Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.10.2021, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.10. 2021
KVIKMYNDIR
Funahöfða 7, 110 Reykjavík | Sími 577 6666
., '*
-�-"%
,�rKu!,
KIEL/ - OG FRYSTITJEKI
Iðnaðareiningar
í miklu úrvali
A
uðunn Blöndal, ávallt kall-
aður Auddi, leikur aðal-
hlutverkið í Leynilöggu,
nýrri grínhasarmynd í leikstjórn
Hannesar Þórs Halldórssonar, sem
frumsýnd verður í vikunni. Auddi
sest yfir kaffibolla og leiðir blaða-
mann í allan sannleikann um mynd-
ina, en hún var tekin upp á tuttugu
dögum fyrir mjög takmarkað fjár-
magn og í miðjum kórónuveiru-
faraldri. Útkoman er alíslensk kvik-
mynd sem gerist á götum
borgarinnar þar sem lögreglan eltist
við skúrka og er grínið aldrei langt
undan.
Íslensk Hollywood-mynd
Hugmyndin að kvikmyndinni er
sprottin úr keppni milli félaganna
Audda og Sveppa; Sverris Þórs
Sverrissonar.
„Það var fyrir um tíu-ellefu árum
að við Sveppi vorum með þátt og fór-
um í keppni um hver gæti gert betri
stiklu að bíómynd. Við lögðum ekk-
ert mikið í plottið en ég heyrði í
Hannesi og við gerðum „trailer“ sem
sló í gegn úti um allt á Íslandi. Það
voru margir sem komu að máli við
okkur og spurðu hvort við vildum
ekki gera bíómynd í anda stiklunnar.
Við skrifuðum þá heilt handrit, en í
myndinni Leynilögga er mjög margt
sem fólk kannast við úr þessum
„trailer“. Björn Hlynur lék þar líka
vonda kallinn og margar línur þaðan
rötuðu í myndina,“ segir Auddi og
segir að lokahandrit að myndinni
hafi verið í höndum Sveppa, Hann-
esar og Nínu Pedersen, unnið upp úr
sögu hans, Sveppa og Egils Ein-
arssonar.
„Svona mynd ætti að kosta um 300
milljónir en er gerð fyrir 70 millj-
ónir. Hannes var búinn að reikna það
út að hún kostar 0,03% af því sem
Fast and the Furious kostar,“ segir
Auddi og hrósar Hannesi fyrir að
takast að láta myndina líta út eins og
hún hafi verið gerð fyrir miklu meira
fé.
„Þetta er íslensk Hollywood-
mynd,“ segir Auddi og segir frá
myndinni.
„Ég leik Bússa, hörðustu lögguna í
Reykjavík, en Egill leikur hörðustu
lögguna í Garðabæ. Þar er allt fínna
og flottara og ég má ekki fara inn í
Garðabæ af því það er ekki mitt um-
ráðasvæði. Ég er inni í skápnum en
viðurkenni svo kynhneigð mína.
Grínið er tekið alla leið en inn í grín-
hasarinn tvinnast ástarsaga,“ segir
hann.
„Svo eru bankarán í gangi en við
vitum ekki hvað er að gerast því
engu er stolið. Þetta er hasarmynd
alla leið, tekin á Íslandi, og allir með
byssur og skildi eins og í Bandaríkj-
unum,“ segir Auddi og segir það hafa
komið þeim á óvart að myndin skyldi
höfða til erlendra áhorfenda, en hún
hefur verið sýnd á virtum kvik-
myndahátíðum á Englandi og í Sviss
og er nú á kvikmyndahátíð í Suður-
Kóreu og Texas.
„Ekki í mínum villtustu draumum
hélt ég að myndin fengi inni á
stórum kvikmyndahátíðum! Það var
mikið hlegið og klappað, bæði í Loc-
arno í Sviss og London. Ég sat í saln-
um að deyja úr stressi, enda hafði
verið sagt við mig að stundum væri
púað. En svo voru allir í stuði og fólki
fannst gaman. Það hefur verið algjör
draumur að ferðast með þessa
mynd.“
Brjálaður maður með byssu
Í myndinni er mikið um hasaratriði
og bílaeltingarleiki og þar sem fjár-
magnið var af skornum skammti, var
ekki hægt að loka götum fyrir tök-
urnar.
„Eina sem var gert var að við
hringdum í lögguna og sögðum þeim
að við værum að fara að keyra um á
Trans Am að taka upp lögguatriði
fyrir bíómynd og að Auddi yrði með
byssu. En svo var hringt á fullu í
lögguna og tilkynnt um brjálaðan
mann sem væri að skjóta úr byssu á
Kringlumýrarbraut,“ segir Auddi
sposkur.
„Steindi leikur einn af vondu köll-
unum sem dregst inn í þetta,“ segir
Auddi og í þeim töluðu orðum birtist
Steindi Jr., sem heitir fullu nafni
Steinþór Hróar Steinþórsson, og
sest hjá okkur.
„Ég leik Svavar, einnig þekktur
sem Scorpion. Hann er reyndar sá
eini sem kallar sig Scorpion og er í
raun ekki vondur. Hann þvældist
óvart inn í gengið,“ segir Steindi og
hlær.
Fór eitthvað úrskeiðis í tökunum?
„Já, á fyrsta degi og í fyrstu töku
þá datt tökuvélin af bílnum þegar ég
bakka út. Það var grind á bílnum
sem hélt vélinni og hún bara hrundi.
Við héldum að allt væri ónýtt, en sem
betur fer var í lagi með vélina.“
Keppt í alls konar listum
Fleira er á döfinni hjá þeim félögum
því á Stöð2 verður sýndur næstu sex
föstudaga fjölskylduþátturinn Stóra
sviðið, stjórnað af Steinunni Ólínu
Þorsteinsdóttur.
„Það var rosalega gaman að fá
hana inn í þetta en við kynntumst
henni vel í Leynilöggunni, en þar
leikur hún lögreglustjórann. Hún er
rosalega skemmtileg, verst að hafa
ekki kynnst henni fyrr,“ segir
Steindi.
„Já, samt fínt að kynnast henni
núna, ég er kominn með leið á þér og
fínt að kynnast einhverjum öðrum,“
segir Auddi og þeir skellihlæja vin-
irnir.
„Í þættinum erum við Auddi fyr-
irliðar og fáum alltaf til okkar sitt
hvorn gestinn og svo er keppt í alls
konar listum,“ segir Steindi.
„Í fyrsta þættinum næsta föstu-
dag eru Anna Svava og Saga Garð-
ars og við þá keppum við um hvort
liðið gerir betri stuttmynd, listgjörn-
ing og töfraatriði fyrir framan áhorf-
endur,“ segir Auddi og segir að
áhorfendur úti í sal kjósi svo um
hvort lið vinnur.
„Þetta á að höfða til allra í fjöl-
skyldunni,“ segir Steindi og segja
þeir þættina afar metnaðarfulla.
Vilja ekki heimsfrægð
Nú er Leynilögga frumsýnd í vik-
unni, eru þið spenntir eða stressaðir?
„Nú er ég bara spenntur. Ég var
stressaður í Locarno og London en
nú get ég ekki beðið. En kannski
verð ég stressaður þegar ég sest í
salinn,“ segir Auddi.
„Þetta er svo mikil stemmnings-
mynd, alvörubíó,“ segir Steindi og
Auddi bætir við að tvær útgáfur
verði sýndar af myndinni, fyrir tólf
ára og eldri og sextán ára og eldri, en
í fyrrnefndu útgáfunni hafa nokkrar
blóðugar senur verið klipptar út og
þannig geta fleiri ungmenni séð
myndina.
Dreymir ykkur um heimsfrægð?
„Nei, en það var minn stærsti
draumur í lífinu í mörg ár. Í dag segi
ég nei,“ segir Auddi.
„Ég er bara sáttur í Mosfells-
dalnum,“ segir Steindi.
Þannig að þið bíðið ekki eftir sím-
tali frá Hollywood?
Þeir svara neitandi í einum kór.
„Á meðan fólk á Íslandi hringir
enn í okkur erum við bara mjög sátt-
ir.“
Harðasta löggan í Reykjavík
Það er stór vika fram
undan hjá þeim fé-
lögum Audda og
Steinda, en kvikmynd-
in Leynilögga verður
frumsýnd á miðviku-
daginn og fjölskyldu-
þátturinn Stóra sviðið á
föstudaginn.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Morgunblaðið/Ásdís
Strákarnir eru líka með þátt á Stöð 2 ásamt Steinunni Ólínu sem nefnist Stóra
sviðið. Þeir fá til sín góða gesti en hér sjást þeir með Aroni Can og Bríeti.
Auddi leikur hörðustu lögguna í Reykjavík.
Ljósmynd/Lilja Jóns
Steindi og Auddi leika báðir í kvik-
myndinni Leynilögga sem frum-
sýnd verður á miðvikudaginn.
Myndin er grínhasar af bestu gerð.
Ljósmynd/Baldur Kristjánsson