Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.10.2021, Side 32
SUNNUDAGUR 17. OKTÓBER 2021
AVANA model 2570
L 224 cm Leður ct. 15 Verð 509.000,-
L 244 cm Leður ct. 15 Verð 529.000,-
LEUCA model 3186
L 167 cm Leður ct. 15 Verð 369.000,-
L 207 cm Leður ct. 15 Verð 419.000,-
STAN model 3035
L 170 cm Leður ct. 15 Verð 399.000,-
L 206 cm Leður ct. 15 Verð 449.000,-
ESTRO model 3042
L 164cm Leður ct. 25 Verð 409.000,-
L 198 cm Leður ct. 25 Verð 459.000,-
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
LEVANTE model 3187
L 204 cm Leður ct. 25 Verð 459.000,-
L 224 cm Leður ct. 25 Verð 479.000,-
CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur
(Visa / Euro) í allt að 6 mánuði.
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
Opið virka daga 10-18, laugardaga 11-15
Nei, ókei er 12 laga LP-plata, sú fyrsta með hljómsveitinni Dr.
Gunna síðan prjál-útgáfan Í sjoppu kom út 2015, og fyrsta
alvöruplatan síðan Stóri hvellur kom út 2003. Platan er komin út
á Spotify en kemur einnig út á Vínyl í nóvember. Auk Gunnars
Hjálmarssonar skipa Guðmundur Birgir Halldórsson, Grímur
Atlason og Kristján Freyr Halldórsson sveitina.
Hljómsveitin mun koma fram á útgáfutónleikum þann 21.
október á Húrra þar sem platan verður leikin í heild sinni ásamt
eldri lögum. Jón Gnarr & Hamfarabandið sér um að hita mann-
skapinn upp ásamt Elizu Newman. Miðasala er á tix.is. Dr.
Gunni kemur einnig fram á Eyrarrokki á Akureyri þann 22.
október.
Á Nei, ókei er að finna lög á borð við Aumingi með Bónus-
poka, Mér finnst ég ætti að gráta meira og Fuglahræðan í
Hvassaleiti. Meðal gestasöngvara er Eiríkur Hauksson.
Dr. Gunni ásamt
bandingjum sínum.
Ný plata frá Dr. Gunna
Nei, ókei er fyrsta stóra platan sem hljómsveitin
Dr. Gunni sendir frá sér í heil átján ár.
Platan Nei, ókei með hljómsveitinni Dr.
Gunna er komin út á Spotify.
Hlaðvarpinn í Morgunblaðinu
spurði áleitinnar spurningar á
þessum degi árið 1981: Er
Mokka listamannakaffi? Nokkr-
ir listamenn urðu fyrir svörum,
þeirra á meðal Thor Vilhjálms-
son rithöfundur.
„Ég er eiginlega ekki nógu
staðfastur gestur þarna til að
geta sagt af eða á um það,“
svaraði hann. „Það kemur líka
til álita hverja ég kalla lista-
menn. Þetta er vingjarnlegur
staður, og geðgóður gestgjafinn
og hans fólk enda menntaður í
bel cantó á Ítalíu áður en
hjaðningavígin spilltu því
landi.“
Atli Heimir Sveinsson tón-
skáld svaraði því til að Mokka
væri listamannakaffi öðrum
þræði – „eða manni virðist að
listamenn hafi frekar leitað
þangað en á aðrar kaffistofur,
síðan það var stofnað.“
Hringur Jóhannesson mynd-
listarmaður sagði Mokka þann
stað sem langhelst stæði undir
því hér í bæ að vera lista-
mannakaffi. „Ástæðurnar fyrir
því að ég kem þangað eru hæfi-
lega stórt, notalegt umhverfi,
gott kaffi, gott súkkulaði og
góðir kunningjar, sem margir
hverjir flokkast sjálfsagt undir
það sem felst í spurningunni.“
GAMLA FRÉTTIN
List með
kaffinu
Kaffihúsið Mokka var opnað árið 1958 og hefur glettilega lítið breyst síðan.
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Ari Freyr Skúlason
landsliðsmaður í knattspyrnu
Sólveig Anna Jónsdóttir
formaður Eflingar
Sigríður Björg Tómasdóttir
almannatengill Kópavogsbæjar