Morgunblaðið - 31.12.2021, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 31.12.2021, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 31.12. 2021 Þeir sem hafa atvinnu af því að ræða við rithöf- unda rekast snemma á það að margir þeirra vilja sem minnst segja um inntak bóka sinna, svara því til aðspurðir að það sé höfundarins að skrifa, en lesandans að skilja. Það er og eðli lesturs að hver skilur á sinn hátt, lifir sig inn í atburðarás eða hugarheim sögupersóna eftir eigin upplifun eða þroska, og fyrir vikið er endalaust hægt að ræða um bækur við aðra lesendur. Það er svo aftur annað mál hvort ályktanir og greining lesanda á skáldverki rími við ætlun eða tilgang höfundarins með skrif- unum, ef það er þá einhver ætlun eða tilgangur á bak við verkið yfirleitt. Orð ársins Slaufunarmenning hefur það verið kallað þeg- ar þolendur kynferðisofbeldis hafa stigið fram og kallað eftir því að gerendur sæti ábyrgð, taki við skömminni sem hvílt hefur á þoland- anum, stundum í áratugi. Umræða um slauf- unarmenningu hefur verið lífleg á árinu, má jafnvel halda því fram að slaufunarmenning sé orð ársins, sama hvað mönnum finnst um fyrirbærið almennt, meira að segja þótt ein- hverjum finnist það ekki vera til. Annað sem einkennt hefur árið er umræða um bólusetningar, sem tvinnast stundum við slaufunarmenningarumræðu, enda eru í hópi bólusetningarefasemdarmanna sumir sem ganga svo langt í gagnrýni á þær að þeir grípa til gyðingahaturs til að verja skoðanir sínar. Þeir sem fjalla um bókmenntir, ég þar með- talinn, segja oft að þessi eða hin bókin sé skrif- uð inn í samtímann eða eigi erindi við hann. Yfirleitt er þá vísað í að viðkomandi bók megi túlka sem svar við aðstæðum, viðburðum, um- ræðu eða ágreiningi sem uppi er í samtím- anum, að bókin taki á einhverju deilumáli og kryfji það, greini eða sýni í nýju ljósi. Víst eru þannig bækur til, en líklegast að í flestum til- fellum séum við að máta okkar eigin væntingar og skoðanir við verkið. Öll sú iðja sem byggist á því að kafa í skáldverk, greina þau og skýra, oftla með akademísku fimbulfambi, er nefni- lega eins og hver annar samkvæmisleikur. Tvær afbragðs skáldsögur komu út á þessu ári sem mörgum hefur fundist taka á ofan- greindum deilumálum, slaufunarmenningu og bólusetningardeilum, Einlægur Önd heitir önnur, skrifuð af Eiríki Erni Norðdahl, hin Merking eftir Fríðu Ísberg. Venjulegt brotið fólk Í sem stystu máli má rekja söguþráð bókar Fríðu svo að hún gerist í Reykjavík á ótil- greindum tíma í framtíðinni. Í kjölfar þess að þjóðin missir tiltrú á Alþingi eftir stóran gagnaleka stingur einhver upp á því að þing- menn gangist undir próf sem nýtt er í geð- heilbrigðiskerfinu, en með því megi afsanna klíníska siðblindu þingmanna. Með tímanum verður það síðan smám saman viðurkennt að gangast undir prófið, almenningi er boðið að taka það endurgjaldslaust og þau sem mæl- ast undir viðmiði fá viðeigandi meðferð. Þau sem ná lágmarksviðmiði eru síðan skráð í sérstakan opinberan kladda og smám saman gerist það sem búast mátti við: Þau sem ekki ná viðmiðinu, aðallega ungir karlmenn, verða jaðarsett, fá ekki lán, geta ekki leigt húsnæði, fá ekki afgreiðslu í verslunum og svo má telja. Atburðir sögunnar gerast þegar fram undan er þjóðaratkvæðagreiðsla um frumvarp um skyldumerkingu. Mjög er deilt um það frum- varp; andstæðingar þess telja að verði það samþykkt muni jaðarsetning þeirra sem ná ekki viðmiðinu aukast, en einnig þeirra sem vilja ekki taka prófið fyrir einhverjar sakir. Þeir sem berjast fyrir samþykkt þess telja aft- ur á móti að verði það samþykkt muni merk- ingin bjarga „venjulegu fólki frá brotnu fólki“ og að þeir sem standast ekki viðmiðið, „brotna fólkið“, muni þá flytja úr landi eða fara í með- ferð – í þeirra augum er ekki rétt að segja fólk siðblint, það sé með siðraskanir sem séu með- höndlanlegar. Á upplestrarkvöldi Vinstri-grænna í Hafn- arfirði á dögunum ræddi Fríða um það hve henni hefði þótt sérkennilegt að rekast á það á Facebook að einhverjir andstæðingar bólu- setninga tengdu Merkingu þeirri umræðu að fólk þyrfti að bera bólusetningarvottorð. Undrun hennar stafaði ekki síst af því að hún byrjaði á bókinni löngu fyrir Covid, en líka því að hún var að skrifa um tilteknar vangaveltur um samfélag sem væri drifið áfram af sam- kennd. Í viðtali við Sjónvarpið sagðist hún hafa velt fyrir sér því óþoli yngra fólks fyrir for- dómum og mismunun sem það eldra sæi kannski í gegnum fingur sér með. „Ég held að ungt fólk sé alltaf meira hugsjónadrifið og það er rosa áhugavert að skoða þennan núning í dag, hvernig mín kynslóð bara ákveður að vondar skoðanir eigi ekki að líðast og eldri kynslóðin segir að það verði að vera eitthvert grátt svæði, að við verðum að geta talað saman án þess að það fari allt í bál og brand.“ Ibaka í Arbítreu Bók Eiríks Arnar segir frá rithöfundinum Ei- ríki Erni Norðdahl sem missir æruna vegna bókar sem hann skrifar um transpersónuna Hans Blæ sem er „óferjandi illmenni og net- tröll“. Í stað þess að skilja bókina eins og hann ætlaði skilur fólk hana á sinn hátt og flestir á versta veg. Fyrir vikið missir Eiríkur æruna, skilur við konuna og hrökklast í risíbúð þar sem hann kennir ritlist á netinu. Meðfram ritlistarkennslunni skrifar Eiríkur sögu af lektor í ritlist, Felix Ibaka, sem býr í borginni Angri í Arbítreu og er líka rithöf- undur, „óf texta sinn þannig að manni var stöð- ugt ljóst hvað væri satt og hvað ekki“, enda er allt sem skrifað er í Arbítreu annaðhvort skáldskapur, fræði eða hugleiðingar almenns eðlis. Felix kemst að því eitt sinn þegar hann dregur fram handrit sem hann var rétt byrj- aður á að hann er búinn með bókina sem hann var rétt byrjaður á, í handritinu, Skrúði lauf- anna, eru langir kaflar sem hann kannast ekki við að hafa skrifað, sem veldur honum eðlilega hugarangri: „Örvæntingin sem greip hann gerði það samt ekki vegna þess að hann væri búinn að skrifa bókina heldur einmitt vegna þess að hann hafði ekki gert það – að minnsta kosti ekki í þeim skilningi sem skipti máli.“ Svo vill til að Flórensía Lilleputt, eiginkona Felix Ibaka og móðir Hortensíu, svipti sig lífi vegna framkomu hans við hana og Felix hefur fengið að kenna á hneykslun samborgara sinna, enda lýtur smánun reglum í Arbrítreu og þykir ósiðlegt að halda aftur af vanþóknun sinni. Menn eru þannig minntir á skömmina daglega með því að fólk leggur múrsteina utan við heimili þeirra eða á vinnustað, og sá sem fyrir smáninni verður skilar múrsteinunum á fyrirframákveðinn stað, svo fólk geti sótt sér steina til að hefja smánun næsta dags. Í ljósi umræðu ársins um slaufunarmenn- ingu, og metoo-umræðu reyndar líka, kemur varla á óvart að ýmsir hafi viljað tengja bók Eiríks við þau fyrirbæri, þótt það hafi verið á ýmsan veg. Gagnrýnendur Sjónvarpsins voru til að mynda ekki á sama máli hvað þetta varð- ar, en aðrir gagnrýnendur töldu svo vera, jafn- vel að bókin snerist að mestu leyti um það efni. Af ofangreindri samantekt um söguþráðinn í bók Eiríks, sem er þó langt í frá að vera tæmandi, sést kannski að Eiríkur taldi sig vera að skrifa um aðra hluti, eins og hann rakti í fésbókarfærslu fyrir stuttu: „ Þetta ný- stárlega ástand sem við köllum slauf- unarmenningu er hvergi nefnt í bókinni og raunar lögð töluverð áhersla á að kúltúr smánar og skammar sé alls ekki nýr – það er bókstaflega sögulegt yfirlit yfir hann í bók- inni,“ segir Eiríkur, en sögulega yfirlitið er að finna í Skrúði laufanna. Í bók sinni nefnir Eiríkur aldrei slaufunar- menningu, frekar það að í stað þess að þol- endur þurfi að þola smánun og skömm er ger- endum nú slaufað vegna hegðunar sinnar og framkomu. „Hversu mikið má einstaklingur brjóta af sér áður en okkur fer að „finnast“ viðkomandi vera viðbjóður? [...] og hversu syndugur þarf hann að vera til þess að við för- um að vara aðra við að eiga saman við hann að sælda? Því þegar okkur svo finnst hann vera viðbjóður langar okkur kannski ekkert að hlusta á það sem hann hefur að segja.“ (Dóttir Felix Ibaka, Hortensía, er líka að skrifa bók, myndasögu, sem gerist á Altrúís- eyri, þar sem íbúarnir hjálpast að: „Þeir sem minna mega sín mega sín alls ekki minna á Altrúíseyri, því þar standa allir saman.“ Saga um samfélag sem er drifið áfram af samkennd, eins og í Merkingu. Með prinsi sem er útskúf- að fyrir ruddaskap og slæma hegðun. Eins og í Eilífur Önd. Með fyrirvara.) Fríða Ísberg hugðist skrifa um samfélag sem væri drifið áfram af samkennd. Eiríkur Örn Norðdahl skrifar um einhvers konar samfélagslega úrskurði um útskúfun. Morgunblaðið/Golli Hvör fugl sýngr með sínu nefi Samfélagsleg umræða, atburðir, ágreiningur eða áskoranir rata oft í skáldverk og sumar bækur tala þannig inn í samtím- ann. Svo var með nýjar skáldsögur Fríðu Ísberg og Eiríks Arnar Norðdahl, Merkingu og Einlægur Önd. Eða kannski ekki. ÁRNI MATTHÍASSON hefur starfað á Morgunblaðinu frá árinu 1981. Hann skrifar um tónlist, bókmenntir, tölvur og tækni og er nú netstjóri mbl.is. Öll sú iðja sem byggist á því að kafa í skáldverk, greina þau og skýra, oftla með akademísku fimbulfambi, er nefnilega eins og hver annar samkvæmisleikur. TÍMAMÓT: TVÆR BÆKUR TALA INN Í TÍÐARANDA SLAUFUNARMENNINGAR OG BÓLUSETNINGARDEILNA ’’
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.