Morgunblaðið - 04.11.2021, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 04.11.2021, Blaðsíða 52
52 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2021 Norska sendiráðið í Reykjavík óskar eftir manneskju til starfa í 50% stöðu við sendiherrabústaðinn norska, frá 1. janúar 2022. Viðkomandi mun sjá um undirbúning fyrir móttökur, veislur og matarboð í sendiherrabústaðnum; dekka borð, þjóna og tiltekt eftir á. Einnig mun viðkomandi sjá um hreingerningu á sendiherrabústaðnum, bæði opinbera hlutanum og einkahýbílum sendiherrans. Ásamt íslensku er óskað eftir að viðkomandi tali amk. eitt norðurlandatungumál. Óskað er eftir meðmælum. Laun eru samkvæmt samkomulagi. Umsóknir sendist á netfang sendiráðsins emb.reykjavik@mfa.no Auður svarar fyrirspurnum í síma 520 0700, milli kl. 9-13 virka daga, eða gegnum netfangið emb.reykjavik@mfa.no Umsóknarfrestur er til og með 15. nóvember 2021. Starfsmaður óskast Líf og sál vantar liðsauka Við hjá Lífi og sál erum þéttur hópur sálfræðinga og sáttamiðlara og vinnum fyrir einstaklinga, starfshópa og stjórnendur. Líf og sál hefur verið starfrækt í rúm tuttugu ár og býr því yfir mikilli reynslu á vettvangi meðferðar sem og vinnusálfræði. Nú leitum við að sálfræðingi í teymið okkar. Umsóknarfrestur um starfið er til 15.nóvember 2021. Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna. Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um færni viðkomandi til að gegna starfinu. Umsókn berist til Þórkötlu Aðalsteinsdóttur sálfræðings og framkvæmdastjóra Lífs og sálar, thorkatla@lifogsal.is. Sjá nánar um Líf og sál á www.lifogsal.is. Starfssvið ! Meðferðarvinna fullorðinna. ! Handleiðsla og ráðgjöf til fagfólks og stjórnenda. ! Úttektir vegna sálfélagslegra áhættuþátta á vinnustöðum. ! Fræðsla í formi fyrirlestra og námskeiða. ! Önnur tilfallandi verkefni á sviði meðferðar og vinnusálfræði. Hæfniskröfur ! Löggilding til starfa sem sálfræðingur á Íslandi. ! Klínísk reynsla æskileg. ! Reynsla af verkefnum á sviði vinnusálfræði æskileg. ! Framúrskarandi samskiptafærni. ! Áhugi á teymisvinnu. ! Fagmennska, frumkvæði og drifkraftur. ! Ögun í vinnubrögðum og sveigjanleiki. ! Góð íslenskukunnátta og kunnátta í erlendum tungumálum í töluðu og rituðu máli. Landsnet | Gylfaflöt 9 | 112 Reykjavík | Sími 563 9300 | landsnet@landsnet.is | www.landsnet.is Við leitum að reynslumiklum sérfræðingi með ríka öryggisvitund til að takast á við spennandi verkefni á sviði upplýsingatækni í samhentu UT-teymi okkar. Upplýsingatækni gegnir veigamiklu hlutverki í allri starfsemi Landsnets og felur starfið í sér ábyrgð á rekstri allra grunninnviða auk tæknilegra öryggismála. Flutningskerfi raforku á Íslandi treystir á uppitíma og rekstraröryggi tölvukerfanna og því er um krefjandi og ábyrgðarmikið starf að ræða. Umsóknarfrestur er til 13. nóvember 2021. Sótt er um starfið á landsnet.is. Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf. Nánari upplýsingar veitir mannauðsdeild á mannaudur@landsnet.is. Hæfniskröfur • Umfangsmikil reynsla af rekstri mikilvægra innviða í stærri fyrirtækjum • Góð þekking á uppsetningu og rekstri: - sýndarumhverfa og skýjalausna - stýrikerfa netþjóna (Windows/Linux) og SQL-innviða - eldveggja, afritunarlausna og eftirlitskerfa • Góð þekking á net- og upplýsingaöryggi • Sjálfstæð og öguð vinnubrögð Starfs- og ábyrgðarsvið • Umsjón með daglegum rekstri upplýsingatæknikerfa Landsnets • Eftirlit með afköstum og rekstraröryggi upplýsingakerfa • Þátttaka í innleiðingum og úrbótaverkefnum • Samskipti við þjónustuaðila Landsnets á sviði upplýsingatæknimála Ert þú sérfræðingur í rekstri upplýsinga- tæknikerfa?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.