Morgunblaðið - 16.10.2021, Blaðsíða 30
30 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 2021
Glæsilegt lager- og
skrifstofuhúsnæði
til sölu eða leigu í Reykjavík
Vorum að fá heildareignina að Fossaleynir 19-23 í sölumeðferð
sem er samtals 5.476m2 lager- og skrifstofuhúsnæði, sem
stendur á tæplega 18.000 m2 lóð með um 7.000m2 ónýttum
byggingarrétt.
Um er að ræða tvær samtengdar byggingar semmynda eina
heild og eru annars vegar 1.873m2 og hins vegar 3.603m2, en
þær gætu verið til leigu sitt í hvoru lagi.
Heildar lager-, hleðslu og þjónustusvæði í húsunum báðum er
um 3.260m2með rými fyrir allt að 4.452 bretti m.v. 1,5m, en
lofthæð í lagerhúsunum er 10-12 m.
Alls eru 9 hleðslu- og innkeyrsludyr inn í lagerhúsin,
þar af 6 dokkur. Í húsinu eru um 350m2 kælir/frystir.
Góð skrifstofuaðstaða í bæði opnu rými og lokuðum
skrifstofummeð lyftu upp á 3. hæð. Lóðin er með malbikuðu
bílaplani.
Eignin getur verið til afhendingar fljótlega.
Áhugasamir hafið samband við Guðlaug í s. 896-0747.
Í nýafstöðnum kosn-
ingum til alþingis töp-
uðu allir stjórn-
málaflokkar fylgi, sem
höfðu „nýju stjórnar-
skrána“ á stefnuskrá
sinni.
Það bendir til þess að
kjósendur séu farnir að
gera sér ljóst hversu
mikill gallagripur þess-
ar stjórnarskrártillög-
ur eru. Þótt sumt sé til bóta í þessum
tillögum eru svo stórir gallar á sum-
um tillögum að allur framgangur
þeirra endurbóta sem samkomulag
gæti náðst um stöðvast og fæst ekki
ræddur. Stærsti gallinn að mínu áliti
er 34. gr. um náttúruauðlindir Ís-
lands, sem boðar að allar náttúru-
auðlindir Íslands verði ríkiseign og
að einstaklingum, landsmönnum,
kjósendum verði bannað að eiga
eignarrétt að þeim.
Þetta ákvæði um stórauknar ríkis-
eignir er í mótsögn við frelsi manna
og sjálfstæði. Risaskref aftur á bak í
frelsisbaráttu þeirra.
Í frönsku byltingunni 1789 voru
völd einvaldskonunga og forréttindi
aðals afnumin og völdin færð í hend-
ur einstaklinga þjóðfélagsins, sem
völdu stjórnendur ríkisins til ákveð-
ins tíma í senn, í kosningum. Lýð-
veldið var stofnað (republic).
Það þurfti að tryggja sjálfstæði,
frelsi, stöðu og vald þeirra ein-
staklinga sem kusu þingmenn og rík-
isvaldið. Í þeim tilgangi voru mann-
réttindi bundin í stjórnarskrá. Þessi
mannréttindi voru málfrelsi, funda-
frelsi, atvinnufrelsi, réttarríki, eign-
arréttur, sjálfstæðir
dómstólar o.fl. o.fl.
Þessi mannréttindi eru
æðri völdum ríkisvalds-
ins, meðfædd og óaft-
urkallanleg. Mannrétt-
indi hafa þróast alla tíð
síðan 1789, hægt og bít-
andi á löngum tíma.
Síðasta opinbera
þrælahaldið var afnum-
ið í Afríku 1981. Konur
fengu kosningarrétt
1915. Mannréttinda-
barátta kvenna stendur
enn.
Mannréttindin eru aðeins 232 ára
gömul en mannkynið hefur búið við
þrælahald og valdníðslu í ellefu þús-
und ár. Frelsið er viðkvæmt. Það
þarf að gæta þess vel. Ekkert er svo
gott að ekki sé hægt að klúðra því.
Á þeim 232 árum síðan menn öðl-
uðust mannréttindi hefur mannkynið
átt við ýmsa erfiðleika að glíma eins
og fátækt, atvinnuleysi, styrjaldir,
heimsku, kúgun og einveldi. Menn
hafa brugðist við þessu mótlæti á
ýmsan hátt, réttan eða rangan.
Stærstu mistök í þessum efnum voru
gerð á 20. öldinni, þegar mannrétt-
indi, sérstaklega eignarrétturinn,
voru afnumin af kommúnistum í
Rússlandi, Sovétríkjunum, undir
áhifum af kenningum Karls Marx,
svo og af fasistum og nasistum í stríði
og friði.
Kjarni byltingarinnar í Frakklandi
árið 1789 var sá að völdin í þjóðfélag-
inu voru færð til einstaklinga þjóð-
félagsins með stjórnarskrá og lýð-
veldi, en einveldi afnumið.
En fljótt eftir að nýir valdhafar
voru kosnir á lýðræðislegan hátt fóru
þessir nýkjörnu valdhafar að reyna
að ná auknum völdum til sín aftur og
skerða völd einstaklinga, kjósenda.
Helstu aðferðir þeirra til þess voru
að skilja eignir manna frá eigendum
sínum með eignasöfnun ríkisins, þess
ríkis sem hinum nýkosnu valdhöfum
var trúað fyrir. Grimmasta dæmið
um þetta voru Sovétríkin, þar sem
nýr aðall tók völdin.
Þótt tilraunin í Sovétríkjunum hafi
mistekist og þau hrunið, heldur til-
raun valdhafa til valdtöku áfram og
er þjóðnýtingarbrölt „nýju stjórnar-
skrárinnar“ gott dæmi þess.
Mér hefur orðið tíðrætt um hvers
vegna valdhöfum er svona uppsigað
við eignarréttinn. Eignarrétturinn er
mannréttindi. Eignarréttur er vald.
Öllum valdhöfum er illa við allt vald
nema þeirra eigið. Sá sem hefur vald
yfir eign getur notað hana, leigt
hana, fengið tekjur af henni, selt
hana eða gefið. Aðeins eigandinn hef-
ur þessi réttindi yfir eigin eign og
getur útilokað aðra frá því að nota
sömu eign á sama hátt. Sá sem ekki á
eign hefur ekki þessi völd. Eftir því
sem eignirnar eru meiri eru völdin
meiri. Sá sem skuldar er háður eign-
arvaldi annars manns, skuldareig-
anda.
Sá sem á eignir er öruggari, sjálf-
stæðari og frjálsari. Hann getur bor-
ið meiri ábyrgð og er óháðari öðrum.
Hann hefur meira úthald ef eitthvað
ber upp á, t.d. atvinnuleysi eða veik-
indi. Það er því best að sem flestir
eigi eignir. Ásættanleg eignadreifing
í landinu er forsenda lýðræðis. Það á
að vera hlutverk þjóðfélagsins að efla
eignasafn sérhvers landsmanns. Ef
allar eignir safnast á hið opinbera og
auðmenn verður lýðræðið ekki annað
en nafnið tómt.
Nú er svo komið að 80% af öllum
eignum þjóðfélagsins eru í opinberri
eigu en aðeins 20% í einkaeign.
Í kosningabaráttu síðustu alþing-
iskosninga gerði Samfylkingin til-
lögu um stóreignaskatt á 1% eig-
enda, Þeirra sem ættu 200 millj. kr.
og meira. Af því leiðir að 99% eig-
enda eiga minna og jafnvel minna en
ekki neitt. Á þessu sjá menn að mis-
skipting einkaeigna er mjög mikil.
Fyrir utan þessar einkaeignir eru
svo opinberar eignir 80% heildar-
eigna þjóðarinnar. Spurningin er:
Hvers vegna er hið opinbera að
sanka að sér öllum þessum eignum
þjóðfélagsins, þegar meirihluti þjóð-
arinnar er eignalítill?
Það er til þess að draga úr valdi
kjósenda og gera þá háðari hinu op-
inbera valdi. Nær væri að dreifa ein-
hverjum hluta af þessum opinberu
eignum til almennings í öfugu hlut-
falli við efnahag móttakenda, útrýma
fátækt og efla lýðveldið.
Um 60% af yfirborði landsins er
þjóðlendur, sem einstaklingar, kjós-
endur, mega ekki eignast neinn hluta
af. Meirihluti lóða í bæjum eru leigu-
lóðir, í eigu sveitarfélaga, þótt menn
þurfi að kaupa þær dýrum dómum á
uppboði í lóðaskorti. Hið opinbera
slær eign sinni á beinar eignir sem
það leigir út og verður þá leigusamn-
ingurinn óbein eign leigjandans, sem
verður skattlögð sem óbein eign fyrir
utan leigugjöldin. Þannig hefur hið
opinbera ráð kjósandans betur í
hendi sér.
Skv. tillögum stjórnarskrár-
nefndar er gengið enn lengra í þess-
ari opinberu eignaásælni. Allar nátt-
úruauðlindir eiga að verða ríkiseignir
utan eignarréttar einstaklinga: Vind-
orka, sólarorka, fiskimið, land, regn,
vatnsföll o.fl. o.fl.
Ekki á að telja allar náttúru-
auðlindir upp í stjórnarskrá en lagt
til að hægt sé að bæta auðlindum í
stjórnarskrána með almennum lög-
um. Þannig verði hægt að breyta
stjórnarskránni með almennum lög-
um.
Náttúruauðlindir Íslands, sem
ekki eru háðar eignarrétti, eru al-
menningar sem háðir eru fullveldi og
forræði ríkisvaldsins. Þær eru ekki
eignir ríkisins. Ríkisvaldið á að setja
reglur um aðgang og notkun á þess-
um auðlindum. Hagnað af notkun
auðlinda eða almenninga má síðan
skattleggja eins og hvern annan
hagnað af atvinnustarfsemi og jafn-
vel setja á auka stórgróðaskatt ef
mönnum blöskrar hagnaðurinn.
Óþarfi er að misnota stjórnar-
skrárbreytingar sem átyllu til að
þrengja að mannréttindum okkar og
koma þjóðskipulagi okkar meira í þá
átt, sem minnir á kommúnisma.
Ríkisvaldið sækir vald sitt til þjóð-
arinnar, einstaklinganna, sem hafa
kosningarétt. Valdið sem fylgir eign-
arréttinum á einnig að vera í höndum
þeirra sem kjósa valdhafana.
Hver á íslenskt lýðveldi,
kjósandinn eða alþingismennirnir?
Eftir Jóhann J.
Ólafsson » Óþarfi er að misnota
stjórnarskrárbreyt-
ingar sem átyllu til að
þrengja að mannrétt-
indum okkar og koma
þjóðskipulagi okkar
meira í þá átt, sem
minnir á kommúnisma.
Jóhann J. Ólafsson
Höfundur er stórkaupmaður.