Morgunblaðið - 06.12.2021, Side 2
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. DESEMBER 2021
ÚRVAL ÚTSÝN HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 INFO@UU.IS
JÓL OG ÁRAMÓT
Á TENERIFE EÐA ALICANTE
23. DESEMEBER - 07. JANÚAR
22. DESEMEBER - 05. JANÚAR
TENERIFE
ALICANTE
Tryggðu þér sæti út í sól um jólin
fyrir alla fjölskylduna. Slappaðu af
um hátíðarnar á hóteli fjarri öllu
jólaamstri.
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Ari Páll Karlsson
Ragnhildur Þrastardóttir
Sú bylgja Covid-smita sem hófst
undir lok októbermánaðar virðist
vera á niðurleið miðað við smittölur
síðustu daga og nýlega birt gögn
benda til þess að þriðji skammtur
bóluefnis gefi góða raun. Þórólfur
Guðnason sóttvarnalæknir segir
kúrvuna „mjakast niður“ en gangi
hægt. Thor Aspelund, prófessor í líf-
tölfræði við Háskóla Íslands, segir
að með þriðja skammti af bóluefni fái
fólk 90 prósentum meiri vörn gegn
Covid-19 en það hafði áður fengið
með öðrum skammti. Ný gröf á Co-
vid.is leiða í ljós verulegan mun á ný-
gengi smita hjá þeim sem hafa fengið
tvo skammta og þrjá og er nýgengið
enn hærra hjá óbólusettum.
14 daga nýgengi á hverja 100.000
íbúa stendur nú í 751 hjá óbólusett-
um fullorðnum, 478 hjá fullbólusett-
um en aðeins 56 hjá þeim sem hlotið
hafa þrjá skammta af bóluefninu, eða
um 9 sinnum færri en þeir sem hlotið
hafa tvær sprautur og rúmlega 13
sinnum færri en óbólusettir. Um
90% landsmanna eru fullbólusett og
þar af hafa tæplega 114 þúsund hlot-
ið þriðju sprautuna. Þá eru um 25
þúsund yfir 12 ára óbólusettir.
Þórólfur Guðnason sóttvarna-
læknir skilaði um helgina minnis-
blaði til Willums Þórs Þórssonar
heilbrigðisráðherra um áframhald-
andi aðgerðir innanlands, hinu fyrsta
sem Willum tekur við í embættinu.
„Mér finnst áfram að við séum að
mjaka okkur niður kúrvuna og ég
vona að það haldi áfram. Þetta geng-
ur hægt. Við megum búast við fleiri
tilfellum eftir helgi eins og áður. Það
kemur bara í ljós,“ sagði Þórólfur í
samtali við Morgunblaðið um
helgina.
Hágæslustæði í fyrsta skipti
Tveimur nýjum hágæslustæðum
var bætt við gjörgæslu Landspítal-
ans á Hringbraut og greint frá því á
heimasíðu spítalans um helgina.
Þetta mun vera í fyrsta skipti sem
hágæslustæði eru tekin í notkun á
sjúkrahúsinu, hingað til hafa há-
gæslusjúklingar að jafnaði vistast á
gjörgæsludeildum spítalans. Þegar
eru fjögur hágæslustæði á Landspít-
alanum Fossvogi, sem opnuð voru
fyrir tæpum tveimur árum. Með til-
komu rýmanna er búist við að mikið
létti á gjörgæslunni á Hringbraut.
Morgunblaðið/Eggert
Bólusett Um 114 þúsund einstaklingar hafa hlotið þriðja skammt bóluefnis og er nýgengi á hverja 100 þúsund 56.
Óbólusettir 13 sinnum
líklegri til að smitast
- Reynt á áhrif þriðja skammtsins - Kúrvan mjakast niður
Norðmaðurinn Magnus Carlsen,
heimsmeistari í skák, sigraði hinn
rússneska Ian Nepomniachtchi
(Nepó) í áttundu einvígisskák þeirra
um heimsmeistaratitilinn í skák í
gær. Þetta er annar sigur Carlsens
en hann sigraði Nepó í sjöttu skák-
inni þeirra eftir æsispennandi enda-
tafl.
Carlsen var með hvítt í gær og lék
fram kóngspeðinu, skákin þróaðist
síðan yfir í hina svokölluðu Petrovs-
vörn eða rússnesku vörn. Hún er
þekkt fyrir að leiða til jafnteflis og
var til dæmis tefld af Fabiano Ca-
ruana á móti Carlsen í síðasta
heimsmeistaraeinvígi en þar enduðu
allar kappskákirnar í jafntefli.
Carlsen náði þó hægt og bítandi
að koma sér í aðeins betri stöðu þó
hún væri metin af skáktölvunni sem
fremur jöfn en í 21. leik lék Nepó
b5?? sem leiddi til þess að Carlsen
komst peði yfir og fékk betri stöðu.
Eftir afleikinn virtist Nepó ekki
sáttur og er líklegt að reiðin hafi náð
til hans en aðeins nokkrum leikum
seinna var Carlsen kominn í vinn-
ingsstöðu að mati skáktölvunnar.
Nepó gafst þó ekki upp og hélt
ótrauður áfram, hann neyddist til
þess að skipta upp í drottninga-
endatafl sem var koltapað en hann
hélt í vonina um að Carlsen myndi
leika af sér eða að hann næði að
kreista fram þrátafl. Því miður fyrir
hann varð ekki af því og Nepó gafst
upp í 46. leik þegar Carlsen var
kominn þremur peðum yfir og í
vinningsstöðu.
Á blaðamannafundinum sögðust
báðir skákmennirnir vera þreyttir
og fegnir að ekki yrði teflt í dag.
Sex skákir eru eftir og næsta skák
verður á morgun. logis@mbl.is
Carlsen færist nær
sigri í einvíginu
- Afleikur Nepós reyndist dýrkeyptur
AFP
Skák Nepó þarf að vinna tvær skák-
ir til að ná fram bráðabana.
Ari Páll Karlsson
ari@mbl.is
Runólfur Pálsson, starfandi fram-
kvæmdastjóri meðferðarsviðs
Landspítala, segir í undirbúningi að
fá lyfið Molnupiravir, veirulyf í
töfluformi gegn kórónuveirunni, á
spítalann til meðferðar en heil-
brigðisráðuneytið hefur til skoðun-
ar innkaup á 1.500 skömmtum.
„Ég tel líkur á því að það komi
innan tíðar. Það er bara í ferli,“
segir Runólfur en Lyfjastofnun
Evrópu hefur þegar samþykkt lyf-
ið.
Hingað til hefur spítalinn notast
við lyfið Ronapreve og á föstudag
ákváðu heilbrigðisyfirvöld að festa
kaup á 72 skömmtum af lyfinu Sot-
rovimab en bæði lyfin eru einstofna
mótefni gegn veirunni sem hindra
að veiran komist inn í frumur lík-
amans. Hann segir Molnupiravir
aftur á móti af öðrum toga.
Öll minnka alvarleika veikinda
„Annars vegar er um að ræða
einstofna mótefni og hins vegar er
um að ræða veirulyf, Molnupiravir,
sem hægt er að taka í töfluformi og
hemur fjölgun kórónuveirunnar í
frumum. Veiran kemst inn í frum-
urnar en lyfið hamlar fjölgun veir-
unnar þar,“ segir hann en lyfin Sot-
rovimab og Ronapreve þarf að gefa
í æð og hindra þau að veiran komist
inn í frumur. Öll lyfin beinast þó að
því að minnka alvarleika veikinda í
tengslum við Covid-19,“ segir hann.
„Rannsóknir hafa sýnt að þessi
lyf minnka verulega tíðni sjúkra-
húsinnlagna og dauðsfalla meðal
einstaklinga í mikilli áhættu séu
þau gefin snemma í veikindaferl-
inu.“
Runólfur segir Molnupiravir
svipa til lyfs Pfizer sem einnig er í
töfluformi, spurður út í líkindi þar á
milli, en lyfjafyrirtækið tilkynnti
um lyf sem sömuleiðis er í töflu-
formi. Hann segir lyf Pfizer einnig
vera veirulyf sem hemur útbreiðslu
veirunnar í frumum. „En það sem
er næst því að komast í notkun er
Molnupiravir.“
Spurður hvort um sé að ræða dýr
lyf svarar Runólfur því játandi. „Já
þetta myndu teljast ansi dýr lyf.“
Þau séu þó ekki dýrari en einstofna
mótefnalyfin.
Hemur fjölg-
un veirunnar
- Lyfið Molnupiravir væntanlegt
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Landspítali Veirulyfin teljast
dýr en þó ekki dýrari en hin tvö.
Veirulyfið hentugra
» Veirulyfið Molnupiravir
hamlar að veiran dreifi sér í
frumum líkamans.
» Ákveðið hefur verið að festa
kaup á 72 skömmtum af lyfinu
Sotrovimab, einstofna mótefni
gegn veirunni.
» Fleiri lyf í þróun sem öll hafa
áhrif á útbreiðslu veirunnar
eftir sýkingu.
» Veirulyf hentugri kostur en
einstofna mótefni og þau
fyrstu í töfluformi.