Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.10.2021, Page 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.10.2021, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.10. 2021 MENNTUN Algeng einkenni B-12 skorts: • Nálardofi í hand- og fótleggjum • Erfiðleikar með gang • Skapsveiflur • Minnisleysi Munnúði tryggir hraða og góða upptöku þar sem vítamínið frásogast auðveldlega í gegnum slímhúðina í munninum og beint út í blóðrásina. Upptaka á B12 gegnum slímhúð í munni er örugg, þægileg og áhrifarík leið til a tryggja líkamanum nægjanlegt magn af B12 vítamíni og til að verja okkur gegn skorti. Útsölustaðir: Apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna. B12 - MUNNÚÐI SEM VIRKAR Þ að er staðreynd að lestur er lykillinn að því að finna alla aðra lykla í námi, þekkingar- leit og þekkingarþróun. Lestur er þannig lykill að menntun sem er sjálfur lykillinn að framtíðinni. Það geta allir, börn, unglingar og full- orðnir, öðlast dýrmætar ánægju- og þroskastundir við bóklestur. Bók- menntaþjóðin þarf að nýta þá mögu- leika sem hún hefur til að skapa auk- inn áhuga fyrir lestri bóka jafnt hjá börnum sem fullorðnum. Greiður að- gangur að skemmtilegum og fræð- andi bókum er mikilvægur og þar gegna bókasöfnin lykilhlutverki sem nokkurs konar heimili bókanna. Áskorun: Bætum stöðu íslenskra barna. Nið- urstöður kannana meðal leikskóla- barna í Hafnarfirði sýna að um það bil 40% þeirra eru í áhættuhópi hvað viðkemur málþróun. Eftir 2. bekk í grunnskóla sýna niðurstöður úr Reykjavík að 40% barna eru ekki læs. 26% 15 ára unglinga skilja ekki þann texta sem þeir lesa, 34% drengja og 19% stúlkna. Brottfall úr framhaldsskólum er einnig hátt á Ís- landi eða 31% drengja, 22% stúlkna og 62% innflytjenda. Hvað brottfall nemenda í háskóla varðar er kynja- hlutfallið hæst hér á landi í löndum OECD en það sýnir að 70% þeirra eru stúlkur og 30% drengir. Þetta er gífurlega alvarleg staða sem hrópar næstum út í tómið. Stjórnmálamenn ræða því miður lítið eða ekkert um vandann eins og kom klárlega fram í aðdraganda kosninga sem haldnar voru 25. september sl. Vísindi: Fremstu fræðimenn í heimi benda á þjálfun sem lykil númer eitt til að bæta lestrarfærni og lesskilning barna og unglinga. Lestur bóka, þjálfun skapandi skrifa og framsögn eru þar mikilvægust. Heikki Lyyt- inen, einn fremsti fræðimaður Finna og í heiminum í lestrarkennslu byrj- enda, segir ástæðuna fyrir góðum ár- angri þeirra í lestri samkvæmt PISA frá árinu 2000 vera öflug bókasöfn í bæjum og borgum ásamt góðum skólabókasöfnum. Bókasöfn eru tæki til að skapa menningu og áhuga fyrir lestri bóka, þau gegna lykilhlutverki við að finna bókina sem lesandinn þarf eða vill hverju sinni. Möguleikar: Til að að skapa áhuga á lestri er mik- ilvægt að finna réttar bækur og ann- að lestrarefni. Jafnframt þarf að bjóða réttar áskoranir miðað við færni á hverjum tíma og taka tillit til áhugasviðs hvers og eins. Bókasöfnin í skólum og bæjarfélögum geta og eiga að vera gullnáma fyrir börn og unglinga, undraveröld sem opnar sí- fellt nýjar og nýjar víðáttur. Samstarf Bókasafn Vestmannaeyja er í sam- starfi við Kveikjum neistann, sem er langtíma þróunar- og rannsóknar- verkefni í Grunnskóla Vestmanna- eyja á vegum Rannsóknarsetursins menntun og hugarfar við HÍ í sam- starfi við Samtök atvinnulífsins (SA). Bókasafnið stendur óvenjulega vel að vígi til að koma inn sem öflugur sam- herji í liðsheildina því yfir 15.000 titl- ar eru skráðir sem barnabækur í Gegni, auk þess fjöldi bóka meðal um 100.000 bóka safnsins sem geta kveikt áhuga barna og unglinga og virkjað þau á þann hátt til lestrar. Bókasafn Vestmannaeyja hefur ævinlega keypt meginþorra þeirra barna- og unglingabóka sem út koma á hverju ári en í tilefni af verkefninu Kveikjum neistann var ákveðið í samráði við bæjaryfirvöld að leggja enn meiri metnað og áherslu á að efla safnkostinn fyrir börn og unglinga. Átaksverkefni Bókasafnið fór af stað í sumar með sérstakt átaksverkefni við að flokka lesefni eftir erfiðleikastigi og áhuga- sviði til að búa sig sem best undir aukið mikilvægi fyrir nemendur grunnskólans og vera sem best í stakk búið til að mæta ólíkum þörf- um. Mikil vinna hefur verið lögð í verkið og nú svigna hillur barna- og unglingadeildanna undan bókum eft- ir ólíkum lykilþáttum, þar sem nem- andinn er leiddur áfram skref fyrir skref eftir getu og áhugasviði. Þarna bíða óþreyjufullar bækur eftir áhugasömum lesurum. Starfsmenn safnsins hafa lagt metnað sinn í að búa til umhverfi þar sem sögu- persónur næstum lifna við með ýms- um listaverkum í barnahornunum sem ýta svo sannarlega undir áhuga barna. Bækurnar eru litamerktar þar sem græni liturinn vísar til bóka sem marka fyrstu kynni barnanna; sá guli til fyrstu sjálfstæðu skref- anna; við appelsínugulan er orðaforði bókanna orðinn fjölbreyttari og meiri krafa um lestrargetu; rauður litur merkir að barnið er orðið vel læst, letrið orðið hefðbundnara, orð geta verið löng og samsett, þegar komið er að fjólubláa litnum eru gerðar ríkari kröfur um lestrarkunn- áttu og bækur verða þykkari. Að lok- um kemur blái liturinn. Hann, eins og kannski eðlilegt er, vísar „út á djúpið“, inn í fullorðinsdeildina þar sem víða má finna bækur sem auð- veldlega geta fangað athyglina – hvort heldur eru bækur um íþróttir eða gæludýr, ævintýri eða ástir, bíla eða þjóðsögur. Markmiðið er að bókasafnið vaxi með barninu og geti á hverjum tíma rétt hverjum ein- staklingi bók og bækur sem henta nákvæmlega þessum einstaklingi á nákvæmlega þessum tíma. Við þróun og útfærslu verkefnisins er Bóka- safnið í nánu samstarfi við Grunn- skóla Vestmannaeyja, einkum starfs- menn bókasafna skólans, ásamt stjórnendum verkefnisins Kveikjum neistann. Kynning Í næstu viku verður blásið til sér- stakrar kynningar á þessu samstarfi. Föstudaginn 22. október munu allir nemendur og kennarar í 1. bekk grunnskólans koma í heimsókn og taka starfsmenn safnsins á móti þeim með margvíslegri dagskrá. Allir nemendur í 1. bekk fengu afhent sitt eigið bókasafnsskírteini fyrir fáein- um vikum og sumir hafa þegar komið á safnið til að taka bækur til láns. Á föstudeginum er ætlunin að virkja öll kort allra nemendanna og að hver og einn hefji sína löngu og mikilvægu lestrargöngu innan veggja safnsins. Daginn eftir, laugardaginn 23. októ- ber, verður opið hús fyrir nemendur og foreldra í 1.-4. bekk grunnskólans, auk þess sem aðrir áhugasamir eru einnig hjartanlega boðnir velkomnir. Ætlunin er að kynna börnum og for- ráðamönnum þeirra það mikla fram- boð sem í boði er á góðum, skemmti- legum, fræðandi og spennandi bókum fyrir alla. Lokaorð Það er einlæg ósk og skoðun grein- arhöfunda að með samstilltu átaki bæjarbúa, Grunnskóla Vestmanna- eyja, Bæjarbókasafnsins og stjórn- enda verkefnisins Kveikjum neistann takist að glæða áhugann á undraver- öld bókanna og efla á þann hátt lestr- argetu og lestraráhuga fyrr og betur meðal nemenda. Fyrir þann fjársjóð sem við erum að vinna með, börnin okkar sem munu erfa landið, er ekk- ert átak þessu mikilvægara. Kveikjum neistann – mikilvægi bókasafna og samstarfs skóla Vísindi ogsamfélag Hermundur Sigmundsson hermundur@hi.is Svava Þ. Hjaltalín Kári Bjarnason Hermundur er prófessor við Norska tækni- og vísindaháskólann í Þrándheimi og við Menntun og hugarfar – rannsóknasetur við Háskóla Íslands. Svava er grunnskólakennari og verk- efnastjóri við Menntun og hugarfar – rannsóknasetur við Háskóla Íslands. Kári er forstöðumaður Bókasafns Vestmannaeyja Bókasafn Vestmannaeyja er þátttakandi í verkefni um að flokka lesefni eftir erfiðleikastigi og áhugasviði til að mæta ólík- um þörfum nemenda og kveikja áhuga barna og unglinga á lestri. Einnig á að efla safnkostinn fyrir börn og unglinga.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.