Morgunblaðið - 16.10.2021, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 16.10.2021, Qupperneq 36
36 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 2021 Fallega frænka mín með ítalska út- litið, lífskúnsterinn, með brosið bjarta og augun djúpu. Ég man auðvit- að ekki eftir mér öðruvísi en með þig í mínu lífi, ein af móðursystr- unum mínum sem alltaf hafa ver- ið, Kiddý, Erla og Sigga, yngri systur mömmu, svo nánar, svo dásamlegar. Ég var auðvitað í hlutverki systurdóttur en með árunum hefur bilið á milli okkar styst í árum og sambandið styrkst. Þú varst engri lík, svo traust og trygg, elskaðir fjöl- skylduna meira en allt, svo ynd- islega umhyggju- og afskipta- söm, hreinskiptin, klár og heimsdama fram í fingurgóma. Það var hægt að lesa árstíðirnar eftir því hvað þú varst að stússa hverju sinni. Á vorin voru settar niður kartöflur og sitthvað fleira, síðsumars berjamó, sultað og saftað, síðan kom slátrið og haustið, smákökur, konfekt og jólin og janúar skall á með heilsufæði og hreyfingu sem aldrei fyrr. Það vafðist aldrei neitt fyrir þér einhvern veginn, hlutirnir voru gerðir og græjað- ir. Þú varst svo langt á undan í svo mörgu, heilbrigðum lífsstíl og hreyfingu, skíðin, gönguferðir og golfið, allt gert með glans. Ég hef verið svo hamingjusöm að til- heyra þessum „ítalska“ hluta móðurfjölskyldunnar, hentar mér svo dásamlega vel, þar sem allir tala hátt og í einu, mikið hlegið, allt smart og lekkert, góð- ur matur, dreitill í glasi og kær- leikurinn alltumlykjandi. Það er erfitt til þess að hugsa að þú verðir ekki í broddi fylkingar í næsta boði, drottning okkar, hlæjandi þínum dillandi hlátri, glæsilegt og geislandi og flottust. Þú mátt treysta því að við mun- um lyfta glösum í þínum anda, knúsast og hafa gaman. Elsku besta Kiddý mín, takk fyrir ást- ina, umhyggjuna og gleðina sem þú gafst okkur svo óendalega óeigingjarnt og mikið. Far þú í Kristín Þorsteinsdóttir ✝ Kristín Þor- steinsdóttir fæddist 18. júlí 1943. Hún lést 7. október 2021. Útför Kristínar fór fram 15. októ- ber 2021. friði, guð þig geymi. Þín frænka Ella Sigga. Elín Sigríður Óladóttir Allt á sinn tíma og þótt löngun okkar standi til að toga endann lengra ráð- um við þar litlu um. Þrátt fyrir að að- dragandi hafi verið nokkur að andláti Kiddýjar kallaði loka- fregnin fram djúpan harm, en einnig sterka minningu af okkar fyrstu kynnum fyrir 43 árum. Á sólarströnd sátum við tveir félagar saman uppi í íbúð, – eig- inkonurnar höfðu eitthvað brugð- ið sér af bæ. Verið var að und- irbúa kvöldið sem átti að vera sameiginlegt með öllum hópnum og ég að baksa við að strauja af mér skyrtu fyrir kvöldið. Knúið var dyra og inn kemur ókunn, lág- vaxin, dökkhærð og bráðfalleg kona á besta aldri. Erindi hennar hafði verið að forvitnast um hvað til stæði hjá ferðafélögunum varð- andi kvöldið, en varla var kveðj- um lokið þegar yfir dundu spurn- ingar um hvers vegna ég straujaði skyrtuna svona en ekki hinsegin og í framhaldinu fylgdu leiðbein- ingar um hvernig betra væri að haga slíku verki. Svona var Kiddý, spurul, hrein og bein og kom alltaf til dyranna eins og hún var klædd. Á lengri flugleiðum náði hún iðulega að kynnast öllu samferðafólkinu áð- ur en lent var. Hún var opin og yndisleg manneskja sem alltaf glæddi umhverfi sitt lífi og gleði. Og þótt fyrrnefnd sólarlandaferð okkar til Lignano á Ítalíu árið 1978 hafi sennilega verið ein sú lé- legasta sem farin hefur verið, hvað aðbúnað og þjónustu snerti, skildi hún eftir samfélag sjö hjóna, – félagsskap sem verulega hefur mótað lífshlaup okkar allra og barna okkar. Það er áreiðan- lega ekki algengt að hópur fólks sem kynnist um miðja lífsgöng- una verði svo náinn að eins og um sjálfa fjölskylduna sé að ræða, en þannig varð þetta hjá okkur. Þar átti Kiddý sinn stóra þátt með sínu kærleiksríka hjarta og sterka vilja til samfunda. Það er víst að frumkvæðis hennar og dugnaðar verður sárt saknað. Kiddý var víðsýn og áhugasvið hennar lágu víða. Hvergi var gefið eftir, hvort sem það var kartöflu- ræktunin, leikfimihópurinn, kven- félagið, víðfeðmur vinahópurinn eða golfið. Hún var aldrei hálf í neinu. Hin síðari ár átti golfið stóran þátt í lífi hennar og Þórðar. Þau spiluðu mikið, bæði hér heima og í golfferðum erlendis. Þótt það sé ekki mitt að bera kveðju Golfklúbbsins Odds veit ég að þaðan fylgja henni hlýjar og góðar kveðjur frá félögum í klúbbnum, en þar var hún mjög virkur félagi. Fram undan er erfiður tími hjá fjölskyldu hennar og við Þóra sendum Þórði, börnum og barna- börnum ástríkar kveðjur og minnum á að sorg og söknuður tengist aðeins því góða sem lífið hefur fært okkur. Minning Krist- ínar Þorsteinsdóttur mun ávallt fylgja okkur sem urðum þess að- njótandi að fá að kynnast mann- kostum hennar og hreinlyndi. Ingjaldur Ásvaldsson. Við kveðjum þig með sára sorg í hjarta söknuðurinn laugar tári kinn. Dregur ský á dagsins ásýnd bjarta dökkur skuggi fyllir huga minn. Í miðjum leik var komið til þín kallið klippt á strenginn þinn. Eitt af vorsins fögrum blómum fallið. (HA) Með sorg í hjarta kveðjum við í dag elskulega vinkonu, Kristínu Þorsteinsdóttur. Það er bjart yfir öllum minningum mínum um Kiddý. Við hittumst fyrst í Meló, þá sjö ára gamlar. Þar var Kiddý mætt glöð og kát til leiks, áber- andi falleg, svo dökk á brún og brá. Fyrir fjórum vikum fórum við saumaklúbbssystur saman í Borgarleikhúsið og nutum sýn- ingarinnar og samverunnar. Kiddý mætti með sinn dillandi smitandi hlátur og glæsileg að vanda. Hún var mikið veik og því var styrkur hennar aðdáunar- verður. Hún var staðráðin í að taka þátt og lifa lífinu til síðustu stundar. Hvað ég er þakklát fyrir að hafa átt þessa dýrmætu stund með henni fyrir fjórum vikum. Árin hafa spunnið ósýnilega þræði samheldni og vináttu hjá okkur í saumaklúbbnum. Við höfum tekið þátt í sorg jafnt sem gleði hver annarrar. Í fimm ára- tugi hittist saumaklúbburinn reglulega og þá var mikið talað, mikið borðað en lítið saumað. Skipst var á mataruppskriftum, m.a. rætt um börnin okkar, barn- eignir, andvökunætur, tanntök- ur, eyrnabólgur og bleyjuþvott. Árin liðu og umræðuefnið breyttist í frásagnir af barna- börnunum. Samstilltur hópurinn fór einnig í ógleymanlegar sum- arbústaða- og utanlandsferðir. Við hátíðleg tækifæri voru vísur kveðnar, ræður haldnar, mikið skálað, mikið hlegið og sungið við undirleik Systu. Saumaklúbbsv- inkonurnar mjög ánægðar með sig! Söngbók saumaklúbbsins í heiðri höfð. Við nutum augna- bliksins og lifðum okkur inn í söngtextana, „Fram í heiðanna ró“, „Hin gömlu kynni gleymast ei/ enn glóir vín á skál“ og „Hvað er svo glatt sem góðra vina fund- ur“. Okkar lífsglaða, fallega og frá- bæra Kiddý var vinsæl og vin- mörg. Heilsteyptur og tryggur vinur er fallinn frá. Hennar verð- ur sárt saknað. Kæri Buggi og ástvinir allir, samúðarkveðjur frá sauma- klúbbnum, Guðrún Sverrisdóttir. Hinn 7. október sl. lést á Land- spítalanum Kristín Þorsteinsdótt- ir, Kiddý eins og hún var alltaf kölluð. Hún kvaddi eftir stutta en stranga baráttu við illkynja krabbamein. Þar misstum við einn af okkar bestu vinum. Kiddý var alveg einstök kona, alltaf brosandi, glöð og ljúf og vildi allt fyrir alla gera. Það var henni eðl- islægt að halda sem best utan um okkur vini sína ásamt sínum elskulega eiginmanni Þórði Jóns- syni. Eða þá dugnaðurinn í henni alla tíð, til dæmis matarboðin hennar og Þórðar, alltaf stór- glæsileg og endalaust verið með boð fyrir einhverja vini sína og þeir voru margir, og það einnig eftir að hún var orðin veik. Svo skal því haldið til haga að Kiddý var stórglæsileg kona, virtist miklu yngri en aldurinn sagði til um. Alltaf líka vel til höfð og flott. Við kynntumst þessum yndislegu hjónum 1978 er við fórum í frí til Lignano á Ítalíu. Úr þeim hópi vorum við sjö hjón, að okkur Hönnu meðtöldum, og 13 börn sem við í hópnum áttum. Náðum við svo vel saman þarna á Ítalíu að enn haldast vinaböndin 43 árum síðar. Höfum við hist a.m.k. 3-4 sinnum á ári. Nefndumst við „Ítalíupakkið“. Héldum við alltaf skötuveislur og þorrablót og fór- um í eina sumarferð á ári, oftast innanlands en einnig til útlanda. Kiddý var alla tíð áhugasömust og duglegust að halda hópnum sam- an. Þá heimsóttu þau Kiddý og Þórður okkur Hönnu í Skaga- fjörðinn þar sem við áttum sum- arbústað. Þar var farið í berjamó (mikið áhugamál Kiddýjar), í heita pottinn og grillað og keyrt um allar sveitir og notið samvista. Ógleymanlegt og allar stundir með þeim ánægjustundir. Munum við sakna Kiddýjar svo lengi sem við lifum. Að lokum set ég með þessum fáu minningarorðum ljóð sem mér fannst passa vel á þess- um sorgartímum: Þau ljós sem skærast lýsa, þau ljós sem skína glaðast þau bera mesta birtu en brenna líka hraðast og fyrr en okkur uggir fer um þau harður bylur er dauðans dómur fellur og dóm þann enginn skilur. En skinið loga skæra sem skamma stund oss gladdi það kveikti ást og yndi með öllum sem það kvaddi. Þótt burt úr heimi hörðum nú hverfi ljósið bjarta þá situr eftir ylur í okkar mædda hjarta. (Friðrik Guðni Þórleifsson) Við vottum svo Þórði vini okk- ar, börnum, tengdabörnum og barnabörnum innilega samúð. Ingólfur Dan Gísla- son, Jóhanna Jóns- dóttir og fjölskylda. Nokkur kveðjuorð. Fréttin um andlát Kristínar Þorsteinsdóttur, Kiddýjar, kom að nokkru aftan að okkur, við er- um hópur vaskra meyja sem stunda líkamsrækt grimmt í Hress. Reyndar vissum við að hún glímdi við illræmt krabba- mein en að það tæki það svona stuttan tíma að ráða niðurlögum hennar kom okkur á óvart. Það sló líka ryki í augu okkar að hún tók sjúkdómnum með svo mikilli, að því að virtist, ró og yfirvegun að við hinar tókum þessu líka frekar létt og kusum að trúa á kraftaverkin og biðum eftir að allt kæmist í lag því hún bar með sér svo mikinn lífsþrótt. Það fór ekki fram hjá neinum þegar Kiddý var mætt á staðinn, alltaf hress og brosandi eða hlæjandi, það sópaði að henni. Ýmist spurði hún frétta eða sagði frétt- ir, aldrei nein lognmolla eða þegjandaháttur þar sem hún var. Hún kunni líka að lifa lífinu, ef hún var ekki að æfa í Hress var hún í golfi ýmist hérlendis eða erlendis, eða að njóta annarra lystisemda sem lífið hefur upp á að bjóða með sínum góða lífs- förunaut. Þessi lífskunnátta var smitandi og nutum við hinar góðs af að hafa hana á meðal okkar og munum við lengi sakna hennar. Með þessum orðum sendir æf- ingahópurinn í Hress innilegar samúðarkveðjur til fjölskyldu og vina Kiddýjar. Guðný Jónsdóttir. Minningarvefur á mbl.is Vefur þar sem er sameinað efni sem snýr að andlátum og útförum. Þar eru birtar andláts-, útfarar- og þakkartilkynningar sem eru að- gengilegar öllum en auk þess geta áskrifendur lesið minningargreinar á vefnum. " 3,0'*2 ,5 (1 .''( *!!4&)#'/(5 *2 þjónustuaðila sem aðstoða þegar andlát ber (1 +-'%*2 $/ (15(5 /(/'4,/(5 *!!4&)#'/(5 ætlaðar aðstandendum við fráfall ástvina. www.mbl.is/andlát Minningar og andlát Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐNI SVAN SIGURÐSSON, Klapparstíg 13, Hauganesi, lést mánudaginn 11. október á sjúkrahúsinu á Akureyri. Útförin fer fram frá Stærra-Árskógskirkju föstudaginn 22. október klukkan 14. Regína Halldórsdóttir S. Kolbrún Guðnadóttir Jónína K. Guðnadóttir Jón Hermannsson Hrefna B. Guðnadóttir Guðrún Unnur Guðnadóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær systir okkar, mágkona og frænka, ÞÓRA GUÐNADÓTTIR, áður til heimilis í Sólheimum 25, lést á hjúkrunarheimilinu Grund þriðjudaginn 5. október. Bálför hennar fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 19. október klukkan 15. Streymt verður frá athöfninni á slóðinni https://youtu.be/HVsIvfnekNY Þeim sem vilja minnast Þóru er bent á minningarsjóð Samtakanna '78, sjá https://samtokin78.is/styrkja/ Gerður Guðnadóttir Bjarni Guðnason Jónína M. Guðnadóttir Sveinn Snæland og frændsystkin Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, RAGNHEIÐUR ELÍN JÓNSDÓTTIR, Hjúkrunarheimilinu Sóltúni 2, lést laugardaginn 2. október. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Eva Bryndís, Þórunn Elísabet, Eyrún Jóna, Aðalheiður, Anna, Erla, Brynjar Ragnar, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginkona mín, mamma, amma og langamma, UNNUR RAGNARSDÓTTIR, Einivöllum 7, lést á heimili sínu miðvikudaginn 6. október. Útför mun fara fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Ragnar Jóhannesson og nánustu aðstandendur Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ELÍN JÓHANNA ÁGÚSTSDÓTTIR, Ellý frá Aðalbóli, Vestmannaeyjum, andaðist á Hrafnistu miðvikudaginn 13. október. Jarðarförin verður auglýst síðar. Bjarni Sighvatsson Auróra Friðriksdóttir Viktor Sighvatsson Jóna Margrét Jónsdóttir Ásgeir Sighvatsson Hilda Torres Elín Sighvatsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Okkar ástkæra ÞÓRDÍS BERGSDÓTTIR frá Ketilsstöðum, Öldugötu 11, Seyðisfirði, fv. heilbrigðisfulltrúi og framkvæmdastjóri Ullarvinnslu Frú Láru, lést 8. október. Útförin fer fram frá Seyðisfjarðarkirkju föstudaginn 22. október klukkan 14. Kransar afþakkaðir, en þeim sem vildu minnast hennar er bent á Hollvinasamtök Sjúkrahúss Seyðisfjarðar. Bergur Tómasson Ásdís Benediktsdóttir Sigurður Tómasson Hildur Tómasdóttir Valdimar Jörgensen Þórdís Tómasdóttir Emil Tómasson María Michaelsdóttir Tómas Tómasson barnabörn, barnabarnabörn, barnabarnabarnabörn, makar og aðrir aðstandendur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.