Morgunblaðið - 31.12.2021, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 31.12.2021, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 31.12. 2021 Þrjú af þeim átta liðum sem berjast um Evr- ópumeistaratitil kvenna í fótbolta á komandi vormánuðum eru með íslenskar landsliðs- konur í sínum röðum. Þetta segir meira en mörg orð um stöðu íslenskra knattspyrnu- kvenna á heimsvísu í íþróttinni. Segja má að sprenging hafi orðið í „útflutn- ingi“ á íslenskum knattspyrnukonum til er- lendra atvinnuliða undanfarin tvö ár. Árið 2018 léku fjórtán íslenskar konur með erlend- um liðum. Árið 2019 voru þær átján en nú í árslok 2021 eru þær þrjátíu talsins. Öflug yngri kynslóð Þetta hefur komið íslenska landsliðinu til góða. Af 24 landsliðskonum sem komu við sögu í leikjum Íslands í undankeppni heims- meistaramótsins á síðustu mánuðum ársins leika sextán með erlendum atvinnuliðum. Í byrjunarliði íslenska liðsins í haust voru jafn- an níu eða tíu atvinnukonur í íþróttinni. Um leið hefur yngri kynslóð leikmanna látið verulega að sér kveða síðustu tvö árin. Stúlk- ur um tvítugt eins og Sveindís Jane Jóns- dóttir, Alexandra Jóhannsdóttir og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir hafa komið með ferskan blæ inn í liðið, fest sig þar í sessi á skömmum tíma og breytt spilamennsku þess umtalsvert. Eldri og reyndari leikmenn eins og Dagný Brynjarsdóttir, Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir og Glódís Perla Viggósdóttir (sem er reyndar aðeins 26 ára) hafa notið góðs af því að fá þessar öflugu stúlkur við hliðina á sér. Á skömmum tíma hefur íslenska liðið breyst frá því að vera í vandræðum með að halda bolta lengi innan liðsins og treyst frekar á kraftinn og föstu leikatriðin, í það að vera af- bragðsvel spilandi og hættulegur andstæð- ingur hverjum sem er. Á þessu ári hefur burðarás liðsins og fyrir- liði, Sara Björk Gunnarsdóttir, verið í barn- eignarfríi, en skarð hennar hefur verið fyllt betur en búast mátti við og Sara er nú komin í kapphlaup við tímann um að ná fyrri styrk og stöðu í tæka tíð fyrir Evrópukeppnina á Eng- landi næsta sumar. Átta liða úrslit EM árið 1994 En það er ekkert nýtt að Ísland sé framarlega í flokki meðal þjóða Evrópu og heimsins þegar kemur að knattspyrnu í kvennaflokki. Ísland var með í undankeppni fyrsta Evrópumótsins og lék sína fyrstu mótsleiki á árunum 1982- 1983 og var ein af aðeins sextán þjóðum sem þá tóku þátt. Bakslag kom í landsliðsmálin þegar kvennalandsliðið var lagt niður um skeið vegna fjárskorts KSÍ en strax eftir end- urreisnina sló íslenska landsliðið í gegn árið 1994 með því að komast í átta liða úrslit Evr- ópumótsins. Árangur sem oft hefur gleymst í seinni tíð en þarna voru upp á sitt besta braut- ryðjendur eins og Ásta B. Gunnlaugsdóttir, Vanda Sigurgeirsdóttir og Auður Skúladóttir og ungar og bráðefnilegar stúlkur eins og Ást- hildur Helgadóttir, Olga Færseth, Margrét Ólafsdóttir og Katrín Jónsdóttir. Ísland vann sinn riðil í undankeppninni, sigraði m.a. Holland tvisvar, og tapaði tvisvar naumlega fyrir Englandi í átta liða úrslit- unum. Liðið var ótrúlega nálægt því að kom- ast í undanúrslit. Þetta heitir ekki að standa í stað Þetta afrek hefur íslenska kvennalandsliðið aðeins einu sinni leikið eftir. Það var á EM í Svíþjóð árið 2013 þegar Ísland komst í átta liða úrslit með því að sigra Holland og gera jafntefli við Noreg. En það var langur vegur frá 1994 til 2013, hvað þá til ársins 2021 þar sem Ísland er á leið í lokakeppni EM næsta sumar og stefnir á að komast í átta liða úrslit þrátt fyrir að vera í riðli með stóru fótboltaþjóðunum Frakklandi, Ítalíu og Belgíu. Landslagið í kvennafótbolta hefur breyst gríðarlega á þessum 27 árum. Það sem ekki hefur breyst er að Ísland á ennþá eitt af tíu til tólf bestu landsliðum Evr- ópu og eitt af fimmtán til sautján bestu lands- liðum heims, samkvæmt heimslista. Og í kvennafótbolta heitir það ekki að standa í stað. Mesti vaxtarbroddurinn í íþróttinni Árið 1994 var Austur-Evrópa varla byrjuð að taka þátt í mótum í kvennaflokki og öflugar knattspyrnuþjóðir í vesturhluta álfunnar tóku kvennafótbolta heldur ekki mjög alvarlega. Núna hefur umhverfið gjörbreyst, mesti vaxtarbroddur knattspyrnuíþróttarinnar á heimsvísu er stóraukin þátttaka og framfarir stúlkna og kvenna, og íslenska landsliðið hefur fengið meiri og meiri samkeppni frá ári til árs frá stórum þjóðum sem hafa tekið miklum framförum. Það er því eftirtektarverður árangur að Ísland skuli í dag vera á sömu slóðum á styrkleikalistum Evrópu og heimsins og fyrir aldarfjórðungi og það segir sitt um hvernig staðið hefur verið að uppbyggingunni hér á landi. Þurfa að fara í sterk erlend lið Við þekkjum vel úr karlafótboltanum að um leið og ungir íslenskir leikmenn sýna hæfileika eru þeir komnir á samning hjá erlendum at- vinnuliðum. Þar er talið stórt skref að komast að hjá miðlungsliðum á Norðurlöndum og ná svo kannski þaðan yfir í þokkalegt lið annars staðar í vesturhluta Evrópu. Þetta er allt öðruvísi hjá stúlkunum. Ísland er það framarlega í flokki að íslenska úrvals- deildin er í um það bil tólfta sæti yfir bestu deildir í Evrópu. Ætli íslenskar landsliðs- konur eða stúlkur í yngri landsliðunum að taka skref upp á við koma ekki mörg lönd eða deildir til greina. Leikmenn sem fara frá Val og Breiðabliki um þessar mundir þurfa helst að komast að hjá góðum liðum í Þýskalandi, Frakklandi, Englandi, Spáni eða Svíþjóð til að það teljist skref í rétta átt. Framarlega í Meistaradeildinni Mikið hefur verið fjallað um þann áfanga Breiðabliks að komast í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar í haust og leika þar með fyrst íslenskra liða í riðlakeppni Evrópumóts. Án þess að á nokkurn hátt sé dregið úr afreki Kópavogsliðsins er þetta ekkert nýtt. Valur komst í átta liða úrslit 2005 og Breiðablik 2006. Stjarnan komst í sextán liða úrslit 2016 og Breiðablik 2019. En riðlakeppnin er nýtt fyrirbæri í kvenna- flokki og gríðarlega stórt skref fyrir framgang kvennafótboltans í Evrópu með nýjum tekju- möguleikum. Þar komum við aftur að styrk ís- lensku úrvalsdeildarinnar. Þegar Meist- aradeildin var stækkuð fyrir yfirstandandi tímabil var Ísland ein af sextán þjóðum sem fengu að senda fleiri en eitt lið í keppnina. Ís- land er í tólfta sæti á styrkleikalista UEFA fyrir félagslið kvenna og þar með voru bæði Breiðablik og Valur með í keppninni í ár. Og verða þar aftur bæði á næsta ári. Þótt upp- skera Breiðabliks hafi aðeins verið eitt stig í riðlakeppninni vann liðið þrjá leiki og gerði eitt jafntefli í fyrstu umferðunum og krækti sér þar í mikilvæg stig sem halda því á góðum stað á styrkleikalistanum. Valur vann líka einn leik og tapaði einum og bætti sína stöðu með því. Stóru félögin komin í slaginn Á undanförnum árum hafa orðið miklar breyt- ingar í kvennafótboltanum í Evrópu á þann hátt að stóru félögin eru meira og minna öll búin að stofna kvennalið sem þau hafa sett talsvert fjármagn í. Þannig er Barcelona nú ríkjandi Evrópumeistari, aðeins örfáum árum eftir að liðið var stofnað. Real Madrid var í fyrsta skipti í Evrópukeppni í ár, Manchester United er nýkomið með lið í ensku úrvals- deildina. Í Noregi hafa stóru og rótgrónu fé- lögin smám saman yfirtekið minni félög sem voru í fremstu röð í kvennaflokki. Fyrir vikið er kvennafótboltinn orðinn mik- ið sýnilegri, fjármagnið hefur aukist, sem og umfjöllun. Evrópumótið í sumar verður án efa það stærsta og mest áberandi sinnar tegundar til þessa. Íslenska liðið verður þar í sviðsljós- inu, og verður þá vonandi búið að stíga enn stærra skref í átt að heimsmeistaramótinu sem fram fer í Eyjaálfu árið 2023. Dagný Brynjarsdóttir leikmaður West Ham og þýskur og bandarískur meistari er ein sú reyndasta í landsliðinu en Sveindís Jane Jónsdóttir frá Wolfsburg, Guðný Árnadóttir frá AC Milan og Alexandra Jóhannsdóttir frá Eintracht Frankfurt tilheyra yngri kynslóðinni. Morgunblaðið/Unnur Karen Þær bestu streyma úr landi Kvennalandsliðið í fótbolta hefur haldið sinni stöðu þrátt fyrir miklar framfarir annars staðar og er áfram eitt af tíu til tólf bestu liðum Evrópu. Þrjátíu íslenskar konur eru komnar í atvinnumennsku hjá erlendum félagsliðum VÍÐIR SIGURÐSSON hefur verið fréttastjóri íþróttafrétta á Morgunblaðinu og mbl.is frá 2008 og starfað hjá Árvakri frá 2000. Áður var hann íþróttafréttamaður hjá DV, Þjóðvilj- anum og Dagblaðinu. Leikmenn sem fara frá Val og Breiða- bliki um þessar mundir þurfa helst að komast að hjá góðum liðum í Þýskalandi, Frakklandi, Englandi, Spáni eða Svíþjóð til að það teljist skref í rétta átt. TÍMAMÓT: ÍSLENSKAR KNATTSPYRNUKONUR Í FREMSTU RÖÐ ’’
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.