Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.10.2021, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.10. 2021
MENNTUN
Algeng einkenni B-12 skorts:
• Nálardofi í hand- og fótleggjum
• Erfiðleikar með gang
• Skapsveiflur
• Minnisleysi
Munnúði tryggir hraða og góða upptöku
þar sem vítamínið frásogast auðveldlega í
gegnum slímhúðina í munninum og beint út í
blóðrásina. Upptaka á B12 gegnum slímhúð í
munni er örugg, þægileg og áhrifarík leið til a
tryggja líkamanum nægjanlegt magn af B12
vítamíni og til að verja okkur gegn skorti.
Útsölustaðir: Apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna.
B12 - MUNNÚÐI SEM VIRKAR
Þ
að er staðreynd að lestur er
lykillinn að því að finna alla
aðra lykla í námi, þekkingar-
leit og þekkingarþróun. Lestur er
þannig lykill að menntun sem er
sjálfur lykillinn að framtíðinni. Það
geta allir, börn, unglingar og full-
orðnir, öðlast dýrmætar ánægju- og
þroskastundir við bóklestur. Bók-
menntaþjóðin þarf að nýta þá mögu-
leika sem hún hefur til að skapa auk-
inn áhuga fyrir lestri bóka jafnt hjá
börnum sem fullorðnum. Greiður að-
gangur að skemmtilegum og fræð-
andi bókum er mikilvægur og þar
gegna bókasöfnin lykilhlutverki sem
nokkurs konar heimili bókanna.
Áskorun:
Bætum stöðu íslenskra barna. Nið-
urstöður kannana meðal leikskóla-
barna í Hafnarfirði sýna að um það
bil 40% þeirra eru í áhættuhópi hvað
viðkemur málþróun. Eftir 2. bekk í
grunnskóla sýna niðurstöður úr
Reykjavík að 40% barna eru ekki
læs. 26% 15 ára unglinga skilja ekki
þann texta sem þeir lesa, 34%
drengja og 19% stúlkna. Brottfall úr
framhaldsskólum er einnig hátt á Ís-
landi eða 31% drengja, 22% stúlkna
og 62% innflytjenda. Hvað brottfall
nemenda í háskóla varðar er kynja-
hlutfallið hæst hér á landi í löndum
OECD en það sýnir að 70% þeirra
eru stúlkur og 30% drengir. Þetta er
gífurlega alvarleg staða sem hrópar
næstum út í tómið. Stjórnmálamenn
ræða því miður lítið eða ekkert um
vandann eins og kom klárlega fram í
aðdraganda kosninga sem haldnar
voru 25. september sl.
Vísindi:
Fremstu fræðimenn í heimi benda á
þjálfun sem lykil númer eitt til að
bæta lestrarfærni og lesskilning
barna og unglinga. Lestur bóka,
þjálfun skapandi skrifa og framsögn
eru þar mikilvægust. Heikki Lyyt-
inen, einn fremsti fræðimaður Finna
og í heiminum í lestrarkennslu byrj-
enda, segir ástæðuna fyrir góðum ár-
angri þeirra í lestri samkvæmt PISA
frá árinu 2000 vera öflug bókasöfn í
bæjum og borgum ásamt góðum
skólabókasöfnum. Bókasöfn eru tæki
til að skapa menningu og áhuga fyrir
lestri bóka, þau gegna lykilhlutverki
við að finna bókina sem lesandinn
þarf eða vill hverju sinni.
Möguleikar:
Til að að skapa áhuga á lestri er mik-
ilvægt að finna réttar bækur og ann-
að lestrarefni. Jafnframt þarf að
bjóða réttar áskoranir miðað við
færni á hverjum tíma og taka tillit til
áhugasviðs hvers og eins. Bókasöfnin
í skólum og bæjarfélögum geta og
eiga að vera gullnáma fyrir börn og
unglinga, undraveröld sem opnar sí-
fellt nýjar og nýjar víðáttur.
Samstarf
Bókasafn Vestmannaeyja er í sam-
starfi við Kveikjum neistann, sem er
langtíma þróunar- og rannsóknar-
verkefni í Grunnskóla Vestmanna-
eyja á vegum Rannsóknarsetursins
menntun og hugarfar við HÍ í sam-
starfi við Samtök atvinnulífsins (SA).
Bókasafnið stendur óvenjulega vel að
vígi til að koma inn sem öflugur sam-
herji í liðsheildina því yfir 15.000 titl-
ar eru skráðir sem barnabækur í
Gegni, auk þess fjöldi bóka meðal um
100.000 bóka safnsins sem geta
kveikt áhuga barna og unglinga og
virkjað þau á þann hátt til lestrar.
Bókasafn Vestmannaeyja hefur
ævinlega keypt meginþorra þeirra
barna- og unglingabóka sem út koma
á hverju ári en í tilefni af verkefninu
Kveikjum neistann var ákveðið í
samráði við bæjaryfirvöld að leggja
enn meiri metnað og áherslu á að efla
safnkostinn fyrir börn og unglinga.
Átaksverkefni
Bókasafnið fór af stað í sumar með
sérstakt átaksverkefni við að flokka
lesefni eftir erfiðleikastigi og áhuga-
sviði til að búa sig sem best undir
aukið mikilvægi fyrir nemendur
grunnskólans og vera sem best í
stakk búið til að mæta ólíkum þörf-
um. Mikil vinna hefur verið lögð í
verkið og nú svigna hillur barna- og
unglingadeildanna undan bókum eft-
ir ólíkum lykilþáttum, þar sem nem-
andinn er leiddur áfram skref fyrir
skref eftir getu og áhugasviði. Þarna
bíða óþreyjufullar bækur eftir
áhugasömum lesurum. Starfsmenn
safnsins hafa lagt metnað sinn í að
búa til umhverfi þar sem sögu-
persónur næstum lifna við með ýms-
um listaverkum í barnahornunum
sem ýta svo sannarlega undir áhuga
barna. Bækurnar eru litamerktar
þar sem græni liturinn vísar til bóka
sem marka fyrstu kynni barnanna;
sá guli til fyrstu sjálfstæðu skref-
anna; við appelsínugulan er orðaforði
bókanna orðinn fjölbreyttari og
meiri krafa um lestrargetu; rauður
litur merkir að barnið er orðið vel
læst, letrið orðið hefðbundnara, orð
geta verið löng og samsett, þegar
komið er að fjólubláa litnum eru
gerðar ríkari kröfur um lestrarkunn-
áttu og bækur verða þykkari. Að lok-
um kemur blái liturinn. Hann, eins
og kannski eðlilegt er, vísar „út á
djúpið“, inn í fullorðinsdeildina þar
sem víða má finna bækur sem auð-
veldlega geta fangað athyglina –
hvort heldur eru bækur um íþróttir
eða gæludýr, ævintýri eða ástir, bíla
eða þjóðsögur. Markmiðið er að
bókasafnið vaxi með barninu og geti
á hverjum tíma rétt hverjum ein-
staklingi bók og bækur sem henta
nákvæmlega þessum einstaklingi á
nákvæmlega þessum tíma. Við þróun
og útfærslu verkefnisins er Bóka-
safnið í nánu samstarfi við Grunn-
skóla Vestmannaeyja, einkum starfs-
menn bókasafna skólans, ásamt
stjórnendum verkefnisins Kveikjum
neistann.
Kynning
Í næstu viku verður blásið til sér-
stakrar kynningar á þessu samstarfi.
Föstudaginn 22. október munu allir
nemendur og kennarar í 1. bekk
grunnskólans koma í heimsókn og
taka starfsmenn safnsins á móti þeim
með margvíslegri dagskrá. Allir
nemendur í 1. bekk fengu afhent sitt
eigið bókasafnsskírteini fyrir fáein-
um vikum og sumir hafa þegar komið
á safnið til að taka bækur til láns. Á
föstudeginum er ætlunin að virkja öll
kort allra nemendanna og að hver og
einn hefji sína löngu og mikilvægu
lestrargöngu innan veggja safnsins.
Daginn eftir, laugardaginn 23. októ-
ber, verður opið hús fyrir nemendur
og foreldra í 1.-4. bekk grunnskólans,
auk þess sem aðrir áhugasamir eru
einnig hjartanlega boðnir velkomnir.
Ætlunin er að kynna börnum og for-
ráðamönnum þeirra það mikla fram-
boð sem í boði er á góðum, skemmti-
legum, fræðandi og spennandi
bókum fyrir alla.
Lokaorð
Það er einlæg ósk og skoðun grein-
arhöfunda að með samstilltu átaki
bæjarbúa, Grunnskóla Vestmanna-
eyja, Bæjarbókasafnsins og stjórn-
enda verkefnisins Kveikjum neistann
takist að glæða áhugann á undraver-
öld bókanna og efla á þann hátt lestr-
argetu og lestraráhuga fyrr og betur
meðal nemenda. Fyrir þann fjársjóð
sem við erum að vinna með, börnin
okkar sem munu erfa landið, er ekk-
ert átak þessu mikilvægara.
Kveikjum neistann – mikilvægi
bókasafna og samstarfs skóla
Vísindi ogsamfélag
Hermundur Sigmundsson hermundur@hi.is
Svava Þ. Hjaltalín
Kári Bjarnason
Hermundur er prófessor við Norska
tækni- og vísindaháskólann í Þrándheimi
og við Menntun og hugarfar –
rannsóknasetur við Háskóla Íslands.
Svava er grunnskólakennari og verk-
efnastjóri við Menntun og hugarfar –
rannsóknasetur við Háskóla Íslands.
Kári er forstöðumaður Bókasafns
Vestmannaeyja
Bókasafn Vestmannaeyja er þátttakandi í verkefni um að flokka lesefni eftir erfiðleikastigi og áhugasviði til að mæta ólík-
um þörfum nemenda og kveikja áhuga barna og unglinga á lestri. Einnig á að efla safnkostinn fyrir börn og unglinga.