2 Dxa2 10. bxc3 Da5 11. Bc4 Rd7 12. Re2 Re5 13. Ba2 Bf5? Slakur leikur og helsta ástæðan fyrir hrakförunum. Það er eins og Fischer hafi ofmetið biskupaparið. 14. Bxe5! Einfalt og snjallt. Annar leikur sem „vélarnar“ telja jafnvel betri er 14. e4! 14. … Bxe5 15. Rd4 Dxc5 16. Rxf5 gxf5 17. 0-0 Da5 18. Dc2 f4 19. c4 fxe3 20. c5! „… láta velta á vorsins eld þinn vetrarsnjáða yfirbótafeld.“ Hending úr kvæðabálknum Rubaiyat eftir Persaskáldið Omar Khayyám flýgur manni í hug. Petrosjan brýtur af sér alla hlekki hugans og teflir frábæra skák. 20. … Dd2 21. Da4 Kf8 22. Hcd1 De2 23. d6! Dh5 24. f4 e2 25. fxe5 exd1(D) 26. Hxd1 Dxe5 27. Hf1! Petrosjan beinir skeytum sínum að f7-peðinu og þar með kóngsstöð- unni. Svartur er varnarlaus. 27. … f6 28. Db3 Kg7 29. Df7 Kh6 30. dxe7 f5 31. Hxf5 Dd4+ 32. Kh1 – og svartur gafst upp. Í næstu skák sótti Fischer í byrj- un fast að Petrosjan sem varðist öll- um atlögum og náði síðan betra tafli. Þá kom þessi staða upp: Áskorendakeppnin, Buenos Air- es 1971; 3. skák: Bobby Fischer – Tigran Petrosjan Svartur á með hægfæra þróun peðastöðunnar á drottningarvæng að geta teflt til vinnings. En skákin tók óvænta stefnu: 30. De2 De5 31. Dh5 Df6 32. De2 He5 33. Dd3 Hd5 Þegar hér var komið sögu kallaði Fischer á skákstjórann Lothar Schmid og krafðist jafnteflis á þeirri forsendu að eftir fyrirhug- aðan leik, 34. De2, væri sama stað- an komin upp þrisvar. Gremjulegt fyrir Petrosjan sem hefði átt að leika 33. … b5 og nudda taflið áfram lengi vel því að óvirk staða hvíts er erfið. Fjórða varð stutt jafntefli og í þeirri fimmtu átti Petrosjan góð færi í miðtaflinu en jafntefli varð niðurstaðan. Eftir fimm skákir af tólf var staðan því jöfn, 2½:2½. Sigurgangan stöðvuð – 50 ár frá einvígi Fisch- ers við Petrosjan – II Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Ljósmynd/Hallfríður Sigurðardóttir Fullt hús Hjörvar Steinn Grétarsson (t.v.) vann úrslitaskákina við Vigni Vatnar Stefánsson í lokaumferð haustmóts TR. Kærleiksríki Guð og frelsandi lífgjafi! Þú sem elskar, kannt að hlusta og finna til. Þú sem yfir okkur vakir og berð raunverulega umhyggju fyrir hverju barni þínu í öllum kringumstæðum. Þú sem lofaðir að yfirgefa okkur aldrei! Miskunna þú okkur nú í vanmætti okkar og máttleysi er við í einlægri bæn vonumst til að þú heyrir ákall okkar og skynjir von- brigði okkar og umkomuleysi. Í dag leyfi ég mér að minnast sér- staklega frammi fyrir þér allra þeirra allt of mörgu sem greinst hafa með krabbamein eða einhverja aðra óáran og þurfa því að heyja áður ófyrirséða baráttu við verki, erfiðar tilfinningar og vonbrigði. Og takast á við hvers konar meðferðir sem reyna á bæði hinn sjúkdómsgreinda sem og að- standendur og þau önnur sem standa hjá. Vertu nálægur öllu þessu fólki, aðstandendum þeirra og öðrum sem þau annast. Uppörvaðu þau og styrktu og veittu þeim von og bar- áttuþrek. Hjálpaðu þeim að takast á við verk- efnið, dagana og næturnar, vikurnar og mánuðina og vonandi árin sem fram undan eru. Gefðu að meðferð- irnar við meininu megi takast vel og aukaverkanir verða eins litlar og frekast er kostur, – og gef að þau ein- angrist ekki. Þú veist hver okkar vilji er, því biðjum við þig að gefa þessu fólki heilsu og krafta á ný og hjálpaðu fjölskyldum þeirra að tapa ekki von- inni og trúnni á lífið. Hjálpaðu þeim að fela sig þér á vald og leyf þeim að finna fyrir nærveru þinni og að þau séu leidd af þér í gegnum hið krefj- andi verkefni. Veittu þeim uppörvun og styrk, þrek, þrautseigju og þol- inmæði, bjartsýni og von þrátt fyrir jafnvel langvarandi álag, þreytu og svefnleysi. Hjálpaðu þeim að huga að sjálfum sér, gef að þau nái góðri hvíld, gleymi ekki að nærast eðlilega og lifa lífinu, þrátt fyrir allt. Svo þökkum við þér fyrir læknavísindin og öll nýju lyfin sem lofa góðu og eru í sumum til- fellum algjör bylting. Einnig þökkum við fyrir allt frábæra fagfólkið sem við höfum aðgang að, lækna, hjúkr- unarfræðinga og aðra. Blessaðu þau einnig öll og uppörvaðu. Við þökkum fyrir öll krafta- verkin og alla þá sigra sem náðst hafa, sem fer sem betur fer fjölgandi. Hjálpaðu okkur að koma auga á litlu sigrana og taka þeim sem blessun þinni jafnvel í hinu mesta mótlæti. Líkna, veit æðruleysi og frið Veit okkur öllum æðruleysi og leyfðu okkur að finna fyrir kærleiks- ríkri nærveru þinni. Þakka þér fyrir að fá að hvíla öruggur, þrátt fyrir allt, í þínum almáttugu, líknandi og græð- andi örmum sem ekkert fær mig/ okkur hrifið úr. Hvorki nú né síðar. Já og svo bara andvörpum við til þín, því að við vitum ekki um hvað við eig- um að biðja. Finnum ekki réttu orðin en treystum því að þú biðjir fyrir okk- ur og skynjir þrár okkar og þarfir og munir vel fyrir sjá. Gefðu okkur öll- um þinn frið í hjarta. Þann frið sem er æðri öllum skilningi. Þess bið ég/við, í nafni Jesú Krists, okkar upprisna frelsara og eilífa lífgjafa. Lof sé þér, kærleikans Guð, sem ert sigurveg- arinn í baráttunni við hvers konar óáran, sjálfan dauðann og allt hið illa. Dýrð sé þér sem gerir alla hluti nýja. Með kærleiks-, samstöðu- og frið- arkveðju. – Lifi lífið! Eftir Sigurbjörn Þorkelsson » Biðjum fyrir öllum þeim sem greinst hafa með krabbamein og þurfa því að heyja ófyrirséða baráttu. Sigurbjörn Þorkelsson Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins. Bæn fyrir krabba- meinsgreindum Jón Ólafsson fæddist 6. október 1869 í Sumarliðabæ í Holtum, Rang. Foreldrar hans voru hjónin Ólafur Þórðarson, f. 1829, d. 1898, bóndi þar, og Guðlaug Þórðardóttir, f. 1839, d. 1920, húsmóðir. Jón lauk stýrimannaprófi 1899 frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík. Hann var útróðrarmaður á Stokkseyri frá 16 ára aldri og sjómaður á fiskiskútum í Reykjavík. Hann var skip- stjóri á þilskipum 1899-1911 og var síðan framkvæmda- stjóri útgerðarfélagsins Alli- ance og fleiri félaga 1911-1930. Það ár var Jón skipaður bankastjóri Útvegsbankans og gegndi því starfi til æviloka. Jón sat í bæjarstjórn Reykjavíkur 1918-1934 og var alþingismaður fyrir Íhalds- flokkinn og síðan Sjálfstæðis- flokkinn frá 1927 til dánar- dags. Eiginkona Jóns var Þóra Halldórsdóttir, f. 1878, d. 1950, húsmóðir. Börn þeirra voru Ólafur Helgi, f. 1905, d. 1973, Unnur, f. 1907, d. 1971, Ásta Lára, f. 1912, d. 2001, Ágústa, f. 1914, d. 2000, og Ólafía Guðlaug, f. 1919, d. 1993. Dóttir Jóns er einnig Ragnheiður, f. 1932. Jón Ólafsson lést 3.8. 1937. Merkir Íslendingar Jón Ólafsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.