Morgunblaðið - 16.10.2021, Blaðsíða 37
✝
Hörður Run-
ólfsson fæddist
í Bræðratungu í
Vestmannaeyjum
hinn 4. október
1935. Hann lést á
heimili sínu, Hraun-
búðum í Vest-
mannaeyjum, 3.
október 2021. For-
eldrar hans voru
hjónin Unnur Þor-
steinsdóttir, f.
19.10. 1904, d. 16.3. 1947, og
Runólfur Runólfsson, f. 12.12.
1899, d. 4.6. 1983. Systkini Harð-
ar eru Jón (1924-2019), Sigrún
(1930), Þorsteinn (1932), Ragnar
(1933), Ástþór (1936-2020) og
Runólfur (1938).
Hörður kvæntist 12.12. 1955
Kristínu Elísu Baldvinsdóttur, f.
19.8. 1936, d. 19.7. 2003, en hún
var dóttir hjónanna Þórunnar
Elíasdóttur og Baldvins Skær-
ingssonar.
Börn Harðar og Kristínar El-
ísu eru: 1) Baldvin Þór, f. 28.3.
f. 19.8. 1965, sambýliskona Mar-
zena Jankowska. Börn hans og
fyrrverandi eiginkonu, Sig-
urlínu Guðjónsdóttur, eru a)
Guðjón Smári, b) Aron Kristinn,
c) Bjartey Ósk. Dóttir Sigurlínu
og fósturdóttir Smára er Sigríð-
ur Margrét Sævarsdóttir, eig-
inmaður Óðinn Benónýsson,
þeirra börn eru Jóhanna Vigdís
og Aron Benóný.
Vinkona Harðar síðustu 14 ár-
in er Margrét Rögnvaldsdóttir
frá Akureyri.
Hörður var lærður vélvirki og
vann við það fag nær allan sinn
starfsaldur. Lengst af vann hann
hjá Fiskiðjunni hf., en síðustu ár-
in hjá Nethamri ehf. Hann hafði
góða bassarödd og söng með
Kirkjukór Landakirkju í mörg
ár. Þá söng hann einnig með
Samkór Vestmannaeyja. Hörður
var mikill knattspyrnuunnandi,
stuðning hans áttu ætíð ÍBV,
Derby County og landsliðið.
Hörður gekk ungur Oddfellow-
stúkuna Herjólf og var virkur
þar nær alveg til dauðadags.
Útför Harðar fer fram frá
Landakirkju í Vestmannaeyjum
í dag, 16. október 2021, kl. 14.
1954, eiginkona
Magdalene Ly-
berth. Börn hans
með fyrrverandi
eiginkonu, Höllu
Jónsdóttur, eru a)
Kristín, f. 1973, eig-
inmaður Rókur
Tummasarson,
börn þeirra eru
Halla, Páll og Ast-
rid. b) Jón Þór, f.
1977, sambýliskona
Jacoba Torgunn Winther, börn
þeirra eru Ása og Karolina
Halla. c) Linda Sif, f. 1987, sam-
býlismaður Heri Rein, synir
þeirra eru Óðin Tór, Jónas Tór
og Kristin Tór. 2) Sólrún Unnur,
f. 1.10. 1961. börn hennar eru
Hörður, f. 1980, sambýliskona
Guðný Björk Atladóttir, börn
þeirra eru Daði og Lára. b)
Hrefna Dís, f. 1986, sambýlis-
maður Ásgeir Orri Einarsson,
sonur þeirra er Gabríel Þór. c)
Birkir, f. 1992, sonur hans er
Sverrir Hrafn. 3) Smári Kristinn,
Fallinn er frá mágur okkar,
Hörður Runólfsson. Hann kom
ungur inn í líf fjölskyldunnar og við
áttum samleið með honum í meira
en hálfa öld því Hörður kvæntist
elstu systur okkar, Stínu. Unga
parið hóf fljótlega sambúð, fyrst í
Steinholti í gamla miðbænum á
Heimaey, æskuheimili og fæðing-
arstað flestra okkar systkina, síðar
í Laufási austur á eyju hjá móð-
urforeldrum Harðar. Fyrr en varði
var Hörður búinn að finna framtíð-
arstað fyrir fjölskyldu sína ofarlega
í bænum og reisti þar hús við
Bröttugötu 14. Ungu hjónin fluttu
inn í hluta hússins fyrst í stað og
áttu sitt blómaskeið þar allt fram á
nýja öld, þegar húsfreyjan, systir
okkar, féll frá. Þrjú börn höfðu þá
átt æsku sína og manndómsár á
Bröttugötunni undir verndarvæng
foreldra sinna. Nokkru eftir andlát
Stínu flutti Hörður í nýlega íbúð í
miðbæ kaupstaðarins en seinustu
árin naut hann umönnunar á öldr-
unarheimili bæjarins eftir heila-
blóðfall.
Hörður mágur féll vel inn í fjöl-
skylduna í Steinholti og síðar á Ill-
ugagötu 7. Hann var einstaklega
rólyndur og jafnlyndur og skapaði
þannig ágætt mótvægi við fremur
málglaðan systkinahóp, þar sem
stundum var barátta um orðið.
Sjaldan sáum við hann skipta
skapi, hann var orðvar og lét sér
jafnan líka ríka tjáningarþörf syst-
ur okkar sem oft lét gamminn geisa
og botnaði ósjaldan setningar eig-
inmannsins til þess að flýta fyrir
samræðum og gera þær efnismeiri.
Þannig bættu þau hvort annað upp
og stóðu saman í orðræðunni en
einnig í gjörðum, því þau voru sam-
hent og fylgdust að í lífsins glímu.
Móðir okkar hafði miklar mætur
á þessum tengdasyni sínum, sem
var lengi einn í þeirri stöðu, þar
sem systurnar voru einungis tvær
en bræðurnir sjö. Hún mat eflaust
trausta skapgerð hans og getu til
þess að halda sjó í ölduróti lífsins.
Dálæti hennar á Herði var slíkt, að
hún lét skíra yngsta son sinn sama
nafni, þótt tengdasonurinn segði
jafnan þá sögu, að nafnið væri
óskilgetið afkvæmi „af götunni“,
sem enginn vissi almennileg deili á.
Prestur hafi verið algerlega mót-
fallinn fyrirhuguðu nafni, þegar
ausa átti drenginn vígðu vatni, fað-
irinn því opnað gluggann, kallað til
vegfaranda sem átti leið hjá, hvað
sá héti, og fékk svarið: „Hörður“.
Við systkinin eigum hlýjar
minningar um þennan mág okkar,
sem nú er genginn á vit forfeðr-
anna. Honum fylgdi jafnan notaleg
nærvera og mikið jafnaðargeð á
hverju sem gekk. Við þökkum hon-
um samfylgdina og minnumst
margra ánægjulegra stunda með
honum. Samúð okkar er með Bald-
vini Þór, Sólrúnu Unni, Smára
Kristni, börnum þeirra og barna-
börnum.
Fyrir hönd systkinanna frá
Steinholti og Illugagötu,
Birgir Þór Baldvinsson.
Í dag kveðjum við félaga okkar
úr Veiðifélagi Elliðaeyjar, Hörð
Runólfsson.
Í tæp 40 ár höfum við Hörður
verið samferða við eggjatöku og
lundaveiðar í Elliðaey. Hörður var
alltaf yfirvegaður og fór um bjargið
að varfærni og bar virðingu fyrir
náttúrunni, sem var góður skóli
fyrir mig sem var að stíga mín
fyrstu spor í fjalla og veiði-
mennsku.
Í eggjaferðum er það mér minn-
isstætt hvernig hann fór um fýla-
byggðina, rólega en af yfirvegun,
alltaf með stuðningsband og tíndi
eggin af fagmennsku, þótt einn og
einn fýll hafi verið færður úr stað.
Alltaf kom Hörður úr bjargi „spikk
og span“ eins og sagt er og ekki ein
fýlsspýja á kappanum. Ekki var
hægt að segja það sama um okkur
hina, sem komu oftast úr bjarginu
útspýjaðir af eðlilegri vörn fýlsins.
Sama er að segja um lundaveið-
ina, háfnum var sveiflað áreynslu-
laust við að fanga lundann. Það var
ekki stíll Harðar að vera með ein-
hvern asa þótt mikið lægi við, ár-
angurinn var jafn góður ef ekki
betri með hógværð og þeim hóf-
stillta stíl sem hann hafði ávallt
sýnt í starfi og leik.
Hörður var vélvirki að mennt og
lundafar hans kom sér vel við úr-
lausn ýmissa vandamála sem koma
upp við rekstur og viðhald vélbún-
aðar. Þolinmæði og úrræði skiluðu
mörgum vandamálum heilu í höfn
af Herði, en hann starfaði mestall-
an sinn starfaldur við sjávarútveg í
Eyjum, og var Eyjamaður í húð og
hár.
Í lok veiðidags í veiðimannahús-
inu í Elliðaey, eru haldnar kvöld-
vökur að hætti Elliðaeyinga. Til að
mynda eru oft haldnar ræður, göm-
ul hefð, þar sem oftast er farið fögr-
um orðum um eyjuna okkar ást-
kæru, veiðifélaganna, og ýmsar
sögur sagðar frá liðinni tíð. Þótt
Hörður hafi ekki verið margmáll
dagsdaglega, þá hélt hann inni-
haldsríkar ræður á kvöldvökum, og
þegar Hörður talaði þá var hlustað.
Þegar lagið var tekið, var Hörður á
heimavelli. Hann kunni flest lög,
var stórgóður tenór enda nutu kór-
ar Vestamannaeyja söngraddar
hans um árabil.
Sumarið 2013 voru við Hörður
saman í júlí mánuði út í Elliðaey, og
þegar við vorum að fara heim, segir
Hörður að hann ætli að taka lunda-
háfinn með sér heim, en hann hafði
verið árum saman í eynni. Ég
spurði hvers vegna? Þá sagði
Hörður: „Ætli ég eigi nokkurn tím-
ann eftir að lyfta honum aftur?“ Ég
var hálfhissa á svarinu. Spurning
hvort einhver fyrirboði hafi verið
þar á ferð, því nokkrum mánuðum
síðar veiktist Hörður alvarlega og
var fastur í hjólastól eftir það. Ég
er þakklátur fyrir allar samveru-
stundirnar með Herði í Elliðaey öll
þessi ár.
Mögulega er Hörður kominn í
Elliðaey, þarna hinum megin, og
hittir þar fyrir fleiri félaga sem eru
komnir á sama stað, og haldnar
verða alvörukvöldvökur að hætti
þeirra Oddsstaðabræðra og hellt
verði upp að „Rósinni“.
Ég votta aðstandendum mína
dýpstu samúð.
Kveðja frá Veiðifélagi Elliðaeyj-
ar,
Ívar Atlason.
Hörður Runólfsson
MINNINGAR 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 2021
Allur arður af þjónustunni rennur til reksturs kirkjugarðanna
Tökum á móti ástvinum í hlýlegu
og fallegu umhverfi
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
Öll aðstaða í samræmi við tilefnið. Hlýlegt og fallegt
húsnæði og nýir glæsilegir bílar.
Sjá nánari upplýsingar á utfor.is
Útfararþjónusta
Við veitum alla þjónustu tengda andláti ástvina
– Þjónusta um allt land og erlendis
– Þjónusta í heimahúsi og á stofnunum
í yfir 70 ár
Guðný Hildur
Kristinsdóttir
Framkvæmdastjóri
Ellert Ingason
Sálmaskrár,
útfararþjónusta
Emilía Jónsdóttir
Félagsráðgjöf,
útfararþjónusta
Guðmundur
Baldvinsson
Útfararþjónusta
Lára Árnadóttir
Útfararþjónusta
Sigurður Bjarni
Jónsson
Útfararþjónusta
Magnús Sævar
Magnússon
Útfararþjónusta
Jón G. Bjarnason
Útfararþjónusta
Helga
Guðmundsdóttir
Útfararþjónusta
Elskuleg systir okkar og mágkona,
MAGNEY STEINGRÍMSDÓTTIR,
lést á Hrafnistu Sléttuvegi fimmtudaginn
7. október. Útförin fer fram frá Lindakirkju
mánudaginn 18. október klukkan 13.
Streymt verður frá athöfninni á vef
Lindakirkju.
María Steingrímsdóttir
Bragi Steingrímsson Elín Magnúsdóttir
Magnús Steingrímsson Lilja Pálsdóttir