Morgunblaðið - 16.10.2021, Side 38

Morgunblaðið - 16.10.2021, Side 38
38 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 2021 „Kärt barn har många namn“ er sænskur málshátt- ur sem átti vel við um Grétar Ottó Róbertsson. Af fjölskyldu og íslenskum vinum kallaður Tumi, en utan land- steinanna var hann Otto Ro- bertsson. Tumi var goðsögn í lifanda lífi og skilur eftir sig ógrynni dýrmætra minninga og sögur af eigin og annarra uppá- tækjum. Innan læknisfræðinn- ar valdi hann sem sérgrein bæklunarskurðlækningar, sem á alþjóðavísu nefnist ortopedia. Greinin þróaðist mikið upp úr miðri síðustu öld og tilkoma gerviliða í mjaðmir og hné var bylting sem hefur bætt lífsgæði milljóna manna um allan heim. Af mikilli framsýni var 1974 byrjað að skrá skipulega allar gerviliðaaðgerðir á hnjám sem gerðar voru í Svíþjóð og upp- lýsingunum var safnað í Lundi. Þangað kom Tumi 1990 sem nýorðinn sérfræðingur og eins og flestir aðrir læknar við deildina hóf hann rannsóknir. Prófessor Lars Lidgren fékk Grétar Ottó Róbertsson ✝ Grétar Ottó Róbertsson fæddist 22. janúar 1953. Hann lést 2. október 2021. Útför Grétars fór fram 15. októ- ber 2021. honum verkefni við hnégerviliðaskrána og þar komu hæfi- leikar hans að góð- um notum. Hann var snillingur í tölvuvinnslu og meðferð gagna. Ljóngáfaður og ná- kvæmur og lét ekkert frá sér fara nema það stæðist hæstu vísindalegar kröfur. Starfinu sinnti Tumi frekar sem köllun en vinnu og framlag hans til þróunar og notkunar gagnagrunna í or- topediu er ómetanlegt. Árið 2000 kom ég til Lundar og það var komið að mér að velja rannsóknarverkefni. Sýk- ingar í gerviliðum var efnið sem vakti mestan áhuga minn en ég hikaði aðeins við. Rann- sóknirnar kröfðust samvinnu við Tuma og ég var satt að segja feimin og óörugg um hvernig hann væri í samvinnu. Þær áhyggjur reyndust gjör- samlega tilhæfulausar og ég mætti aldrei öðru en vinsemd, hjálpsemi og uppbyggilegri gagnrýni og ég veit að sömu sögu hafa ótalmargir aðrir að segja. Að sitja á skrifstofunni hans Tuma og móta áhugaverð- ar spurningar og fylgjast svo með honum draga úr skránni þau gögn sem þurfti til að finna svörin var hreint ótrúlega skemmtilegt. Ein sérlega góð minning er frá Berlín þar sem við vorum bæði gestir á ráð- stefnu þýskra bæklunarskurð- lækna. Tumi bjó á hóteli ná- lægt æskuslóðum föður síns og mælti sér mót við mig og fjöl- skylduna á gömlu kaffihúsi þar sem andrúmsloftið færði hug- ann áratugi aftur í tímann og Tumi var á einhvern sjálfsagð- an hátt á heimavelli. Síðustu dagana hef ég átt mörg samtöl við fyrrum sam- starfsfólk í Lundi og fráfall Ottós lætur engan ósnortinn. Tímabundið gegni ég stöðu yf- irlæknis á bæklunarskurðlækn- ingadeildinni við Háskóla- sjúkrahúsið á Skáni og það kemur því í minn hlut að fyrir hönd okkar að færa fjölskyldu Ottó innilegustu samúðarkveðj- ur. Tuma minnist ég með enda- lausu þakklæti og óska Ellu og fjölskyldunni styrks á sorgar- tímum. Anna Stefánsdóttir. Hinsta kveðja frá Íslenska bæklunarlæknafélaginu Grétar Ottó Róbertsson bæklunarlæknir, félagi okkar og vinur lést laugardaginn 2. október. Grétar var fæddur í Reykja- vík 22.1. 1953, hann lauk læknanámi í janúar 1982 frá Háskólanum í Árósum og fékk sérfræðiviðurkenningu í bækl- unarskurðlækningum í október 1989. Grétar starfaði sem bækl- unarskurðlæknir í Kristianstad til 1990 er hann hóf störf á bæklunardeild Háskólasjúkra- hússins í Lundi, þar sem hann lauk doktorsprófi. Grétar var framkvæmda- stjóri sænsku gerviliðaskrár- innar (Swedish Knee Arthro- plasty register) frá árinu 1996. Hann vann í hlutastarfi við bæklunardeild Landspítalans frá árinu 2001. Grétar var ritari FÍB á ár- unum 2003-2011 og var fulltrúi FÍB hjá EFORT og í stjórn Acta Orthopaedica. Hann stýrði þingi NOF er haldið var á Ís- landi 2018. Grétar var höfundur af yfir 100 fræðigreinum og var eft- irsóttur fyrirlesari um allan heim og bar hróður sérgrein- arinnar víða. Hann var kosinn heiðursfélagi ÍBF í júní síðast- liðnum. Grétar var afburða fræði- maður, góður bæklunarlæknir, ræðinn, glaðvær og skemmti- legur. Stjórn FÍB þakkar Grétari fyrir góð störf fyrir hönd fé- lagsmanna og færum ekkju hans, fjölskyldu og vinum sam- úðarkveðjur á erfiðum tímum. Fyrir hönd stjórnar Íslenska bæklunarlæknafélagsins. Þorvaldur Ingvarsson formaður. Grétar Ottó sem var oftast kallaður Tumi af þeim sem unnu með honum er fallinn frá langt fyrir aldur fram. Hann las til læknis í Árósum en kom svo heim til að klára kandí- datsárið. Þaðan lá svo leiðin til Svíþjóðar í sérnám í bæklun- arlækningum. Tumi og undir- ritaður, núverandi gjaldkeri félagsins, hafa fylgst að um lengri hríð allt frá kandídats- árum í byrjun níunda áratug- arins. Báðir voru komnir í lokastöður á Háskólasjúkra- húsunum á Skáni upp úr alda- mótum og fylgdust stundum að á heimferðum í frí. Þegar sjúkrahúsin voru svo sameinuð og deildum okkar slegið saman urðu samskiptin eðlilega meiri og við unnum á báðum stöð- unum á víxl. Hann hafði með- fætt innsæi í hvað máli skipti og var ekki að setja fyrir sig „prestige“ eða annað froðu- kennt. Orð hans og skoðanir vógu þungt í Lundi þó svo að hann hefði ekki neinn prófess- orsstall að horfa niður af enda þurfti þess ekki þegar hinn náttúrulegi pondus var til staðar. Með einföldu innsæi og tilvitnun í augljósar stað- reyndir gat hann lokað um- ræðu sem var að aka út af sporinu. Skömmu fyrir aldamót tók Tumi að sér utanumhald um hnéliðaskráninguna í Svíþjóð sem var höfð í Lundi. Þar lét hann sér ævinlega annt um að fræðin væru hlutlæg og óháð dyntum, framapoti eða tísku- straumum. Þess sá greinilega merki þegar rýnt er í þær rannsóknir og samantektir sem frá honum komu. Hann var óhræddur við að ýta við þeim sem töldu sig heilaga og var óhræddur við að stíga á tær þegar þess þurfti, en gerði það aldrei að nauðsynjalausu. Starfið við skráninguna krafð- ist ferða Tuma um víða veröld til fyrirlestra sem þóttu ætíð eftirtektarverðir. Tumi var ævinlega ræðinn og hafði frá ýmsu að segja en var aldrei að miklast yfir fræðiverkum sín- um þó að nægar hefðu verið ástæðurnar. Síðasta Norður- landaþing bæklunarlækna á Íslandi var skipulagt af honum og Ragnari Jónssyni og heppnaðist mjög vel. Vinnan við þingið lagðist þungt á herðar hans, sem þegar voru undir álagi frá fræðimennsku, en hann keyrði þingið áfram af hógværð og festu. Gamlir vinnu- og fræðafélagar frá Skáni höfðu orð á hversu vel heppnað fyrirkomulagið á þinginu, með höfuðfyrirlesur- um og svo styttri erindum um efnið, hefði reynst og er lík- legt að þetta verklag verði áfram á komandi þingum. Tumi var alla tíð virkur í Félagi íslenskra bæklunar- lækna og í stjórn félagsins um tíma. Þar vakti hann yfir hags- munum félagsmanna og not- endum þjónustu þeirra eins og ætíð. Að gæta hagsmuna sjúk- linga með bæklunarsjúkdóma og sjá til þess að þeir fengju bestu hugsanlegu meðferð var markmið gerviliðaskráningar- innar og var Tumi persónu- gervingur þeirrar hugsunar. Það var því vel við hæfi að Tumi var gerður að heiðurs- félaga á síðasta aðalfundi bæklunarlæknafélagsins í vor, fáir hafa verið betur komnir að þeirri upphefð. Stjórn Félags íslenskra bæklunarlækna vottar eigin- konu, börnum og barnabörn- um Tuma innilega samúð vegna fráfalls hans. Brynjólfur Y. Jónsson, gjaldkeri Íslenska bæklunarlæknafélagsins. Allar þessar minningar, all- ar þessar góðu og skemmti- legu minningar sem streyma í gegnum huga okkar sem vor- um svo heppin að fá að kynn- ast Tuma, eru fjársjóður sem hverfur aldrei. Við hjónin vorum svo heppin að kynnast Tuma og fjölskyldu hans þegar við bjuggum í Sví- þjóð á síðustu öld. Vinátta sem hélst áfram eftir að flutt var heim til Íslands. Samvera okkar í Lundi, bæði í vinnu og utan hennar, var endalaus veisla. Samvera á heimili þeirra í Åkarp og síðan í Arnarbæli við Hvítá þar sem Tumi undi sér sérstaklega vel og á heimili okkar á Akureyri og fleiri stöðum sem við hitt- umst á, það var alltaf gaman. Sérstaklega er eftirminnileg ferðin okkar um vesturströnd Bandaríkjanna sem farin var með Gunna Binna. Þetta var ekki bara ferðalag um land- svæði, bæi og borgir, heldur má segja að hún hafi einnig verið einskonar félagsleg rannsókn á samskiptum bestu vina til margra ára. Að umgangast Tuma var veisla fyrir skilningarvitin. Maður þurfti alltaf að vera á vaktinni fyrir uppátækjum hans, meira að segja þegar hann ætlaði sér að vera fúll var gaman að vera í kringum hann. Þessi fáu minningarorð um góðan vin eru einungis smá- brot af ómetanlegum samveru- stundunum okkar sem voru þó allt of fáar sl. ár. Næst ætl- uðum við að hittast núna í október þegar Ragnar, sænsk- ur vinur okkar, kæmi til Ís- lands og var ætlunin að dvelj- ast með honum í Arnarbæli, en því miður gripu örlögin þar inn í. Við vottum Ellu og fjöl- skyldu okkar dýpstu samúð. Bjarki og Lilja. HINSTA KVEÐJA. Samstarfsmaður okkar Grétar Ottó Róbertsson er fallinn frá. Hann var góður fagmaður og afburðafræði- maður á sviði bæklunar- skurðlækninga. Þrátt fyrir erfið veikindi undanfarin ár hélt hann góðu sambandi við okkur vinnufélaga sína og verður sárt saknað úr okkar hópi. Við vottum að- standendum hans okkar innilegustu samúð. Fyrir hönd samstarfs- fólks, Hjörtur Friðrik Hjartarson. ✝ Áslaug Krist- jánsdóttir fæddist í Höfn í Dýrafirði 4. janúar 1926. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða 4. októ- ber 2021. Foreldrar henn- ar voru Kristján Jakobsson bóndi og sjómaður, f. 18.7. 1891, d. 7.2. 1972, og Guðrún Petrína Kristjáns- dóttir húsfreyja, f. 4.7. 1892, d. 26.3. 1985. Áslaug var næstyngst sjö systra: Jóhanna Kristín, f. 5.10. 1909, d. 14.7. 1985, Sigríður Há- konía, f. 13.6. 1917, d. 14.5. 1984, Matthildur Ólöf, f. 16.12. 1918, d. 26.2. 1941, Margrét, f. 15.12. 1920, d. 31.12. 2016, Ólafía, f. 17.12. 1923, d. 14.3. 2004, og Þorbjörg, f. 20.12. 1929. Móðir Jóhönnu Kristínar var Sigríður Ólafsdóttir, f. 20.7. 1874, d. 9.3. 1958. Áslaug giftist á jóladag 1960 Her- manni Guðmunds- syni frá Fremri- Hjarðardal í Dýra- firði, f. 20.1. 1922, d. 8.6. 2002. Börn þeirra eru: 1) Guð- mundur, f. 15.8. 1960, kvæntur Guð- rúnu Hrefnu Reyn- isdóttur og eiga þau tvö börn og tvö barnabörn. 2) Kristrún, f. 14.5. 1962, gift Fal Þorkelssyni og eiga þau fjóra syni en einn þeirra er lát- inn. 3) Guðrún, f. 9.6. 1964, gift Aðalsteini Óskarssyni og eiga þau tvær dætur. 4) Jakob, f. 5.10. 1966, giftur Kristbjörgu Þóreyju I. Austfjörð og eiga þau fjögur börn og tvö barnabörn. Útförin fer fram frá Ísafjarð- arkirkju í dag, 16. október 2021, og hefst athöfnin klukkan 14. Nú þegar mamma hefur horfið á braut forfeðranna er okkur efst í huga þakklæti fyrir ómetanlegar minningar frá langri samfylgd. Æskuminningarnar eru sveipað- ar ljóma þar sem æðruleysi, hlýja og einstakt lundarfar vörðuðu veginn. Mamma var alltaf til stað- ar fyrir okkur og til hennar var gott að leita. Henni var eðlislægt að setja sig í annað sæti og var ávallt umhugað um að menn hefðu ekki of mikið fyrir henni. Þegar starfsævi pabba lauk, fluttu þau sig frá Þingeyri til Ísa- fjarðar til að vera nær fólkinu sínu. Þegar pabbi kvaddi kom svo í ljós, að þau höfðu tekið ákvörðun um að hvíla í kirkjugarðinum þar, því þá yrði hægara um vik að vitja leiðisins. Mamma var alin upp í Höfn í Dýrafirði við aðstæður sem verða að teljast harla fjarlægar því sem við eigum nú að venjast. Á þess- um slóðum héldust búskapar- hættir óbreyttir um aldir og menn reiddu sig mikið á sjóinn. Þannig var það enn þegar afi brá búi 1943. Mamma hafði alltaf sterka tengingu við æskuslóðirnar og hún sagði okkur ófáar sögur af uppeldisárunum. Í fersku minni eru einnig ferðir út í Höfn áður en vegur var lagður þangað og eftir að vegsamgöngur komust á. Á fyrstu búskaparárum mömmu og pabba á Þingeyri bjuggu undir einu þaki fjórar kynslóðir, því auk ömmu og afa var langafi enn á lífi og bjó á heimilinu til dauðadags. Við systkinin ólumst því upp við að- stæður sem minntu um margt á sveitaheimili fyrri tíma. Fyrir pabba og mömmu var það mikið mál að skapa okkur systkinunum eins góðar aðstæður og frekast var unnt svo við mætt- um njóta sömu tækifæra og jafn- aldrar okkar. Mamma hafði einstakt lag á að skapa þannig aðstæður að þær urðu uppspretta ljúfra minninga og við þær er gott að orna sér, ekki síst á tímamótum sem þess- um. Það er skrítin tilfinning að láta ekki lengur vita af sér á ferðalögum og þau verða væntan- lega ekki fleiri kertin sem þú kveikir á við myndina hans pabba þegar við erum á ferðinni. Nú get- ið þið fylgst með okkur af æðra tilverustigi og okkur nægir að hugsa hlýtt til ykkar við heim- komu. Lengi býr að fyrstu gerð og það nesti sem þú nestaðir okkur með hefur reynst okkur dýrmætt alla tíð. Við kveðjum þig full þakklætis og virðingar og vonum að pabba hafi gengið vel á dansnámskeið- inu. Guðmundur, Kristrún, Guðrún og Jakob. Fyrir fáeinum dögum lést hún Ása konan hans Mannsa frænda. Með þeim áttum við samleið hér á Þingeyri. Ása var alltaf létt í lund og létt í spori þegar við hittum hana. Lífsglöð og hláturmild þrátt fyrir háan aldur. Um leið og við þökkum fyrir liðnar stundir og samfylgdina gegnum lífið sendum við börnum hennar og afkomend- um öllum innilegar samúðar- kveðjur. Við minnumst þeirra hjóna með hlýhug. Enginn maður þekkir sjálfan sig og sorginni er jafnan þungt að hrinda. Ég bið guð að gjalda fyrir mig og gleðja þá sem eiga um sárt að binda. (Elías Þórarinsson) Dagrún Sigurðardóttir og bræðurnir frá Hjarðardal og fjölskyldur þeirra. Áslaug Kristjánsdóttir Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður og afa, GRÉTARS INGIMARS JÓNSSONAR frá Hóli í Sæmundarhlíð, Jöklatúni 14, Sauðárkróki. Sérstakar þakkir fær starfsfólk heimahjúkrunar á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki og eins í Dagdvöl aldraðra fyrir einstaka alúð. Ingibjörg Árnadóttir Petrea Grétarsdóttir Margrét Grétarsdóttir Páll Sighvatsson Jóhanna I. Grétarsdóttir Jón Grétarsson Hrefna Hafsteinsdóttir og barnabörn FALLEGIR LEGSTEINAR Auðbrekku 4, 200 Kópavogi, sími: 537-1029, www.bergsteinar.is Á góðu verði Verið velkomin Opið: 11-16 virka daga Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSTHILDUR INGIBJÖRG SIGURJÓNSDÓTTIR, Hlemmiskeiði, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands miðvikudaginn 13. október. Útför hennar fer fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Vilhjálmur H. Eiríksson Ingibjörg Vilhjálmsdóttir Ragnar Davíðsson Jóhanna M. Vilhjálmsdóttir Snæbjörn Guðmundsson Sigurjón Vilhjálmsson Guðbjörg Vilhjálmsdóttir Jón Davíð Olgeirsson Matthildur E. Vilhjálmsdóttir Ásmundur Lárusson Eiríkur Smári Vilhjálmsson Vilhjálmur A. Vilhjálmsson Sigríður Ósk Jónsdóttir ömmubörn og langömmubörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.