Morgunblaðið - 16.10.2021, Síða 56
vinnuföt fást einnig í
HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík
S. 414 3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI
Hágæða
vinnuföt
Verkfæri og festingar
Mikið úrval af öryggisvörum
Sérmerkjum fyrir fyrirtæki
mikið úrval
Flautuhópurinn vi-
ibra mun koma fram
á öðrum stofu-
tónleikum ársins á
Gljúfrasteini á
morgun, sunnudag-
inn 17. október, kl.
16. Hópurinn mun
flytja verk eftir Þur-
íði Jónsdóttur, Björk
Guðmundsdóttur,
Berglindi Maríu
Tómasdóttur, Hilmu
Kristínu Sveins-
dóttur og Pauline
Oliveros. Á efnis-
skránni verða meðal
annars tveir frumflutningar og nýjar útsetningar.
Flautuhópurinn viibra hefur unnið mikið með Björk
Guðmundsdóttur, m.a. að plötu hennar Útópíu, og farið
með henni í ýmis tónleikaferðalög í kjölfarið.
Flautuhópurinn viibra frumflytur
verk á tónleikum á Gljúfrasteini
LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 289. DAGUR ÁRSINS 2021
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í lausasölu 1.268 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Víkingur úr Reykjavík og ÍA mætast í úrslitaleik bikar-
keppninnar á Laugardalsvellinum klukkan 15 í dag.
Báðum liðum hefur gengið afar vel undanfarið þó að
hlutskipti þeirra á Íslandsmótinu hafi verið ólíkt.
Víkingur hefur unnið níu leiki í röð frá 11. ágúst, sem
hjálpaði þeim að tryggja sér langþráðan Íslandsmeist-
aratitil í síðasta mánuði. ÍA hefur hins vegar unnið
fimm leiki í röð frá 11. september, sem varð til þess að
liðið bjargaði sér á ævintýralegan hátt frá falli úr úr-
valsdeildinni. »49
Tvö „heitustu“ lið landsins mætast
í úrslitaleik bikarkeppninnar í dag
ÍÞRÓTTIR MENNING
Fjölmargir héldu upp á bleika dag-
inn í gær og bleiki liturinn var áber-
andi á mörgum vinnustöðum lands-
ins til stuðnings baráttunni gegn
krabbameinum hjá konum. Aðal-
inntak átaksins í ár var að leggja
áherslu á slagorðið ,,verum til“ en
bleiki liturinn var einstaklega sýni-
legur í ár, að sögn Höllu Þorvarðar-
dóttur, framkvæmdastjóra Krabba-
meinsfélagsins.
„Þetta er alveg ofboðslegur stuðn-
ingur sem fólk er að sýna og ég vil
meina það að þjóðin hafi fylkt sér á
bak við slagorðið „verum til“.
Kannski er enn þá meiri meðvitund
en áður um það hvað það skiptir
miklu máli að vera til. Það er ótrúleg
stemning í ár,“ segir Halla í samtali
við Morgunblaðið.
Árlega greinast að meðaltali um
850 konur með krabbamein og 300
konur deyja að meðaltali úr krabba-
meinum árlega en í dag eru níu þús-
und konur á lífi sem glímt hafa við
sjúkdóminn. Beiki dagurinn er há-
punktur Bleiku slaufunnar, árlegs
árvekni- og fjáröflunarátaks
Krabbameinsfélagsins sem tileinkað
er baráttunni gegn krabbameinum
hjá konum, og hefur hann notið sí-
vaxandi vinsælda undanfarin ár en í
gær var síðasti söludagur Bleiku
slaufunnar, sem fékkst á 2.900 krón-
ur á fjölmörgum sölustöðum sem og
á bleikaslaufan.is.
Morgunblaðið/Unnur Karen
Samstaða Starfsmenn Garðsapóteks skörtuðu bleiku til stuðnings baráttunni gegn krabbameini hjá konum.
Lýstu upp skamm-
degið með bleikum lit
- Fleiri leggja baráttunni lið gegn krabbameinum hjá konum
Stemning Starfsmenn Hreint ehf. lýstu upp skammdegið og sýndu sinn
stuðning með því að skarta bleikum lit á kaffistofunni á bleika deginum.