Morgunblaðið - 06.12.2021, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 06.12.2021, Qupperneq 27
ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 6. DESEMBER 2021 FIMLEIKAR Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.is Kvennalandslið Íslands í hópfim- leikum varð á laugardag Evrópu- meistari eftir hnífjafna baráttu við landslið Svíþjóðar í úrslitunum á Evrópumeistaramótinu í Guimaraes í Portúgal. Ísland fékk 57.250 stig í heildar- einkunn, nákvæmlega jafnmörg stig og Svíþjóð en íslenska liðið stóð uppi sem sigurvegari eftir að hafa unnið fleiri greinar. Ísland vann tvær af þremur greinum, gólfæfingar og trampólín, en Svíþjóð vann á dýnu. Íslenska kvennalandsliðið varð síð- ast Evrópumeistari árið 2012 og fyrst árið 2010 þegar Gerpla keppti fyrir Íslands hönd. Á þremur síðustu Evrópumeistaramótum síðan 2012 hafa Svíar skákað Íslandi og staðið uppi sem sigurvegarar. „Þetta er bara frábær tilfinning. Maður á svolítið erfitt með að trúa þessu ennþá og finnur það alveg að það er svolítið spennufall í hópnum. Ég held að við verðum bara næstu daga að ná okkur niður, þetta var svo mikil spenna. Síðustu ár hefur bara verið 0,1 stigs munur þannig að við vissum alveg að þetta yrði hörku- keppni. Þessi lið eru greinilega alveg hnífjöfn eins og sást á stigunum en við unnum bæði áhöldin og það skil- aði okkur sigri,“ sagði Hekla Mist Valgeirsdóttir, einn liðsmanna ís- lenska landsliðsins, í samtali við Morgunblaðið. Sterk liðsheild skóp sigurinn Beðin um að meta hvað hafi helst skapað sigurinn sagði hún: „Ég tel að Ísland og Svíþjóð séu svipað góð lið en þetta snýst allt um að eiga sem bestan dag. Að sýna góða frammi- stöðu þar sem við þurfum að negla allar lendingar og negla öll stökkin á réttum tíma á þessum degi. Við vor- um búnar að gera nánast gallalaust trampólín og svo gerðum við geggj- aðan dans. Við áttum bara dýnuna eftir og eins og hefur komið fram lenti Andrea Sif [Pétursdóttir fyrir- liði] okkar í því óhappi að slíta hásin í næstsíðustu umferðinni á dýnunni. Þá hefði getað komið eitthvert pa- nikk en við erum með svo sterkt lið, sterka liðsheild, að næsta stúlka hoppaði bara inn og við negldum síð- ustu umferðina. Ég held að það hafi skilað okkur sigrinum.“ Ísland og Svíþjóð hafa verið í sér- flokki undanfarin ár í hópfimleikum kvenna. Hefur rígur myndast á milli liðanna? „Ég held að það sé svona lúmskur rígur á milli okkar. Þetta hefur verið svo jafnt síðustu ár og það er svo mikið keppnisskap í báð- um liðum að augljóslega myndast svona smá rígur en ekkert alvarlegt. Bæði lið vilja auðvitað standa sig vel og bæði lið vilja þetta jafn mikið,“ sagði Hekla. Minna en ár í næsta EM Hún benti á að mun styttra væri í næsta mót en venjan er þar sem mótið um helgina átti upphaflega að fara fram í apríl 2020 en var frestað vegna kórónuveirufaraldursins. „Það er stutt í næsta Evrópu- meistaramót. Venjulega eru tvö ár á milli en næsta mót er í september á næsta ári. Íslenska tímabilið fer að byrja í janúar þannig að við fáum ekki mikla pásu. Við byrjum þá að æfa með félagsliðunum okkar og svo taka aftur við æfingar með landslið- inu. Líklegast verður bara sami kjarni í landsliðinu af því að það er svo stutt í þetta,“ sagði Hekla og bætti við að stefnan væri sett á að verja titilinn. „Að sjálfsögðu, við stefnum alltaf á það,“ sagði hún að lokum í samtali við Morgunblaðið. Ísland er Evrópumeistari Ljósmynd/Fimleikasamband Íslands Evrópumeistarar Mikill fögnuður braust út hjá kvennalandsliði Íslands í hópfimleikum þegar Evrópumeistaratitillinn var í höfn á laugardaginn. - Þriðji titillinn í höfn í Portúgal - Hnífjöfn keppni við sænska liðið Þá hafnaði Veigar Hrafn Sigurþórsson í fjórða sæti í 400 m fjórsundi karla, Freyja Birkisdóttir varð fjórða í 800 m skriðsundi kvenna og Símon Elías Stat- kevicius hafnaði í fjórða sæti í 50 m flugsundi karla. _ Knattspyrnumaðurinn Jóhann Árni Gunnarsson er að ganga til liðs við Stjörnuna. Það var fótbolti.net sem greindi frá þessu en Jóhann Árni, sem er tvítugur, er uppalinn hjá Fjölni í Graf- arvogi og hefur leikið með félaginu allan sinn feril. Hann skoraði níu mörk í 20 leikjum með Fjölnismönnum í 1. deildinni síðasta sumar en alls á hann að baki 20 leiki í efstu deild þar sem hann hefur skorað fjögur mörk. Þá á hann að baki 19 landsleiki fyrir yngri landslið Íslands. _ Drífa Harðar- dóttir og Elsa Niel- sen urðu á laug- ardaginn heimsmeistarar í tvíliðaleik í bad- minton í aldurs- flokknum 40 ára og eldri en mótið fór fram í Huelva á Spáni. Drífa og Elsa mættu pari frá Suður-Kóreu í úrslitum í tvíliða- leiknum og höfðu þær betur í tveimur hrinum; 23:21 og 21:8. Drífa fagnaði einnig sigri í tvenndarleik á mótinu fyrr um daginn ásamt meðspilara sín- um Jesper Thomsen frá Danmörku en þau lögðu par frá Englandi í úrslitum; 21:19 og 21:10. _ Íslenska karlalandsliðið í hópfim- leikum hafnaði í öðru sæti á Evrópu- meistaramótinu sem fram fór í Guim- ares í Portúgal. Ísland lauk keppni með 56,475 stig en þetta var í fyrsta sinn síðan árið 2010 sem Ísland sendir karlalandslið til keppni í fullorðins- flokki. Svíar fögnuðu öruggum sigri með 61,350 stig og Bretar höfnuðu í þriðja sæti með 56,000 stig. Íslenska liðið fékk 19,950 stig fyrir stökkæfingar sínar en þar fór Helgi Laxdal Aðal- geirsson fremstur í flokki þar sem hann framkvæmdi stökk sem ekki hefur áður sést á Evrópumóti. _ Camilla Herrem var markahæst í norska kvennalandsliðinu í handknatt- leik með sex mörk þegar liðið vann 41:9-stórsigur gegn Íran í C-riðli heimsmeistara- mótsins sem fram fer á Spáni í gær. Staðan í hálfleik var 22:3, Noregi í vil, en Emilie Hov- den var næst- markahæst í norska liðinu með fimm mörk. Norð- menn eru með fullt hús stiga eða fjögur stig eftir fyrstu tvo leiki sína í efsta sæti riðilsins en Þórir Hergeirsson er þjálfari liðsins. Rúmenía er einnig með 4 stig í öðru sæti riðilsins en Noregur og Rúmenía mætast í hreinum úrslita- leik um efsta sæti riðilsins í lokaumferð riðlakeppninnar á morgun. Fred tryggði Manchester United 1:0-sigur gegn Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu þegar liðin mættust í Manchester í 15. umferð deildarinnar í gær en þetta var fyrsti leikur liðsins undir stjórn þýska stjórans Ralf Rang- nicks. _ Þá skoraði Divock Origi sigur- mark Liverpool í uppbótartíma gegn Wolves í Wolverhamton þegar liðið mættust á laugardag en leikn- um lauk með 1:0-sigri Liverpool. _ Arthur Masuaku tryggði West Ham óvænt 3:2-sigur gegn Chelsea þegar liðin mættust í Lundúnum en Masuaku skoraði sigurmarkið á 87. mínútu. _ Þá tyllti Manchester City sér á toppinn í deildinni með öruggum 3:1-sigri gegn Watford í Watford þar sem Bernardo Silva skoraði tví- vegis í leiknum. City er með 35 stig í efsta sætinu, Liverpool kemur þar á eftir með 34 stig og Chelsea er með 33 stig. Stýrði United til sigurs í sínum fyrsta leik AFP Old Trafford Cristiano Ronaldo og Ralf Rangnick takast í hendur eftir sig- urinn í gær en United er nú með 24 stig í sjötta sæti úrvalsdeildarinnar. Óðinn Þór Ríkarðsson átti sannkall- aðan stórleik fyrir KA og skoraði fjórtán mörk þegar liðið vann 31:29- sigur gegn Gróttu í úrvalsdeild karla í handknattleik, Olísdeildinni, í KA- heimilinu á Akureyri í elleftu umferð deildarinnar í gær. Lúðvík Berg- mann Arnkelsson var markahæstur í liði Seltirninga með sex mörk. _ Þá vann Stjarnan eins marks sigur gegn Víkingi þegar liðin mætt- ust í Víkinni í Fossvogi en leiknum lauk með 31:30-sigri Stjörnunnar. Hafþór Már Vignisson og Leó Snær Pétursson voru markahæstir Garðbæinga með sjö mörk hvor. Arnar Steinn Arnarsson skoraði sex mörk fyrir Víkinga. _ Alexander Már Egan var markahæstur Selfyssinga með sex mörk þegar liðið gerði góða ferð í Origo-höllina á Hlíðarenda og lagði Íslands- og bikarmeistara Vals með tveggja marka mun, 28:26. Vilius Rasimas varði fjórtán skot í marki Selfyssinga en Finnur Ingi Stef- ánsson skoraði sex mörk fyrir Val. _ Einar Bragi Aðalsteinsson fór á kostum í liði HK þegar liðið gerði 39:39-jafntefli gegn ÍBV í Vest- mannaeyjum en Einar Bragi skoraði sextán mörk í leiknum. Kári Kristján Kristjánsson og Dagur Arnarsson voru markahæstir Eyjamanna með sex mörk hvor. _ Vilhelm Poulsen gerði sér lítið fyrir og skoraði tólf mörk fyrir Fram þegar liðið gerði 27:27- jafntefli gegn Aftureldingu í Fram- húsi í Safamýri. Guðmundur Bragi Ástþórsson og Þrándur Gíslason Roth skoruðu sex mörk hvor fyrir Aftureldingu. Skoraði tæplega helm- ing marka Akureyringa Ljósmynd/Þórir Tryggvason 14 Óðinn Þór Ríkarðsson fór á kost- um gegn Gróttu í KA-heimilinu. Olísdeild karla ÍBV – HK .............................................. 39:39 Valur – Selfoss ...................................... 26:28 Fram – Afturelding.............................. 27:27 Víkingur – Stjarnan ............................. 30:31 KA – Grótta........................................... 31:29 Staðan: FH 11 8 1 2 312:277 17 Haukar 11 7 2 2 325:292 16 ÍBV 11 7 1 3 340:332 15 Stjarnan 11 7 1 3 330:323 15 Valur 10 6 2 2 287:256 14 Selfoss 11 6 0 5 286:280 12 Afturelding 11 4 3 4 316:309 11 Fram 10 4 2 4 280:282 10 KA 11 4 0 7 303:323 8 Grótta 10 3 1 6 269:276 7 Víkingur 11 1 0 10 248:311 2 HK 10 0 1 9 259:294 1 Grill 66-deild karla Valur U – Fjölnir .................................. 29:38 Selfoss U – Þór Ak. .............................. 24:25 Haukar U – Berserkir.......................... 29:20 Olísdeild kvenna Valur – HK............................................ 18:17 Stjarnan – KA/Þór ............................... 27:20 Fram – Haukar..................................... 24:22 Staðan: Valur 9 8 0 1 254:193 16 Fram 9 7 1 1 241:220 15 KA/Þór 8 5 1 2 218:208 11 Haukar 9 4 1 4 242:239 9 HK 9 3 1 5 207:217 7 Stjarnan 9 3 0 6 218:235 6 ÍBV 7 2 0 5 180:183 4 Afturelding 8 0 0 8 165:230 0 Grill 66-deild kvenna Valur U – Fjölnir/Fylkir...................... 28:25 HK U – Fram U.................................... 35:32 Selfoss – Víkingur ................................ 29:21 Evrópubikar karla 32-liða úrslit, seinni leikir: Haukar – Focsani ................................. 27:26 _ Focsani vann 54:53 samanlagt. Dukla Prag – Drammen ..................... 30:33 - Óskar Ólafsson skoraði ekki fyrir Dram- men. _ Drammen vann 61:59 samanlagt. Þýskaland B-deild: Aue – Hagen......................................... 31:32 - Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði 6 mörk fyrir Aue. Sveinbjörn Pétursson varði 10 skot í marki liðsins. Pólland Piotrków – Kielce................................ 32:38 - Haukur Þrastarson skoraði 4 mörk fyrir Kielce og Sigvaldi Björn Guðjónsson 1. Noregur Runar – Elverum ................................. 28:31 - Orri Freyr Þorkelsson skoraði 8 mörk fyrir Elverum. Svíþjóð Guif – IFK Ystad.................................. 35:30 - Daníel Ágústsson varði 14 skot í marki Guif, Aron Dagur Pálsson skoraði ekki. %$.62)0-# Subway-deild karla Breiðablik – Þór Ak............................ 122:94 Grindavík – Stjarnan............................ 92:88 Staðan: Keflavík 8 7 1 714:654 14 Grindavík 8 6 2 672:639 12 Þór Þ. 8 6 2 762:718 12 Tindastóll 8 6 2 702:666 12 Njarðvík 8 5 3 751:678 10 Valur 8 5 3 634:628 10 KR 8 4 4 739:745 8 Stjarnan 8 3 5 708:701 6 Breiðablik 8 2 6 860:855 4 Vestri 8 2 6 642:700 4 ÍR 8 2 6 709:750 4 Þór Ak. 8 0 8 589:748 0 Subway-deild kvenna Fjölnir – Haukar .................................. 77:59 Breiðablik – Skallagrímur ................... 81:74 Grindavík – Keflavík ............................ 84:72 Valur – Njarðvík................................... 60:69 Staðan: Njarðvík 11 9 2 768:644 18 Fjölnir 11 8 3 885:799 16 Valur 10 7 3 805:686 14 Keflavík 10 6 4 827:740 12 Haukar 7 4 3 499:418 8 Grindavík 11 4 7 806:882 8 Breiðablik 10 2 8 698:795 4 Skallagrímur 10 0 10 548:872 0 1. deild kvenna Snæfell – Fjölnir B............................... 71:57 Stjarnan – Aþena.................................. 62:73 ÍR – Þór Ak. .......................................... 68:58 KR – Hamar-Þór .................................. 81:67 Tindastóll – Ármann ............................ 64:75 Rúmenía Arad – Phoenix Constanta ................. 68:67 - Sara Rún Hinriksdóttir skoraði 12 stig fyrir Phoenix Constanta, tók níu fráköst og gaf eina stoðsendingu á 35 mínútum. 4"5'*2)0-#

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.