Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.11.2021, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.11.2021, Blaðsíða 3
Opið bréf til skólastjórnenda, heilbrigðisstétta, foreldra og aðstandenda allra barna á Íslandi Eftirfarandi línur eru ritaðar til skólastjórnenda, starfsmanna heilbrigðisstofnana og forráðamanna barna vegna þess sem telja má uggvænlegar aðgerðir gagnvart börnum og ungmennum í nafni sóttvarna. Með hliðsjón af þeim miklu almannahagsmunum sem í húfi eru væntum við þess að þeir sem á komandi dögum og vikum fá fyrirspurnir varðandi þessi mál víki sér ekki undan því að bregðast umsvifalaust við með skýrum svörum. Við væntum þess að svörin verði studd tilvísunum til vísindalegra rannsókna og þeirra gagna sem skólastjórnendur og heilbrigðisstarfsmenn styðjast við í ákvörðunum um þátttöku í þessum aðgerðum. Virðingarfyllst, SAMTÖKIN FRELSI OG ÁBYRGÐ www.frelsiogabyrgd.is VIÐVILJUM SVÖR Skólastjórnendum og heilbrigðisstarfsmönnum sem taka þátt í aðgerðum stjórnvalda ber, líkt og stjórnvöldum, að leggja heildarmat á þær aðgerðir sem þau taka þátt í og standa fyrir, þ.m.t. áhættu, kostnað og ábata. Á þessum forsendum eru allir hlutaðeigandi starfsmenn hvattir til að íhuga ábyrgð sína og varast þátttöku í aðgerðum sem geta skaðað þá sem aðgerðirnar beinast að. Starfsfólk hefur rétt til að standa gegn hvers kyns þrýstingi um að láta sprauta sig eða sprauta aðra án upplýsts samþykkis. Einnig er þess krafist að skólastjórnendur og viðkomandi heilbrigðisstarfsmenn veiti skilmerkileg svör við spurningum sem foreldrar og aðrir kunna að hafa varðandi þessar aðgerðir. Hér er dæmi um bréf frá einum af skólum landsins sem sýnir glöggt ósanngjarnan þrýsting sem nemendur eru beittir. Þetta er aðeins eitt af fjölmörgum álíka bréfum, sem send hafa verið beint til nemenda: „Þetta ástand undirstrikar mikilvægi þess að gæta að einstaklingsbundnum sóttvörnum. Við skorum á nemendur að vera alltaf með grímu og gæta að sóttvörnum allar stundir. Enn fremur skorum við á þá sem hafa ekki fengið bólusetningu að gera það sem fyrst og nýta sér viðbótarsprautu ef það er í boði.“ Dánartíðni barna af völdum SARS-COV 2 er afar lág og sjaldgæft er að börn veikist af SARS-COV 2 eða þurfi sjúkrahúsvist. Hins vegar hafa nú þegar verið tilkynnt fjölmörg dæmi um alvarlegar aukaverkanir, m.a. um hjartavandamál sem er vel þekkt afleiðing af þessum sprautum og að minnsta kosti 8 tilfelli um lömun eða skerta hreyfigetu. Hvernig er hægt að hvetja foreldra til að senda börn sín í slíka sprautu og hvers vegna er fullyrt að ávinningur af sprautunum sé meiri en áhættan þegar rannsóknir benda til annars? Vissir þú af þessum afleiðingum? Munt þú, heilbrigðisstofnunin, leikskólinn eða skólinn sem þú vinnur hjá eða veitir forstöðu taka ábyrgð á veikindum og skaðlegum eftirköstum ef foreldrar svara hvatningu þinni um að mæta með börnin í sprautu? Þekkirðu Nürnberg-sáttmálann? Þar kemur meðal annars fram að það telst ekki málsvörn að hafa fylgt fyrirmælum og firrir engan ábyrgð. Í því samhengi er ljóst að menn geta ekki vikið sér undan ábyrgð með skírskotun til þess að slíkt hafi verið „fyrirskipað“. Siðferðilegir valkostir framkalla siðferðilega ábyrgð. Við skorum á þig að horfast í augu við þá ábyrgð og axla hana. Börnin eiga að njóta vafans.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.