Morgunblaðið - 06.12.2021, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 06.12.2021, Qupperneq 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. DESEMBER 2021 Óveður Íbúar höfuðborgarsvæðisins hafa þurft að þola ýmislegt frá veðurguðunum undanfarna viku þar sem snjóað hefur og rignt til skiptis. Þá er gott að eiga góða regnhlíf. Eggert Stokkhólmur – Spjótin standa á ofur- heimsálfunni Evrasíu úr öllum áttum. Í vestri hefur Rússland sent sífellt fleiri her- deildir að landamær- um sínum og Úkra- ínu, sem hefur vakið miklar vangaveltur um hver sé tilgang- urinn. Frá austri er svo stigmagnandi spennan milli Kína og Taívan áhyggjuefni. Útbreidd könnun frá sérfræðingaráði um stríðsrekstur í Bandaríkjunum kemst að þeirri niðurstöðu að Bandaríkin hefðu „fáa raunhæfa möguleika“ ef Kína myndi ráðast á Taívan. Í báðum tilfellum er ljóst hver ásetningur árásaraflanna er. Ríkisstjórn kínverska forsetans Xi Jinping hefur kallað eftir „endur- sameiningu“ Kína sem sé viðeig- andi niðurstaða í kjölfar kínverska borgarastríðsins. Eftir seinni heimsstyrjöldina tók Kommúnista- flokkurinn yfir meginland Kína en tókst ekki að útmá Þjóðernissinna Chiang Kai-Shek, sem fóru til Ta- ívan og annarra smærri eyja og hafa verið utan seilingar Komm- únistaflokksins allar götur síðan. Opinberar yfirlýs- ingar Kína um „end- ursameininguna“ hafa oft kveðið á um frið- samlega sameiningu, en nokkrum sinnum hafa þeir sleppt frið- semdinni. Auk þess hefur Kína verið að auka og bæta við her- gögn sín, ekki síst til að geta lagt undir sig Taívan ef þeir reyna að lýsa yfir sjálfstæði. Flest lönd, þ.m.t. Bandaríkin, hafa nálgast málið eins og Kína sé þegar sameinað og hafa ekki brugðist við Taívan sem sjálfstæðu ríki. En vegna skorts á formlegum stjórnmálatengslum við eyjuna hafa samskiptin verið byggð upp í gegnum viðskipti og tækni. Taívan er í forystu heiminum í framleiðslu á örflögum. Auk þess er saga eyj- unnar saga velgengni lýðræðisins. Ef kínverska samfélagið í Taívan getur verið jafn lýðræðislegt og raun ber vitni, þá er líka möguleiki að sá veruleiki gæti einhvern tíma færst yfir til meginlandsins. Í hinum enda Evrasíu er staða Úkraínu mjög ólík stöðu Taívan, ekki síst vegna þess að Rússar hafa opinberlega viðurkennt sjálf- stæði landsins. Hernám Vladimírs Pútíns, forseta Rússlands, á Krím- skaga og yfirtaka hans 2014 var dæmd ólögleg og fordæmd af miklum meirihluta Allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna (þar sem ein- ungis 11 lönd kusu gegn fordæm- ingunni). Síðasta sumar birti Pútín langa og merkilega grein þar sem hann rökstuddi að Rússland, Úkraína og Hvíta-Rússland ættu að vera sam- einuð út frá sögulegum forsendum. Hann heldur því fram að fullveldi Úkraínu eða Hvíta-Rússlands geti eingöngu orðið í samvinnu við Rússa, undir sterkri stjórn Kreml- ar. Svo langt gengur söguskoðun Pútíns að hann gagnrýndi fyrrver- andi sjálfstæði Úkraínu á tímum Sovétbáknsins (þótt það sjálfstæði hefði í raun ekki haft neina þýð- ingu á þeim tíma). Það þarf ekkert að velkjast í vafa um ásetning Pútíns: hann hef- ur sífellt minna þol gagnvart sjálf- stæði Úkraínu. Eins og Kínverjar, sem ásælast Taívan, hefur Rúss- land verið að auka hernaðar- uppbyggingu á svæðinu í þeim til- gangi að ráðast inn og taka yfir Úkraínu áður en utanaðkomandi áhrif geta komið í veg fyrir það. Auk þess að leggja undir sig Krímskagann hefur Kreml þegar sent herlið til Donbas-héraðsins í austanverðri Úkraínu eins og þeir gerðu í ágúst 2014 og aftur í febr- úar 2015. Pútín virðist vera tilbú- inn til þess að endurtaka sambæri- legan leik og jafnvel ganga miklu lengra. Enginn efast um það að ef Kína hernæmi Taívan myndi það þýða rótttækar breytingar á öryggis- málum Austur-Asíu, alveg eins og að öryggismál Evrópu færu í upp- nám ef Rússar tækju Úkraínu með hervaldi. En það sem færri hafa íhugað er möguleikinn á að þessar tvær leikfléttur gætu gerst á sama tíma, á svipaðan hátt. Ef það gerð- ist myndi það gjörbylta valda- strúktúr heimsins, og verða bana- biti stjórnmálasamskipta og öryggismála sem hafa verið við lýði í heiminum áratugum saman. Þessi atburðarás er ekki jafn fráleit og hún hljómar. Þrátt fyrir að Kínverjar segist ekki vilja blanda sér í innanríkismál annarra landa eru þeir þöglir sem gröfin um fullveldi Úkraínu. Það er engin ástæða til að ætla að þeir myndu ekki standa að baki nýrri árás Rússa, ekki síst ef það styrkti þeirra eigin áætlanir. Vissulega myndu það vera skelfileg mistök fyrir Kína að ráð- ast inn í Taívan og fyrir Rússa að ráðast á Úkraínu. Efnahagsleg þróun beggja ríkja myndi dvína, ekki síst vegna viðbragða um- heimsins í formi refsiaðgerða og viðskiptabanna. Áhættan á meiri stríðsaðgerðum væri aukin og lönd eins og Japan og Indland myndu hefja uppbyggingu stríðsafla síns til að fá aukinn styrk gegn Kína. Evrópa hefur þegar færst mark- visst í átt til aukinna varna álf- unnar. Jafn skynsamleg og þessi við- brögð virðast veita þau lítið ör- yggi. Bumbusláttur stríðsins heyr- ist greinilega. Verkefni stjórnvalda heimsins er að tryggja að slátturinn verði einungis holur hljómur í fjarska. Eftir Carl Bildt » Bumbusláttur stríðs- ins heyrist greini- lega. Verkefni stjórn- valda heimsins er að tryggja að slátturinn verði einungis holur hljómur í fjarska. Carl Bildt Höfundur er fyrrverandi forsætis- og utanríkisráðherra Svíþjóðar © Project Syndicate, 2021 Stríðsbumburnar barðar í Taívan og Úkraínu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.