Morgunblaðið - 06.12.2021, Side 21

Morgunblaðið - 06.12.2021, Side 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. DESEMBER 2021 ✝ Gylfi Þór Gísla- son fæddist á Selfossi 20. desem- ber 1949. Hann lést 27. nóvember 2021. Foreldrar hans voru Gísli Sigurðs- son rakarameistari, f. 24. desember 1896, d. 5. júní 1970, og Rannveig Sigríður Sigur- björnsdóttir hús- móðir, f. 1. desember 1918, d. 1. apríl 1983. Albróðir Gylfa er Björn Ingi, f. 2. september 1946. Systkini Gylfa samfeðra voru Reynir, f. 1922, d. 1923, Ámundi, f. 1924, d. 2008, Ingigerður, f. 1928, d. 23. ágúst 2021, Hulda, f. 1928, d. 1974, Björgvin, f. 1930, d. 1935, Regína, f. 1932, d. 6. júní 2021, Björgvin Óskar, f. 1936, d. 1936. Gylfi gekk í hjónaband árið 1971, eiginkona hans var Sig- urlína Guðmundsdóttir, banka- starfsmaður, f. 27. september 1949, þau slitu samvistir. Börn þeirra eru Gísli Rafn, f. 13. júní 1970, börn hans eru Agnes og Agla Bríet. Ívar Örn, f. 12. júní 1971, eiginkona hans er Elva Björg Þráinsdóttir, börn þeirra eru Daníel Aron, Anna Karen og Róbert Þór. Fyrir átti Ívar Örn um og ráðum knattspyrnudeild- ar UMF. Selfoss. Á upphafs- árum handboltans tók Gylfi að sér þjálfun stúlkna. Gylfi var virkur félagsmaður um tíma í Leikfélagi Selfoss og lék hann í mörgum leikritum, þá söng hann með Karlakór Selfoss um árabil og söng m.a. einsöng á plötu kórsins. Gylfi náði góðum árangri sem knattspyrnuþjálf- ari var m.a. ráðinn sem þjálfari í Ólafsvík, Ísafirði og hjá Fylki í Árbæ. Gylfi hafði mikinn áhuga á unglingum, lífi þeirra og fram- tíð. Hann fór til Bandaríkjanna árið 1996 að læra Lions Quest, lífsleikni sem hann kenndi svo ungu fólki. Gylfi var lífsglaður maður söng og dansaði og hafði áhuga á listum ýmiskonar. Hann tók þátt í söngleik í Þjóðleikhús- inu og málaði myndir. Gylfi Þór söng heila plötu með uppáhalds- lögum sínum eftir að hann veikt- ist og heitir sú plata „Með mínu lagi“. Í tuttugu og fjögur ár glímdi hann við parkinson- sjúkdóminn. Jarðsett verður frá Selfoss- kirkju í dag, 6. desember 2021 kl. 14. Jarðarförinni verður streymt: https://selfosskirkja.is/ og aðgangur í kirkjuna er öll- um heimill, eða allt að 500 manns, gegn því að sýna nið- urstöðu úr hraðprófi. Einnig er tengill á: https://www.mbl.is/andlat Karólínu með Guð- rúnu Þórisdóttur. Ólöf María, f. 13. september 1976, gift Bjarna Krist- inssyni, börn þeirra eru Ævar Elí, Lína Rut og Lísa Marie. Gylfi ólst upp á Selfossi og bjó þar allt sitt líf. Hann var strax frá unga aldri, mjög virkur og tók mikinn þátt í öllu fé- lagsstarfi. Lengst af með Ung- mennafélagi Selfoss, bæði sem knattspyrnumaður og þjálfari. Hann var fyrsti landsliðsmaður UMF Selfoss í knattspyrnu, lék með unglingalandsliði Íslands árið 1967. Gylfi útskrifaðist sem íþróttakennari frá Íþróttaskól- anum á Laugarvatni árið 1970. Hann starfaði sem íþróttakenn- ari við Gagnfræðaskólann á Sel- fossi í áratugi ásamt almennri kennslu. Gylfi helgaði sig þjálf- un með aukinni menntun og sat ýmis námskeið heima og erlend- is og var stofnfélagi í Knatt- spyrnuþjálfarasambandi Ís- lands. Hann lagði grunninn að auknum áhuga á knattspyrnu- íþróttinni á Selfossi fyrr á árum, þjálfaði unglinga og eldri flokka félagsins. Hann átti sæti í stjórn- Minn kæri bróðir, Gylfi Þór, er fallinn frá eftir hetjulega baráttu við sjúkdóm sem erfitt er að sigra. Gylfi var mikill keppnismaður að eðlisfari og vildi gjarnan sigra. Hann lagði yfirleitt hart að sér til að ná settu marki. Þannig var hann strax frá unga aldri. Hann var alltaf í keppni eða gera leik- fimiæfingar, hann skipulagði fót- boltaæfingar fyrir strákana í hverfinu sem æfðu sig á Sigga Óla túni, sem var okkar leikvöllur. Ef hugtakið íþróttaálfur hefði verið til í þá daga, þá var það hann. Ég man þegar hann fæddist í kjallaraíbúð á Kirkjuvegi 15, en það var okkar fyrsta heimili á Sel- fossi, heyrði ég hann gráta hástöf- um. Í fyrstu hélt ég að eitthvað væri að eða honum liði illa, en svo ekki, mér var sagt að þetta væri hraustleikamerki. Á efri hæð húss- ins bjó heiðurskonan Guðrún Ei- ríksdóttir ljósmóðir sem tók á móti pilti og sá um að allt væri í stakasta lagi. Gylfi var fljótur til, byrjaði snemma að ganga. Ég sem bróðir hans lagði mig fram um að passa hann vel. Við fluttum síðan í nýtt hús sem pabbi byggði við Kirkju- veginn á nr. 17. Þá upp hófst alveg nýtt tímabil, stofnað var knatt- spyrnufélagið Elding sem hélt úti reglulegum æfingum sem Gylfi skipulagði. Yfir sumartímann var fótboltinn í aðalhlutverki, en á vor- in og haustin voru stunduð lang- hlaup. Yfir vetrartímann voru ská- kæfingar. Gylfi skráði allt mjög samviskusamlega í bók sem fram fór. Á þessum tíma var áhugi Gylfa svo mikill að allar fréttir og um- sagnir um íþróttir í blöðum klippti hann út og límdi í gamlar síma- skrár. Einnig stofnaði hann hljóm- sveit í hverfinu og hélt skemmtun á loftinu í nýja húsinu. Þannig að nóg var að gera, hann sat ekki auð- um höndum þessi drengur. Þegar ungmennafélagið var endurvakið árið 1963 byrjaði Gylfi að æfa knattspyrnu með félaginu, æfði hann með öllum yngri flokkum fé- lagsins. Hann var fyrsti einstak- lingurinn sem lék landsleik í knatt- spyrnu frá Selfossi, en vinur hans og félagi, Sverrir Ólafsson, var einnig valinn sem varamaður í Unglingalandslið Íslands árið 1967. Gylfi fór fljótlega að þjálfa hjá ungmennafélaginu og átti far- sælan og langan feril sem þjálfari. Hann sótti námskeið heima og er- lendis og var einn af stofnendum Knattspyrnuþjálfarasambands Ís- lands. Gylfi var sæmdur gullmerki Ungmennafélags Selfoss og Knattspyrnusambands Íslands- .Óhætt er að segja að Gylfi hafi verið fjölhæfur maður og skilað góðu ævistarfi, sem kennari í rúma þrjá áratugi, sem þjálfari, sem knattspyrnumaður, sem leikari með Leikfélagi Selfoss, sem söngvari með Karlakór Selfoss og syngja inn á geisladisk. Gylfi var frjálslegur í fasi og hafði kjark til að vera hann sjálfur, hafði áhuga fötum og klæddi sig eftir sínu höfði. Hann var mikill slaufukall og gekk stundum með hatt ef svo bar við. Ég er þakklátur honum sem bróðir. Ég veit að foreldrar okkar eru ánægðir með hans lífs- hlaup og taka vel á móti honum. Ég votta aðstandendum hans inni- lega samúð og bið góðan Guð að varðveita hann. Björn Ingi Gíslason. Í hugann kemur minning mörg og myndir horfinna daga, frá liðnum stundum læðist fram mörg ljúf og falleg saga. (Höf. ók.) Elsku vinurinn hann Gylfi Þór er laus úr viðjum parkinsonsjúk- dómsins sem lagði þennan hrausta og fallega mann bókstaflega að velli innan við fimmtugt. Það er alltaf sárt að missa góða vini og aldrei finnst manni það tímabært, en oft er það góð lausn þegar fólk hefur glímt lengi við erfið veikindi. Allt sem prýtt getur einn mann fékk Gylfi í vöggugjöf; fegurð, fim- leika, söngrödd, glaðværð, leik- hæfileika og lengi gæti ég haldið áfram upptalningunni um hans fjölbreyttu og flottu hæfileika. Hann kom eins og stormsveipur inn í líf mitt og fjölskyldu minnar 13 ára gamall, þegar hann varð skotinn í bekkjarsystur sinni, henni Línu litlu systur minni. Hann var þá strax ákveðinn í því að þessi stelpa væri hans, ósk hans rættist, þau giftust, byggðu sér hús á Selfossi og eignuðust þrjú dásamleg börn. Innan við tvítugt var hann val- inn í unglingalandsliðið í knatt- spyrnu, síðan útskrifaðist hann úr Íþróttakennaraskólanum á Laug- arvatni og gerðist kennari. Hann þjálfaði knattspyrnufélög, lék í mörgum leikritum með Leikfélagi Selfoss og einnig lék hann hlut- verk í Þjóðleikhúsinu, hann söng með Karlakór Selfoss og oft ein- söng og gaf út hljómdisk eftir að hann veiktist. Okkur Gylfa varð strax í upp- hafi vel til vina, og áttum við fjöl- skyldurnar vel saman í leik og starfi, samverustundir okkar voru margar og margt var brallað okk- ur öllum til skemmtunar. Stórfjöl- skyldan deildi oft hátíðum saman og endalaust gæti ég talið upp það sem við brölluðum í gegn um árin. Gylfi var ljúfur í lund, hafði góða nærveru og með húmorinn í lagi. Hann lét það ekki pirra sig eða sýndi óþolinmæði þegar sprellið og grínið tók yfirhöndina hjá okkur systrum, hann tók bara þátt í vit- leysunni. Leiðir Gylfa og Línu skildi eftir margra ára hjónaband en vináttan og kærleikurinn þeirra á milli vék aldrei frá þeim og studdi Lína hann í öllum hans erfiðu veikind- um allt fram á síðustu stund. Elsku Gylfi minn, það er mikil eftirsjá að þér, en samt er þakklæti í huga fyrir að þessu veikindastríði þínu er nú lokið. Þessi kveðjuorð mín eru til að þakka þér vinur fyrir öll árin okkar saman í leik og starfi, tryggð þína og vináttu sem þú við- hélst alla tíð. Minningarnar geymi ég í sjóði sem perlur þar til við hitt- umst á ný í sumarlandinu, megi góður guð vera með þér um alla ei- lífð. Góða ferð heim vinur. Fyrir mér varst þú ímynd hins göfuga og góða svo sterkur, einlægur og hlýr. Örlög þín ráðin – mig setur í hljóða við hittumst samt aftur á ný. (Sigríður Hörn Lárusdóttir) Kærleikskveðjur til fjölskyld- unnar. Sigríður (Sirrý mágkona Ég á því láni að fagna að vera elstur barna föður míns og fékk því að njóta meiri kynna og sam- vista við Gylfa föðurbróður minn í æsku. Fyrir minni mitt sé ég á myndum þar sem hann er að leika við mig í fótbolta og gefa mér góð- an tíma. Ég fór sem barn og fékk að vera hjá fjölskyldu Gylfa er hann þjálfaði Ísfirðinga og Ólafs- víkinga og svo þjálfaði Gylfi okk- ur Selfossstráka í knattspyrnunni og hefur hann því haft viðkomu hjá ótrúlega mörgum krökkum í okkar heimabæ í gegnum tíðina. Auk þess var Gylfi kennari og íþróttakennari allan sinn vinnu- aldur og var vinsæll í störfum sín- um. Gylfi Þór stundaði sjálfur knattspyrnu og var fyrsti Selfyss- ingurinn til þess að vera valinn sem unglingalandsliðsmaður í knattspyrnu ásamt Sverri Ólafs- syni. Einnig tók Gylfi virkan þátt í stjórnunarstörfum fyrir knatt- spyrnudeild UMF Selfoss. Þjálf- un greip þó huga hans ásamt sönglistinni sem hann elskaði, bæði einsöng og kórsöng með Karlakór Selfoss um árabil. Gylfi söng tvö einsöngslög með kórn- um inn á plötu og hann gaf svo út plötu sjálfur með söng sínum eftir að hann veiktist. Parkinsonsveikin eða parki eins og hann kallaði hann kom svo inn í líf hans þegar hann var aðeins 46 ára og átti eftir að marka djúp spor í líf hans. Hann náði þó að gera margt í lífi sínu sem hann dreymdi um; spila knattspyrnu og þjálfa, syngja og taka þátt í leik- listinni með Leikfélagi Selfoss og komst eitt sinn að í Þjóðleikhúsinu og tók þar þátt í „Fiðlaranum á þakinu“. Einnig var Gylfi mjög lið- tækur málari og liggja eftir hann fjölmargar fallegar myndir. Frægt varð þegar Gylfi var eitt sinn rek- inn af leikvelli fyrir það eitt að segja rétt til nafns, „Gylfi Þ. Gísla- son“, en þá bar ráðherra sama nafn um líkt leyti og hélt dómarinn að verið væri að fíflast í sér. Gylfi var Tottenhammaður og deildum við ekki skoðunum þar en þegar ég var formaður í Arsenalklúbbnum 1982-2002 fékk klúbburinn elsta bikar í heimi, FA-bikarinn, til Ís- lands. Hann sýndum við á sam- komu Arsenalmanna og fögnuðum einum bikartitlinum enn af mörg- um, ég tók þá bikarinn við litla hrifningu öryggisvarða og fór með hann á Borgarspítalann til Gylfa og leyfði honum að hampa honum og var hann gríðarlega ánægður með þá heimsókn. Síðustu árin hafa verið erfið fyrir elsku frænda minn sem ég hef alltaf verið bund- inn nánum böndum og veittist mér þá sú ánægja að gleðja hann með heimsóknum á hjúkrunarheimilið Fossheima á Selfossi. Þar klippti ég hann enda var Gylfi orðlagt snyrtimenni og reglan var svo að taka lagið og syngja nokkur lög og fíflast. Tæpra sjötíu og tveggja ára er hann haldinn í hið óumflýjan- lega ferðalag og hefur hlotið hvíld frá þrautum sínum, allt of snemma. Einstaka umönnun hlaut hann á Fossheimum og vil ég þakka fyrir það hér. Samúðarkveðjur færi ég frænd- fólkinu við þessi erfiðu tímamót um leið og ég þakka einstaka vin- áttu og væntumþykju hans á okk- ar lífsins göngu. Guð blessi minn- ingu Gylfa frænda. Kjartan Björnsson. Gylfi Þór Gíslason íþróttakenn- ari á Selfossi er látinn langt um aldur fram. Hann var ungur ráð- inn íþróttakennari við Gagnfræða- skólann á Selfossi, síðar Sólvalla- skóla, og starfaði við þá stofnun að heita má alla starfsævina. Gylfi reyndist strax frá byrjun einstaklega kraftmikill kennari og átti mjög auðvelt með að vinna með unglingum á viðkvæmu þroskaskeiði þeirra. Eins og títt var um íþróttakennara færði Gylfi sig yfir í almenna bekkjarumsjón er á leið starfsævina. Þá kom enn betur í ljós hve mannleg innsýn og félagsþroski nýttist honum vel í starfi. Frá unglingsaldri var Gylfi mjög virkur í knattspyrnuiðkun og skaraði þar snemma fram úr. Hann var t.a.m. annar tveggja úr þessu byggðarlagi sem fyrstir léku með 21 árs landsliðinu. Og síðar stundaði hann knattspyrnuþjálfun bæði hér á Selfossi og víðar um land. Gylfi Þór var einnig mörgum öðrum listrænum gáfum gæddur. Þannig fór hann um skeið með mjög eftirminnileg hlutverk á sviði í uppfærslum hjá Leikfélagi Sel- foss. En hæst reis snilld hans án efa í afar hljómfagurri tenórrödd. Undanfarna rúmlega tvo ára- tugi hefur Gylfi tekist á við óvenju illvígan sjúkdóm af mikilli þraut- seigju og hugprýði. Við fráfall hans sendi ég börnum hans og öðr- um nánum ættingjum hugheilar samúðarkveðjur og bið minningu Gylfa Þórs Gíslasonar blessunar Guðs. Óli Þ. Guðbjartsson. Einn af eftirminnilegustu þjálf- urum okkar guttanna frá Ólafsvík er fallinn frá. Gylfi Þ. Gíslason kom sem frelsandi engill til Víkings og hristi heldur betur upp í okkur, á vinsamlegan hátt, með léttleika, lipurð, fagmennsku og gleði að leiðarljósi. Hann þjálfaði okkur gaurana sem erum fæddir ’59 og ’58 sumarið 1974 þegar við lékum með 3. flokki. Gylfi Þ. var ennfrem- ur þjálfari meistaraflokks og undir hans stjórn tryggði Víkingur sér sigur í gömlu 3. deildinni í fyrsta skipti. Við guttarnir í 3. flokki lékum aðeins einn leik undir stjórn Gylfa Þ. enda tíðkaðist ekki á þessum ár- um að Víkingur Ól. tæki þátt í Ís- landsmóti yngri flokkanna. Eini leikurinn var gegn Snæfelli í Stykkishólmi en liðið gaf seinni leikinn sem átti að fara fram í Ólafsvík. Það er með ólíkindum hversu margir leikmenn í 3. flokki Gylfa Þ. Gíslasonar fyrir 47 árum stóðu sig frábærlega á knatt- spyrnuvellinum næstu áratugina þrátt fyrir að spila aðeins einn eða tvo leiki á hverju „keppnistímabili“ á yngri árum. Reyndar fengum við að taka þátt í Íslandsmótinu árið 1975 og höfnuðum þá í 2. sæti – töpuðum úrslitaleiknum gegn Breiðabliki. Handbragð Gylfa Þ. var sannar- lega alltumlykjandi það sumar og við eigum honum mikið að þakka. Gylfi Þ. var ævinlega hrókur alls fagnaðar og hafði engu gleymt þegar hann sneri til baka til Vík- ings árið 1991. Þá komst liðið aftur í úrslitakeppnina. Þótt ég hafi ekki leikið meistaraflokksleik undir stjórn Gylfa Þ. hafa þeir leikmenn, sem það gerðu, margoft minnst okkar dásamlega þjálfara með hlý- hug. Þeir rifja reglulega upp sög- urnar og gleðina og hamingjuna sem einkenndi okkar mann. Við gömlu Ólsararnir minn- umst Gylfa Þ. Gíslasonar með hlýhug og þakklæti og sendum fjölskyldu hans, ættingum og vin- um okkar innilegustu samúðar- kveðjur. F.h. 3. flokks Víkings Ólafsvík 1974 og 1975, Þorgrímur Þráinsson. Nú er genginn sá ágæti dreng- ur Gylfi Þ. Gíslason eftir áratuga baráttu við illvígan sjúkdóm. Fréttin um andlát hans kom ekki á óvart. Gylfi dvaldi lengi á Foss- heimum þar sem ég heimsæki móður mína reglulega og fékk ég þá nokkra innsýn í hvernig heilsu Gylfa virtist stöðugt hraka. Leiðir okkar Gylfa lágu saman í fótboltanum á Selfossi. Við vorum ekki gamlir þegar byrjað var að sparka í bolta á Ólatúni, eins og við strákarnir kölluðum túnið neðan við Sunnuveg og austan Kirkju- vegar. Þar gátum við verið frá hausti og fram á vor. Fótbolti var leikinn alla daga meðan veður og aðstæður leyfðu, strax eftir skóla og fram í myrkur. Þarna komu saman margir strákar sem síðar mynduðu kjarnann í góðu liði á ár- unum 1965-69. 2. flokkur Selfoss var til að mynda mjög sterkur á ár- unum 1966 og 67, þegar við urðum fyrst bikarmeistarar og síðar Ís- landsmeistarar. Hópurinn var ekki stór og þoldi illa að einn eða fleiri hyrfu úr hópnum eins og gerðist fljótlega í kringum 1970. Gylfi var mikill keppnismaður og mjög einbeittur varnarmaður. Hann var snöggur sem elding og fljótur sem hind svo að ekki var auðvelt að komast framhjá honum. Hann var lágvaxinn en stóð vel fyrir sínu og sannaði ótvírætt hið fornkveðna, að margur er knár þótt hann sé smár. Hann var kapp- samur og hvatti menn óspart til dáða, svo að tær tenórröddin barst vel frá aftasta manni til þess fremsta. Gylfi er sennilegast eini maðurinn í íslenskri knattspyrnu sem hefur verið vísað af velli fyrir nafn sitt. Það gerðist í Hafnarfirði í leik á móti FH. Dómarinn var FH- ingur og áleit Gylfa full- aðgangsharðan. Hann innti Gylfa nafns, sem svaraði óhikað. Öllum til undrunar brást dómarinn hratt við og lyfti rauða spjaldinu á loft en á þessum tíma var Gylfi alnafni menntamálaráðherra Íslands. Æskuheimili Gylfa var alltaf op- ið fyrir okkur strákana. Þar hóp- uðumst við saman og var oft teflt og haldin skákmót. Við vorum ekki margir til að byrja með en hóp- urinn stækkaði hratt. Ég dáist að því hvað foreldrar Gylfa sýndu okkur mikla þolinmæði. Gylfi háði erfiða baráttu við vá- legan vágest í nokkra áratugi en að lokum brast vörnin og vopnabúrið tæmdist. Ég mun minnast þeirra góðu ára sem við Gylfi áttum saman í boltanum. Megi minningin um hann lifa lengi. Ég votta afkom- endum hans og allri fjölskyldunni mína innilegustu samúð. Guðjón Skúlason. Í gegnum skólagönguna hefur maður ótal kennara. Sumir kenn- arar kenna bara það sem bókin segir og passa að halda alltaf ákveðinni fjarlægð við nemendur en svo eru aðrir kennarar sem gefa aukalega af sér og kenna nemend- um sínum aðeins um lífið í leiðinni. Þetta eru að mínu mati bestu kennararnir. Gylfi var akkúrat þannig kennari. Hann var umsjón- arkennarinn minn í 6. og 7. bekk í Sólvallaskóla á Selfossi og er einn af mínum uppáhaldskennurum á allri minni skólagöngu. Á þessum tíma tíðkaðist að krakkar væri í Sandvíkurskóla upp að unglinga- stigi og færu svo yfir í Sólvalla- skóla. Með flutningnum var maður formlega enginn krakki lengur en á sama tíma vorum við ekki enn orðnir unglingar. Þetta var milli- bilsástand. Þessi umskipti voru misauðveld fyrir okkur og á ein- hvern hátt tókst okkur að fá Gylfa til að lesa alltaf fyrir okkur sögu í nestistímanum – svona eins og var gert fyrir okkur í barnaskólanum. Ég man ekkert hvaða bækur hann las fyrir okkur en ég man hvað okkur leið notalega og hvað það var mikil ró yfir okkur á meðan hann las. Einhvern tímann þegar við vor- um komin í 7. bekk lofaði Gylfi okkur öllum verðlaunum ef mynd- um öll klára heimanámið okkar þá vikuna. Eitthvað hafði gengið illa hjá okkur hingað til að ljúka við áætlunina svo að hann greip til þessarar gulrótar. Við vorum öll spennt að vita hver þessi verðlaun væru og lögðum okkur fram við að læra jafnt og þétt alla vikuna. Svo rann föstudagurinn upp. Einhverj- ir höfðu lent í vandræðum og ekki náð að klára öll verkefnin þannig að við hjálpuðumst öll að þar sem við sátum fyrir utan stofuna og biðum eftir að tíminn byrjaði. Öll stéttaskipting hvarf og við unnum saman eins og ein heild. Þetta er ein af mínum allra bestu minning- um úr grunnskóla. Það voru nefni- lega einstaklingar í mínum ár- gangi sem lögðu sig fram um, nánast alla grunnskólagönguna, að gera öðrum lífið leitt. En ekki þarna. Ekki þennan dag. Þarna vorum við öll vinir. Hver voru svo verðlaunin? Jú, einn súkkulaði- snúður á mann úr Guðnabakaríi sem Gylfi splæsti sjálfur á hópinn. Ég gleymi því ekki þegar hann kom askvaðandi með grindina úr bakaríinu, fulla af snúðum. Mikið ofboðslega vorum við glöð með verðlaunin en þó ef til vill mest yfir þessari samheldni sem skapaðist við verkefnið. Þar sem styttist til jóla þá má ég til með að nefna eina af mínum uppáhaldsjólaminningum, sem tengist einmitt Gylfa. Einhvern tímann voru jólatónleikar í Sel- fosskirkju sem við fjölskyldan mættum á og þar söng Gylfi ein- söng með kórnum í Ó, helga nótt – sem var lokalag tónleikanna. Ég gleymi því ekki þegar hann þandi út brjóstkassann, lyfti höndunum upp í loft og söng viðlagið af öllum krafti. Þetta var svo flott og maður komst í svo mikið jólaskap að ég man sjaldan eftir öðru eins. Nú fagna himins englar að fá Gylfa í sinn hóp en söknuður þeirra sem eftir sitja er mikill. Minning um einstakan mann lifir. Fjölskyldu og vinum Gylfa votta ég mína dýpstu samúð. Jóhanna Sigríður Hannesdóttir. Gylfi Þór Gíslason

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.