Morgunblaðið - 16.10.2021, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 16.10.2021, Blaðsíða 49
ÍÞRÓTTIR 49 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 2021 Uppi eru hugmyndir um að hætta að kenna efstu deildirnar í fótboltanum hér á landi við ákveðna styrktaraðila. Þær fái í staðinn öflugt og gott nafn til frambúðar en styrktaraðilar komi sínum boðskap á framfæri á annan hátt í tengslum við við- komandi deildir. Þetta eru ánægjuleg tíðindi. Við þurfum ekki annað en að horfa til Premier League á Eng- landi, Lique 1 í Frakklandi, Serie A á Ítalíu, La Liga á Spáni og Bundesliga 1 í Þýskalandi til að sjá að þar eru ekki gosdrykkir eða tryggingar aðalmálið. Án þess að gert sé lítið úr mikilvægi styrktaraðila fyrir deildirnar og íþróttirnar. Annað er að ekki er alltaf á vísan að róa í þessum efnum og deildirnar geta skipt ört um nafn. Ef íslenskum fótbolta- manni sem spilaði í efstu deild í kringum síðustu aldamót er flett upp í gagnagrunni KSÍ má sjá að hann spilaði eitt árið í Sam- skipadeildinni, þá í Getrauna- deildinni, næst í Trópídeildinni, þá Sjóvá-Almennra-deildinni, Landssímadeildinni og loks í Símadeildinni. Úff! Ég hef heyrt nafninu „Besta deildin“ fleygt. Þá er það orðið svipað og hjá grönnum okkar í Færeyjum sem nota „Betri Deild- in.“ Sem er víst samt auglýsing! Ég legg því til að efsta deild karla og kvenna verði framvegis kölluð „Fyrsta deildin.“ Einfalt og gott, og um leið snúið aftur til gamla og góða tímans þegar 1. deild var efsta og besta deildin. Alveg eins og Frakkar, Spán- verjar, Ítalir, Belgar og fleiri stór- ar þjóðir í fótboltanum og fleiri íþróttum gera. Þar er 1. deild alltaf efsta deildin (eðlilega!) þótt það virðist hafa farið fram hjá mörgum hér á landi. BAKVÖRÐUR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Danmörk Viborg – Silkeborg.................................. 1:1 - Stefán Teitur Þórðarson lék allan leikinn og skoraði mark Silkeborg. Staða efstu liða: Midtjylland 11 9 0 2 21:5 27 København 11 7 3 1 25:8 24 AaB 11 6 3 2 18:9 21 Silkeborg 12 4 6 2 17:13 18 Þýskaland B-deild: Hannover – Schalke ................................ 0:1 - Guðlaugur Victor Pálsson var fyrirliði, lék allan leikinn og lagði upp mark Schalke. _ Efstu lið: St. Pauli 19, Jahn Regensburg 19, Schalke 19, Paderborn 18, Nürnberg 15, Heidenheim 15, Hamburger SV 14, Werder Bremen 14, Darmstadt 13. Holland B-deild: Jong Ajax – Jong Utrecht....................... 3:1 - Kristian Nökkvi Hlynsson kom inn á sem varamaður á 63. mínútu og lagði upp mark fyrir Jong Ajax. England B-deild: WBA – Birmingham................................. 1:0 Staða efstu liða: WBA 12 7 4 1 21:9 25 Bournemouth 11 7 4 0 18:8 25 Coventry 11 7 1 3 16:12 22 Stoke City 11 6 3 2 15:11 21 Fulham 11 6 2 3 23:13 20 C-deild: Burton – Morecambe .............................. 3:2 - Jökull Andrésson var ónotaður varamað- ur hjá Morecambe. Undankeppni HM karla Suður-Ameríka: Brasilía – Úrúgvæ .................................... 4:1 Argentína – Perú...................................... 1:0 Síle – Venesúela........................................ 3:0 _ Efstu lið: Brasilía 31, Argentína 25, Ekvador 17, Kólumbía 16, Úrúgvæ 16. 4.$--3795.$ BIKARINN Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Víkingar eru með níu sigurleiki í röð frá 11. ágúst og langþráðan Íslands- meistaratitil í húsi. Skagamenn eru með fimm sig- urleiki í röð frá 11. september og æv- intýralega björgun frá falli úr úr- valsdeildinni. Óhætt er að segja að tvö „heit- ustu“ knattspyrnulið landsins und- anfarnar vikur mætist í úrslitaleik bikarkeppninnar á Laugardalsvell- inum klukkan 15 í dag, þótt hlut- skipti þeirra hafi verið ólíkt á Ís- landsmótinu. Víkingar mæta vissulega sig- urstranglegri til leiks. Þeir hafa margt sem knýr þá áfram í þessum síðasta leik tímabilsins þótt ein- hverjir gætu talið þá sadda eftir að hafa innbyrt Íslandsmeistaratitilinn. Víkingar hafa náð valdi á þeirri list að vinna leiki, sama hvað. Þeir hafa lent í alls konar vandræðum í leikjum sínum frá 11. ágúst en ávallt náð að knýja fram sigurinn sem til þurfti. Nóg er að benda á sigurinn á KR á Meistaravöllum í næstsíðustu umferðinni og hinn nauma sigur á Fylki í átta liða úrslitum bikarsins, á sjálfsmarki í framlengingu. Vinna fyrir Kára og Sölva Víkingar hafa líka þá gulrót, eins og Arnar Gunnlaugsson benti á í við- tölum fyrir leikinn að vinna titilinn fyrir þá Kára Árnason og Sölva Geir Ottesen, sem leika báðir kveðjuleik- inn á ferlinum í dag. Það yrði að sjálfsögðu hinn fullkomni endir á ævintýrinu sem þeir hafa tekið þátt í með uppeldisfélagi sínu eftir að hafa snúið heim úr langri dvöl erlendis. Þá geta Víkingar orðið einungis annað félagið á þessari öld og það fimmta í sögunni til að vinna tvöfalt, þ.e. verða Íslands- og bikarmeist- arar á sama tímabilinu. Að sama skapi er ljóst að Skaga- menn geta orðið þeim afar óþægileg- ir andstæðingar. ÍA virtist fallið þegar þrjár umferðir voru eftir af Ís- landsmótinu, og aftur þegar 25 mín- útur voru eftir og liðið 2:0 undir í Keflavík. En þrjú mörk þar og önnur tvö gegn Keflavík í undanúrslitum bikarsins viku síðar gjörbreyttu landslaginu á Akranesi. Nú eru Skagamenn 90 mínútum (eða 120 og vítakeppni) frá því að komast í Evrópukeppni í fyrsta skipti í fjórtán ár, og að vinna sinn fyrsta stóra titil í átján ár. Talandi um gulrætur, þá gerist það varla stærra fyrir þá „gulu og glöðu“ en að fá aftur Evrópuleiki á Akranes. Hvað þá núna þegar Ísland fær bara þrjú Evrópusæti fyrir tímabilið 2022-23, þá yrði það mikill sigur og gæti orðið gríðarlegur vendipunktur fyrir Skagamenn að verða þriðja ís- lenska liðið á eftir Víkingi og Breiða- bliki til að komast í Evrópukeppni næsta sumar. En til þess verða þeir að vinna úrslitaleikinn í dag, annars eru það gömlu keppinautarnir þeirra í KR sem hreppa Evrópusætið. Ólík bikarsaga félaganna Saga liðanna tveggja í bik- arkeppninni er ólík. Skagamenn hafa orðið bikarmeistarar níu sinn- um, á árunum 1978 til 2003 en höfðu tapað átta úrslitaleikjum áður en þeir unnu þann fyrsta, 1:0 gegn Val með marki Péturs Péturssonar (nú- verandi þjálfara kvennaliðsins á Hlíðarenda!). Þetta er nítjándi úr- slitaleikur Skagamanna, sá 20. ef jafntefli gegn ÍBA árið 1969 er talið með. Víkingar eru hins vegar núverandi handhafar bikarsins eftir að hafa unnið hann 2019, og síðan fallið út úr keppninni 2020 áður en henni var af- lýst. Eina skiptið sem þeir höfðu áð- ur unnið hann var árið 1971 þegar þeir sigruðu Breiðablik 1:0 með marki Jóns Ólafssonar. Það er hins vegar sögulegur sigur því Víkingur er eina félagið sem hefur unnið bik- arinn án þess að leika í efstu deild á viðkomandi keppnistímabili. Vík- ingar unnu nefnilega gömlu 2. deild- ina árið 1971 og hirtu síðan bikarinn í framhaldi af því. Þar fyrir utan hafa Víkingar tapað einum bikarúr- slitaleik, sem 2. deildarlið árið 1967. Bæði liðin eru á sigurbraut - Víkingar hafa unnið níu leiki frá 11. ágúst og ÍA fimm leiki frá 11. september - Vinna Víkingar tvöfalt í ár? - Fær ÍA eða KR síðasta Evrópusætið? Morgunblaðið/Aron Elvar Finnsson Úrslitaleikur Óttar Bjarni Guðmundsson fyrirliði ÍA og Sölvi Geir Ottesen fyrirliði Víkings með bikarinn eftirsótta. Annar þeirra lyftir honum í dag. Haraldur Franklín Magnús komst í gær í gegnum niðurskurðinn á Emporda Challenge-golfmótinu á Spáni en það er liður í Áskorenda- mótaröð Evrópu, þeirri næststerk- ustu í Evrópu. Haraldur lék fyrstu tvo hringina á þremur höggum undir pari, sem dugði nákvæmlega til að komast áfram. Haraldur tryggði sig áfram með því að leika síðustu holuna á erni, par 4 holu á tveimur höggum. Hann er í 50. sæti þegar þetta mót og eitt annað eru eftir en 45 efstu komast síðan á lokamót mótaraðarinnar. Komst áfram á erni á 18. holu Ljósmynd/seth@golf.is Golf Haraldur Franklín Magnús er í baráttu um að komast á lokamótið. Ágúst Þór Gylfason var í gær ráð- inn þjálfari karlaliðs Stjörnunnar í knattspyrnu til næstu tveggja ára en hann tekur við liðinu af Þorvaldi Örlygssyni sem á dögunum tók við starfi rekstarstjóra hjá Garðabæj- arfélaginu. Ágúst, sem er fimmtugur, hefur þjálfað Gróttu undanfarin tvö ár, þar á undan Breiðablik í tvö ár og áður Fjölni í fimm ár. Hann tekur við Stjörnuliði sem endaði í sjöunda sæti í úrvalsdeildinni í ár, tveimur stigum frá fallsæti, en það er lak- asti árangur félagsins í ellefu ár. Ágúst tekur við Stjörnunni Ljósmynd/Grótta Garðabær Ágúst Þór Gylfason er kominn til Stjörnunnar. Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Sennilega setur íslenskt hand- boltafólk Íslandsmet í Evrópu- leikjum um þessa helgi. Hvorki fleiri né færri en fimm íslensk félög leika samtals átta Evrópuleiki um helgina, ef fyrri leikur KA/Þórs í Kó- sóvó sem fram fór í gær er talinn með. Af þessum átta leikjum fara að- eins tveir fram hér á landi því þrjú félaganna sömdu um að leika báða leiki sína erlendis. Gamalt stórveldi í Kaplakrika Karlalið FH tekur á móti þekkt- asta liði Hvíta-Rússlands, SKA Minsk, í Kaplakrika klukkan 17 í dag. Þetta er fyrri leikur liðanna í 2. umferð Evrópubikarsins en þau sátu bæði hjá í 1. umferðinni. SKA Minsk er gamalt sovéskt stórveldi og hefur unnið sjö af fyrstu átta leikjum sínum í hvítrússnesku deildinni í haust. Þar er liðið í sér- flokki ásamt Meshkov Brest. Jeruzalem spilar á Selfossi Karlalið Selfoss tekur á móti Je- ruzalem Ormoz frá Slóveníu í 2. um- ferð í sömu keppni en leikið er á Sel- fossi klukkan 19.30 í kvöld. Selfyssingar sigruðu Koprivnice frá Tékklandi í 1. umferðinni með sex mörkum samanlagt þrátt fyrir að spila báða leikina á útivelli. Slóven- arnir sátu hins vegar hjá. Lið Jeruzalem endaði í fjórða sæti í Slóveníu í fyrra en hefur byrjað tímabilið afar illa og tapað fjórum af fyrstu fimm leikjum sínum í deild- inni og vermir botnsætið ásamt fleiri liðum. Íslandsmeistarar kvenna í KA/ Þór leika tvívegis við Istogu í Kó- sóvó í 1. umferð Evrópubikars kvenna. Fyrri leikurinn var í gær eins og sagt er frá hér vinstra megin í opnunni en seinni leikurinn fer fram í dag. Valskonur í Serbíu Kvennalið Vals er komið til Serbíu og leikur einnig í 1. umferð Evrópu- bikarsins. Mótherjar Hlíð- arendaliðsins eru Bekament Buko- vicka og báðir leikirnir fara fram, í dag og á morgun, á heimavelli liðsins í bænum Arandjelovac. Lið Beka- ment endaði í fimmta sæti deild- arinnar í Serbíu á síðasta tímabili. Haukar spila á Kýpur Loks er karlalið Hauka komið til Kýpur og leikur þar í 2. umferð Evr- ópubikars karla gegn Parnassos Strovolou. Fyrri leikinn í dag en þann seinni á morgun. Parnassos hefur unnið tvo fyrstu leiki sína á tímabilinu á Kýpur með miklum yf- irburðum og félagið hefur margoft unnið meistaratitilinn á Miðjarð- arhafseyjunni. Með þessum átta leikjum er ekki öll sagan sögð því kvennalið ÍBV á eftir að leika gegn PAOK frá Grikk- landi í Evrópubikar kvenna og fara báðir leikir liðanna fram í Saloniki um næstu helgi. Karlalið Vals hefur þegar lokið keppni en það var slegið út af þýsku bikarmeisturunum Lemgo í Evrópudeildinni. Íslandsmet í Evrópuleikjum? - Fimm íslensk handboltalið leika átta leiki í Evrópukeppni um helgina
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.