Morgunblaðið - 16.10.2021, Page 41

Morgunblaðið - 16.10.2021, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 2021 41 Grunnskólakennari Laus er til umsóknar kennarastaða við Reykjahlíðarskóla í Mývatnssveit frá 1. janúar – 1. júní 2022. Um er að ræða afleysingu í 70% starf (frí á föstu- dögum) umsjónarkennara 2. og 3. bekkjar. Hæfniskröfur: • Kennsluréttindi á grunnskólastigi. • Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum. • Góðir skipulagshæfileikar. • Ábyrgð og stundvísi. • Faglegur metnaður. • Áhugi á að vinna með börnum og unglingum. Reykjahlíðarskóli er framsækinn skóli með 39 nemendur í 1.–10. bekk. Í skólanum er unnið með samkennslu árganga, samþættingu námsgreina og rafræna kennsluhætti og vinna kennarar oft verkefni saman þvert á árganga. Kennarar leitast við að haga skólastarfi í sem fyllstu samræmi við þarfir nemenda og stuðla að alhliða þroska hvers og eins. Kennarar hafa frelsi til að útfæra námsefni á þann hátt sem þeim þykir henta nemendum best með hliðsjón af hæfniviðmiðum Aðalnámskrár grunnskóla. Í Mývatnssveit búa um 500 manns. Í metnaðarfullri mannauðsstefnu sveitarfélagsins kemur m.a. fram að boðið er upp á flutningsstyrk, heilsustyrk, launað frí fyrir barnshafandi konur síðasta mánuð meðgöngu, starfsaldurstengdar greiðslur o.fl. fyrir starfsfólk. Við erum fjölskylduvænt samfélag með öflugt leikskóla- og grunnskólastarf, boðið er upp á ókeypis skóla- máltíðir fyrir börn og ókeypis frístund. Við erum heilsueflandi samfélag. Frekari upplýsingar veitir Hjördís Albertsdóttir skólastjóri, hjordis@reykjahlidarskoli.is. Umsóknarfrestur er til 25. október 2021. Lyf & heilsa er framsækið þjónustufyrirtæki með starfsemi víðsvegar um landið. Fyrirtækið leggur metnað sinn í að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustu á sviði heilsu, heilbrigði og lífsgæða. www.lyfogheilsa.is Í starfinu felst fagleg ábyrgð á afgreiðslu lyfja samkvæmt lögum og reglugerðum um lyfsölu. Starfssvið Hæfniskröfur V IÐ H L U S T U M V IÐ H L U S T U M Ef þú hefur háskólapróf í lyfjafræði og gilt starfsleyfi, brennandi áhuga á þjónustu, ert jákvæður og opinn einstaklingur, þá gætum við verið að leita að þér. LYFJAFRÆÐINGAR ÓSKAST TIL STARFA VILTU VERA MEÐ? Upplýsingar um störfin veitir Guðbjörg Stefánsdóttir, rekstrar- og mannauðsstjóri, gudbjorg@lyfogheilsa.is Sendu umsókn merkta „lyfjafræðingur“, ásamt ferilskrá á starf@lyfogheilsa.is Reynsla af sambærilegu starfi eða lögmannsstörfum hjá fyrirtækjum eða hinu opinbera er æskileg. Málflutningsréttindi eru kostur. Starfið er krefjandi og fjölbreytt. Á lögfræðiskrifstofunni starfa nú 20 lögmenn og sex aðstoðarmenn. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst. Umsóknir, ásamt upplýsingum um náms- og starfsferil berist á netfangið grimur@landslog.is fyrir 24. október. landslog.is Landslög veita alla almenna lögfræði- þjónustu fyrir fyrirtæki, stofnanir hins opinbera og einstaklinga. Landslög voru stofnuð þann 1. júní 1971 og spannar saga stofunnar því meira en fimmtíu ár. Á þeim tíma hafa einstaklingar, opinberar stofnanir og stór og smá fyrirtæki leitað liðsinnis okkar. Markmið Landslaga hefur ávallt verið hið sama – að veita viðskiptavinum okkar fyrsta flokks ráðgjöf og víðtæka þjónustu. Lögfræðistofan Landslög óskar eftir umsóknum um starf löglærðs fulltrúa Sterk liðsheild í 50 árRAFVIRKJAR! Óskum eftir að ráða rafvirkja til framtíðar starfa. Umsókn sendist á netfangið rafbodi@rafbodi.is. Íslenskumælandi er skilyrði. Þurfa að geta byrjað sem fyrst. NNE Verkfræðistofa leitar eftir góðu fagfólki til framtíðarstarfa á burðarvirkjasvið. Í boði er gott og fjölskylduvænt starfsumhverfi. Starfið felst í allri almennri hönnun burðarvirkja. Menntunar- og hæfniskröfur • Tækni- eða verkfræðimenntun • Gott vald á Revit og Autocad • Lágmark 3ja ára starfsreynsla • Sjálfstæði í starfi • Jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum Fyrirspurnir og umsóknir sendist á netfangið hoo@nne.is. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og öllum umsóknum verður svarað. NNE Verkfræðistofa er lítið en öflugt fyrirtæki á sviði mannvirkjahönnunar. Fyrirtækið þjónustar fjölbreyttan hóp viðskiptavina og framundan eru spennandi verkefni. Hönnuður burðarvirkja www.nne.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.