Morgunblaðið - 06.12.2021, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 06.12.2021, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. DESEMBER 2021 DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is GÆÐI OG ÞÆGINDI SÍÐAN 1926 DUX 8008 – UNDRAVERÐUR SVEIGJANLEIKI Háþróuð tækni, alvöru handverk, strangar prófanir og vandlega valin efni tryggja góðan nætursvefn og passa upp á að líkaminn fái góða hvíld þegar þú þarf mest á því að halda. Í dag hefjast réttarhöld í Madagask- ar yfir 21 sakborningi, en þeir eru ákærðir fyrir skipulagningu á valda- ráni þar í landi. Meðal sakborninga eru tveir franskir ríkisborgarar, þeir Paul Rafanoharana og Philippe Francois. Rafanoharana, sem er hálfur Frakki og hálfur Madagaski, var aðstoðarmaður forsetans þar til fyrir skemmstu en Francois var of- ursti í franska hernum. Saman ráku þeir fjárfestingarfélag um tíma í landinu. Eiginkonur þeirra eru einn- ig ákærðar fyrir aðild að málinu. Segja réttarhöldin ósanngjörn Hjónin voru handtekin í lok júlí og eru ákærð fyrir ógn gegn þjóðarör- yggi landsins, samsæri og morð- tilræði við forsetann, Andry Rajoel- ina. Ríkissaksóknari sakaði þau meðal annars um að hafa ætlað að bæla niður eða útrýma valdamiklum aðilum innan stjórnsýslu landsins, auk forsetans. Þau neita sök. Hjónin, auk hinna 17, verða dreg- in fyrir dóm í Antananarivo, höfuð- borg Madagaskar, í dag en áætlað er að réttarhöldin muni standa yfir í þrjá til fjóra daga. Arlette Rafano- madio, verjandi Rafanoharana- hjónanna, sagði við fréttastofu AFP að um væri að ræða óréttlát réttar- höld. „Við höfum ekki fengið nægan tíma til þess að undirbúa málsvörn- ina og þau hafa takmarkað verulega aðgengi okkar að sakborningunum,“ sagði hún en henni gafst aðeins hálf- tíma langt samtal með hjónunum á föstudag. Fyrrverandi félagar Francois úr franska hernum sögðu í yfirlýsingu að þau væru „handviss um sakleysi hans“. AFP Forseti Andry Rajoelina, forseti Madagaskar. Ákærð fyrir valdaránstilraun - Meint morðtilræði við forseta landsins Bandaríski stjórnmálamað- urinn Bob Dole er látinn 98 ára að aldri. Dole var öldungadeildar- þingmaður Kan- sas-ríkis í 27 ár. Hann þjónaði í bandaríska hern- um í seinni heimsstyrjöldinni. Dole var þó hvað þekktastur fyr- ir að bjóða sig fram til varaforseta og forseta Bandaríkjanna. Árið 1976 var hann varafor- setaefni repúblikans Geralds Fords en það ár höfðu demókratarnir Jimmy Carter og Walter Mondale betur. Tuttugu árum seinna var hann forsetaframbjóðandi Repúblikana- flokksins en þá hafði Bill Clinton betur. Dole lætur eftir sig eig- inkonu, fyrrverandi öldungadeild- arþingmanninn Elizabeth Dole, og eina dóttur, Robin. ÞINGMAÐUR OG STRÍÐSHETJA Bob Dole er látinn 98 ára að aldri Bob Dole Allir ferða- langar sem koma til Bret- lands frá og með morgun- deginum þurfa að sýna fram á neikvætt PCR- próf fyrir brott- för. Er þetta gert til að reyna að stemma stigu við heimsfar- aldrinum og hefta útbreiðslu Ómíkron-afbrigðisins.Allir ferða- menn 12 ára og eldri þurfa að fara í PCR-próf 48 tímum fyrir brottför til Bretlands. Sajid Javid, heilbrigðisráðherra Bretlands, sagði að ríkisstjórn landsins væri að kaupa sér tíma vegna fregna af Ómíkron- afbrigðinu. Hann ítrekaði að bólusetning væri fyrsta vörn Breta gegn veirunni og hvatti fólk til að þiggja örvunar- skammta þegar slíkt væri í boði. ÓVISSA VEGNA ÓMÍKRON Bretar herða reglur á landamærum Sajid Javid Vladímir Pútín, forseti Rússlands, og Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, munu fara yfir ýmis öryggismál tengd Úkraínu á fjarfundi á morgun. Þetta hafa bæði forsvarsmenn í Kreml og Hvíta húsinu staðfest en mikil spenna ríkir nú á milli land- anna vegna þess að herafli Rúss- lands hefur aukist til muna við landa- mæri Úkraínu. Í tilkynningu frá Hvíta húsinu segir að Biden muni vekja máls á áhyggjum Bandaríkjanna vegna hernaðarstarfsemi Rússlands við landamæri Úkraínu og leggja áherslu á stuðning Bandaríkjanna við fullveldi Úkraínu og landamæri. Biden sagði á föstudag að hann myndi gera allt í sínu valdi til þess að gera Rússlandi erfitt fyrir að hefja innrás í Úkraínu, en hann hefur var- að við því að það gæti gerst á næstu mánuðum. Forsvarsmenn í Washington og Kiev, höfuðborg Úkraínu, segja að Rússar hafi fjölgað í herafla sínum við landamæri Úkraínu og saka þá um að vera að skipuleggja árás á landið. Rússar hafa neitað að einhver ásetningur búi á bak við aukinn her- afla við landamærin og segja að vest- urveldin séu að reyna að skapa ófrið með hernaðaræfingum í Svarta haf- inu sem Rússland telur vera á sínu yfirráðasvæði. Biden sagði við blaðamenn í Washington að hann væri að setja saman þýðingarmikla áætlun til þess að gera Pútín gífurlega erfitt fyrir að gera það sem fólk óttast að hann geri. Lloyd Austin, varnarmálaráð- herra Bandaríkjanna, sagði á laug- ardag að Bandaríkin tækju mögu- leikann á innrás alvarlega, og sagði: „Þeir hafa gert það áður.“ Hann seg- ist hafa miklar áhyggjur af auknum herafla við landamæri ríkjanna og einnig því sem er að gerast netheim- um en Rússar eru þekktir fyrir svæsnar tölvuárásir. Rússar lögðu undir sig Krímskaga árið 2014 og hafa síðan stutt við bak- ið á aðskilnaðarsinnum sem hafa valdið usla í Austur-Úkraínu en átökin þar hafa dregið 13 þúsund manns til dauða. Rússar vilja að NATO láti af því að nálgast landamæri þeirra, en meiri- hluti Austur-Evrópu gekk í banda- lagið eftir fall Sovétríkjanna. Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, hefur óskað eftir því að Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, tryggi það að NATO fikri sig ekki nær landamærum Rússlands. logis@mbl.is Biden og Pútín funda á morgun - Spennan magnast á landamærum Úkraínu - Telja líkur á innrás - „Þeir hafa gert það áður“ - Rússar neita ásetningi - Lögðu undir sig Krímskaga 2014 AFP Biden fundaði með Volodymyr Ze- lensky, forseta Úkraínu, í september. Að minnsta kosti fjórtán manns eru taldir af eftir að gos hófst í Semeru, stærsta eldfjalli á eyjunni Jövu í Indónesíu. Tíu er enn saknað. Gosið hófst um klukkan hálfþrjú á laugar- dag. Á sjötta tug eru illa brenndir eftir að eldgosið fór af stað en björgunarsveitir vinna nú að því að bjarga fólki í nágrenni við eld- fjallið. Að minnsta kosti ellefu þorp í Lu- majang-héraði á austurhluta Jövu eru þakin þykku öskulagi og hafa hið minnsta 1.300 manns þurft að flýja heimili sín. Öskulagið hefur hægt á öllu björgunarstarfi. Sprengigos varð í Semeru sem er 3.600 metra hátt. Í því er gríðar- lega virk eldstöð en þar gaus síðast í janúar á þessu ári. Eldgos á Jövu í Indónesíu Fjórtán látnir og tíu saknað AFP

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.