Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.11.2021, Qupperneq 17

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.11.2021, Qupperneq 17
léttstígur tölta af stað þegar merkið berst um að 6 mánuðir séu loks liðnir frá 2. sprautu, bera upphand- legginn við þeirri 3. og vona það besta. Til dæmis það, að þótt leitað yrði eins og að nál í heystakki þá væru þeir hættir að finna eða að minnsta kosti að segja frá veiru sem faldi sig í Belgíu eftir baslferð frá Suður- Afríku eða annarri sem hefði lagt sig í Lima í Perú svo ekki væri hægt að koma sér á óvart. Stórfréttirnar, hvað varð um þær? En hvað sem því líður þykir bréfritara allt að því und- arlegt hversu fálega hefur verið fjallað um bláhvítu töfluna frá Pfizer, og ekki bara hana. Hver er skýr- ingin á því? Morgunblaðið sagði varfærnislega frá þeim, en að öðru leyti hefur umgengni um þetta stór- mál minnt mest á bekkjarbræður á skólaballi að þykj- ast ekki að sjá unga fegurðardís sem var nýkomin í skólann. Það sem sagt var um töfluna gaf til kynna að sú hefði styrk til þess að slá á veikindi, svo ekki sé tal- að um lokapunkt þeirra í 90 prósentum tilvika. Það myndi leiða til þess að hið þráláta tal um að vernda sjúkrahúsin gegn því að vernda okkur yrði sjálfkrafa úr sögunni. Í byrjun nóvember, þess sama sem nú er næstum liðinn, sá bréfritari í fréttum sagt frá nýju bláhvítu töflunni frá Pfizer. Lagði hann því við eyrun þegar upplýst var að Joe Biden myndi flytja tilkynningu, og það þótt fyrri tilkynningar hans hefðu fram að því varla náð að halda okkur hvorugum vakandi nema um örskotsstund. Forsetinn sagðist hafa gefið FDA (Food and Drug Administration) heimild til að tryggja sér milljónir taflna frá Pfizer, sem meðhöndlaði þá sem smitast höfðu af veirunni, og yrði það mikilvægt vopn í barátt- unni við hana. En þá er það fyrsta fréttin En þessi frétt hefði átt að vera önnur í röðinni. Í grein eftir Dhynv Khullar, lækni og kennara í fræðunum, sem birtist 21. þessa mánaðar í The New Yorker og er mjög athyglisverð, segir höfundurinn frá rannsakendunum Emory, sem unnu að lyfi til varnar gegn Covid-veirunni. Þeir nefndu lyfið sem þeir þróuðu Molnupiravin, eða eins og þeir sögðu sjálfir „eftir Mjölni, the hammer of Thor“. Þeir framseldu svo afurðir rannsóknar sinnar til Ridgeback Biotherapeutics, sem fór síðan í samstarf við lyfjarisann Merck. Í tilraunaskyni var lyfið m.a. gefið 400 sjúklingum og enginn þeirra dó í framhaldi af meðferðinni. Síðar í greininni segir höfundurinn að Molnupiravin sýnist líklegt til að verða virkt gegn öll- um helstu þekktu afbrigðum veirunnar. Og síðar segir höfundurinn enn: „Daginn eftir að Bretar heimiluðu Molnupiravin, lyf Mercks, tilkynnti Pfizer að and- veirulyfið Paxlovid væri einnig með næsta ótrúlega virkni til að koma í veg fyrir að veiran hefði áfram- haldandi neikvæð áhrif á sjúklinga í áhættuflokki. Skipti miklu í því sambandi að lyfjagjöf hæfist innan þriggja daga frá smiti. En nú væri verið að yfirfara og þróa enn virkni lyfsins, svo að ekki breytti öllu þótt lyfjagjöf hæfist eitthvað síðar.“ Ekki væri óeðlilegt að rauðu litirnir í kauphöllunum yrðu aðrir í framhaldinu. Morgunblaðið/Eggert 28.11. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.