Morgunblaðið - 04.11.2021, Side 2
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2021
Bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tv
ill
ur
.H
ei
m
sf
er
ði
rá
sk
ilj
a
sé
rr
ét
tt
il
le
ið
ré
tti
ng
a
á
sl
ík
A
h
ð
ð
595 1000
Kanarí
ku
.A
th
.a
t
1. til 20. desember
Nítján nætur!
Flug & hótel frá
122.300
19 nætur
Verð frá kr.
150.800
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir mm@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
Ragnheiður Gunnarsdóttir, sem
rekur kattaathvarfið Kisukot á
Akureyri, er óánægð með ákvörðun
yfirvalda þar í bæ um að banna
lausagöngu katta frá 1. janúar 2025
og aðgerðaleysi í málaflokknum
undanfarin ár.
Hún tekur það fram að hún hafi
ekkert á móti því að fólk haldi inni-
ketti ef það hefur möguleika á því en
það séu ekki allir kettir sem geti ver-
ið innikettir. „Það eru þeir kettir
sem ég hef áhyggjur af. Maður hefur
oft heyrt um ketti sem á að halda
inni en mótmæla þessari inniveru,
pissa til dæmis inni.“
Þessi þriggja ára frestur dugir
skammt fyrir þá útiketti sem verða
enn á besta aldri árið 2025. „Sumir
kettir munu alveg venjast þessu en
maður veit um ketti sem munu aldr-
ei sætta sig við þetta, og það er
spurningin hvað muni verða um
þessa ketti.“
Ragnheiður tekur undir það
sem kom fram í bókun Hildar Jönu
Gísladóttur um að frekar ætti að
takmarka lausagöngu á nóttunni og
á varptíma fugla. „Mér finnst alveg
sjálfsagt að kattaeigendur geri það.“
Henni finnst hins vegar gróft að
ætla að banna lausagönguna alfarið
og segist ekki vita hvernig farið
verði að því að framkvæma þetta.
Ragnheiður er gagnrýnin á
frammistöðu bæjaryfirvalda í katta-
málum undanfarin ár. Hún segist
hafa fengið upplýsingar um að engir
kettir hafi komið í dýrageymslu Ak-
ureyrarbæjar síðan 2017.
„Dýraeftirlitsmaður á að fanga
þau dýr sem eru á vergangi en það
hefur ekki einn einasti köttur komið
í þessa geymslu. Ég er búin að vera
að þessu í næstum tíu ár og er búin
að taka hundruð katta af götunum.
Ég hvet bæjarstjórnina til þess að
íhuga að styðja þá sem eru að gera
eitthvað fyrir ketti í bænum í stað
þess að fara í boð og bönn.“
Hefur miklar áhyggjur og
gagnrýnir aðgerðaleysi
Morgunblaðið/Unnur Karen
Gagnrýni Sumir kettir munu ekki
sæta sig við inniveru.
- Bann við lausa-
göngu katta
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Úthlutun aflaheimilda í loðnu upp á
um 627 þúsund tonn raskaði hlut-
föllum og hafði það í för með sér að
leyfilegt heildarverðmæti aflahlut-
deilda allra tegunda hjá Brimi hf.
fer í 13,2%. Leyfilegt hámark afla-
hlutdeilda í heild í eigu hverrar út-
gerðar er 12% af úthlutuðum þorsk-
ígildum. Guðmundur Kristjánsson,
forstjóri Brims, segir að fyrirtækið
hafi nú sex mánuði til að bregðast
við og selja frá sér heimildir.
„Þessi niðurstaða Fiskistofu sýnir
í hnotskurn
hversu rangur
mælikvarði
þorskígildisstuð-
ullinn er,“ segir
Guðmundur.
„Það sem gerist
hjá Brimi er að
loðnan fær mjög
háan stuðul á
þessu fiskveiðiári
þar sem í vetur
voru tiltölulega fá tonn veidd, en
seld á háu verði eftir tvö loðnulaus
ár á undan. Þetta gerir það að verk-
um að við förum yfir hámarkið.“
Hann segir að verðmæti loðnukvót-
ans í þorskígildum á þessu fisk-
veiðiári sé 30% meira heldur en
allra aflaheimilda í þorski. Slíkt
standist ekki.
Frekar þak í hverri tegund
„Ég myndi vilja að þak í hverri
fisktegund myndi ráða hámarkinu.
Það er einfalt og gagnsætt kerfi,
auðvelt að fylgjast með og kostar
ekki flókið eftirlitskerfi né mikla
peninga,“ segir Guðmundur. Hann
segir að Íslendingar séu eina þjóðin
sem noti þá aðferðafræði að miða
við þorskígildisstuðla og ekki sé
nokkur leið að útskýra fyrir útlend-
ingum hvernig þakið sé fundið út. Í
loðnu er miðað við að aflaheimildir
einstakra útgerða séu að hámarki
20% og er Brim með 18% heimilda í
tegundinni.
Í tilkynningu á heimasíðu Fiski-
stofu segir að líkt og undanfarin ár
sé Brim hf. hæst í aflamarkskerf-
inu. Breytingar hafi orðið á næstu
sætum sem skýrist af úthlutun í
loðnu.
Í krókaaflamarkskerfinu fara tvö
félög yfir 4% leyfilega aflahlutdeild
í þorski, Háaöxl ehf. með 4,22% og
Stakkavík ehf. með 4,01%.
Brim skaust upp fyrir kvótaþakið
- Hafa sex mánuði til að bregðast við - Stór loðnukvóti raskaði hlutföllum - Forstjórinn vill ólíkt kerfi
Guðmundur
Kristjánsson
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Akurey Leyfilegt hámark nemur
12% af úthlutuðum þorskígildum.
Þótt enn séu 50 dagar til jóla mátti sjá fótfrá-
an jólasvein á hraðferð í miðborg Reykjavík-
ur í gær. Margar verslanir eru þegar farnar
að selja jólavarning og greiðsludreifingarfyr-
irtæki byrjuð að bjóða fólki að greiða desem-
berreikningana í febrúar.
Jólasveinar landsins hafa samt sem áður
nægan tíma til stefnu en Stekkjastaur kemur
til byggða aðfaranótt 12. desember, sem er
eftir 38 daga. Miðar á jólatónleika eru enn fá-
anlegir og borð laus á mörgum jólahlað-
borðum, sem hefjast senn.
Morgunblaðið/Eggert
Jólin knýja á dyr við rætur Hallgrímskirkju