Morgunblaðið - 16.10.2021, Síða 34

Morgunblaðið - 16.10.2021, Síða 34
34 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 2021 ✝ Bryndís Theo- dórsdóttir fæddist í Reykjavík 19. ágúst 1960. Hún varð bráðkvödd á heimili sínu þann 9. október 2021. For- eldrar hennar voru Theodór Þorkell Kristjánsson, f. 1930, d. 1979, og Sigrún Gunnars- dóttir, f. 1934, d. 2007. Systkini hennar eru Þröst- ur, f. 1963, maki Áslaug Árna- dóttir, f. 1965; Lilja, f. 1965, maki Birgir Guðmundsson, f. 1964; Hrönn, f. 1967, maki Davíð Örn Heiðberg, f. 1969; Freyja, f. 1968, maki Friðrik Gunnarsson, f. 1959, og Sveinn, f. 1974, maki Ellen María Þórólfsdóttir, f. 1978. Maður Bryndísar er Guðni E. Hallgrímsson, f. 1944 á Hálsi í Eyrarsveit. Þau hófu sambúð 1982 og giftu sig 2010. Börn Bryndísar og Guðna eru 1) Sig- rún Hlín, f. 14. september 1983, 2) Guðný Rut, f. 12. nóvember 1985, og 3) Þorkell Már, f. 21. mars 1987. Sonur hans er Steinar Flóki, f. 26. janúar 2019. Fyrir átti Guðni soninn Ey- þór, f. 29. júlí 1975. Bryndís ólst upp í Reykjavík en fór á vertíð í Grundar- fjörð 16 ára og flutti aldrei til baka. Hún stundaði ýmis störf en lengst af rak hún verslun þeirra Guðna, og eftir þau hættu rekstri vann hún í Grunnskóla Grundarfjarðar sem skólaliði. Hún var virk í sam- félaginu, var til að mynda í stjórn Rauða krossins og Kven- félaginu Gleym-mér-ei, auk þess sem hún stundaði golf og einnig blak lengi vel. Bryndís verður jarðsungin frá Grundarfjarðarkirkju í dag, 16. október 2021, kl. 13. Streymt verður frá athöfninni í Fjöl- brautaskóla Snæfellinga og á Youtube-síðu Grundarfjarð- arkirkju. Hlekk á streymi má finna á: https://www.mbl.is/andlat Mamma var góður gestgjafi og hafði gaman af því að fá fólk í heimsókn, þá sérstaklega ef hún gat boðið upp á eitthvað heima- bakað. Hún vildi láta gott af sér leiða, var virk í samfélaginu, góðgerðarstörfum og íþróttum. Síðustu árin var mamma mikill golfari, en þótti kúlurnar ekki alltaf fara þangað sem þeim bar. Hún gantaðist oft með það að sig langaði í fjarstýrðar kúlur sem hlýddu betur og við lærðum fljótlega að spyrja ekki hvernig gekk í golfinu, heldur hvernig var. Mamma gantaðist oft og sem unglingar þótti okkur það svaka- lega vandræðalegt. Í bíói saman á Jackie Chan-mynd hló mamma hæst af öllum, það heyrðist um allan salinn! Eftir unglingsárin fórum við nú að meta betur húm- orinn í mömmu og hlæjum núna að því þegar mömmu þótti ein dóttirin ekki koma nógu mikið í heimsókn eftir að hún fór í burtu í framhaldsskóla og kynnti sig fyrir henni með orðunum: „Góð- an dag, ég er mamma.“ Mamma beið lengi eftir barnabarni. Einhvern tímann hafði hún í gríni pantað eitt slíkt áður en hún yrði fimmtug. Sú ósk rættist ekki en barnabarnið lét loks kræla á sér stuttu áður en hún varð sextug og var ljósið í lífi ömmu sinnar. Henni þótti ekkert betra en að vera í ömmu- leik. Elsku mamma, mikið væri gott að geta faðmað þig einu sinni enn eða kvatt þig almenni- lega. Þú skilur eftir þig mikið tómarúm í lífi okkar og það er erfitt að ímynda sér framtíðina án þín. Hvíl í friði, elsku mamma og amma. Þín verður sárt saknað. Sigrún Hlín, Guðný Rut, Þorkell Már og Steinar Flóki. Systir Elsku stóra systir mín, blíðleg, hlý og góð. Hún er líka sæt og fín, viskufull og fróð. Hún margt kenndi mér, um lífið okkar langa. Systir góð, þessa löngu leið ég vil með þér ganga. Þú átt faðm fyrir mig, til að knúsa blítt. Ég á faðm fyrir þig, þar sem ávallt er hlýtt. Ég ann þér mjög, elsku stóra systir. Gæti samið um það 100 lög, ásamt öllu sem mig lystir! (Gíslunn) Minning þín mun lifa í hjörtum okkar, þín systkini. Þröstur Theodórsson Lilja Theodórsdóttir Hrönn Theodórsdóttir Freyja Theodórsdóttir Sveinn Theodórsson. Sú sorgarfregn barst okkur sl. laugardag að Bryndís mágkona væri látin, kona í blóma lífsins, 61 árs gömul. Við kveðjum Bryndísi mágkonu með tár í augum og trega í hjarta. Bryndís var góðum gáfum gædd, mikil félagsvera, hafði skoðanir á mönnum og málefnum og hress og hispurslaus í tali. Hún hafði fág- aðan smekk eins og heimili hennar bar vott um og dugleg til allra verka. Bryndís var höfðingi heim að sækja. Þótt gesti bæri fyrir- varalaust að garði voru ætíð ríku- legar veitingar í boði. Bryndís stundaði blak og golf af krafti. Þau Guðni voru mjög samrýnd og spiluðu golf saman eins oft og þau gátu. Þau voru nýkomin úr tveggja vikna golfferð þegar kallið kom. Þegar einhver fellur frá sem hefur verið samferða í gegn um líf- ið kemur jafnan margt upp í hug- ann. Þessar línur eru ekki skrif- aðar í þeim tilgangi að segja ævisögu Bryndísar heldur sem þakklæti fyrir samfylgdina. Það að eitt sinn skal hver deyja er næst- um því það eina sem við vitum með vissu. Allt er breytingum háð og enginn veit hvenær hinsta kallið kemur. Kallið sem allir verða að hlíta hvort sem þeim líkar betur eða verr. Það er erfitt að skilja hvers vegna sumir eru kallaðir svo fljótt frá ættingjum sínum og vinum. Bryndís mágkona okkar hefur nú lagt upp í sína hinstu ferð. Hennar verður sárt saknað en hún lifir þó áfram í hjarta okkar. Bryndís skil- ur eftir sig skarð, en eftir hjá fjöl- skyldunni lifa góðar minningar. Við þökkum góðum Guði fyrir að hafa gefið okkur þessa góðu konu og biðjum Guð að blessa minningu hennar. Bryndís var gæfumanneskja í einkalífi. Þau hjón voru einkar samhuga um velferð barna sinna og barnabarns. Missir þeirra er mikill en minningin um góða konu, móður og ömmu lifir. Hringrás lífsins er oft nefnd þegar einhver deyr. Við fæðumst og við deyjum. Það eitt er víst. Við vitum hins vegar ekki hvenær við þurfum að kveðja og stundum finnst manni það ótímabært. Öll viljum við óraskaða tilveru þar sem allir ástvinir eru á sínum stað. Eins eðlileg og hringrás lífsins er þá er hún í senn miskunnarlaus og alveg gjörsamlega óútreiknanleg. Geislar dagsins dvína dómsins klukkur tifa. Ljós er skærast skína skemmstan tíma lifa. Tæmast tára lindir tilgang enginn skilur. Minningar og myndir moldin aldrei hylur. (Friðrik Steingrímsson) Við systkini Guðna og fjöl- skyldur sendum kærum bróður og fjölskyldu innilegar samúðar- kveðjur. Sigurður og Erla, Sveinn og Gerður, Ingibjörg og Kristinn, Halldóra, Hall- grímur og Guðríður. Elsku Bryndís frænka. Ég mun ávallt sakna þín. Ég trúi því ekki að þú sért farin. Það var alltaf svo gaman að koma til þín til Grundarfjarðar á góðri stund og þetta var alltaf besti hlut- inn af sumrinu. Í sumar var ég hjá þér í heila viku. Þú kenndir mér að spila golf, við tíndum rabarbara og bökuðum, ég kynntist nokkrum vinum í gegnum þig og þú sagðir mér ým- islegt um Grundarfjörð og sveitina í kring. Ég get ekki ímyndað mér að fara til Grundarfjarðar og þú verð- ur ekki þar til að taka á móti mér með stóru knúsi. Minningarnar um þig munu ávallt lifa í hjarta mínu. þín frænka, Christa Hrönn. Elsku Bryndís frænka. Þá er víst komið að kveðju- stund. Núna ertu hjá ömmu og afa. Ég er örugg um að þið skemmtið ykkur saman og ég mun hugsa mikið til ykkar. Það var alltaf svo gaman að koma til Grundarfjarðar og kíkja í heimsókn til þín. Ég á svo margar góðar minningar þegar ég kom til Grundarfjarðar þegar ég var yngri. Þegar ég hélt að húsið þitt væri Grundarfjörður og ég hljóp í kringum það og sagði að ég væri búin að hlaupa í kringum Grund- arfjörð. Ég man líka þegar við komum öll fjölskyldan á hverju sumri og gistum í garðinum þín- um til þess að vera með „á góðri stund í Grundarfirði“. Við skreyttum saman húsið þitt og allt í kring grænt á litinn. Síðan sendir þú okkur frændsystkinin út í búðina með aura til að kaupa eitthvað sem vantaði fyrir bakst- urinn. Við frændsystkinin spiluð- um oft fótbolta í garðinum þínum og þegar við vorum orðin þreytt þá beið oft eitthvað nýbakað og gott sem þú hafðir bakað. Við Christa komum í sumar til Grundarfjarðar til þín og áttum góða stund með þér. Aldrei hefði mér dottið í hug að þetta væri í seinasta skipti sem ég myndi sjá þig. Ég hef lært margt af þér. Þú lést mig og Christu hjálpa til við að elda matinn og ganga frá eftir okk- ur. Þú meira að segja bannaðir okkur að drekka eitthvað annað en vatn með kvöldmatnum. Þú pass- aðir alveg upp á að við tækjum þátt í heimilisstörfunum og þótt við fengjum gistingu, þá værum við ekki á hóteli. Við spiluðum saman spurningaspil og þú vissir mikið meira en við. Það var svo gaman að sjá hversu ánægð þú varst með sjálfa þig að vita svona mikið. Þetta eru skemmtilegar minningar og ég er svo glöð að hafa komið til Grundarfjarðar í sumar og notið þess að vera með þér í síðasta skipti. Ég ætlaði mér alltaf að koma og vera hjá þér yfir heilt sumar og vinna í Grundarfirði. Kannski einn daginn mun ég vinna heilt sumar í Grundarfirði og þá mun ég hugsa mikið til þín. Það var alltaf hægt að leita til þín. Þú varst svo hjartahlý og ást- kær og varst alltaf til staðar þegar maður þarfnaðist einhvers til að tala við. Nú munu allar þessar minningar lifa í hjarta mínu og Grundarfjörður verður alltaf stað- urinn þar sem Bryndís frænka átti heima. Allt þetta mun vera innra með mér það sem eftir er og mun ég seint gleyma þér og þessum minningum. Þín frænka, Hjördís Silja. Elsku Bryndís mín, það er þyngra en tárum taki að kveðja þig svona snögglega og langt um aldur fram. Við kynntumst er ég flutti til Grundarfjarðar 1994 og eftir því sem árin liðu bundumst við dýpri vináttu og traustari böndum. Fyrst fórst þú að bjóða mér í gönguferðir um fagra náttúru Grundarfjarðar og minntir mig á staðhætti, út nesið, inn nesið og fram framnesið. Eftir það fór ég aldrei aftur út í Stykkishólm held- ur inn í Hólminn. Gegnum þig og fjölskyldu þína eignuðum ég og börnin mín að lokum yndislega fjölskyldu á Grundó. Fjölskyldu sem bauð okkur til sín um jól og áramót ásamt því að hafa uppbúin rúm að bjóða okkur, þegar leið okkar lá til Grundó, eftir að við fluttum aftur suður. Það var svo gott að vera nálægt þér. Þú hafðir svo hlýja nærveru, varst með einstaklega bjart bros og hláturmild. Þér var umhugað um náungann og alltaf tilbúin að rétta öðrum hjálparhönd. Einn af þínum yndislegri eiginleikum var að þú talaðir aldrei illa um nokkurn mann. Maður kom aldrei að tómum kofunum hjá þér, Bryndís. Ég minnist þeirra mörgu stunda sem ég sat við eldhúsborðið þitt og við spjölluðum saman um heima og geima. Það var gaman að fylgjast með þér í eldhúsinu þar sem þú, eins og með undraverðum töfrum, hentir í köku eða fannst nýja áhugaverða uppskrift að kvöldmat. Hjá þér lærði ég að búa til jólaísinn og hamborgarhrygginn sem enn er nauðsynlegur á jólahátíðinni okkar hér fyrir sunnan. Þakka þér fyrir alla þína gjaf- mildi og hlýju kæra vinkona. Þú lif- ir um ókomna tíð í fögru ljósi minn- inganna. Elsku Guðni, Sigrún, Guðný, Þorkell og Steinar Flóki, megi kærleikurinn umvefja ykkur á þessari sorgarstundu. Ásta Ólafs og fjölskylda. „Það er bannað að renna sér nema á laugardögum.“ Þetta voru skilaboð Bryndísar til nemenda og eru þeim minnisstæð. Við fundum aðeins fyrir þessari reglu Bryndísar þegar Grunnskóli Grundarfjarðar var með skóla á laugardegi 1. desember 2018 í til- efni 100 ára fullveldisafmælis Ís- lands. Þennan dag fengu nemend- ur að renna sér á handriðinu niður stigann í boði Bryndísar og gleymist það seint. Bryndís var öllum hnútum kunnug í starfi skólans enda með 17 ára starfsreynslu. Bryndís hafði ætíð gott lag á krökkunum og kaus að nota ekki mikið boð og bönn heldur reyndi sem mest að komast að samkomulagi við þá. Það kunnu krakkarnir að meta. Bryndís kunni að segja sögur og okkur samstarfsfólki hennar þótti skemmtilegasta sagan um það þegar hjónin fóru í brúð- kaupsferð, reyndar ekki á sama staðinn heldur sitt í hvora áttina. Bryndís átti í fórum sínum marg- ar sögur í þessum dúr og höfðum við gaman af. Bryndís var ekki mikið frá vinnu en þegar það gerðist þá fylgdi því greinargóð ástæða. Oft- ar en ekki var svo hætt við þegar að fríinu kom. Við starfsfólk Grunnskóla Grundarfjarðar vottum fjöl- skyldu Bryndísar okkar innileg- ustu samúð. Við munum sakna góðrar samstarfskonu en missir fjölskyldunnar er mestur. Fyrir hönd starfsfólks Grunn- skóla Grundarfjarðar, Sigurður Gísli Guðjónsson skólastjóri. Bryndís Theodórsdóttir HJARTAVERND Minningarkort 535 1800 www.hjarta.is Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744 Stapahrauni 5, Hafnarfirði Sími: 565 9775 www.uth.is - uth@uth.is Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Kristín 699 0512 Ástkær eiginkona mín, yndisleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, LILLY ALVILDA SAMÚELSDÓTTIR, Brúnastekk 4, andaðist á Landspítalanum 10. október í faðmi fjölskyldunnar. Útförin fer fram frá Digraneskirkju miðvikudaginn 3. nóvember klukkan 13. Margeir Pétur Jóhannsson Jóhann Pétur Margeirsson Kristrún Helgadóttir María Aletta Margeirsdóttir Halldór Már Reynisson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HALLGRÍMUR HALLGRÍMSSON, áður til heimilis að Torfufelli ll, lést miðvikudaginn 13. október á Droplaugarstöðum. Útförin fer fram í kyrrþey. Hildur Rós Hallgrímsdóttir Jason Brady Heba Björg Hallgrímsdóttir Birta Hildardóttir Styrkár Hallsson Salka Björt, Sóllilja og aðrir aðstandendur Elskulegur tengdafaðir, afi og langafi, BENEDIKT ANTONSSON, áður til heimilis í Bakkagerði 19, lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni fimmtudaginn 14. október. Jarðarför auglýst síðar. Eva María Gunnarsdóttir Davíð Benedikt Gíslason Brynhildur Þorgeirsdóttir María Gísladóttir Einar Kristinn Hjaltested Eva Björk, Hrefna María, Þorgeir Bjarki, Anna Lára, Hrafnhildur, Karólína, Benedikt Arnar, Katrín Eva og Ari Gísli Elskulegur bróðir okkar og faðir, JÓN BJÖRN FRIÐRIKSSON frá Ísafirði, málarameistari í Reykjavík, lést á Landspítalanum miðvikudaginn 13. september og hefur útförin farið fram í kyrrþey. Við þökkum starfsfólki á gjörgæsludeild og A7 yndislega umönnun, og vinum hans fallega vináttu. Bjarndís, Steinþór, Helgi Mar, Nína M. Jónsdóttir og fjölskyldur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.