Morgunblaðið - 06.12.2021, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 06.12.2021, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. DESEMBER 2021 Sindrastóll Hönnuður: Ásgeir Einarsson (1927-2001) Sindrastóllinn er bólstraður með íslenskri lambagæru. Verð frá: 229.000 kr. Sólóhúsgögn ehf. Gylfaf löt 16-18 112 Reykjavík 553-5200 solohusgogn. is að segja á mína fyrstu kóræfingu í nóvember, þar sem vinnuheitið er jólakórinn! Ég verð að viðurkenna að ég kveið því svolítið. En svo var þetta alveg frábær kvöldstund!“ Fjölskylda Eiginkona Péturs er Anna Sigríð- ur Arnardóttir, f. 8.6. 1975, lögfræð- ingur og framkvæmdastjóri Fast- eignaþróunarfélagsins Spildu. Þau eru búsett á Seltjarnarnesi. For- eldrar Önnu Sigríðar eru hjónin Örn Óskarsson, f. 20.9. 1952, fram- kvæmdastjóri, og Ólöf Þórarins- dóttir, f. 3.10 1952, forstöðumaður rekstrar- og þjónustusviðs Alþingis. Pétur og Anna Sigríður eiga tvö börn, Ólöfu Kristrúnu, í verkfræði- námi við Háskólann í Reykjavík, f. 15.7. 2001, og Örn Óskar, nema í Menntaskólanum í Reykjavík, f. 12.12. 2004. Bræður Péturs sammæðra: Eymundur Snatak, f. 1.2. 1961, d. 16.8. 2019, og Þórir Bjarki, f. 20.11. 1965. Faðir þeirra var Matthías Kjeld, f. 19.12. 1936, d. 16.1. 2019, læknir. Systur Péturs samfeðra eru Ragnhildur, f. 22.9. 1960, bókasafns- og upplýsingafræðingur í Reykjavík, og Kristjana Stella, f. 28.12. 1964, kennari við Háskóla Íslands. Móðir þeirra var Renata Beate Kristjáns- dóttir, f. 31.10. 1938, d. 3.6. 1982, kennari. Foreldrar Péturs: Hjónin Halldór Blöndal, f. 24.8. 1938, fyrrverandi ráðherra og forseti Alþingis, og Kristrún Eymundsdóttir, f. 4.1. 1936, d. 8.12. 2018, framhaldsskóla- kennari. Pétur Blöndal Elísabet Sigurðardóttir húsfreyja á Stóra-Hrauni, frá Syðra-Skógarnesi Árni Þórarinsson prófastur á Stóra-Hrauni í Kolbeinsstaðahreppi Þóra Árnadóttir húsfreyja í Reykjavík Eymundur Magnússon skipstjóri í Reykjavík Kristrún Eymundsdóttir framhaldsskólakennari í Reykjavík og á Akureyri Guðrún Mikaelsdóttir húsfreyja á Hafnarhólmi, f. á Hellu í Steingrímsfirði Magnús Kristjánsson bóndi og hafnsögumaður á Hafnarhólmi í Steingrímsfirði Guðrún Pétursdóttir húsfreyja í Reykjavík, frá Engey Benedikt Sveinsson alþingismaður og forseti neðri deildar Alþingis Kristjana Benediktsdóttir húsfreyja í Reykjavík Lárus H. Blöndal bókavörður Alþingis Margrét Auðunsdóttir húsfreyja á Eyrarbakka, frá Svarthamri í Álftafirði Haraldur Blöndal ljósmyndari á Eyrarbakka Ætt Péturs Blöndal Halldór Blöndal fv. ráðherra og forseti Alþingis Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÓKEI. ÉG SKAL SÆKJA ÞIG EFTIR 25 ÁR. KLUKKAN HVAÐ Á ÉG AÐ KOMA?“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að eiga svo margt sameiginlegt. JÓN ER EKKI FULLKOMINN … EN HANN ER FRÁBÆR KODDI VEISTU HVAÐ ÉG GERÐI Í DAG? USSS… KODDAR TALA EKKI MÉR HEFUR VERIÐ HRÓSAÐ FYRIR AÐ TAKA VEL EFTIR! ÉG Á BÁGT MEÐ AÐ TRÚA ÞVÍ! Í ALVÖRU!? SKO, ÉG GET ENDURTEKIÐ ORÐRÉTT ALLT SEM HJÓNIN Á NÆSTA BORÐI VORU AÐ TALA UM! „ÞETTA TEKUR EKKI LANGAN TÍMA. VIÐ ERUM BARA MEÐ NOKKRAR SPURNINGAR.“ BLA! BLA! B LA! BLA! BLA! B LA! BLA! BLA!BLA! BLA! Hjálmar Jónsson orti undir um- ræðum á alþingi á miðviku- daginn um stefnuræðu rík- isstjórnarinnar: Á sjó dreginn sérhver raftur, mér sýnist í þinginu kraftur. Tekist er á, tuðað er smá og Tommi er sofnaður aftur. Helgi R. Einarsson skrifaði: „Eins og fleiri Íslendingar fylgd- ist ég með umræðunum á alþingi í gærkveldi og þar með varð þessi til“: Pirraðir píratar (út í allt og alla) Ef píratar stæðu í stafni við stjórnvöl (í frelsarans nafni) til tevatnsins fyndum í fjölbreyttum myndum. Er furða þótt sumir þeim hafni? Á miðvikudag skrifar Ingólfur Ómar: „Mér datt í hug að lauma að þér einu erindi sem ég kalla vetrarfegurð. Í morgun var him- inninn roðagylltur og fallegt um að litast og svo lét sú gula sjá sig og ekki er hægt að biðja um meira á svo fallegum degi þó að kalt sé“: Skýin ofin gullnum glæðum geislar dansa á mjallarbreiðum. Fjöllin skarta hvítum klæðum kuli blæs af frosnum heiðum. Hátt rís jökulbungan breiða böðuð morgunsólareldi. Huga minn og hjarta seiða heiðríkjunnar töfraveldi. Guðmundur Arnfinnsson yrkir „vetrarvísu“ í Boðnarmjöð: Frjósa lindir, sortnar sól, svipt er yndi gæða, fjallatindar klæðast kjól, kaldir vindar næða. Jón Gissurarson skrifar: „Nú blæs hér útsynningur af sunn- anátt 13-22 m sek., tveggja gráðu frost er á mæli. Umhleypingatíð hefur verið hér að undanförnu og nokkur snjór er á jörð. Hagar eru nú óðum að spillast fyrir hross í útigangi. Góð beitarjörð hefur verið fyrir þau fram undir þetta, en nú er komið að því að færa þeim heytuggu: Meðan ekki sjáum sól signa himinhvelin. Yfir lægðir laut og hól leggur hríðarélin. Enn er komin ísahrönn yfir þúfnakollum Þá er einnig frost og fönn og freraskán á pollum.“ Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af stefnuræðu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.